Morgunblaðið - 26.03.1976, Síða 22

Morgunblaðið - 26.03.1976, Síða 22
22 MORCíUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976 Minning: HaUdóra Sœmunds •• dóttir Ogurnesi Sselir allir sátlKsandi slðar friðarl jós þeim skfn; friðarins guó á frióarlandi fadmar þásem börnin sín. y .B. I dag 26. marz hefði Halldóra Sæmundsdóttir frá Ögurnesi orð- ið niræð. I tilefni af þvi er hennar minnzt hér. Halldóra var fædd á Galtahrygg í Vatnsfjarðarsveit, þar sem foreldrar hennar bjuggu þá, en i frumbernsku flyzt hún með þeim að Hörgshlið í sömu sveit, þar sem hún ólst upp i stór- um systkinahópi. Foreldrar hennar voru hjónin Sæmundur Gíslason, Sæmunds- sonar prests Þorsteinssonar í Ciarpsdal og María Jönsdóttir, Jónssonar bónda á Galtahrygg. Halldóra var ein af þrettán börnum þeirra hjóna, sú fimmta í röðinni. Ellefu þeirra komust til fullorðins ára. Elzta systirin Guðrún dó um tvítugt. Hin voru eftir aldursröð: Guðjón, bóndi í Heydal og Vog- um, fyrri kona hans Ingibjörg Runólfsdóttir, síðari kona hans Salvör Friðriksdóttir, Hjörtur, skipstjóri i Ögri, kvæntur Láru Stefánsdöttur, Guðbjörg, fluttist til Ameríku, gift Elíasi Elíassyni, Halldóra, sem hér er minnst, Val- gerður á Isafirði gift Jóni Snorra Arnasyni, kpm., Sigríður giftist til Noregs, f.m.h. M. Kyllingmark s.m.h. R. Tindberg, Gísli; bústjöri í Ögri, giftur Ragnheiði Olafsdótt- ur, Lára, dó7 ára að aldri, Kristín, saumakona og trúlwði, ógift, hún andaðist síðust þeirra systkina þ. 7. növ. s.I., Guðrún yngri, frú í Rvk., gift Gissuri Sveinssyni trésmm,, hún lézt á bezta aldri frá 6 börnum ungum. I þessum stóra syst kinahópi ólst Halldóra upp. Oft hefur sennilega verið þröngt í búi og lífsbaráttan hörð, en þess minnlist Halldóra aldrei, en hins hve heimilislifið var ánægjulegt og fjölskyldan samhent. Báðir foreldrarnif v.oru vel hag- mælt og gekk það í árf til flestra systkinanna. Minntist Haildóra þess með ánægju í elli sinni og rifjaði upp stökur, sem flugu þeirra á milli. Heimilið var jafnan fjölmennt og þar dvöldu sín sið- ustu ár báðar ömmur Halldóru; Guðbjörg, föðuramma, — móður- systir Torfa í Olafsdal — og Guð- rún, móðuramma, ættuð úrBarða- strandasýslu. Þessar konur báðar tóku sinn þátt i uppeldi Hörgs- hliðarsyst kinanna. Halldóra missti föður sinn um fermingaraldur, en móðir hennar bjó í Hörgshlíð eftir það um nokk- urra ára skeið, ásamt börnum sin- um. Halldóra fór um tvítugsaldur til Isafjarðar og nam þar karl- mannafatasaum hjá Þorsteini Guðmundssyni, klæðskera, og var þar einnig á hússtjórnarnám- skeiði. Síðan lá leið hennar aö Skálavik við Mjóafjörð til Gunn- ars bönda Halldórssonar alþm. Þar kynntist hún fóstursyni Gunnars, Bjarna Einari Einars- syni, Bjarnasonar „snikkara" á Isafiröi. Þau giftust 10. september 1911 og buggu á Isafirði fyrstu hjú- skaparár sín. Bjarni var þar verk- stjóri hjá Asgeirsverzlun. Arið 1914 skipuðust mál þannig, að As- geirsverzlun setti upp fiskverzlun i Ögurnesi. Réðst Bjarni þangað til að stjórna kaupum og verkun á fiski. Fluttust þau hjön þá í Ögur- nes og þar stóð heimili þeirra í 30 ár eða til ársins 1944. Þau hjón eignuðust 10 börn, 4 dætur og 6 syni. Þau eru talin eftir aklursröð: Kristjana gift Kjartani Olafs- syni frá Strandseli fltr; Lára gift Daníel Kristjánssyni frá Eyri, trésmm.; Bjarni, sjóm. kvæntist Björgu Kristjánsdóttur frá Hafnarnesi; Sæmundur skólastj., kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, kennara frá Akureyri; Gunnar, sjóm., kvæntist Ingi- bjorgu Oladóttur frá Hvítanesi, d. 1971; Eiginmaður minn. + INDRIÐI HELGASON rafvirkjameistari. Ráðhústorg 1, Akureyri, er látinn Laufey Jóhannsdóttir. Útför + ÓLAFSHÁKONARSONAR Efstasundi 88, Rvk., fer fram frá Fossvogskirkju 29 marz kl 3 Blóm afþökkuð Þorbjörg Ólafsdóttir Valur Benediktsson, Hákon Jónsson Agnes Ingólfsdóttir og barnabörn Móðir okkar, tengdamóðir og amma ÓLÖF GUÐMUNDSDÓTTIR. Sléttubóli, Austur- Landeyjum, verður jarðsunginn frá Krosskirkju laugardagínn 27 marz kl 2 eftir hádegi Þorsteinn Þórðarson, Guðmundur Þórðarson. Sesselja Þórðardóttir, Erlendur J. Jónsson, Valgerður Þórðardóttir, Guðni B. Guðnason, Guðlaug Þórðardóttir, Egill Friðbjörnsson og barnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns mins, GUDNA ELÍSSONAR. Guðrún Halldórsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. Jón Snorri, vélstj., ókvæntur, bjö með möður sinni; Ingibjörg, gift Kristjáni Jóns- syni frá Hnifsdal, hafns.m.; Baldur, vélstj., kvæntur Ástu F. Rasmusen frá Ærö Danmörku; Jakob múraram., kvæntur Soff- íu Bjarnadóttur frá Akureyri; Sigríður, gift Gunnlaugi Finns- syni frá Hvilft, alþm. Af komendur Halldóru eru 50. Heimili þeirra Halldóru og Bjarna var alltaf mannmargt, auk barnanna var oftast eitthvað af fólki, sem starfaði við fiskverkun- ina. Móðir Halldöru dvaldi síð- ustu 15 æviárin á heimili hennar. Atti hún mikinn þátt í uppeldi barna dóttur sinnar, kenndi þeim m.a. fiestum að lesa, Hún lézt áttræð að aldri 1935. Eins og gef- ur að skilja, var starf húsmóður- innar ærið, en hún saumaði nær allan fatnað á börn sin og annað heimafólk, auk þess sem hún hjálpaði nágrönnum í þeim efn- um. Gestkvæmt var jafnan á heimili þeirra, þvi margir áttu erindi við Bjarna, mann hennar, sem vann mikið að félagsmálum sveitar sinnar, auk annars í sambandi við starf hans. Öllum var tekið af alúð og gest- risni, hver sem í hlut átti, og var þar ekki farið í manngreinarálit. Halldóra var félagslynd og sinnti þeim málum eftir því sem heimilisástæður leyfðu og þó einkum eftir að börnin uxu upp. Síðustu árin i Ögurnesi, þegar fiskverzlunin þar hafði lagst nið- ur, gerði Bjarni út vélbát, ásamt sonum sínum. En þegar hann, annars með fullu starfsþreki, — missti sjónina skyndilega, flutt- ust þau til Isafjarðar ásamt börn- um sínum, þeim sem enn voru heima. Það var árið 1944. Hún hjúkraði manni sinum blindum i 18 ár, en hann lézt 1959 þá 85 ára að aldri. A Isafirði hélt hún heimili með syni sínum Jóni Snorralengst af á Hlíðarvegi 5, utan tvö síðustu ár- in, er hún sökum vanheilsu og elli gat ekki lengur sinnt heimilis- störfum og dvaldi á Elliheimili Ísafjarðar. Var hún mjög þakklát forstöðukonu og starfsfólki fyrir góða umönnun. Halldóra hafði fótavist fram á síðasta dag. Hún andaðist hinn 20. september s.l. og þar með var langri starfsævi lokið. Kveðjuat- höfn fór fram í Isafjarðarkírkju að viðstöddu fjölmenni. Hún var jarðsett frá Ögurkirkju hinn 28. september og hvílir þar við hlið manns síns og móður sinnar. Allt hennar samferðafólk á lífs- leiðinni mun hugsa til hennar með hlýju og þökk. Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. Blessuð sé minning hennar. Kjartan Olafsson frá Strandseli. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför frænku okkar, JÓNÍNU INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR Jón Ivarsson, Kristinn Björnsson. Minning: Þorgrímur Guðlaugs- son stórkaupmaður Milli einstaklinga í sömu stétt eða skyldum stéttum, myndast oftar kunningsskapar — og vin- áttusamband en margir gera sér grein fyrir. Þó gerast þau atvik sem minna á þessa staðreynd. Misjöfn eru þau atvik og ekki alltaf gleðileg. Andlát Þorgríms Guðlaugssonar stórkaupmanns bar ekki alveg fyrirvaralaust að höndum. Þegar ég frétti um það, urðu samt allar línur í mynd okk- ar samskipta svo skarpar, að það var engu líkara en að þær væru bæði sjáanlegar og áþreifanlegar. Góður vinur var genginn. Þorgrimur fæddist í Vest- mannaeyjum hinn 27. september 1921, og var því 54 ára gamall, þegar hann andaðist 12. marz sl. eftir skammvinna lokasennu í baráttunni við ólæknandi sjúk- dóm. Foreldrar Þorgrims voru hjónin Sigríður Skaftadóttir og Guðlaugur Br. Jónsson sem bæði voru ættuð úr Vik í Mýrdal. Þar var Þorgrimur heitinn til moldar borinn við hlið foreldra sinna sið- astliðinn laugardag. Móður sína missti Þorgrímur, er hann var enn ungur að árum. Var hann föður sínum kær og góður sonur. Bjuggu þeir feðgar saman unz Guðlaugur dó árið 1966. Stundaði Guðlaugur verzl- unarstörf, sem hann hafði byrjað á i Vestmannaeyjum, en hann bjó þar. Þorgrímur vann ýmis störf, en þó mest við sjómennsku, þar til hann hóf að starfa með föður sínum við fyrirtæki hans, Guð- laugur Br. Jónsson, heildverzlun. Ég hygg að Þorgrímur hafi gengið í strangan skóla, þótt hann væri ekki í viðurkenndum menntastofnunum. Um það verð- ur ekki sakast héðan af, og er heldur ekki þörf á. Hann var afar vel sjálfmenntaður maður á ýms- um sviðum. Hann naut dyggra samstarfsmanna við fyrirtæki það, sem hann átti og rak að föður sínum látnum. Eðlisgreind og áræði samfara orðheldni og heið- arleika voru vegarnesti Þorgríms. Þessir mannkostir nýttust vel í öllu starfi hans og dagfari. Ég fagna því, eins og hverju öðru láni, að hafa átt viðskipti við fyr- irtæki hans á þriðja tug ára. Kínversk og pólsk viðskipta- sambönd urðu stærstu verkefni Þorgríms í viðskiptalífinu. Hann fór ekki troðnar slóðir í vöruleit, þótt hann fylgdi gróinni hefð verzlunar að öðru leyti. Það var ekki daglegt brauð, að kaupmenn! norðan frá Ishafi væru i vöru-' skoðun og viðskiptaleit til suður- stranda Asíu, þegar Þorgrimur Guðlaugsson tók að ferðast þang- að. Hann ferðaðist í anda land- námsmannsins i verslunarferðum sínum. Framsýnin bar hann inn á lítt kunnar ekrur góðs iðnvarn- ings i þéttbýlustu löndum verald- arinnar. Það reyndist rétt, sem hinn ungi kaupsýslumaður hafði séð fyrir. Þarna var hægt að fá góðar vörur og ódýrar. Vegna fjarlægðar og flutningskostnaðar, þurfti útsjón við pantanir og inn- kaup. Þarna naut sin áræði Þor- gríms. Hann keypti djarft á góðu verði og skapaði sér samkeppnis- aðstöðu á heimamarkaði. Svipað má raúnar segja um viðskipti hans við Pólland, sem einnig voru mikil. Drengskapur hans og heiðar- leiki unnu honum traust manna af fjarlægum þjóóum. Þess nut- um við, sem áttum við hann skipti, og enn aftur viðskiptavinir okkar. Lífslán Þorgrims Guðlaugsson- ar var ekki langvinnt, hann lézt langt fyrir aldur fram. En lán hans var þeim mun meira á með- an hans naut. Mesta lán hans i lífínu var tvímælalaust á þeirri stund, sem hugir hans og Sigríðar Sigurðardóttur, konu hans, mætt- ust. Þau reyndust hvort öðru góð- ir og tryggir lífsförunautar. Fór saman hjá þeim dugnaður ein- lægni og gestrisni svo að af bar. Þau voru vinir vina sinna. Við kvöddum Þorgrím við út- förina austur í Vik í Mýrdal. Drengurinn sem féll fyrir aldur fram, hvílir nú við hlið foreldra sinna í guðs friði. Við, fjölskylda mín og ég, vottum Sigríði samúð okkar og hluttekningu. Nýr dag- ur er risinn meó eril sinn og ann- ir, en minningin lifir um góðan dreng og kaupsýslumann. Sigurður Sigurðsson. Séra Öskar H. Finn- bogason - Mum 'uigarorð Fæddur 13.9. 1913. Dáinn 24.2. 1976. FaKfia þú sál mín, Ift þú víðlcnt vpldi vona og draumaer þrýtur rökkurstfginn. Sjá hina helgu glóð af arineldi, eilffa kærleikans á hak við skýin. Fagna þú sál mín, dauðans kyrra kveldi. Kemurupp fegri sðl er þessi er hnígin. Mér fannst tilhlíðilegt að byrja þessi fátæklegu orð mín með versi úr sálmi eftir Jakob J. Smára. Því hann var mikið uppá- hald hjá fyrrverandi sóknarpresti mínum og oft notaði hann vers Jakobs í ræður sínar. Séra Óskar var fæddur 13.9.1913 í Skarfanesi í Landssveit, sonur hjónanna Elísabetar Þórðardóttur og Finn- boga Höskuldssonar. Mín fyrstu kynni af séra Óskari urðu mjög fljótt eftir að hann kom hér til Bíldudals og varð ég ekki fyrir vonbrigðum þar þvi hann var sér- staklega prúður og elskulegur* maður í allri umgengni, og alltaf reiðubúinn að veita manni sína forstöðu. Ég og fósturfaðir minn, Hallgrimur Ottósson, áttum Óskari mikið að þakka, því hann var aldrei það upptekinn, að hann hefði ekki tíma aflögu fyrir okkur. Séra Óskar var mikill námsmaður, fór með fyrstu eink- unn allsstaðar út úr þeim skólum er hann lagði leið sína i. Hann var vígður til prests 21. 7. 1954 og var fyrst á Staðarhrauni í 11 ár, síðan Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.