Morgunblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 36
ÍLÝSINÍÍASÍMINN ER: 22480 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975 Borgarstjóri á blaðamannafundi: Engin annarleg sjónarmið að baki lóðaúthlutun til Armannsfells Birgir ísl. Gunnar- son, borgarstjóri, á blaðamannafundi í gær. Á fundinum voru mættir fulltrúar allra dagbiaðanna, hljóðvarps og sjón- varps. □ ---------------------------*---------- Sjá greinargerð borgarstjóra á bls. 16 og 17. n--------------------------------------- □ □ BIRGIR tsl. Gunnarsson, borgarstjóri, efndi til blaðamannafundar f gær, þar sem hann fjallaði um lóðaúthlutun þá til Ármannsfells hf., sem mjög hefur verið til umræðu á opinberum vettvangi að undan- förnu. Borgarstjóri hefur verið erlendis um skeið, fyrst f opinberum erindagjörðum en sfðan f sumarleyfi. Á blaðamannafundinum lagði borgarstjóri fram ftarlega greinargerð um lóðaúthlutun þessa og er hún birt f heild á bls. 16 og 17 f Morgunblaðinu f dag. Jafnframt svaraði borgarstjóri fyrirspurnum fréttamanna allra dagblaðanna, hljóðvarps og sjónvarps um lóðaúthlutunina, framlög byggingarfélags- ins til Sjálfstæðishússins og staðhæfingar, sem fram hafa komið um eignaraðild hans að Ármannsfelli sem er engin, og lýsti þvf jafn- framt yfir, að hann væri reiðubúinn til að fela sakadómi meðferð málsins, ef samstaða tækist ekki f borgarráði um nefndarskipan. Helztu atriði, sem fram koma f greinargerð borgarstjóra og f svörum hans á blaðamannafundinum eru þessi: % Ákvörðunin um úthlutun lóð- arinnar til Ármannsfells, sem byggist á auglýsingu eft- ir lóðaumsóknum f ársbyrj- un, er tekin á málefnalegum Margir teknir í grœna hliðinu „MIÐAÐ við það, sem ég bjóst við og hvað landinn' reynir ávallt að losna við að borga toll, þá verð ég að segja, að hið nýja fyrirkomulag, að hafa rautt hlið fyrir farþega með tollskyldan varning og grænt hlið fyrir þá, er hafa engan slfkan varning og taka sfðan stikkprufur, hefur reynzt mjög vel,“ sagði Friðrik Sig- fússon, yfirtollvörður á Kefla- vfkurflugvelli f samtali við Morgunblaðið f gær. Friðrik sagði, að hins vegar væri aldrei hægt að taka upp nýtt kerfi nema það ylli ein- hverjum særindum. Viðskipti tollvarða við farþega hefðu gengið vel þó svo að varningur hefði verið gerður upptækur og fólk hefði orðið að borga sektir. ToIIverðirnir hefðu heimild til að sekta fólk um allt að 20 þús. kr. á staðnum, en ef málið væri viðameira en það, væri það sent til æðri dómsvalda. Hann sagði, að nú þegar væri búið að taka þó nokkurn fjölda fólks, sem farið hefði í Framhald á bls. 35 grundvelli og án þess að ann- arleg sjónarmið liggi að baki. % Afstaða borgarstjóra og ákvarðanir f málinu eru teknar án vitundar um fjár- framlög byggingarfélagsins til Sjálfstæðishússins. % Eftir að gagnrýni hófst á lóða- úthiutunina spurðist borgar- stjóri fyrir um það hjá hús- byggingarnefnd Sjálfstæðis- hússins, hvort félagið hefði lagt fram fé til byggingar Sjálfstæðishússins og fékk staðfest, að Ármannsfell hefði lagt fram eina milljón króna f byrjun ársins 1975. 0 Borgarstjóri er sannfærður um, að stuðningur Álberts Guðmundssonar við þessa lóðaúthlutun er á engan hátt tengdur umræddu fjárfram- lagi. % Hvorki borgarstjóri, eigin- kona hans né nokkur á hans vegum á hlut f Ármannsfeili hf. # Fyrir u.þ.b. 10 árum er Birgir Isl. Gunnarsson rak lög- mannsskrifstofu f Reykjavfk og löngu áður en hann tók við embætti borgarstjóra eignaðist hann Iftinn hlut f Armannsfelli hf. sem greiðslu fyrir lögfræðistörf f sambandi við stofnun fyrir- tækisins en seldi þennan hlut nokkrum árum sfðar og frá þvf hann tók við embætti borgarstjóra hefur hann hvorki átt hlut f þessu félagi eða nokkru öðru, sem þarf á Framhald á bls. 20 Fríhöfnin: Seldi fyrir 130 millj.kr. í ágúst „SALA f Frfhöfninni á Keflavík- urflugvelli hefur verið mjög góð að undanförnu og f ágúst seldum við t.d. fyrir 130 mílljónir króna, sem er nýtt met“ sagði Ólafur Thordersen, frfhafnarstjóri, f samtali við Morgunblaðið f gær. Ólafur sagði, að salan í fríhöfn- inni hefði gengið vonum framar á þessu ári. Gert hefði verið ráð fyrir að hún drægist saman á þessu ári og svo hefði verið fyrri hluta ársins, bæði vegna færri farþega og minni fjárráða fólks. Hins vegar hefði orðið sú breyt- ing á síðari hluta ársins að aukn- ing hefði orðið í sölunni og ágúst- mánuðir hefði slegið öll fyrri met hvort sem talið væri í dollurum eða krónum. Hins vegar væri ekki hægt að neita því, að breyting hefði orðið að viðskiptamáta fólks. Sala f hinum dýrari vörum eins og t.d. myndavélum hefði minnkað, en aukizt í ódýrari hlut- um. Kvað Ólafur heildarsölu Frí- hafnarinnar hafa numið 435 millj- ónum króna á s.l. ári, en á þessu ári væri gert ráð fyrir 600 milljón kr. sölu og þessi aukning stafaði m.a. af gengisfellingum, en ef miðað væri við dollara, yrði salan að líkindum mjög svipuð og í fyrra. Norræna rithöfundasambandið: Hafnaði málaleitan formanns Rithöfundaráðs íslands □-----------------------------------□ Sjá eínnig svör nokkurra t—. fsl. rithöfunda á bls. 3. r- MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær samband við þrjá fulltrúa á árs- fundi Norræna rithöfundaráðs- ins, þá Hans Jörgen Lembourn, sem er formaður ráðsins, Per Olof Sundmann og Björn Nielsen, og spurði þá um erindi Sigurðar A. Magnússonar á fundinum, við- brögð við þvf að greinargerð Var- ins lands, sem lögð var fyrir fund- inn, eins og fram hefur komið af fréttum. Danski rithöfundurinn og þing- maðurinn Hans Jörgen Lembourn sagði: „Sigurður A. Magnússon fjall- aði um málaferlin vegna Varins lands og fór fram á, að Norræna rithöfundaráðið fordæmdi máls- höfðunina og lýsti yfir stuðningi sínum við þá, sem mál hafa verið höfðuð gegn. Skiptar skoðanir voru um málið meðal fundar- manna, en afstaða dönsku og finnsku fulltrúanna var eindregn- ust á móti því að gera slika sam- þykkt eða senda frá sér nokkra ályktun um málið. Umræður end- uðu með því að vísa málinu til stjórna hinna einstöku aðildar- samtaka í hverju landi og Iáta þær um að afgreiða það, hverja fyrir sig. Mörgum — þar á meðal mér — fannst þetta vera hreinpólitískt mál, sem ekki ætti erindi á þennan fund.“ Þess má geta, að Hans Jörgen Lembourn er einn helzti forystu- maður danskra rithöfunda og átti stærstan þátt í því að sameina þá á sínum tíma. Þá spurði Morgunblaðið sænska rithöfundinn og þingmanninn Per Olof Sundmann álits, og hafði hann þetta um málið að segja: „Eftir að hafa heyrt um málefni Varins lands verð ég nú að segja, að ég er steinhissa á því að ís- lenzkir stjórnmálamenn skuli vera svo tilfinningasamir og viðkvæmir, að þeir sjái sig knúna til að leita til dómstóla í svona málum. I Svíþjóð hitnar stundum í kolunum í stjórnmálaumræðum og þeir, sem taka þátt í þeim, mega eiga von á því að fá það stundum óþvegið. Sem stjórn- „ÉG ER ekki of bjartsýnn. Við vitum að Norðmenn, Skotar, Irar, Kanadamenn o.fl. sækja fast að komast inn á sfldarmarkaðinn hér f Rússlandi og bjóða langtum lægra verð fyrir sömu fituflokka og stærðarflokka en fslenzka sampinganefndin vill ganga að,“ sagði Gunnar Flóvenz fram- kvæmdastjóri Sfldarútvegsnefnd- ar f samtali við Morgunblaðið f gær, en hann var þá staddur f Moskvu ásamt samninganefnd Sfldarútvegsnefndar. Samninganefnd Síldarútvegs- nefndar kom til Moskvu á mánu- dag. Siðan hafa staðið yfir stanz- lausar viðræður um sölu á saltaðri síld, en sala til Sovétríkjanna hef- ur legið niðri í nokkur ár meðal annars vegna veiðibanns. Þegar Morgunblaðið ræddi við Gunnar voru samningaumleitanir komnar nokkuð langt, en samn- málamaður og rithöfundur á ég bágt með að skilja hvernig menn nenna að vera að móðgast svo út af því sem Einar Bragi og Sigurður eru að skrifa, að þeim þyki taka því að standa f málaferl- um út af því. Ég á bágt með ímynda mér, að nokkrum í Svíþjóð mundi detta f hug að fara með svona mál fyrir dómstóla og þó svo væri, þá get ég Framhald á bls. 35 inganefndarmenn gátu þó engar upplýsingar gefið. Gunnar sagði hins vegar: 1 dag ríkir full óvissa um árangurinn, en búizt er við, að úrslitin fáist á morgun. Niður- staðan af viðræðunum hér verður í rauninni grundvöllur fyrir því hvort hægt er að salta um borð, þannig að unnt sé að nýta allar stærðir." Þá sagði Gunnar, að það væri nokkuð hastarlegt að heyra að fs- lenzk skip væru að selja sfld á 50 kr. kílóið f Danmörku, sem þýddi að nettóverðið væri mun lægra en það sem skipin fengju heima. Þetta leiddi síðan af sér að Danir gætu boðið síld á langtum lægra verði en við gætum boðið og það að nokkru leyti frá íslenzkum skipum. Samninganefnd Sfldarútvegs- nefndar mun fara til Svíþjóðar á morgun frá Moskvu. Flóvenz: Full óvissa um sölusamninga við Sovétmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.