Morgunblaðið - 09.12.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
7
Utsvör í
Reykjavík 1976
Langstærsti tekjuliður
Reykjavikurborgar eru út- ,
svörin. Áætlað er að |
brúttótekjur skattgreið-
enda i Reykjavik i ár (sem
koma til álagningar næsta
ár) séu 45 milljarðar og
648 milljónir króna. Er
hér um að ræða 27%
hækkun brúttótekna milli
áranna 1974 og 1975.
Gert er ráð fyrir, að þessi
tekjustofn gefi borginni 3
milljarða og 537 milljónir
i útsvörum á næsta ári,
sem er 16.8% hækkun frá
fjárhagsáætlun yfirstand-
andi árs.
Heimilt er samkvæmt
lögum og með samþykki
félagsmálaráðherra að
leggja 10% álag á útsvör.
Þessi heimild var notuð af
flestum ef ekki öllum
stærri sveitarfélögum á sl.
ári. Slikt 10% álag á
næsta ári myndi gefa
borginni um 419 m. kr. i
umframtekjur. Innifalið i
framangreindri útsvars-
álagningu Reykjavikur-
borgar á næsta ári eru þó
aðeins 150 m.kr. af þess-
um 419 m.kr., svo
Reykjavik virðist ekki
ætla að nota þessa álags-
heimild nema að hluta til,
þrátt fyrir að ýmsu leyti
erfiða fjárhagsstöðu.
Fasteigna-
skattar í
Reykjavík 1976
f frumvarpi að fjárhags-
áætlun borgarinnar fyrir
næsta ár eru fasteigna-
skattar áætlaðir 974.0
m.kr., sem er 21.7%
hækkun frá fyrra ári.
Áætlunin er miðuð við
það, að aðalmat fasteigna
frá áramótum 1969—70
verði framreiknað um
173% i stað 100% á lið-
andi ári. Er þetta i sam-
ræmi við auglýsingu fé-
lagsmálaráðuneytis frá
14. nóvember sl. og i
samræmi við hækkun visi-
tölu byggingarkostnaðar á
árinu. Árið 1972 vóru
fasteignagjöld 19.6% af
heildartekjum borgar-
sjóðs, en vóru i ár og
verða næsta ár um 14.1%
heildartekna. Ekki verða
nýtt nema 30% af heimil-
uðu 50% álagi á fast-
eignagjöld i borginni, sem
þýðir um 150 m. kr. lægri
fasteignagjöld en verið
hefði með itrustu álagn-
ingu
Meirihluti borgarstjórn [ ur við stjórn borgarinnar
hækkar aðeins um 6.2%.
ar er þeirrar skoðunar, að
stilla beri álagningu fast-
eignagjalda i hóf, en nýta
heldur að hluta til álags-
heimild á útsvör, sem bet-
ur kemur heim við tekjur
og gjaldgetu hvers og
eins.
Rekstrargjöld
borgarsjóðs
í ræðu borgarstjóra,
Birgis ísleifs Gunnarsson-
ar. er hann fylgdi úr hlaði
frumvarpi að fjárhags-
áætlun borgarinnar 1976,
gerir hann i itarlegu máli
grein fyrir, hvern veg tekj-
um borgarinnar verði var-
ið á næsta ári. Birtist
ræða hans. eða sá hluti
hennar er um þetta efni
fjallar. i Morgunblaðinu
sl. laugardag (bls. 12) og
visast til hennar um þá
ráðstöfun. Ættu borgarbú-
ar að kynna sér vel skýr-
ingar borgarstjóra á út-
gjaldaliðum borgarsamfé-
lagsins.
Heildarútgjöld borgar-
innar eru áætluð um 5
milljarðir króna. sem er
16.4% hækkun frá fyrri
áætlun. Rekstrarútgjöld
borgarinnar, að frádregn-
um kostnaði við nýfram-
kvæmdir i gatna- og hol-
ræsagerð, hækka þó að-
eins um 20.7% sem sýnir
aðhald i stjórnun borgar-
innar ef miðað er við verð-
lagsþróun á árinu 1975.
Athygli vekur að kostnað-
Tala, sem talar
sínu máli
i fjárhagsáætlun borg-
arinnar er gert ráð fyrir
100 milljóna króna fram-
lagi til Framkvæmda-
sjóðs, sem fyrst og fremst
er ætlað að mæta halla-
rekstri Bæjarútgerðar
Reykjavikur á næsta ári.
Þetta undirstrikar rekstr-
arstöðu togaraútgerðar I
landinu i dag. Stór hluti
togaraútgerðar i landinu
er ýmist á vegum sveitar-
félaga, eða rekinn með
verulegum eignarhluta
þeirra, þó um hlutafélög
sé að ræða. f mörgum til-
fellum þurfa sveitarfélög-
in að mæta rekstrarhalla
þessarar útgerðar með
skatttekjum frá borgurun-
um, en hafa að sjálfsögðu
ýmsan óbeinan hagnað af
starfsemi fyrirtækjanna
og atvinnutekjum starfs-
fólks þeirra. Aðstaða út-
gerðarfyrirtækja, sem að
öllu eru i einkaeign, og
njóta i engu framlaga eða
fyrirgreiðslu sveitarfé-
taga, er að sjálfsögðu
sýnu verri, og þarf vart að
leiða rök að þvi. — Kröfur
á hendur þessari útgerð
nú eru þvi vart timabærar.
A.m.k. þarf hófs að gæta,
ef ekki á að stefna I beina
rekstrarstöðvun, ef hlið-
sjón er höfð af rekstrar-
stöðu þeirra og fyrirsjáan-
lega skertri veiðisókn i
næstu framtið.
Norskir tón-
listarmenn
Á undanförnum árum hefur
Nordisk Solistrad fengið styrk
úr Menningarsjóði Norður-
landa til að geta kynnt efnilega,
unga tónlistarmenn með því að
senda þá f tónleikaferðir um
Norðurlönd. Halldór Haralds-
son fór í fyrstu slíku ferðina
fyrir þremur árum, og í fyrra
voru það finnskir tónlistar-
menn. Nú í ár var röðin komin
að Noregi.
Cellóleikarinn Aage Kval-
bein og píanóleikarinn Jens
Harald Bratlie urðu þar fyrir
valinu og komu hingað fyrir
hálfum mánuði og héldu m.a.
tónleika á vegum Tónlistarfé-
lagsins í Austurbæjarbíói,
þriðjudaginn 25. nóvember s.l.
Svo vill til, að enginn sá, er
skrifar um tónlist í blöðin, virð-
ist hafa verið viðstaddur. Þess
vegna kemur þessi síðbúna
„kvittun".
A efnisskránni voru sónötur
eftir Sammartini, Brahms,
Debussy og Sjostakovitsj, og
auk þess verk fyrir einleiks-
celló eftir Oistein Sommerfeldt,
sem sérstaklega var samið fyrir
þessa tónleikaferð. Sommer-
feldt er all afkastamikill tón-
smiður. Utgefin eru til eftir
hann ýmis verk, sem ekki eru
tæknilega kröfuhörð, líklega
samin og hugsuð sem kennslu-
efni. „Monolog" hans fyrir ein-
leikscelló kannaði og engar
furðustrandir, hvorki í smíða-
tækni né leiktækni. Þetta var
stuttur dansþáttur með hægum
inngangi og nokkuð snubbótt-
um eftirleik.
Forvitnilegt var að heyra G-
dúr sónötu Sammartini, þessa
ítalska, sögufræga manns, sem
á að hafa haft slík áhrif á ýmsa
samtímamenn sina," að hann
hefur staðið i skugga þeirra æ
síðan! (Nægir að nefna þá J.
Chr. Bach, Gluck, Haydn og
Tðnlist
eftir ÞORKEL
SIGURBJÖRNSSON
Mozart). Það var einhver
óþarfa asi (taugar?) á hröðu
þáttunum, svo að klassiski
þokkinn gaf varla kost- á sér.
í e-moll sónötu Brahms var
óneitanlega margt fallega gert
(svo sem Allegretto-þátturinn),
en eyrun löðuðust meir að pfan-
istanum en cellóleikaranum —
og það gerðu þau í Debussy
raunar líka — og sú tilfinning
vaknaði, að hér væri fremur
leikið „undir handleiðslu“ en
af persónulegri sannfæringu.
í d-moll sónötu Sjostakovitsj
ráku þeir félagar slikar tilfinn-
ingar á braut svo um munaði.
Tæknileg geta þeirra og geð
virtist þarna eiga fulla samleið
með skapi meistarans, þar sem
einlægni og kaldhæðni heyja
svo snarpa baráttu. Þeir sýndu
glæsilegan samleik og mikinn
sannfæringarkraft í þessu loka-
verki tónleikanna.
Þorkell Sigurbjörnsson.
Ferðasögur Jóns Trausta
„ÉG VIL elska mitt Iand“ ferða-
sögur Jóns Trausta hafa nú verið
gefnar út f tilefni af 100 ára af-
mæli höfundar.
Efno bókarinnar er sem hér
segir: Islandsvfsur, Ferðasaga af
Snæfellsnesi, Kringum Reykja-
nesskagann, Einsamall á Kalda-
dal, Frá nyrzta tanga Islands,
Fjallabaksvegur, Ferð upp á
Akrafjall, Eiríksjökull, Austur-
reið til Heklu i maí 1913 til að
skoða gosið í Hekluhraunum,
Eyjafjallajökull, Jökulsá á Sól-
heimasandi og Austur með sönd-
um.
Jón Aðalsteinn Jónsson skrifar
formála. Þar segir m.a.: „Guð-
mundur Magnússon var ferða-
maður mikill og göngugarpur á
yngri árum og raunar alla tfð,
enda var hann ekki nema liðlega
45 ára að aldri, þegar hann féll
frá í spönsku veikinni 18. nóv-
ember 1918. — Um síðustu alda-
mót voru ferðalög Islendinga,
hvort heldur var innan lands eða
utan, ekki orðin eins almenn og
nú á dögum. Er enginn efi á, að
margur maðurinn hefur talið
Jón Trausti.
ferðalög Guðmundar Magnússon-
ar upp um fjöll og firnindi og
fjallgöngur hans undarlegt uppá-
tæki og „ganga flónsku næst ...
að vera að slíta skóm og sokkum á
þvi að ganga uppi á fjöllin", svo
að orð hans sjálfs séu notuð.“
Bókin er 266 bls. að stærð,
prýdd fjölda mynda. Utgefandi er
Bókaútgáfa GuðjónsÖ.
RowenlA
15 bolla
kaffivél
(KG 24)
Hellir uppá á 5—10 |
mínútum.
IWIIVUHI MIVAKflfVR
er ný plata með
LÓNLÍ BLÚ BOJS
Lýsingarorð eru óþörf
”...Á hljómleikunum var yfirfullt af fólki og
komust fleiri aö en vildu. Fagnaðarlætin
ætluöu aldrei aö byrja og urðu áheyrendur
að hlýða á mörg aukalög...”
Fréttaklausan hér að ofan á svo sannarlega
ekki við um LÓNLÍ BLÚ BOJS, heldur var
henni skellt inn svona til uppfyllingar.
Annars voru strákarnir að senda frá sér
AÐRA breiðplötuna á þessu ári. Sú plata
mælir algerlega með sér sjálf og eru þvi öll
lýsingarorð óþörf.
Fæst einnig á litlum og stórum kasettum
Hljómplötuútgáfan HLJÓMAR
Skólavegi 12 ■ Keflavík • Sími 92-2717
AEG
STRAUVÉLAR
Freistandi fyrir frúna
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820