Morgunblaðið - 31.03.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 31.03.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976 29 VELV/XKAIMDI Velvakandi svarar ! síma 10-100 kl 14—1 5. frá mánudegi til föstu- dags — Ég hef ekki huKmvnd um hvað þú crt að gefa I skyn, hróp- aði hún upp yfir sig. — Það er eins og þú Iftir á mig sem ein- hvern útsendara frænda mfns. Cg var bara að koma skilaboðum áleiðis. — Ég skiL Allt f lagi. Hann lagði höndina yfir hennar. — Eg vildi bara vita hvað þú vissir. Við skulum gleyma þcssu. Þó að hann hefði ekki öðru fengið áorkað hafði hún að minnsta kosti nálgazt sinn rótta aldur. Eitthvað af glæsiyfirborð- inu var horfið. Honum þótti það á vissan hátt leiðinlegt. Hún var eins og umkomuiaus og ráðvillt Iftil telpa. — Hann ræsti vélina og ók aftur af stað. —Var alvörulfk f húsinu? spurði Nicole hljóðlega. — Já. — Og reyndi bfll að keyra þig niður? — Já, sagði David. — Og ef þú veizt eitthvað Nicole, grátbið ðg þig að segja mér það. Þeir hefðu lfka drcpið Helen. Og ekki trúi ég þvf að hún sé flækt inn f ncitt af mínum málun. — Ég veit ekkert, sagði hún. Q Eldborg ekki á Mýrum Mýramaður, Sigurjón Sigur- björnsson, Lindarhvammi 7 skrifar: í spurningaþætti sjónvarpsins s.l. laugardag, kom spurning um hvar síðasta eldgos á Vesturlandi hefði átt upptök sín. Svarið, sem dæmt var rétt, hljóðaði svo: „Eldborg á Mýrurn." Nú er þetta svar álíka vitlaust og sagt væri að Akrafjall væri á Kjalarnesi. Mýrum lýkur við Hítará á sýslumörkum Mýrasýslu og Hnappadalssýslu og er Eldborg þvi i Hnappadalssýslu (Hnappa- dal). En það er ekki að undra þótt svona staðfræðivilla sé algeng, þar sem í tugi ára hefir verið kennd við mennta- og gagnfræða- skóla jarðfræði, sem sýnir mynd af Eldborg með undirskriftinni: Eldborg á Mýrum. # Mundi punta upp á listahátíð Laufey Einarsdóttir skrifar: Hverskonar menn eru þetta eiginlega, sem eru í nefnd listahátíðar 1976? Þeir neita að taka boði Ingólfs Guðbrandssonar um að koma fram á listahátíð, og það án endurgjalds. Hljómleikar Polýfónkórsins eru ábyggilega einn stærsti tónlistaviðburður ár hvert. Þar sem margir en fjar- verandi einmitt um páska, tapar margur af þessum einstæða við- burði, og væru fegnir að fá tæki- færi til þess að heyra þessa hljóm- leika á listahátið. Ég held líka að bað verði ekki þörf á að punta dálítið upp á þessa listahátíð einmitt í ár, hún verður vist ekki of góð. 0 tslenzkir lista- menn koma Þá fékk Velvakandi nafnlaust bréf frá fólki, sem ekki er ánægt með Benny gamla Goodman, eins og það segir á listahátið og telur að ekki hafi margir gaman af jazz. Eins Vill það að tilteknir íslendingar fái tækifæri til að leika á listahátið, þ.e. Hafliði Hallgrimsson, Gunnar Kvaran, Einar Sveinbjörnsson, Ingvar Jónsson, Unnur Sveinbjarnar- dóttir, en þetta séu allt frammúr- skarandi listamenn, sem dvelja erlendis og hafa getið sér gott orð. Sjálfsagt eru margar skoðanir um hvað eigi að vera á listahátíð, en sem betur fer eru listahátíðir annað hvert ár og meðal þeirra, sem þarna eru upp taldir eru listamenn, sem þegar hafa komið á listahátíð og hinir koma vonandi lika, þó síðar verði. En einn aðalþátturinn í listahátíðum er einmitt að tæki- færi gefst til að fá heim lista- menn, sem eru við nám og störf erlendis og sem við höfum ekki eða a.m.k. ekki lengi átt kost á að heyra til. Á hátíðinni nú verður m.a. flutt verk eftir einn þessara ágætu listamanna, Hafliða Hallgrímsson, á kammertónleik- um á Kjarvalsstöðum innan um Mozart og Stravlnsky. Hvað Benny Goodman viðvíkur, þá skulum við bara bíða og sjá hve marga aðdáendur hann á hér, sem vilja koma að hlusta á hann og sextett hans, sem hrifur áheyrendur i Ameríku um þessar mundir. 0 Dagskrá komin Velvakandi er einmitt nýbúinn að sjá bráðabirgða dagskrá lista- hátiðarinnar. Satt er það, að lista- hátiðin er ekki eins iburðarmikil og líklega ekki eins klassísk og oft áður, enda munar um minna en Azkenazy og allan vinahóp hans. En ákvörðun var einmitt tekin um að kosta minna til rétt núna, þegar svona er ástatt i efnahags- málum. Kannski lika eins gott fyr- ir áheyrendur, færra freistar þvi allir eru vist blankir nú. Samt er þarna fjölmargt að sjá og heyra, sem við höfum ekki átt kost á fyrr, enda hafa sum sendiráð lagt I púkkið til að efni yrðu á að ná góðum listamönnum. Velvakandi hlakkar a.m.k. til að njóta ýmis- legs, sem þar er upp á boðið T.d. eru þarna sýningar á verkum franska málarans Schneiders á Kjarvalsstöðum og austurriska málarans Hunderwasser á Lista- safninu, leikflokkar koma frá Portúgal og Finnlandi og frá Fær- eyjum, söngvararnir William Walker frá Metropolitan í New York og Anneliese Rothenberger frá Þýzkalandi og pianóleikarinn franski Rascal Rogé, svo eitthvað sé nefnt. Einnig fáum við gamla kunningja sem heilluðu á fyrri hátíðum, svo sem gitarleikarann John Williams og Cleo Lane og John Dankwoth, sem öll eiga sér siðan aðdáendur hér. Töluvert verður af innlendri tónlist og með Sinfóníuhljómsveitinni leikur á fiðlu Unnur Ingólfsdóttir, sem er að ljúka námi i Juliard tónlistar- skólanum í New York, einum af beztu tónlistarskólum heims og hefur ekki fyrr leikið með hljóm- sveitinni. Eitthvað hlýtur jafnvel vandlátt fólk að fínna við sitt hæfi. HÖGNI HREKKVÍSI ,Hvaða óskunda hefur hann nú gert?“ 52? SIGSA V/6GA £ ilLVtmi LÆRIB VELRITUN Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar Engin heimavinna Innritun og upplýsingar í sima 21719. 41311. i Vélritunarskólinn. ® Suðurlandsbraut 20 Þórunn H. Felixdóttir LEITIÐAÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÚRRI HURÐ (auðvelt að hlaða og afhlaða) LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÓRUM ÞVOTTABELG (fer betur með þvottinn-Þvær betur) LEITIÐAÐ ÞVOTTAVÉL SEM ER ÖDÝR íREKSTRI (tekur bæði heitt og kalt vatn, sparar rafmagn) LEITIÐAÐ ÞVOTTAVÉL MEÐ DEMPURUM (lengri ending og hljóðlátari) LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÞUNG (meira fyrir peningana, vandaðri vara) o.fl. o.fl. o.fl. o.fí. o.fí. o.fí. o.fl. OG ÞÉR MUNUÐ SANNFÆRAST UM YFIRBURÐI PHILCO ÞVOTTAVÉLANNA. Þess vegna segjum við að þær hafi VIÐGERÐARÞJÓNUSTA OKKAR TRYGGIR YÐAR HAG. heimilistœki sf Hafnarstræti 3—Sætúni 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.