Morgunblaðið - 09.12.1975, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
Bretar veiddu við ísland
73.6581 fyrstu 9 mánuðina
Fiskmarkaðurinn í Bretlandi mjög hár
HEILDARAFLI Breta af tslands-
miðum er nú orðinn miðað við
sfðustu tölur, sem gefnar hafa
verið út, þ.e. til loka september,
73.658 tonn, en á fyrstu 9
mánuðum ársins í fyrra varð
aflinn 93.575 tonn. Af þessu eru
um 80% þorskur, þannig að
togararnir hafa veitt á fyrstu 9
mánuðum þessa árs 58.926 tonn
af þorski, en það eru 90.7% af þvf
boði, sem fslenzka samninga-
nefndin hafðí viðrað I viðræðun-
um við Breta f sfðasta mánuði.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Olgeirssonar, ræðismanns í
Grimsby, varð afli togaranna í
septembermánuði 7.832 tonn, en í
Skip Hafrannsóknastofn-
unarinnar bundin við
bryggju vegna fjárskorts!
sama mánuði í fyrra varð aflinn
10.798 tonn. Jón sagði að, þegar
þessar tölur væru bornar saman
yrði að hafa f huga að frá því f
marzmánuði 1975, hefur brezkum
togurum fækkað um u.þ.b. 30
skip.
Fiskmarkaðir f Bretlandi eru
mjög háir um þessar mundir og fá
togararnir mjög gott verð fyrir
aflann. Togari, sem var að veiðum
í Hvfta hafinu seldi f Grimsby i
gær 1116 tonn fyrir 18,8 milljónir
og var meðalverðið 168 krónur
eða rúmlega það. Þá seldi togar-
inn Northern Eagle 738 tonn af
Islandsmiðum fyrir 10,1 milljón
króna og fékk meðalverðið tæp-
lega 137 krónur. Ross Kelvin, sem
einnig kom af miðunum hér, seldi
638 tonn fyrir 8,8 milljónir króna
og fékk meðalverðið rúmlega 138
krónur. Loks seldi togarinn
Boston Commanche 601 tonn fyrir
7,9 milljónir króna. Meðalverð
hjá honum var 132 krónur fyrir
hvert kg.
— Viðtal við skipstjóra Boston
Commanche er á öðrum stað hér í
blaðinu.
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN
hefur átt við nokkra fjárhagserf-
iðleika að etja undanfarið og nú
iiggja þrjú stærstu skip stofnun-
arinnar bundin við bryggju í
Reykjavfk, þar sem ekki er hægt
að koma þeim út og minnsta skip-
ið, Dröfn, er væntanlegt til
Reykjavfkur á næstu dögum.
Jón Jónsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar sagði f sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
stofnunin hefði átt við erfiðleika
að stríða þennan mánuð og væri
nú beðið eftir aukafjárveitingu.
Arni Friðriksson hefði komið til
hafnar á laugardag og myndi
liggja við bryggju fram yfir ára-
mót, Bjarni Sæmundsson kæmi í
kvöld og yrði einnig bundinn.
Hafþór hefði legið við bryggju
siðan fyrir síðustu mánaðamót.
— Yfirleitt er það svo, að skipin
hafa frekar lítil verkefni í desem-
ber og þeim er oftast nær lagt um
miðjan mánuðinn og eru inni
fram yfir nýár. Nú er það hins
vegar svo, að búið er að leggja
skipunum eða verið að gera það,
Framhald á bls. 26
Samkomulag
ríkis og
BHM í dag?
SAMNINGANEFNDIR rfkis-
ins og Bandalags háskóla-
manna hafa nú f rúman mánuð
haldið viðræðufundi hjá
Kjaradómi. Er nú svo komið,
að samkomulag er f sjónmáli,
og sagði Höskuldur Jónsson,
ráðuneytisstjóri f fjármála-
ráðuneytinu, við Mbl. f gær-
Framhald á bls. 38
Hörður Þórðarson
sparisjóðsstjóri látinn
LATINN er f Reykjavfk Hörður
Þórðarson, sparisjóðsstjóri f
Sparisjóði Reykjavfkur og ná-
grennis, tæpra 66 ára að aldri.
Hörður Þórðarson fæddist 11.
desember 1909 að Kleppi við
Reykjavík. Foreldrar hans voru
Þórður Sveinsson prófessor og
yfirlæknir á Kleppi og k.h. Ellen
Sveinsson. Hörður lauk stúdents-
prófi við MR 1927 og lögfræði-
prófi frá Háskóla Islands 1933
Hann starfaði í Landsbanka Is-
lands fyrstu árin eftir nám en
gerðist árið 1942 sparisjóðsstjóri
hjá Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis og gegndi því starfi til
dauðadags, eða í rúm 33 ár.
Hörður starfaði töluvert að
félagsmálum, var m.a. í stjórn
SlBS í nokkur ár og sömuleiðis
formaður Bridgefélags Reykja-
víkur um hríð, en hann var f
nokkur skipti Islandsmeistari í
þeirri íþrótt og í landsliði.
Kona Harðar, Ingibjörg Odds-
dóttir, lifir mann sinn. Þeim varð
tveggja barna auðið, sem bæði
eru uppkomin.
Sigurður Guðnason
fyrrv. alþm. látinn
SIGURÐUR Guðnason fyrrver-
andi alþingismaður lést á sjúkra-
húsi í Reykjavík að morgni s.l.
sunnudags, 87 ára að aldri. Sig-
urður Guðnason stóð um árabil í
fylkingarbrjósti verkalýðshreyf-
ingarinnar og sat á Alþingi á
árunum 1946 til 1956, á 15 þing-
um alls, fyrst sem landskjörinn
þingmaður en síðan sem þing-
maður Reykvfkinga.
Sigurðar Guðnasonar er nánar
minnst á síðu 39.
40 millj. kr. skyndilán
til námsmanna erlendis
Krakkar!
Sendið efni
í jólalesbók
barnanna!
MORGUNBLAÐIÐ hefur í
hyggju að gefa út jólablað
fyrir yngstu lesendur sína með
svipuðu sniði og gert var í
fyrra. Þá fylgdi áttblöðungur
aðfangadagsblaðinu, þar sem
birtur var fjöldi teikninga
eftir börn, sögur, föndur og
leikir og ótal margt fleira. Þvf
viljum við nú hvetja krakka til
að senda blaðinu efni og það
sem allra fyrst. Það geta verið
teikningar, sögur, Ijóð, stutt
leikrit, gátur og þrautir og
hvað eina sem ykkur dettur i
hug. Utan á skal skrifað:
Morgunblaðið, „jólablað barn-
anna
MENNTAMALARAÐHERRA,
Vilhjálmur Hjálmarsson, til-
kynnti stjórn Lánasjóðs islenzkra
námsmanna í gær, að 40 milljón
kr. skyndilán hefði verið tekið til
að flýta afgreiðslu haustlána til
námsmanna eriendis.
I bréfi menntamálaráðuneytis-
ins til Lánasjóðsins segir, að ráðu-
neytið hafi i samráði við fjármála-
ráðuneytið samið við Seðlabanka
Islands um skyndilán að upphæð
40 milljónir króna. Lánið skuli
nota til að flýta afgreiðslu haust-
lána til námsmanna erlendis og að
lánið skuli greiða upp I janúar-
mánuði næstkomandi með hluta
af 100 milljón kr. greiðslu á fjár-
lögum 1976 sem áður hefur verið
heitið að veita til Lánasjóðsins í
þeim mánuði.
Gunnar Jóhannsson
settur skatt-
rannsóknastjóri
GUNNAR Jóhannsson lögfræð-
ingur hefur verið skipaður deild-
arstjóri í skattrannsóknadeild rík-
isskattstjóraembættisins frá 1.
nóvember 1975 að telja. Jafn-
framt hefur Gunnar Jóhannsson
verið settur skattrannsóknastjóri
í sex mánuði frá sama tíma að
telja. Gunnar Jóhannsson tekur
við skattrannsóknastjóraembætt-
inu af Ölafi Nilssyni, löggiltum
endurskoðanda, er fengið hefur
lausn frá þvf starfi skv. eigin ósk.
Gunnar Jöhannsson.
Rækjubátur
sigldi á
sker og sökk
RÆKJUBATURINN Glaður IS
101 frá tsafirði sigldi um sexleyt-
ið f gær á svonefnd Breiðusker
fyrir innan Ögurhólma f Isafjarð-
ardjúpi og sökk báturinn á
skömmum tfma. Bræður tveir
voru á bátnum, Júlfus og Jónatan
Framhald á bls. 26
JMtrgunliIðMfc
Jólalesbók bamanna
.. im mM
jólakötturínn
Kmhia. fimm ún. grtfU þt*tw myatl
Sjafa-
;>raut
«<* W* *
ín*4i*xSr
/Akl
Forsfðan af jólalesbók barn-
anna f fyrra.
Skipstjórinn á Boston Commanche:
„Kjánalegt að heyja
baráttuna á miðunum
Sendir skipherranum á Ægi sínar beztujólakveðjur
99
HINN 3. desember sfðastliðinn
klippti varðskipið Ægir á tog-
vfra brezka togarans Boston
Commanche GY 144 út af
Gerpi. Aðeins forvfrinn fór f
sundur og f gær seldi togarinn f
Grimsby 601 tonn fyrir 7,9
milljónir fslenzkra króna.
Meðalverð á hvert kg var 132
krónur, sem er gott verð, enda
hefur markaðurinn f Bretlandi
rokið upp, eins og hann raunar
gerir alltaf f þorskastrfði. Skip-
stjóri á þessum togara er
Raimund Evans og í gær
hringdi Mbl. til hans.
— Jú, mér fannst vernd
brezka flotans fullnægjandi,
sagði Evans, því ef hennar nyti
ekki við, gætum við augljóslega
ekki verið að veiðum. Nærvera
flotans er algjör forsenda veið-
anna.
— Misstuð þið vörpuna, er
Ægir skar á togvírana hjá ykk-
ur um daginn?
— Nei, enda fór aðeins annar
vírinn í sundur. Það tók okkur
fjórar klukkustundir að gera
við og greiða úr flækjunni, sem
myndaðist en sfðan gátum við
haldið áfram veiðum. Auðvitað
er ég síður en svo hrifinn af
þessum aðgerðum varðskip-
anna ykkar, en ég held að það
sé bæði vitlaust og kjánalegt, að
heyja baráttuna á miðunum.
Mál, sem þetta ætti að leysa f
viðskiptum ríkisstjórnar
minnar og ríkisstjórnar ykkar.
Þetta nær engri átt.
— Freigáturnar eru forsenda
veiða okkar eins og ástandið er
nú, sagði Evans, en gallinn er
þó sá að það er ekki nægilegur
fiskur á þeim slóðum, þar sem
við veiðum nú. Aflinn er mjög
Framhald á bls. 38
Gunnar ólafsson, skipherra á
Ægi; fær beztu jólaóskir frá
einu af fórnarlömbum sfnum.