Morgunblaðið - 24.10.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTOBER 1975
23
Kjarval
Á afmælisdegi Jóhannesar S.
Kjarval 15. október sl. var
opnuð sérstæð sýning á 54
myndum úr eigu barna hans,
Ásu og Sveins Kjarval. Þennan
dag hefði Kjarval einmitt orðið
niræður og það er í tilefni þess,
sem sýningin var drifin upp af
þeim og nánustu ættingjum.
Sýning þessi er hvorki sett upp
á Kjarvalsstöðum né I Kjarvals-
húsi á Seltjarnarnesi enda báð-
ir staðirnir nýttir í öðrum til-
gangi en að ýta undir þroska
íslenzkrar myndlistar, a.m.k.
enn sem komið er.
1 formála sýningarskrár, sem
Frank Ponzi hefur ritað og
Laxness snarað á islenzku,
segir m.a.: „Á þessum tlma-
mótum hefði yfirlitssýníng
samanlagðrar listar hans átt vel
við. Slik gleymska virðist enn
einu sinni rökstyðja þá
skoðun að þessi Iistamaður
sé best til þess fallinn að
vera hagnýttur i rausi
borðræðusnillinga; þó er
einkar vinsælt að skreyta með
nafni hans hús, sem I ofanálag
eru sögð reist honum til
heiðurs. Árángurinn hefur
viljað verða sá, að almenníngur
veltist I vafa, svo um fyrirferð
sem gildi listar hans.“
Nú má deila um það hvort
rétt hefði verið að setja upp
yfirlitssýningu á samanlagðri
list Kjarvals, þar sem tiltölu-
lega stutt er siðan allt húsið var
lagt undir sýningu á list hans i
gegnum árin, þótt ekki væru
allir sáttir um val á þá sýningu
og nú er aðeins áratugur til
aldarafmælis hans. Að þvi er ég
bezt veit hefur ennþá ekki
verið gerð skrá yfir verk hans
né þau mynduð á litfilmur, svo
að óvist er að ný sýning hefði
svarað tilganginum fullkom-
lega, og alls ekki við núverandi
ástand á Kjarvalsstöðum.
En ótvírætt hefði átt að setja
upp sérsýningu i Kjarvalssal og
leitast við að gera hana sem
sérstæðasta þ.e. varpa nýju
ljósi á æviferil hans um leið og
hafizt væri handa við að skrá-
setja æviverk Kjarvals og jafn-
framt Ásgrims og Jóns Stefáns-
sonar. Þannig yrði stórum
auðveldara að nálgast verk
þeirra I framtíðinni I þeim
tilgangi að setja upp sýningar
og jafnframt mundi það auð-
velda eigendum myndanna að
lána þær frá sér.
En rétt er það að einkar vin-
sælt er að skreyta hús með
nafni Kjarvals og hagnýta hann
við borðræður. Sjálfur mun
hann aldrei hafa átt eigið hús-
næði I lifanda lifi, nema máski
sumarbústaðinn sinn, þar sem
hann kvaðst meira að segja geta
staðið uppréttur!
Málarinn hefði með þökkum
þegið einfalt og gott vinnuhús-
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
28. Hörpuleikur II1954
54. Stúlkur á serviettu.
næði meðan hann lifði, en
skálaræðurnar um Kjarvalshús
höfðu verið svo lengi endur-
teknar að þegar húsið komst
upp reyndist það kaldur og
ómannlegur steinkassi, sem
málarinn tók ekki í mál að
flytja I. En islenzkum ráða-
mönnum til málsbóta má upp-
lýsa það, að þeir voru hér
eingöngu að endurtaka svip-
aðar skyssur og útlendir starfs-
bræður þeirra i Ilkum tilvikum
og það er bersýnilega auðveld-
ara að endurtaka slíkar en að
læra af þeim.
— Umrædd sýning er sett
upp í trésmíðaverkstæði i
Brautarholti 6, frekar óvistlegu
rými þótt það hafi verið inn-
réttað sem bráðabirgða-sýn-
ingarhúsnæði, og bendir það til
þess að undirbúningur hafi
ekki verið mikill, þvi að nóg er
af betra húsnæði til sýninga í
höfuðborginni. Máski hefur
þetta þó verið gert viljandi með
visun til efnda og nöprum veru-
leikanum varðandi raunveru-
lega ræktarsemi við minningu
lilítamannsins, t.d. koma sára-
fáir i Kjarvalssal dags daglega,
eftir því sem ég og fleiri höfum
fylgzt með. Kæmi jafnvel til
álita að banna notkun nafnsins
með visun til þessa vettvangs
tilgangsleysisins!
Hér er ekki um að ræða sýn-
ingu á öndvegisverkum Kjar-
vals né sérstöku úrvali, heldur
er hér um að ræða ýmis tæki-
færisriss listamannsins í lit og
svart-hvítu, — og ekki alltaf á
hina endingarbeztu tegund
pappirs. Gullfallegar myndir
eru hér innan um og sýningin
kynnir „intima“ hlið á lífsverki
Kjarvals, sem mjög áhugavert
er að rýna í. Þess vegna ættu
sem flestir að skoða þessa
sýningu, og væntanlega er það
ekki svo að áhugi á „meistar-
anum“ hafi minnkað á þeim fáu
árum sem eru liðin frá láti
hans.
Ættmenn listamannsins ber
mikillega að þakka að hafa
gefið okkur tækifæri til að
skoða þessar myndir.
21. Itölsk kona ca. 1950.
12. Sjálfsmynd ca. 1920.
38. Tvö andlit
Myndllst