Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1975 25 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Keflavík Til sölu eldra einbýlishús 5 herb. og eldhús. Laust strax. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavik, simi 1420. Rauðamöl Til sölu rauðamöl heimkeyrð eða ámokuð. Sjáum einnig um útjöfnun, þjöppun og jarðvegsskiptí. Kambur, Hafnarbraut 10, simi 43922. Verðlistinn Munið sérverzlunina með ódýran fatnað, Laugarnes- vegi 82, sími 31330. Barnarúm til sölu Upplýsingar í sima 74581; Vil kaupa trillubát 4—6 tonn. Tilboð sem greini verð, greiðslukjör, vélatg. aldur, sendist Mbl. fyrir 30. nóv. merkt: „trillu- bátur — 2255" Skermakerra óskast Vel með farin skermakerra óskast. Uppl. í sima 86801. Barnavagn til sölu Verð 7.000 kr. Sími 33791. Notað sófasett til sölu. Sófi og tveir stólar. Einnig borðstofuborð. Uppl. i síma 71671. Verkfæraleigan Hiti Rauðahjalla 3, simi 40409. Múrhamrar, steypuhræri- vélar, hitablásarar, máln- ingaspr. 1 ■ ■ húsnædi í boöi Vogar Til sölu nýtt einbýlishús í Vogum. 4 herb. og eldhús. Losnar fljótlega. Fasteigna- salan, Hafnargötu 27, Kefla- vík, sími 1420. Ytri-Njarðvík Til sölu 2ja herb. kjallara- íbúð. Sérinngangur. Útb. 1100 þús. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1 420. Óskum eftir að taka á leigu íbúð sem fyrst. Uppl. í síma 81773, frá kl. 4 — 7 e.h. Smáíbúðarhverfi Laganemi óskar að taka á leigu vinnuherb. í smáibúðar- hv. eða nágrenni, ekki til ibúðar. Uppl. i S. 84878. Vantar atvinnu 26 ára ábyggilegan mann vantar atvinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar í sima 86941. Áreiðanleg 22 ára stúlka óskar eftir atvinnu. Getur byrjað strax. Upplýsingar i sima 74520. I.O.O.F. 12 =1571 1218'A = E.T.I. UM. 1.0.0.F. 1 = 15711218% = E.T.I. — Spkv. Æskulýðsvika Hjálpræðishersins Æskulýðs og vakningarsam- koma i kvöld, föstudag kl. 20.30. Séra Lárus Halldórs- son talar. Ungt fólk syngur og vitnar. Allir velkomnir. Frá G uðspekifélaginu HINN GULLNI MEÐAL- VEGUR ROBERTO ASSA- GIOLIS nefnist erindi sem Sverrir Bjarnason flytur i Guðspeki- félagshúsinu, Ingólfsstræti 22, í kvöld föstudag 21. nóv. kl. 9. Öllum heimill að- gangur. f rRÐAFFLAG ISLANDS Laugardagur 22/11 kl. 13.00 Gönguferð um Geldinganes. Fararstjóri: Guðrún Þórðar- dóttir. Verð kr. 500. —. Far- miðar við bilinn. Brottfarar- staður Umferðarmiðstöðin (að austanverðu). Ferðafélag íslands. Stúkan Freyja númer 218 Fundur í kvöld kl. 8.30 í Templarahöllinni. Venjuleg fundarstörf að öðru leiti sér hagnefndin um fundinn. Kaffi eftir fund. Félagar fjölmennið. ÆT. Vinafélag Skálatúns Heldur fund i Félagsheimili tannlækna að Siðumúla 35, laugardaginn 22. þ.m. kl. 3.00 e.h. Fundarefni: Margrét Margeirsdóttir, fé- lagsráðgjafi flytur erindi um hlutverk foreldrafélaga og samstarf foreldra við stofn- anir. Almennar umræður. Stjórnin. UTIVISTARFERÐiF Laugard. 22/11. kl. 13. Með Elliðaánum. Fararstj. Friðrik Danielsson. Verð 400 kr. Sunnud. 23/11. ki. 13. Með Hólmsá. Fararstj. Þorleifur Guð- mundsson. Verð 500 kr. Frítt fyrir börn i fylgd með full- orðnum. Brottfararstaður B.S.Í. (Vestanverðu). Útivist. Kvenstúdentafélag ís- lands hádegisverðarfundur verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu, laugardaginn 22. nóv. kl. 12.30. Vilborg Harðardóttir og Sig- riður Thorlacius munu segja frá Kvennaársráðstefnunni í Mexicó sl. sumar. Stjórnin. Kvenfélag Kópavogs heldur basar i Félagsheimil- inu, uppi, sunnudaginn 23. nóvember kl. 2 e.h. Mikið úrval af handunnum munum og heimabökuðum kökum. Basarnefndin. radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar kaup — sala Nýkomið Smábarnaskór á háum sóla, stærðir: 22 — 28, verð frá kr. 1 525 - Leðurstígvél á drengi, stærðir: 29—40, verð frá kr. 3250,- Götuskór kvenna, verð frá kr. 2430.- Karlmannaskór úr leðri, verð frá kr 2980 - Karlmannaskór í yfirbreidd á leðursóla, verð kr. 61 50.- og 6965.- Póstsendum Skóbúðin Snorrabraut 38, sími 14 190. Til sölu fyrir hálfvirði nokkrar stakar handlaugar, ýmsir afgangar af keramiklásum, gætu hentað í eldhús á sófaborð og fleira. Rafmganseldavéla- sell (OFN 4ra hellna plata, grænt), rafmagnsbakaraofn amer- ískur, (m/spegilhurð). Hlífar úr fiberglassi í ýmsum litum framan á 1 70 cm baðkör. Nokkrir hurðarbankarar úr látúni. Skóskápar vinylklæddir (stæling af innlögðum viði). Uppl. á morgun laugardag kl. 9 —12 og 1—6 og sunnudag 1—6, Hverfisgötu 75, kjallara, gengið inn frá Vitatorgi. Til sölu Vilbro valtari 5 tonna og traktorsgrafa John Dere til sölu. Uppl. í síma 92-1083. íbúð til sölu í fjölbýlishúsi við Meistaravelli, 1 1 0 fm. 4 herb. og eldhús. Ibúðin er í góðu standi. Útb. 5 til 6 millj. Getur verið laus fljótlega. Tilboð sendist Mbl. sem fyrst merkt: Meistaravellir — 2005. |_________þjónusta___________| Húsmæður athugið Erum byrjuð að framleiða góða laufa- brauðið okkar. Tekið á móti pöntunum til 1 5. des. Brauðgerð KEA, Akureyri. — Minning Framhald af bls. 27 um, en fluttust að Hreiðarsstöð- um í Fellum, þar sem þau bjuggu til ársins 1943, er þaú flytjast í Fljótsdal aftur, og nú að Brekku- gerðishúsum. Þar bjuggu þau í tuttugu og átta ár, eða til haustsins 1971, er þau fluttu heimili sitt suður að Holti undir Eyjafjöllum til dóttur sinnar og tengdasonar, þar sem þau komu sér fljótlega upp snotru búi á ný. Þótt mikið átak væri fyrir þau að yfirgefa átthagana, kunnu þau mætavel vistinni í nýju heimkynnunum, þar sem þau gátu verið í návist dætra og tengdasona, að ógleymdum litlu barnabörnunum. Þau Jón og Þor- björg eignuðust fjórar dætur, elzt var kjördóttir, sem þau tóku meðan þau bjuggu á Hreiðarsstöð- um, og taldi Þorbjörg það einn sinn mesta hamingjudag, er hún kom á heimili þeirra. Dvöl Þorbjargar í Holti varð aðeins fjögur ár og litlu ömmu- börnin njóta ekki lengur ástríkis hennar, en þau voru orðin tíu talsins, er hún lézt. Þetta er í stuttu máli ævisaga Þorbjargar Kérúlf. Hún segir fæst af mannkostum þessarar góðu konu, lætur lftið yfir unnum sigri á oft óblíðum ævikjörum. En þeir, sem henni kynntust, geyma minningu hennar í þakklátum huga. Þorbjörg unni æskuheimili sfnu heilshugar og minntist þess oft. Hin jákvæðu uppeldisáhrif urðu sá fjársjóður, sem hún ávaxtaði dyggiiega í viðbót og við- skiptum við aðra menn, og eins og þau systkin öll var hún ljós vottur þeirrar blessunar, sem slfkt heimilislíf leiðir af sér. Ég var svo lánsöm að dveljast á heimili Jóns og Þorbjargar um sinn og átti þau sfðan að sem nágranna í nær tuttugu ár. Fáa staði vissi ég betri heim að sækja. Alltaf var vistlegt, snyrtilegt og aðlaðandi kringum Þorbjörgu, og þau hjónin sérlega samhent um að fagna gestum sínum. Skipti þá engu, þótt hjörð af hávaðasömum börnum fylgdi með og skammt liði milli heimsókna, okkur var öllum fagnað hvert sinn eins og við hefðum ekki sézt í áravís. Þorbjörg var fremur lág vexti, grönn og létt í hreyfingum. Hún var fíngerð og viðkvæm í lund og hafði næman skilning á líðan ann- arra. Ekkert var henni fjær en áfeli- ast aðra fyrir bresti og yfirsjónir, og æskufólk og börn átti skilning hennar visan. Oft undraðist ég langlundargeð hennar, þegar ærsl og hávaði barna, þ. á m. minna, höfðu alveg gengið fram af minni þolinmæði. Þá var henni verulega skemmt og hún hló hjartanlega að tiltækjum þeirra. Fyrir allar þessar liðnu stundir vil ég nú þakka. Þær verða ekki frá okkur teknar. Jóni og dætrum flyt ég inni- legar samúðarkveðjur frá gömlum nágrönnum. Þ. S. 5 sækja um stöðu borgarbókavarðar VÆNTANLEGA mun borgar- stjórn Reykjavíkur á næsta fundi sfnum taka til meðferðar umsókn- ir um stöðu borgarbókavarðar, en Eiríkur Hreinn Finnbogason, sem gegnt hefur starfinu, hefur sagt því lausu. Fimm sækja um stöðuna. Þeir sem sækja um stöðu borgarbókavarðar eru: Björn Teitsson cand. mag. Elfa Björk Gunnarsdóttir bókasafnsfræðing- ur, Else Mía Einarsdóttir bóka- safnsfræðingur, Hilmar Jónsson bókavörður og Hrafn Harðarson bókasafnsfræðingur. r Arsfangelsi fyrir nefbit Chester, Englandi, 18. nóv. Reuter. PETER nokkur O’Coole fyrrver- andi hnefaleikamaður, var í dag dæmdur i árs fanglesi, fundinn sekur um að hafa bitið nefið af vini sínum, John O’Dea, þegar þeir lentu i snörpum orðahnipp- ingum fyrir nokkru. Nefið fannst síðar á gangstéttinni og tókst læknum að græða það aftur á John. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.