Morgunblaðið - 30.11.1975, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975
45
VELVWKAIMDI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Fjöldi manns —
miðað við hvað?
„Ahugamaður um sjávarút-
vegsmál" skrifar:
Ég vil byrja á því, að fagna
þeim samningum, sem nú er búið
að gera við Vestur-Þjóðverja.
Þessi dýrðarlitli fundur, sem
haldinn var á Lækjartorgi í gær
sýnir betur en nokkuð annað hug
þjóðarinnar lil þessara samninga.
Samningarnir voru nauðsynlegir
og sem betur fer eru þeir fíeiri,
skynsemismenn þjóðarinnar, en
þeir, sem nú æpa á torgum og
gatnamótum.
Eg gerði það að gamni minu að
fara niður á Torg til að sjá með
eigin augunt bvernig fundurinn
færi fram, en að visu nennti ég nú
ekki að standa þar nema skamma
stund. Hins vegar hef ég orð vinar
míns, sem þarna var og hlýddi á
það, sem fram fór, fyrir því að
litið hafi verið minnzt á flotaof-
beldi Breta.
Þetta væri í sjálfu sér ekki i
frásögur færandi, ef ekki væri
rakin aðeins sagan á bak við
þennan fund. Þegar fyrst var til
hans boðað var sagt að hann væri
haldinn til að mótmæla því að
samið yrði við þá þýzku. Um leið
var þvi beint til þjóðarinnar, að
hún tæki sér frí þennan dag til að
mótmæla samningunum og hvatt
var til þess að fjölmennt yrði á
fundinn.
í fyrsta lagi er vítavert að boða
til verkfalls, eins og þarna var
gert, undir því yfirskini, að um frí
sé að ræða. Fri er það, þegar
vinnuveitendur og starfsmenn
þeirra koma sér saman um að
viðkomandi starfsmaður, einn eða
fleiri, komi ekki til vinnu ein-
hvern tiltekinn dag. Ennþá hefur
þvi ekki verið komið inn í kjara-
samninga, að starfsmenn geti,
hvenær sem þeim sýnist, „tekið
sér fri“, án þess að hafa til þess
samþykki atvinnurekandans, en
mér sýnast nú ýmis merki þess, að
þetta verði næsta krafa, nema
mönnum finnist ekki einu sínni
taka þvi að nefna það. í þessu
sambandi minnist ég þess dags,
þegar haldinn var útifundir árið
1973 til að mótmæla yfirgangi
Breta á miðunum hér við ísland.
Þá var hvatt til þess að fólk fengi
fri í vinnunni til að koma á fund-
inn, eins og svo fjölmargir gerðu.
En svo kom bara upp óvænt
vandamál. Hinir ýmsu aðilar fóru
að mögla, vegna þess að þeim
fannst ekki ná nokkurri átt, að
dregið yrði frá kaupinu, vegna
Aren Sandell banahöggið á
sveimi hér og bjó sig undir að
ráðast á ný til atlögu. Hvaða máii
skipti þennan morðingja að sú
hugrakka vera sem hér var komin
í nýjársnóttina til að afhjúpa
hann var ellefu ára gamalt barn
með stór grá augu.. hann myndi
einskis svffast til að þagga niður f
því, það þóttist ég vita.
— Barbara Sandell er dáin.
Enn vitum við ekki hvort urn er
að ræða slys — sjálfsmorð — eða
annað morð. En það er ýntislegt
sem mig fýsir að vita. Til að byrja
með þetta: hvert ykkar hefur séð
hana og talað við hana f kvöld.
Tord Ekstedt beitti sig sýnilegu
afli til að herða sig upp og beina
hugsunum sínum að spurningu
Christers.
— Ég.. .jú, það stóð þannig á
því að ég hafði beðið hana að
koma og tala við mig eftir kvöld-
verðinn. Við gengum upp f vinnu-
herbergið mitt og vorum þar til
klukkan var að verða átta. Reynd-
ar man ég að ég leit á klukkuna
mfna, þegar hún fór og þá vantaði
klukkuna nákvæmlega fimm
mfnútur f átta. Eg ákvað þá að
nota næsta klukkutfmann til að
þessa fris. Vinnuveitendur munu
hafa tekið því vel að gleyma
hagsmunum fyrirtækisins part úr
degi til að fólk gæti sótt fundinn.
En svo kom bara upp úr dúrnum,
að þeir áttu líka að hafa af þessu
bein fjárútlát, því að einhverjum
æsingamönnum tókst að koma þvi
inn hjá fólkinu, að það væri enn
eitt dæmið um óbilgirni atvinnu-
rekenda að ætlast til þess að fólk
yrði af kaupi fyrir þennan dag-
part. Þarna fannst mér nú skjóta
skökku við, þegar baráttufylking-
in fyrir mestu lífshagsmunum
þjóðarinnar tímdi ekki að fara á
útifund á eigin vegum, en heimt-
aði, að sjálfir „arðræningjarnir"
borguðu undir hana.
Eins og ég nefndi áðan, þá var
það upphafið að fundinum i gær,
að mótmæla ætti samningunum
við V-Þjððverja. Svo virðast
fundarboðendur skyndilega hafa
áttað sig á þvi að stemmingin var
alls ekki eins og þeir höfðu vonazt
til, þvi að síðan var farið að aug-
lýsa, að nú skyldi mótmælt athæfi
Bretans líka. En þegar til átti að
taka gekk auðvitað allur fundur-
inn út á það að koma í veg fyrir
samningana, þannig að þeir, sem
hafa komið til að mótmæla
Bretanum, hafa náttúrlega farið
hálfgerða fýluferð. Svo er nú
þetta með fjöldann. í útvarps-
fréttum af l'undinum var sagt, að
fjöldi manns hefði verið á fundin-
um. Það fer nú allt eftir því við
hvað er verið að miða.
Nærtækast er auðvitað að miða
við útifundinn 1973, sem haldinn
var út af landhelgismálinu. Þar
var talið, að 25 þúsund manns
hefðu verið samankomnir enda
hefur þvi enn ekki verið mót-
mælt, að það hafi verið fjöl-
mennasti útifundur í Reykjavík
fram á þennan dag. Nú telur lög-
reglan að um 4 þúsund hræður
hafi verið á Torginu í gær. Þetta
held ég nú, að sé heldur rausnar-
lega áætlað, en jafnvel þótt við
segjum, að þetta sé rétt, er þetta
þá „fjöidi manns“, eins og út-
varpið segir? Eðli málsins sam-
kvæmt og með tilliti til allra að-
stæðna, þá var sárafátt fólk á
þessum fundi. Vilji menn vera
hlutlausir 1 málinu og forðast að
túlka fundarsóknina, reyna þeir
að komast að því, hver fjöldinn
er, þótt slíkt geti aldrei orðið
annað en ágizkun, þar sem ein-
hverju hlýtur að skakka. Síðan
nefna þeir töluna og taka skýrt
fram, að um ágizkun sé aó ræða.
% Föðurlandssvik
Það er illt til þess að vita að
góðgjarnir menn, sem sizt hafa i
huga að afvegaleiða fólk, skuli
láta hafa sig i að taka þátt í svona
áróðursbrellum eins og mér
fannst þessi fundur vera, en þó
var það nokkur sárabót, hve fáa
tókst að teyma á fundinum. Með
rauðum stöfum á gulum grunni er
letrað á þennan miða, sem mér
var sagt að væri til að líma á
bílrúðu: „Óskertar 200 mílur
strax — allt annað eru föður-
landssvik." Það munar ekkert um
það, þegar sum öfl fara á kreik.
Öflin hafa þó verið svo skynsöm
að láta þess ekki getið, hver útgef-
andinn væri, enda eru það ekki
lítil brigzl að bera fólki á brýn
föðurlandssvik í áróðursskyni.
Svo ég viki aðeins að „fríinu",
þ.e.a.s. hinu fyrirhugaða verk-
falli, þá var ekki minnzt á það
siðustu dagana fyrir fundinn,
enda fór það nú fyrir litið. Þó hjó
ég eftir þvi, að kjólaverzlun ætl-
aði að hafa lokað í tilefni dagsins
og svo bæjarskrifstofurnar á Nes-
kaupstað. Annars er ég því nú
heldur fylgjandi, að þeir á Nes-
kaupstað njóti hvíldar og noti
hana vel til hugleiðslu — þeir
hafa staðið i ströngu að undan-
förnu.
Ahugamaður
um sjávarútvegsmál.“
HÖGNI HREKKVÍSI
Brauðbeer
Veitingahús
vjðóðinstti^stmi 20490
Strákarnir, sem leggjum okkar metnað í matinn í Brauðbæ.
Það er alltaf eitthvað ofsa gott í pottunum hjá okkur og í
dag mælum við með:
í forrétt: Gravlax með sinnepssósu og heilsteiktum nauts-
hrygg (Höjrebsteg) með ofnbakaðri kartöflu, maís, belgja-
baunum og rauðvínssveppasósu
Krakkar
munið eftir barnamatseðlinum,
glæsilegir réttir fyrir 250 kr
bilaútvarpstœki og
segulbönd
Model 124 Ödýrt og gott útvarp
með lang- og miðbylgju og tón-
stilli, 3 5 watta orka
Model 213 Fynrterðarlítið og
ódýrt stereosegulband
OJ v ’St ' r'
Model 122 Gott útvarp I milli-
verðflokki með lang- og mið-
bylgju og tónstilli 5 watta orka
Model 215 Vandað og fynr-
ferðarlítið stereosegulband
Model 112 Fyrsta flokks útvarp
með tónstilli og lang- og mið-
bylgju 4 stöðvar með forvali á
miðbylgju og 1 á langbylgju 5
watta orka
Model 920 Quadraline.
4rása segulband ásamt 4 há
tölurum Þetta er tæki á góðu
verði
Model 912 Quaclráline 4ra rása
segulband I háum gæðaflokki
14 watta orka Þetta er tæki
hinna vandlátu
M) MOTOfíOLA
Við höfum nú tekið að okkur umboð fyrir hin heimsþekktu
bandarfsku MOTOROLA bílaútvörp og segulbönd Við bjóðum
nú upp á 3 gerðir af utvöi'pum og 4 gerðir af segulböndum
ásamt 4 gerðum af hátalarasettum MOTOROLA tæki eru viðs-
vegar þekkt fyrír gæði og endingu og enginn hefur lengri
reynslu, þvi það var einmitt MOTOROLA sem smiðaði fyrsta
bilaútvarpið árið 1928 Og athugið að verð MOTOROLA
tækjanna er sérlega gott Komið eða hringið og við veitum
fúslega allar nánari upplýsingar.
’B/LABORG HF3
Borgartúni 29 simi22680
S3P S\GeA V/CJGA £ 1/LVE&4W