Morgunblaðið - 26.03.1976, Page 7

Morgunblaðið - 26.03.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976 7 Fréttaflutning- ur ríkis- fjölmiðla Til fréttaflutnings ríkis- fjolmiðlanna, hljóðvarps og sjónvarps, eru gerðar þær eindregnu kröfur, að fréttir þeirra séu óhlut- drægar og þar sé ollum aðilum og skoðunum gert jafnhátt undir höfði. Þetta hefur tekizt misjafnlega hjá fréttastofum hljóð- varps og sjónvarps en stundum keyrir svo úr hófi, að ekki verður hjá því komizt að gera at- hugasemdir og krefjast skýringa. í kvöldfréttum hljóðvarps s.l. þriðjudags- kvöld var skýrt frá úrslit- um stjórnarkjörs i Stúdentafélagi Háskóla íslands. Síðar í kvöld- fréttatímanum var lesin svohljóðandi „frétt": „Það var sagt frá því í fréttum, að Kjartan Gunnarsson hefði verið kosinn formaður I Stúdentafélagi Háskóla íslands. VAFI LEIKUR Á, HVORT KOSNINGIN SEM FRAM FÓR Á FUNDINUM í FÉLAGINU í DAG SÉ LÖGM/ET, ÞAR SEM FUNDURINN LEYSTIST UPP VEGNA SVIPTINGA MILLI HÆGRI OG VINSTRI MANNA." Nú hefði ekkert verið við það að athuga, að hljóðvarp hefði birt athugasemd um þetta efni frá aðila, sem málið snerti eins og t.d. frá fyrrverandi formanni Stúdentafélagsins, sem telur sig enn vera for- mann. En fréttastofa hljóðvarps hefur með ofangreindri frétt tekið það á sínar herðar að staðhæfa, í eigin nafni og á eigin ábyrgð, að „vafi" leiki á því, hvort kosning- in hafi verið lögmæt. Þetta er auðvitað fáheyrð framkoma af hálfu frétta- stofu hljóðvarps, brot á þeim almennu reglum, sem hljóta að gilda um óhlutdrægni í frétta- flutningi hljóðvarps og vísbending um, að á skorti nægilega sterka stjórn á fréttaflutningi hljóðvarps. Það er þvi eðlilegt, að formaður Stúdentafélags Háskóla íslands hefur sent frétta- stjóra hljóðvarps bréf, þar sem hann krefst skýringa á þessum vinnubrögðum og staðhæfingum frétta- stofu hljóðvarps en i bréf- inu segir Kjartan Gunnarsson m.a: „Af þessum sökum vil ég fara þess á leit við yður, að þér greinið heimildarmann þessarar rangfærslu, sem lesin var i fréttatíma, sem frétt og að þér gefið skýr- ingu á því, hvers vegna ekki var leitað öruggari heimilda. . Þess er að vænta, að skýringar verði gefnar og að yfirstjórn Rikisútvarps- ins geri ráðstafanir til, að fréttastofa hljóðvarps haldi sig innan þess starfsramma, sem henni er ætlaður en láti vera að skipa sér i dómarasæti um það, hvað er rétt og hvað er rangt í málefnum stúdenta sem annarra. Annað dæmi Annað dæmi um sér- kennilegan fréttaflutning hljóðvarps, þar sem aug- Ijóslega gætir ríkrar til- hneigingar til þess að koma á framfæri skoðun, að þvi er virðist frétta- mannsins, í frétt, má taka úr morgunfréttum í gær- morgun. í fréttatima kl. 8.15 var lesin frétt um ferð tveggja skipherra Landhelgisgæzlunnar til Þýzkalands. í frétt þessari sagði síðan: „Bandariska utanríkisráðuneytið hefur engu svarað beiðni íslend- inga um skip til land- helgisgæzlu ÞÓTT LIÐIÐ SÉ HÁTT Á AÐRA VIKU SÍÐAN HENNI VAR KOM- IÐ Á FRAMFÆRI " Það fer ekki á milli mála, að ásetningur fréttamanns er að koma þeirri skoðun að hjá útvarpshlutsendum, að það sé ámælisvert, að Bandarikjastjórn skuli ekki hafa svarað þessari beiðni. Nú geta menn haft sinar skoðanir á þvi, en kjarni málsins er sá, að það er ekki hlutverk fréttastofu Rikisútvarps- ins að láta í Ijós skoð- anir á málum í fréttum eins og augljóslega er gert í ofangreindri setningu. Hér gætir enn ríkrar tilhneiging- ar til þess að fara út fyrir þann ramma, sem fréttastofunni ber að halda fréttaskrifum sínum í. Og sannleikurinn er sá, að þótt ekki sé enn um að ræða reglubundna mis- notkun aðstöðu, en hins vegar bersýnilega til- hneigingu til þess, er hér um svo alvarlegt mál að ræða, að yfirstjórn Ríkis- útvarpsins hlýtur að taka i taumana og gera ráðstaf- anir til þess, að slíkt endurtaki sig ekki. Það er svo önnur saga, þótt Morgunblaðið hyggist ekki taka upp skoðan- askipti við þá fréttamenn Rikisútvarpsins, sem hér eiga hlut að máli og yfir- menn þeirra, að væntan- lega þekkja íslendingar það af eigin raun, að stjórnvöld taka sinn tima i að taka ákvarðanir og eru bandarisk stjórnvöld ekk ert einsdæmi um það. Þannig lögðu dagblöðin inn til verðlagsyfirvalda beiðni um hækkun á áskriftargjaldi blaða á föstudag í sl. viku. Af ein- hverjum ástæðum var sú beiðni ekki tekin fyrir á fundi verðlagsnefndar sl. miðvikudag og er þess þá að vænta, að hún verði afgreidd i siðasta lagi á fundi verðlagsnefndar n.k. miðvikudag. En þá vill svo til að það mun hafa tekið verðlagsnefnd og viðskiptaráðuneytið „hátt á aðra viku" að af- greiða svo einfalt mál. TJTSOLU- MARKAÐURINN sem hefur vakiö sem hefur vakiö veröskuldaöa athygli er aö LAUGAVEG. 66 Ennþá er hægt aö gera stórkostleg ■![ A " kaup á þessum markaöi yyOpk. s Hreint út sagt ótrúleg verð fyrir / 1. flokks vörur Látiö ekki happ úr hendi sleppa, því markaðurinn heidur áfram í stuttan K tíma í viöbót í | . Laugavegi 66, sími 28155 Til leigu kjötvinsluaðstaða Um 130 ferm. vinnsluaðstaða er til leigu nú þegar. Fyrir hendi er jafnframt aðstaða til reykinga, góður frystiklefi og kælir eru til staðar auk ýmissa vinnslustækja. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir 1. april merkt ,,Kjötvinnsla — 2416" litla f ranska TRÖLLIÐ SIMCA 1100 sendibíllinn hefur sannað ágæti sitt á íslandi. Fjöldi íslenskra fyrirtækja hefur eignast litla TRÖLLIÐ, sem flytur a. m. k. 500 kg í ferð. SIMCA 1100 VF2, er einn eftirsóttasti sendibíll Evrópu. Af útbúnaði SIMCA 1100 má nefna: Framhjóladrif, styrkta dempara, öryggis-| pönnur undir gírkassa, vél og bensín- geymi, og annan búnað fyrir slæma vegi. Tryggið atvinnuöryggið — kaupið litla franska TRÖLLIÐ. \\fnkull Hff. Afmælishátíð Skíðaskólans íKerlingar- ! fjöllum 15 ára afmælis skólans verður minnst með sameiginlegu borðhaldi, Kerlingarfjallasöngv- um, skemmtiatriðum og dansi að Hótel Borg 2. : apríl kl. 1 9:30. Miðar fást nú þegar hjá Zoéga, Hafnarstræti 5. I Allir nemendur skólans, fyrr og síðar, velkomnir j meðan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.