Morgunblaðið - 24.10.1975, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1975
39
NefndirHSÍ
NEFNDIR HSt að undanskilinni
landsliðsnefnd karla, hafa nú ver-
ið skipaðar og verða þær þannig:
MÓTANEFND:
Jón H. Magnússon, formaður, Há-
kon Bjarnason, Ólafur A. Jóns-
son, Sigurður Svavarsson, Björn
Bjarnason.
DÓMARANEFND:
Gunnar Kjartansson, formaður,
Jón Friðsteinsson, Alf Petersen,
Kjartan Steinback.
TÆKNINEFND:
Bergur Guðnason, formaður, Við-
ar Símonarson, Hilmar Björns-
son.
LANDSLIÐSNEFND KVENNA:
Svana Jörgensdóttir, formaður,
Kristján Örn Ingibergsson, Pétur
Bjarnason.
LANDSLIÐSNEFND UNGL-
INGA:
Birgir Lúðvfksson, formaður,
Stefán Gunnarsson, Davíð Jóns-
son.
Knattspjrnusvik í Brasilín
Upp hefur komist um svika-
starfsemi í knattspyrnugetraun-
um í Brasilfu, og hefur fjöldi
manna þar verið handtekinn
vegna máls þessa. Eru það eink-
um knattspyrnudómarar og blaða-
menn sem þarna munu eiga sök
að máli, en aðferð þeirra við svik-
in var sú, að þeir sömdu við mark-
verði nokkurra liða um úrslit í
leikjum þeirra, sem þeir veðjuðu
sfðan á. Er vitað, að þetta tókst f
a.m.k. 14 skipti, en 15. markvörð-
urinn sem reynt var að semja við
fór rakleiðis til lögreglunnar og
kærði athæfið. Búizt er við að
viðkomandi aðilar fái harða dóma
fyrir tiltæki sitt.
EKas Jónasson átti mjög góðan leik gegn FH. Spilaði félaga sfna upp
og var traustur I vörninni.
— Nú lögðu
Framhald af bls. 38
en hann var f Fh-markinu í seinni
hálfleik. Virtist frammistaða hans
hressa FH-inga nokkuð.
Þrátt fyrir að lengst af gengi
heldur illa hjá FH-ingunum að
skora f þessum leik er alls ekki
hægt að segja að þeir hafi leikið
slæman handknattleik. Haukarn-
ir voru einfaldlega góðir og gáfu
ekki á sér mörg færi þegar þeir
voru í vörn og svo hættulegir þeg-
ar þeir voru í sókn. Margar
sóknarlotur FH-inga voru vel út-
færðar og ógnun i spilinu. Þar var
Geir Hallsteinsson fremstur í
flokki, en FH-liðinu er einnig
greinilegur styrkur af Guðmundi
Sveinssyni. Viðar Símonarson var
hins vegar í daufasta lagi í leik
þessum — reyndi töluvert að
skjóta, en Gunnar Einarsson
kunni greinilega á hann, og átti
oftast næsta auðvelt með að verja.
Eins og er virðist aðeins tíma-
spursmál hvenær FH-ingar fara
að ná verulega góðum leikjum.
Dómarar leiksins voru þeir
Hannes Þ. Sigurðsson og Karl
Jóhannsson. Lengst af dæmdu
þeir nokkuð erfiðan leik stórkost-
lega vel. Gerðu nánast aldrei
mistök. Þegar leikurinn leystist
upp undir lokin virtust þeir hins
vegar smitast nokkuð af látunum,
og orkuðu þá nokkrir dóma þeirra
mjög tvímælis,
1 STUTTU MÁLI:
tslandsmótið 1. deild:
tþróttahúsið f Ifafnarfirði 22.
október
URSLIT: Haukar — FH 18—16
(9—4)
Gangur leiksins:
Mín HAUKAR FH
1. Sigurgeir 1:0
7. Ingimar 2:0
7. 2:1 Geir
12. 2:2 GuðmundurSt.
12. Ingimar 3:2
18. Hörður 4:2
20. 4:3 Viðar
22. Hörður 5:3
23. 5:4 GuðmundurSv.
26. Hörður 6:4
28. Sigurgeir 7:4
29. Hörður 8:4
30. Hörður Hálflcikur 9:4
32. Hörður 10:4
34. 10:5 Viðar
36. Elías 11:5
38. Hörður (v) 12:5
39. 12:6 Þðrarinn
39. Hörður 13:6
42. Jón 14:6
43. 14:7 GuðmundurSv.
44. 14:8 GuðmundurSv.
45. 14:9 Geir
48. Hörður (v) 15:9
49. 15:10 örn
50. Hörður 16:10
50. 16:11 Geir
50. Sigurgeir 17:11
51. 17:12 GuðmundurSt.
52. Hörður 18:12
54. 18:13 Geir
55. 18:14 Þórarinn
58. 18:15 Þórarínn
59. 18:16 Geir (v)
Mörk Hauka: Hörður Sigmars-
son 11, Sigurgeir Marteinsson 3,
Ingimar Haraldsson 2, Elías
Jónasson 1, Jón Hauksson 1.
Mörk FH: Geir Hallsteinsson 5,
Guðmundur Sveinsson 3, Þórar-
inn Ragnarsson 3, Guðmundur
Árni Stefánsson 2, Viðar
Símonarson 2, Örn Sigurðsson 1.
Brottvfsanir af velli: Viðar
Simonarson, Guðmundur Árni
Stefánsson og Gils Stefánsson,
FH, f 2 mínútur. Ingimar Haralds-
son, Haukum, í 2 mfnútur og 5
mínútur og Sigurgeir Marteins-
son, Haukum, í 2 mínútur.
Misheppnuð vftaköst: Gunnar
Einarsson, Haukum, varði víta-
kast frá Guðmundi Sveinssyni á
24. mfnútu og frá Viðari Símonar-
syni á 47. minútu.
Þessi mynd var tekin f nýja Fram-heimilinu fyrir nokkru, er heimilið var almenningi til sýnis.
\ýtt félagsheimili Fram
Á MORGUN, laugardag, verður
hið nýja félagsheimili Fram við
Safamýri tekið f notkun. Mun
borgarstjórinn f Reykjavfk, Birg-
ir tsl. Gunnarsson, halda ræðu við
opnun þess, en sem kunnugt er,
Þá er borgarstjórinn gamall
keppnismaður með Fram.
Með hinu nýja félagsheimili
gjörbreytist öll aðstaða Fram til
hins betra. Á undanförnum árum
hefur félagið verið á hrakhólum
með aðstöðu fyrir félagsstarf-
semi, þar sem eldra félags-
heimilið var^ lagt niður 1972.
Fyrsta skóflustungan að nýja
félagsheimilinu var tekin sama
ár, en framkvæmdum lauk að
mestu leyti f ágústmánuði s.l.
I hinu nýja félagsheimili Fram
er rúmgóður fundarsalur, fundar-
herbergi stjórnar félagsins og
deilda þess, fullkomin bað og
búningsaðstaða auk þess, sem
gufubaðstofa er í heimilinu. Má
segja að aðstaða félagsins sé nú
orðin allgóð þar sem það hefur til
umráða tvo knattspyrnuvelli, og
er annar þeirra búinn góðum
flóðljósum. Þá hefur félagið
aðgang að íþróttahúsi Álftamýr-
arskóla fyrir innanhússæfingar.
Sem fyrr segir verður félags-
heimilið tekið formlega í notkun
á morgun. Hefst athöfnin kl. 15.30
Eru eldri Framarar sérstaklega
hvattir til að mæta við athöfnina.
Cosmos vill kanpa Crnyff
SVO kann að fara að hollenzka
knattspyrnustjarnan Johan
Cruyff fari til Bandarfkjanna
næsta vor og leiki með banda-
rlska liðinu New York Cosmos, en
það lið hefur innan sinna
STAÐAN
Eftir leikina i fyrrakvöld er staöan I
1. deildarkeppni islandsmótsins I
handknattleik þessi:
Valur 2 2 0 0 44:26 4
Haukar 2 2 0 0 40:30 4
Fram 2 1 1 0 28:24 3
FH 2 1 0 1 41:36 2
Vlkingur 2 1 0 1 39:36 2
Ármann 2 0 1 1 26:37 1
Þróttur 1 0 0 1 10:20 0
Grótta 3 0 0 3 46:65 0
Markhæstu leikmennirnir eru:
Höröur Sigmarsson, Haukum 1 7
Páll Björgvinsson. Vikingi 11
Geir Hallsteinsson. FH 10
Viöar Simonarson, FH 10
Björn Pétursson, Gróttu 10
Arnar Guölaugsson. Fram 9
Stefán Gunnarsson, Val 9
Þórarinn Ragnarsson. FH 9
vébanda hinn fræga Brasilfu-
mann, Pele.
Umboðsmaður Cruyff, Cor
Coster, sem jafnframt er tengda-
faðir hans, sagði nýlega að for-
maður Cosmos, Nesuhi Ertigun,
hefði hitt Johan Cruyff að máli
fyrir landsleik Hollendinga og
Pólverja á dögunum, og þá verið
að athuga hvort Cruyff hefði
áhuga á að koma til Cosmos.
Peningahlið málsins var hins
vegar ekkert rædd, en Ertigun
mun hafa gefið f skyn að hún ætti
ekki að verða neitt vandamál,
vildi Cruyff á annað borð koma.
Samningur Cruyff við FC
Barcelona rennur út í maí næsta
vor. Mun félagið hafa mikinn
áhuga á að endurnýja samning-
inn, en hins vegar segist Cruyff
vera búinn að fá nóg af spænsku
knattspyrnunni. Það er svo komið
að ég má þakka Guði fyrir hvern
leik sem ég slepp óskaddaður frá,
segir hann. Barcelona greiddi um
6 milljónir hollenzkra gyllina
fyrir Cruyff þegar samningur-
inn við hann var gerður í ágúst
1973, og er það hæsta upphæð
sem spánskt knattspyrnulið hefur
hingað til greitt fyrir knatt-
spyrnumann. Þegar Pele gerði
samning við Cosmos fékk hann
um 4,5 milljónir dollara, og er
harla ólíklegt að Cruyff yrði falur
fyrir miklu lægri upphæð.
Nesuhi Ertigun, formaður
Cosmos, sagði að þrátt fyrir þá
miklu upphæð sem félagið hefði
greitt fyrir Pele, hefði hann verið
þvi gullnáma, og tækist sér að fá
Cruyff til að koma til Bandarikj-
anna, mætti segja að björninn
væri unninn. — Bandarískum
áhorfendum skilst ekki hvað
knattspyrna er geysilega falleg og
krefjandi íþrótt fyrr en þeir sjá
snillinga leika, og hafi lið upp á
slíka að bjóða þarf ekki að óttast
að aðsókn að leikjum verði léleg.
Þá sagði Cor Coster, að mörg lið
hefðu sýnt þvf áhuga að fá Johan
Cruyff í sínar raðir og meðal
þeirra væru vestur-þýzka liðið
Bayern Múnchen og franska liðið
Olympique Marseilles. Þá er og
vitað, að Ajax, gamla félagið hans
Cruyff, vill gjarnan fá hann aftur,
en Cor Coster mun ekki hafa
mikinn áhuga á að tengdasonur-
inn fari þangað — telur að Ajax
geti ekki borgað nóg.
Urslitaleikir Reykjavíkur-
mótsins í körfuknattleik
Reykjavíkurmótinu f körfuknatt-
leik lýkur á morgun og verður þá
keppt til úrslita f m.fl. kvenna og
karla. Leikirnir hefjast kl. 14 f
Kennaraskólahúsinu og leika
fyrst KR og ÍR f kvennaflokki.
KR nægir sigur f leiknum til að
sigra f mótinu, en sigri lR verða
bæði liðin með 4 stig ásamt Fram.
Strax að þessum leik loknum
leika KR og IS í karlaflokki um 3.
sætið I mótinu, og lestina rekur
sfðan leikur Armanns og IR sem
enn hafa ekki tapað leik.
Ekki er að efa, að hart verður
barizt í þessum leik, enda á ferð-
inni lið sem hafa sýnt mjög góð
tilþrif f mótinu. Bæði liðin leika
mjög hraðan körfubolta og nota
mikið hraðaupphlaup, nokkuð
sem gerir leikina mjög skemmti-
lega á að horfa. iR-ingar eru með
sama lið og sigraði með yfir-
burðum í íslandsmótinu f fyrra,
nema hvað Þorsteinn Hallgrims-
son hefur bætzt í hópinn og
styrkir liðið mjög. Ármenningar
binda að sjálfsögðu miklar vonir
við Jimmy Rogers, blökkumann-
inn snjalla, ásamt Jóni Sigurðs-
syni, sem er í mjög góðu „formi“
þessa dagana eins og raunar liðið
allt. Þetta er leikur sem ekki er
ráðlegt að spá mikið um fyrir-
fram, allt getur gerzt.
Staðan í mótinu:
Ármann 4 4 0 364:215 8 st,
ÍR 4 4 0 327:233 8 st,
IS 4 2 2 237:259 4 st
KR 4 2 2 291:315 4 st,
Fram 5 1 4 260:352 2 st
Valur 5 0 5 322:427 0 st
Verðlaun verða veitt stigahæstE
manni mótsins, og þeim leik-
manni sem bezta nýtingu hefur úr
vitaskotum sínum að þvi tilskildu
að viðkomandi taki minnst 15 skot
alls.
Stighæstir:
Torfi Magnússon Val 112stig.
Jimmy Rogers Á 91 stig.
Kolbeinn Kristinsson lR 86 stig.
Jón Sigurðsson Á 74 stig.
Bjarni Jóhannesson KR 68 stig.
Helgi Valdimarsson, Fram, hef-
ur bezta vítahittni þeirra sem lok-
ið hafa leikjum sínum,
18:13—72,2%, en þeir sem eiga
mestan möguleika á að ná honum
eru:
Kolbeinn Kristinsson ÍR
8—8 — 100 %.
Sigurður Gislason IR
10—7 — 70 %.
Jimmy Rogers A
28—19 — 67,9%,
Guðsteinn Ingimarsson A
16—12 — 66,6%.
Ingi Stefánsson IS
15—10 — 66,6%.
—gk-