Morgunblaðið - 26.03.1976, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.03.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976 19 Frá borgar- stjórn IBÚÐARBYGGINGAR Á borgarstjórnarfundi 18. marz, við afgreiðslu fjárlagaáætlunar Reykjavíkurborgar, urðu allmikl- ar umræður um húsnæðismál i tilefni af tillögu minnihlutaflokk- anna um byggingu 350 leiguíbúða og 100 söluibúða til fólks, sem býr í óhentugu eigin húsnæði. Borgin hafi forkaupsrétt á þessum íbúð- um. Magnús L. Sveinsson (S) upp- lýsti í umræðunum, að á næstu dögum yrðu auglýstar 308 íbúðir, sem byggðar eru samkvæmt lög- um um verkamannabústaði, svo- kallaðar VB-ibúðir, sem afhentar verða fullfrágengnar á tímabilinu mai 1976 til október 1977. Þar af verða á þessu ári afhentar 160 íbúðir. Magnús flutti eftirfarandi frá- vísunartillögu fyrir hönd sjálf- stæðismanna „A árinu 1973 hófust fram- kvæmdir við byggingu 308 ibúða samkvæmt lögum um verka- mannabústaði. Fyrstu íbúðir i þessum I. áfanga verða afhentar íbúðar- kaupendum í mai næstkomandi og siðan mánaðarlega til október 1977. Undirbúningur er hafinn við byggingu II. áfanga, þar sem gert er ráð fyrir að byggja allt að 240 ibúðir. 308 VB-íbúðum úthlutað á næstunni: Hraða þarf byggingu verkamannabústaða og íbúða fyrir aldraða Borgarstjórn Reykjavíkur telur, að því fjármagni, sem til ráðstöfunar er til íbúðabygginga sé bezt varið til að hraða byggingu verkamannabústaða svo og bygg- ingu ibúða fyrir aldraða, sem eru í byggingu og áformað er að byggja. Borgarstjórn vísar því frá til- lögu III (um húsnæðismál) frá borgarfulltrúum Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks." Magnús L. Sveinsson lagði áherzlu á í ræðu sinni, að Reykja- vikurborg efldi byggingu verka- mannabústaða eftir þvi sem fjár- magn borgarinnar frekast leyfði hverju sinni, í stað þess að byggja leiguhúsnæði til viðbótar þeim rúmlega 700 leiguíbúðum, sem borgin á nú þegar. Magnús benti á, að vegna óhag- stæðra lánamöguleika borgarinn- ar út á leiguíbúðir myndi kostnað- ur borgarinnar af byggingu 100 leiguíbúða jafngilda kostnaði borgarinnar af byggingu um 300 fbúða, sem býggðar eru amkvæmt lögum um verkamannabústaði. HÆKKUN LÁNA UT A ELDRI IBÚÐR Magnús L. Sveinsson ræddi þvi næst um nýtingu eldra húsnæðis og sagði m.a.: Ég hygg að nokkuð sé um það Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi aó aldrað fólk, einstaklingar og hjón, þar sem börnin eru farin af heimilinu, búi í tiltölulega stórum íbúðum, sem eru illa nýttar og vilji gjarnan komast yfir minni íbúðir, sem hentuðu að mörgu leyti betur. Ég hefi hins vegar ekki mikla trú á því, að aldrað fólk, sem á íbúðir hafi áhuga á því að selja sinar ibúðir og kaupa ibúðir af Reykjavikurborg með þeirri kvöð að borgin hafi forkaupsrétt. Það sem ég tel fvrst og fremst raunhæft i þessu máli er, að lán út á eldri íbúðir verði hækkuð verulega frá því, sem nú er. Mér er kunnugt um, að félags- málaráðherra mun hafa í huga að flytja á næstunni frumvarp til íaga um breytingar á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins, sem miðar að því, að rýmka um árlega fjárveitingu til kaupa á eldri ibúðum. Eg vil fagna þessari fyrirætlan félagsmálaráðherra, því ég tel að veruleg hækkun lána til kaupa á eldri íbúðum sé einn þýðingar- mesti þátturinn í því að beina þróuninni inn á þá braut að auka nýtingu eldra húsnæðis. LÖG UM VB-IBÚÐIR GERÐ VIRKARl Með lögum frá 1970 var laga- ákvæðum um verkamanna- bústaðakerfið breytt mjög veru- lega i þá átt að gera það virkara en það hafði verið um nokkurt skeið. Stofnaðar voru stjórnir verkamannabústaða í fjölmörgum sveitarfélögum þar á meðal í Reykjavík. Fjár i Byggingarsjóði verka- manna er aflað annars vegar frá þeim sveitarfélögum, sem ákveða að byggja verkamannabústaði og hins vegar úr ríkissjóði. Sveitar- félag ákveður greiðslu sem miðast við tiltekna fjárhæð pr. ibúa, og Borgarstjórnar- ræða Magnús- ar L. Sveins- sonar um hús- næðismál er rikissjóður skyldur til þess að greiða jafnháa fjárhæð ámóti. Samkvæmt þessu kerfi þarf borgin að leggja fram um 25% af byggingarkostnaðinum. Ef Reykjavíkurborg byggir hins vegar leiguibúðir þarú hún að leggja fram 65 —75% af bygg- ingarkostnaðinum. Það er þvi augljóst, að frá fjár- hagslegu sjónarmiði er það mjög óhagstætt fyrir Reykjavikurborg að byggja leiguhúsnæði miðað við verkamannabústaði, eins og til- laga minnihlutaflokkanna gerir ráð fyrir. 300 VB-IBÚÐIR I STAÐ 100 LEIGúlBÚÐA Kostnaður borgarinnar af bygg- ingu 100 leiguíbúða á ári jafn- gildir kostnaði borgarinnar af byggingu 300 íbúða, sem byggðar eru samkvæmt lögum um verka- mannabústaði. Af þessu er ljóst, að það fjár- magn sem Reykjavíkurborg myndi verja til byggingu leigu- húsnæðis mundi óhjákvæmilega bitna mjög harkalega á byggingu verkamannabústaða og leiða til þess að mun færri íbúðir yrðu byggðar hér í Reykjavik en ella. Bygging verkamannabústaða er háð framlagi borgarinnar. Ríkið Framhald á bls. 20 ÞQrvarður Elíasson, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs: Afkoma verzlunar 1974 hin lakasta í mörg ár Hvað Hér fer á eftir kafli úr ræðu, sem Þorvarður Elíasson, fram- kvæmdastjóri Verzlunarráðs Islands flutti á verzlunar- málaráðstefnu Sjálfstæðis- flokksins fyrir skömmu. Fjallar þessi kafli um afkomu verzlunarinnar á árunum 1971—1973. Á árinu 1971 hefur afkoma verzlunarinnar verið dágóð, eða 1,8% af veltu þar af hefur heildverzlunin hagnast sem nam 2,3%, en smásalan 1,4%. Árið 1972 hefur afkoman minnkað mjög mikið. Þannig hefur heildarhagnaðurinn ekki orðið nema 0,9% af veltu. í heildverzlun hefur hann verið 1,7% en í smásölu aðeins 0.1%. Arið 1973 batnar afkoman mjög verulega í heildverzluninni, en er nánast óbreytt í smásölunni. Sé litið á afkomu hinna einstöku greina heildverzlunar og smásöluverzlunar kemur í ljós, að afkoman er mjög mis- munandi eftir greinum. Þannig hefur afkoma byggingavöru- verzlana verið jákvæð þessi þrjú ár, en sveiflast mjög mikið og sama má segja um afkomu bifreiðaverzlana og varahluta- verzlana Afkoma almennra heildverzlana hefur verið mun jafnari og þar virðist gæta meiri stöðugleika Afkoma verzlana sem verzla með hús- búnað og heimilistæki hefur' verið góð árin 1971 og 1972, en versnað mjög mikið árið 1973. Afkoma ýmissa sérverzlana svo sem úra- og skartgripa- snyrti- vörubúða og þess háttar virðist hafa verið nokkuð stöðug og jákvæð öll árin. Afkoma Þorvarður Ellasson blandaðrar verzlunar þ.e. mat- vöruverzlana og fatnaðar- verzlana í þessum flokki eru kaupfélögin og stórir markaðir, hefur verið góð árið 1971 nei- kvæð árið 1972 og lítillega já- kvæð árið 1973. Þær tölur sem fyrir liggja um afkomu ársins 1974 benda til að afkoman á þvi ári verði sú lakasta sem verið hefur siðan 1971. Þannig má búast við að hagnaður verði aeins 0,4% af veltu í heild sinni þar af 1,3% í heildverzlun, og neikvæð um !4% I smásölu. Afkoman versn- ar mjög mikið og fer niður fyrir 1% af veltu í byggingavörum, verður nánast óbreytt eða batnar lítillegá í bifreiða- verzlun og varahlutum og versnar talsvert í almennri heildverzlun og verður svipuð og 1972. I smásölunni verða það nær eingöngu litlu sérverzlan- irnar, sem halda viðunandi af- komu, og afkoma matvöru- verzlana virðist munu versna mjög mikið. Þá höfum við fetað okkur fram til þess að ræða um hvern- ig afkoman hefur verið á síðast- liðnu ári, árió 1975. Eins og þið sjáið er sú áætlun sem þið hafið fyrir framan ykkur gerð í október það ár þ.e. áður en árið var liðið. Þá lágu vitanlega ekki fyrir traustar upplýsingar til að byggja á spá um afkomu ársins og verður því að taka þessar tölur með fyrirvara Vitanlega mætti gera mun áreiðanlegri áætlun í dag, en það var þó ekki gert fyrst og fremst vegna þess aó nú er svo stutt þar til upplýs- ingar fara að berast um niður- stöður skattframtala einstakra fyrirtækja, sem byggja má á áreiðanlegri útreikninga að ekki þótti ástæða til að fara að hreifa við þessu verki og endur- meta afkomuna á þessu stigi. Eins og þið sjáið er gerð hérna áætlun útfrá tveim forsendum. Það er i fyrsta lagi út frá þeirri forsendu að álagningin verði sú sama á árinu 1975 og hún var árið 1974. Ef svo fer mun afkoman batna litillega árið 1975 og verða mjög svipuð og hún var árið 1972, þó litið eitt lakari. Með öðrum orðum þá yrði útkoman næst lélegasta af- koma verzlunarinnar frá þvi 1971 aðeins árið 1974 er lakara. Nú er það svo að i febrúar 1975 þegar gengið var fellt tók verðlagsnefnd ákvörðun um að lækka verzlunarálagningu þeirra vörutegunda sem hún ákveður álagningu á. Síðari dálkurinn sýnir hver afkoma verzlunarinnar yrði ef öll álagning lækkaði jafn mikið og verðlagsnefnd ákvað að lækka álagninguna um. Ef þannig fer má búast við að afkoman verði mjög mikið neikvæð eða sem nemurtæpu 1% af veltu, þar af mun heildverzlunin tapa sem nemur þriðjungi úr prósentu og smásalan sem nemur 1!4%. Ég held að það megi alveg fullyrða, að slíka afkomu þyldi verzlunin ekki án þess að til kæmi mikill samdráttur uppsagnir starfs- fólks og lokun margra verzlana um allt land. Þar sem það hefur ekki gerst má telja víst, að Frá fundi verslunarráðs r fram- undaní verzlun * lands- manna? álagning hafi ekki lækkað að þvi marki, sem verðlagsyfirvöld ætluðust til, enda ef við skoðum álagninguna eins og hún hefur hreyfst árið 1971—1974 en þessi ár liggja fyrir nokkuð traustar heimildir um hvað gerðist í raunveruleikanum eins og hann kemur fram í skattframtölum þá kemur í ljós, að verzlunarálagning hreyfist með allt öðrum hætti heldur en verðlagsyfirvöld ætlast til. Þannig verður ekki séð að ákvarðanir verðlagsnefndar hafi mikil áhrif á hver raun- veruleg álagning á vöruverð verður; að minnsta kosti bera þessar skýrslur það ekki með sér. Þetta kemur ef til vill ein- hverjum á óvart, en þarf þó ekki að gera það ef betur er að gáð því það er ekki nokkur ástæða til að ætla að verðlags- yfirvöld né önnur stjórnvöld, sem taka ákvarðanir i efnahags- málum þjóðarinnar geti fremur brotið rikjandi efnahagslögmál heldur en önnur náttúrulög- mál, sem gilda í heiminum og sett eru af þeim æðri máttar- völdum. Nú kann að vera að einhver skilji orð min sem svo að þá skipti engu máli hvort verðlagsnefnd starfi eða ekki né heldur hvernig hún starfar. Svo er þó alls ekki. Enda þótt verðlagsnefnd hafi ef til vill litil áhrif á hver raunveruleg álagning sé á vörum þá hafa Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.