Morgunblaðið - 09.12.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
23
SUNNUDAGINN 14. oktðber
s.l. bauð bæjarstjðrn Kðpavogs
til kaffidrykkju I Félags-
heimiii Kðpavogs I tilefni þess
að annað árið I röð hlaut
Breiðablik Isiandsmeistaratitla
f þremur flokkum f knatt-
spyrnumðtum sumarsins.
Gestir bæjarstjðrnarinnar að
þessu sinni voru ts-
landsmeistarar 2. deildar
meistaraflokks, Islands-
meistarar 3. flokks og tslands-
meistarar 4. flokks ásamt
þjálfurum sfnum, stjðrn knatt-
spyrnudeiidar Breiðabliks og
nokkrum fleiri áhugamönnum
um knattspyrnumál.
Forseti bæjarstjðrnar,
Jðhann M. Jðnsson, ávarpaði
gestina og afhenti formanni
knattspyrnudeildar Breiða-
bliks, Guðna Stefánssyni
skrautritað heiðursskjal frá
bæjarstjðrninni með sérstöku
þakklæti fyrir vel unnin störf
deildarinnar á árinu. Einnig
færði Jðhann þjálfurum þess-
ara þriggja flokka bðkargjöf
sem þakklætisvott, en
þjálfararnir eru: Þorsteinn
Friðþjðfsson sem þjálfaði
meistaraflokk, Ásgeir Þor-
valdsson sem þjálfaði 3. flokk
og Guðmundur Þðrðarson sem
þjálfaði 4. flokk.
t lok hófsins ávarpaði for-
maður knattspyrnudeildar
Breiðabliks forseta bæjar-
stjðrnar og bað hann að færa
bæjarstjðrninni sérstakar
þakkir deiidarinnar fyrir
stuðning hennar við deildina
og fþrðttaæskuna f bænum.
Mót í borðtennis
FYRSTA borðtennismðt vetrar-
ins var haidið 27. nðvember s.l.
og var það borðtennisdeild KR,
sem gekkst þá fyrir punkta-
mðti. Sigurvegari f 2. flokki
varð Gunnar Finnbjörnsson úr
Erninum, f öðru sæti varð
Stefán Konráðsson, Gerplu, og f
þriðja sæti varð Ragnar
Ragnarsson, Erninum. t þriðja
flokki sigraði Hjálmtýr Haf-
steinsson, KR, Tðmas Guðjóns-
son, KR, varð annar og þriðja
sætinu deildu þeir Sigurður
Guðmundsson og Alexander
Árnason úr Erninum með sér.
t öðrum flokki er Gunnar
Finnbjörnsson nú stigahæstur
með 6 punkta, en aðrir f flokkn-
um eru: Björgvin Jóhannesson,
Gerplu, Jón Sigurðsson,
UMFN, og Ragnar Ragnarsson,
Erninum.
1 þriðja flokki hafa Hjálmtýr
Hafsteinsson, KR, og Hjörtur
Jðhannsson, UMFN, hlotið
flesta punkta, 15 talsins, og
þriðji er svo Tðmas Guðjðns-
son, KR, með 12 punkta.
Leikmaður þarf að ná 20
punktum til að komast f annan
flokk.
Þróttur meistari
ÞRÓTTUR varð Reykjavíkur-
meistari kvenna í blaki.
Sigruðu Þróttarstúlkurnar
báða andstæðinga sfna, tS og
Vfking, en þau tvö lið eiga eftir
að ieika um annað sætið f
mðtinu.
Þrðttarstúikurnar sigruðu
fyrst IS með yfirburðum:
15—0, 15—5 og 15—3, en f leik
þeirra við Vfkingsstúlkurnar
var um meiri baráttu að ræða.
Þrðttur vann þð 3:0, eða
15—11, 15—10 og 15—12, og
hefur liðið sennilega aldrei náð
eins gððum leik og það sýndi að
þessu sinni. Beztan leik
Þrðttarstúlknanna átti Guðrún
Sigurjðnsdðttir, en mðttaka á
uppgjöf hjá henni var mjög
nákvæm og uppspil hjá henni
fyrir skell var hátt og gott og
þær Sigríður Þorsteinsdðttir og
Þorbjörg Aðalsteinsdðttir
unnu vel úr þvf.
Knattspyrnuhátíð
í Kópavogi
Jónas Asgeirsson formaður S.R.
Eftir vel heppnað keppnistfmabil fðru yngri flokkar UBK f
keppnisferð til Skotlands s.l. haust og þar var þessi mynd tekin
af hinum efnilegu Kópavogsbúum, ásamt skozkum mðtherjum
þeirra.
AÐALFUNDUR Skfðafélags
Reykjavfkur var haldinn f
Skfðaskáianum f Hveradölum
27. nðvember s.I. Kom fram f
skýrslu formanns að starf
félagsins var blómlegt á sfðasta
starfsári og stðð félagið fyrir
fjölmörgum mðtum bæði f
svigi, stökki og göngu.
Leifur Miiller, sem verið
hefur formaður félagsins um
árabil, baðst undan endur-
kosningu, og var Jðnas Asgeirs-
son kjörinn formaður í hans
stað. Aðrir f stjðrn félagsins
eru Skarphéðinn
Guðmundsson, Páll Guðbjörns-
son, Baldur Ásgeirsson,
Haraldur Pálsson, Elien Sig-
hvatsson og Leifur Miiller.
Félagið mun, eins og undan-
farin ár, beita sér sérstaklega
fyrir norrænu skfðagreinunum
stökki og göngu, bæði fyrir ai-
menning og keppnisfðlk f vet-
ur. Við Skfðaskálann í Hvera-
dölum er mjög gðð aðstaða
fyrir æfingar og mðt.
Gglfi Kristjánsson:
Tvær hliðar á hverjn máli
— svar til Þrastar Guðjónssonar
1 GREIN hér f blaðinu s.l. þriðju-
dag skrifar Þröstur Guðjónsson
f.h. Iþrðttafélagsins Þðrs á Akur-
eyri, og sakar mig um villandi
fréttaflutning af leiðindamáli
sem upp kom á Akureyri f nóv.
s.I. t inngangi greinar sinnar seg-
ir Þröstur orðrétt: „Telja má
furðulegt, að fþrðttafréttamaður
og velunnari körfuknattleiks
skuli fara með svona fuflyrðingar
f fjölmiðfa án þess að kynna sér
alla málavexti.“
Ég myndi þó að vandlega athug-
uðu máli telja framangreind skrif
Þrastar sem ég vitnaði í, öllu
alvarlegri en mfn. Hvaða hug-
mynd hefur Þröstur Guðjónsson á
Akureyri um það hvernig ég vann
þessa grein, og að ég hafi ekki
kynnt mér málavexti? Ég leitaði
að vísu ekki til hans um upplýs-
ingar, enda taldi ég mig ekki
þurfa þess með. En strax og ég
frétti af þessari „tilhliðrunar-
semi“ Þórs við UMFS, og erfið-
leikum USVH á Akureyri um
sömu helgi, þá setti ég mig í sam-
band við form. Mótanefndar og
einnig framkvæmdastjóra K.K.I.
Hvorugur þeirra kannaðist við að
nokkrar breytingar hefðu verið
veittar eða heimilaðar á leikjum á
Akureyri umrædda helgi. Þetta
voru mínar heimildir fyrst og
fremst, auk þess sem ég ræddi við
mann á Akureyri sem titlaði sig
sem forsvarsmann USVH, og ég
ræddi einnig við fulltrúa K.K.I. á
Akureyri. Er þetta ekki allnokk-
uð til að byggja fréttina á?
Fulltrúa K.K.I. á Akureyri
fannst ekkert athugavert við að
gera þessa breytingu, segir Þröst-
ur í grein sinni.
Þegar ég ræddi við fulltrúa
K.K.I. á Akureyri um þetta mál
fyrst, kvaðst hann ekki telja sig
hafa haft neitt umboð til að gera
eitt eða neitt í þessu máli. En
hann sagði aftur á móti við mig i
dag (2.12) að hann hafði lýst
blessun sinni yfir þetta eftir að
búið var að ákveða það. — En nú
hefur því verið komið á hreint að
umræddur fulltrúi hefur fullt
umboð Mótanefndar til að „hnika
til“ leikjum sem fram fara
nyrðra.
Það kom í ljós eftir að grein
mfn birtist í Mbl. að fleiri höfðu
gert mistök varðandi leiki þess-
arar helgar en Þór og UMFS og
það kom illa við USVH. En því
verður ekki á móti mælt að mis-
tök Þórs og UMFS voru að breyta
leikjaniðursröðun Mótanefndar
án samráðs við ábyrga aðila hér
syðra. Ég efa þó ekki, og veit
reyndar, að þessi ákvörðun Þórs
Sveinn í KA
Handknattleiksliði KA á Akur-
eyri hefur nú bætzt góður liðs-
auki þar sem er Sveinn Sveins-
son, er áður lék með Fram.
Sveinn dvelur nú fyrir norðan og
hefur tilkynnt félagaskiptin. Hins
vegar er ekki á hreinu að hann
geti keppt að sinni með KA, þar
sem hann lék einn leik með Fram
í Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik og samkvæmt reglunum má
sami leikmaðurinn ekki keppa
með tveimur félögum á sama
keppnistimabilinu. KA mun hins
vegar leita eftir undanþágu fyrir
Svein, og er ekki ólíklegt að hún
fáist.
J'
Firmakeppni SSI
FIRMAKEPPNI Sundsambands
Islands fer fram í Sundhöll
Reykjavíkur mánudaginn 8. des-
ember kl. 20.00.
Keppnin er forgjafarkeppni og
verður keppt í 50 metra skrið-
sundi karla og kvenna og 50
metra bringusundi karla og
kvenna.
var gerð í þeim tilgangi að koma
til móts við óskir UMFS.
Starf mitt við Mbl. hlýtur að
útheimta að ég greini frá þvi sem
TBR heldur opið badmintonmót
sunnudaginn 21. desember i
Laugardalshöllinni. Keppnin
hefst kl. 13.30 stundvlslega.
Keppt verður I öllum greinum
karla og kvenna f meistara- og
A-flokki svo og tvíliðaleik „old
boys.“
Opið unglingamót í einliðaleik
gerist i sambandi við körfuknatt-
leikinn, hvort sem það eru fréttir
af leikjunum beint eða óbeint. Að
standa i blaðaskrifum og deilum
um þær fréttir vildi ég þó að
sjálfsögðu losna við, en svara ef
mér þykir þess þurfa.
verður svo haldið í KR-húsinu
laugardaginn 27. desember kl.
13.30. Auk hinna venjulega
flokka verður keppt í flokki yngri
en 12 ára.
Þátttökutilkynningar fyrir
bæði mótin skulu hafa borizt til
Hængs Þorsteinssonar í síma
35770 fyrir 15. desember.
ÍÞRÓTTIR St ÚTÍLÍF 4 TQUJBLAD 1975 — 35 ARGANGUB
LESIÐ UM ÍSLENSKU
ATVINNUMENNINA
í nýútkomnu íþróttablaði er fjallað um islensku at-
vinnumennina i knattspyrnu og ræt er við Ásgeir
Sigurvinsson, Jóhannes Eðvaldsson og Guðgeir Leifs-
son.
Viðtal er við Helga Danielsson, formann mótanefndar
KSÍ, Spjallað við Steinar J. Lúðviksson i þættinum
um íþróttafréttamenn.
Olympíuleikarnir i Montreal eru á dagskrá. Torfi
Tómasson segirfrá starfsemi Sundsambands íslands.
f þættinum Af úrslitatöflunni er sagt frá helstu
úrslitum sumarsins i öllum iþróttagreinum.
íþróttablaðið er málgagn ÍSÍ og vettvangur
50 þús. meðlima íþrótta- og ungmenna-
félaga víðsvegar um landið.
Til iþróttablaðsins pósthólf 1193, Rvík. Óska eftir áskrift.
Nafn
Heimilisfang Simi
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
íþróttir og útilíf
Laugavegl 178 - Símar 82*300 og 82*302
Badmintonmót