Morgunblaðið - 24.10.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÖBER 1975
29
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Haustmóti T. R. lauk síðast-
liðið föstudagskvöld, og urðu
úrslit í A-flokki sem hér segir:
1. Helgi Ólafsson 9 v., 2. Björn
Þorsteinsson 8!4 v., 3. Gylfi
Magnússon 7 v., 4. Margeir
Pétursson 6 v., 5. ■— 7. Kristján
Guðmundsson. Ásgeir P.
Ásbjörnsson og Gunnar Finn-
laugsson 5í4 v., 8. Ómar Jónsson
5 v., 9. Jónas P. Erlingsson 4v.,
10. — 11. Leifur Jósteinsson og
Ásgeir Þ. Árnason 3Ví v., 12.
Björn Halldórsson 3 v.
Sigur Helga var aldrei í
hættu og þrátt fyrir tap gegn
Birni í næstsíðustu umferð
nægði honum jafntefli i síðustu
umferðinni til þess að tryggja
sér sigur. Þátturinn óskar
Helga til hamingju með
sigurinn og titilinn „Skák-
meistari T. R. 1975“. Eins og
upptalningin hér að framan ber
með sér skáru þeir Helgi og
Björn sig úr að vinningafjölda.
„Gamla“ kempan, Gylfi
Magnússon, er enn í fullu fjöri
og var árangur hans fyllilega
verðskuldaður. Um frammi-
stöðu annarra keppenda er fátt
að segja. Hins vegar hlýtur það
að vekja athygli, að aðeins fjór-
ir efstu menn fá yfir 50%- vinn-
inga. Voru keppendur svona
jafnir, eða er meðalmennskan
svo yfirþyrmandi? I B-flokki
urðu fjórir keppendur jafnir og
efstir, þeir Guðni Sigurbjarnar-
son, Jón L. Árnason, Jón Þor-
varðarson og Sigurður Daniels-
son. Þeir hlutu allir 7 v. I Ungl-
ingaflokki urðu efstir og jafnír
þeir Árni Árnason og Þröstur
Þórsson með 6 v. af 7. 1 einvígi
um efsta sætið sigraði Árni
2—0. Að lokum kemur ein skák
sigurvegarans.
Hvftt: Helgi Ólafsson
Svart: Ásgeir P. Ásbjörnsson
Tfzkuvörn
I. c4 — g6, 2. e4 — Bg7, 3. d4 —
d6, 4. Rc3 — Rc6,
( Með 4. — Rf6 gat svartur
komizt út I venjulegan kóngind-
verja, og enn annar möguleiki
var 4. — c6).
5. Be3
(Bezt, einnig er leikið hér 5.
d5 og 5. Rge2, en i báðum tilvik-
um á svartur tiltölulega auðvelt
með að jafna taflið).
5. — e5, 6. d5 — Rd4?
(Nú lendir svartur I mjög
óhagstæðri stöðu. Bezt var 6. —
Rce7 og svara síðan 7. g4 með
Rf6. Svartur fær þá þrönga
stöðu en þó vel teflandi).
7. Rge2 — Rxe2, 8. Bxe2
(Nú er ljóst, hvers vegna 6.
— Rd4 er slæmur leikur.
Uppskiptin hafa flýtt fyrir lið-
skipan hvíts, en svartur hefur
dregizt enn meira aftur úr).
8. — Rf6,
(Hér hefur einnig verið reynt
8. — f5, en ekki gefizt vel.
Sennilega er 8. — Re7 skásti
kosturinn).
9. g4! — h5,
(Theórían mælir með þessum
leik, en hann virðist þó ekki
lina þjáningar svarts).
10. g5 — Rd7,
(10. — Rh7 kom til greina).
II. Dd2 — a5. 12. 0-0-0 — Bf8?
(Sjálfsagt var að hróka stutt
og koma einhverju lagi á lið-
skipanina).
13. Kbl — c5??
(Nú opnast taflið hvítum í
hag, og svartur fær ekki við
neitt ráðið).
14. dxc6 — bxc6, 15. f4 — Dc7,
16. f5 — Rc5, 17. Hhfl — Be7,
18. fxg6 — fxg6, 19. Bxc5 og
svartur gafst upp. Eftir 19. —
dxc5 vinnur hvítur með 20.
Rd5.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Vinnurannsóknir
og launakerfi.
Fyrir þá, sem vilja bæta afköst og auka hagrsðungu.
Stjórnunarfélagið gengst fyrir nám-
skeiði um vinnurannsóknir og launa-
kerfi 27., 28. og 29. okt. n.k. i
Skipholti 37. Námskeiðið stendur
yfir kl. 15:00 — 18:45 alla dag-
ana.
Á námskeiðinu verður gerð grein
fyrir helstu atriðum við framkvæmd
þeirra. Ennfremur verður farið i ein-
kenni og uppbyggingu mismunandi
launakerfa, kosti þeirra og galla.
Námskeiðið er ætlað þeim, sem vilja
bæta framleiðsluaðferðir starfsemi
sinnar. Jafnframt er námskeiðið
heppilegt fyrir trúnaðarmenn á
vinnustöðum.
Leiðbeinandi er Ágúst Eliasson
tæknifræðingur.
Fjármálastjórn fyrirtækja
Hver er fjárhagsleg staða fyrirtækisins?
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í Fjármálum I. 3. —10.
nóvember n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 15:00
til kl. 19:00 mánud. 3. nóv., þriðjud. 4. nóv., miðvikud. 5. nóv.,
föstud. 7. nóv. og mánud. 10. nóv.
Markmið þessa námskeiðs er að veita þjálfun i að meta afkomu og
fjárhagslega stöðu fyrirtækis og að auki að kynna gerð fjárhagsáætlana
(budgeting), þ.e.a.s. áætlana um rekstrarafkomu, um sjóðshreyfingar
og um þróun efnahags fyrirtækja.
Athyglinni verður beint fyrst og
fremst að ársreikningum (rekstrar-
og efnahagsreikningi) fyrirtækja og
kannað, hvert gagn megi af þeim
hafa og i hverju þeim sé áfátt. Eftir
upprifjun í bókhaldstækni verður
gerð grein fyrir tækni við rannsóknir
á ársreikningum og tækni við
samningu yfirlits um fjármagns-
streymi.
Þá kemur lýsing og gagnrýnið mat á hefðbundnum meginreglum sem
fylgt er við samningu ársreíkninga og lýst tækni, sem beita má til að
leiðrétta það vegna áhrifa verðlagsbreytinga.
Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að hafa bókhaldsþekkingu. Nám-
skeiðið kemur að góðu haldi öllum, sem fást við fjármál.
Leiðbeinandi verður
Árni Vilhjálmsson prófessor
Þátttaka tilkynnist í síma 82930.
Þekking er góð fjárfesting.
Ný plötusending
VERO 725 00 OG 820 00 KR
THE EVERLY BROTHERS
ELVIS PRESLEY -
JOHNNY CASH
JOHNNYCASH
ANDY WILLIAMS
JIM REEVES
JIM REEVES
JERRY LEWIS
TOP OF THE POPS
STORIES WE COULD TELL
SEPARETE WAYS OG THE U.S. MALE
THE GREAT JOHNNY CASH
BALLAD OF A TEENAGE QUENN
HAWAIIAN WEDDING SONG
WELCOME TO MY WORLD
THE BEST OF JIM REEVES
GOOD ROCKINTONIGHT
VOL 29.32.34.41.42.44,46. o II
CLASSICK VERO 820 00 KR
BEETHOVEN — JOHANN STRAUSS Jnr —TCHAIKOVSKY —
TARTINI — GRIEG — MENDELSON — BACH — MOZART — ofl
JASS VERÐ FRA 2 030 00 KR
ELLA FITZGERALD
LOUIS ARMSTRONG
OSCAR PETERSON
JIMMY SMITH
LIONEL HAMPTON
WES MONTGOMEY
GOLDEN GATE QUARTET
— JASS SPECTRUM VOL 1
JASS SPECTRUM VOL 2
— JASS SPECTRUM VOL 3
— JASS SPECTRUM VOL 5
— JASS SPECTRUM VOL 7
— JASScSPECTRUM VOL 8
— ..jffSS SESSION \
POPP VERP FRA 1 870 00 KR
HOLLIES
JOHNNY BRISTOL
ERIC CLAPTON —
BACHMAN TURNER OVERDRIVER
BACHMAN TURNER OVERDRIVE
BACHMAN TURNER OVERDRIVE
THE MOODY BLUES
FOCUS
URIAH HEEP
URIAH HEEP
THE BEATLES
THE BEATLES
PINK FLOYD
OKIO PLAYERS
— ANOTHER NITHT
— FEELIN THE MAGIC
RHERE'S ONE IN EVERY CROWD
— FOUR WHELLE DRIVE
— BACHMAN TURNER OVERDRIVE
— BACHMAN TURNER OVERORIVE II
— EVERY GOOD BOY DESERVES FAVOUR
— HAMBURGER CONSERTO
— DEMONS WIZZARDS
— SWEET FREEDOM
— 1962 — 1966
— 1967 — 1970
— WISH YOU WERE HERE
— FIRE
%
Sætúni 8 - 15655
Hafnarstræti 3 - 20455.
í tilefni kvennafrís veitum við 10% afslátt
í dömu og herradeildunum, aðeins í dag.
Opið til 7 í dag og til hádegis laugardag.