Morgunblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976 Kœrumálin blossa í 3ju deildinni KÆRUMALIN hafa nú í lok Islandsmótsins blossað upp í þriöju deildinni í handknatt- leik. Liðin sem urðu í 2. sæti í riðlunum tveimur hafa kært leiki sina við sigurvegarana í riðlunum. HK hefur.kært leiki sína við Stjörnuna vegna þess að dómarar að minnsta kosti í öðrum leiknum hafi verið of ungir, en annar þeirra sem dæmdi er landsliðsmaðurinn Ingimar Haraldsson. I hinum riðlinum hefur Leiftur frá Olafsfirði kært leiki sína við Isfirðinga á þeirri forsendu að með IBI hafi leikið leikmaður, sem félagsbundinn sé í Stjörn- unní. Hæpið er að þessi kærumál nái fram að ganga, en það Agnes Bragadóttir stjórnaði strákunum sfnum af festu í keppninni i þriðju deildinni í handknattleiknum. A mynd- inni er hún þó eitthvað hugsi en hefur greinilega fundið rétta svarið því ÍBl sigraði Leiftur f síðasta leiknum f keppninni í riðlinum. kemur þó ekki í Ijós fyrr en dæmt hefur verið í málunum bæði í héraði og fyrir dómstóli HSI. Nú þegar hafa þessi kærumál þó dregið keppnina I þriðju deildinni á langinn því úrslitaleikurinn átti að fara fram á mánudaginn á milli Stjörnunnar og IBI, en þessi lið voru talin sigurvegarar í riðlunum þar til kærumálin komu til sögunnar. í „dreifbýlisriðlinum'* fór seinni umferðin fram um síð- ustu helgi og urðu úrslit leikja þá sem hér segir: Leiftur — UlA 19:20 ÍBl — Dalvik28:19 Dalvík — Leiftur 16:22 UIA — IBÍ 15:12 Dalvík — UlA 14:23 IBI — Leiftur23:20 Isfirðingarnir urðu i 1. sæti í ríðlinum, Leiftur frá Olafsfirði í 2. sæti, Austfirðingarnír þriðju og lið Dalvíkinga rak lestina. Spurningin er nú sú hvort kærumálin breyti ein- hverju hér um. áij. LIÐ BREIÐABLIKS úr Kópavogi sem sigraði f 2. deildinni körfuknattleik. Þjálfari liðsins og fvrirliði. Guttormur Ólafsson er fyrir miðju í fremri röð. Góður enðasprettur kom FH í undanúrslit Með góðum endaspretti f leiknum við Fram f gærkvöldi tryggði FH sér sæti f undanúr- slitum bikarkeppninnar. FH- ingar höfðu verið undir 14:11 er sfðari hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður en þá sneri liðið dæminu við og skoraði 7 mörk gegn 2 á sfðustu Framhald á bls. 31 Liverpool í úrslit? Liverpool tók f gærkvöldi stórt skref f átt að úrslitunum f UEFA-keppninni f knatt- spyrnu. Liðið sigraði þá Barcelona 1:0 á útivelli og hæpið verður að telja að Spán- verjar nái að sigra í seinni leiknum, sem fer fram f Eng- landi eftir hálfan mánuð. Það var John Toshack, sem skoraði mark Liverpool á 13. mfnútu eftir góðan undirbúning Kevins Keegan, en hann átti frábæran leik f gær. Sömu- Framhald á bls. 31 Blikarnir í fyrsta skipti í 1. deild í körfuknattleik Breiðablik úr Kópavogi trvggði sér rétt til að leika í 1. deild að ári með því að sigra UMFG í aukaleik um það sæti með 68 stigum gegn 61. Verður það f fyrsta skipti sem Breiðablik á fulltrúa í 1. deild í körfuknattleik, enda hefur félagið hingað til verið þekktara fyrir afrek á öðrum vígstöðvum í íþróttum. Það er óhætt að segja að sigur Breiðabliks i 2. deild hafi komið mönnum nokkuð á óvart. En eftir að Guttormur Olafsson hinn kunni leikmaður úr KR og lands- liðinu tók við liðinu hefur vegur þess vaxið mjög og liðið verð- skuldaði fyllilega að ná þessum áfanga. Annars hefur það vakið mikla athygli að þau lið sem spáð var að berjast myndu um efsta sætið, Þór og UMFS, hafa staðið sig mun verr en reiknað var með. Þórsarar eru um miðja deild, en UMFS, er í mikilli fallhættu. Þeir eru á botni deildarinnar ásamt Isfirðingum með 6 stig, en isfirð- ingar eiga eftir tvoleiki. I úrslitaleiknum hafði Grinda- vík ávallt forustuna í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleiknum tókst Blikunum fljótlega að síga framúr og ná forustu sem þeirj héldu síðan. Var það mest fyriri tilstilli Guttorms og Öskars Baldurssonar sem átti mjög góðan leik. „Það er nú ekki farið að ræða það mál af neinni alvöru, en það kemur fyllilega til álita hvort við fáum okkur erlendan leikmann eða tvo í haust," sagði Guttormur Ólafsson við undirritaðan eftir leikinn. „Breiðablik hefur ekki yfir mikilli breidd að ráða, og í hinni hörðu keppni í 1. deild verður liðið e.t.v. undir ef eitt- hvað róttækt verður ekki gert." Guttormur var stighæstur í leiknum með 27 stig, Öskar var með 23. Hjá Grindvíkingum var Ólafur Jóhannsson hæstur með 18 stig, Magnús Valgeirsson 16. — gk-. ÍSLANDSMEISTARAR ÞORS — Þessar föngulegu stúlkur færöu félagi sínu, Þór frá Akureyri, íslands- meistaratitilinn í körfuknattleik kvenna um síðustu helgi. Sjálfar fengu þær afhentan veglegan farandgrip, en þjálfara sínum gáfu þær blómvönd. Ekki kunnum við að nafngreina stúkurnar, en frjálsíþróttakonan María Guðnadóttir og sú Þórsstúlknanna, sem hvað drýgst hefur verið í vetur, er þriðja frá hægri. Hörkuleikur er Víkingur seníi Gróttu úr bikarnum ÞAÐ kostaði, átök, svita og jafnvel blóð er Víkingar sigruðu Gróttu í Bikarkeppni HSÍ í fyrrakvöld. Hart var barizt í þessum leik eins og sæmir í góðum bikarleik — ef til þó einum of hart. Skarphéðinn Óskars- son hafði átt í brösum í fyrri hálf- leiknum og i byrjun þess siðari varð hann fyrir þvi óhappi að nefbrotna það illa að flytja varð hann á Slysa varðsiofuna, þar sem gert var að meiðslum hans. Leikur þessi var lengst af mjög jafn og skiptust liðin á um að hafa foryst- una Gróttumenn höfðu þó oftar frum- kvæðið og voru þeir yfir í leikhléi 10 8. í seinni hálfleiknum var mikil spenna i leiknum og þá ekki síður í leikmönnum Jafnt var 1 4 1 4 og siðan 1515, en Víkingar tóku á sig rögg undir lokin og skoruðu þrjú síðustu mörkin Sigruðu þeir því 1 8 1 5 og eru komnir í undanúrslit bikarkeppninnar Þeir leikmenn, sem mesta athygli vöktu í þessum leik voru Gróttu- mennirnir Stefán Stefánsson mark- vörður (sonur Stefáns Ágústssonar) og hornamaðurinn skemmtilegi, Gunnar Lúðvíksson Fleiri ungir leikmenn gerðu þó góða hluti i þessum leik í fyrrakvöld og má þar nefna Víkinginn Þorberg Aðalsteinsson. Mörk Víkings: Þorbergur og Stefán 6 hvor, Erlendur 3, Viggó 2, Skarp- héðinn og Jón 1 hvor Mörk Gróttu: Gunnar 4, Björn og Árni 3 hvor, Axel og Magnús 2 hvor, Hörður Már 1 — óij. Bikarslagur TVEIR leikir fara fram í bikarkeppni HSÍ í kvöld og verða þeir háðir í Laugardalshöllinni. Fyrri leikurinn hefst klukkan 20.15 og eigast þá við Valur og Fylkir. Að honum loknum mætast síðan KR og ÍR. Fram Aðalfundur Handknattleiksdeildar Fram hefur verið frestað um eina viku. Fer hann fram miðvikudaginn 7. april i Félagsheimili Fram i félags- heimili Framara við Safamyri. Gunnar fœr aðstoð Ölafs til að bjarga Göppingen ÓLAFUR Einarsson handknattleiksmaðurinn sem I vetur hefur leikið með þýzka liðinu Donzdorf heldur á föstudag- inn til Þýzkalands. Ekki til að leika með Donzdorf, heldur til að gera sitt svo erkióvinur Donzdorf-liðsins, Göppingen, haldi sæti sinu I 1. deildinni Göppingen ð eftir að leika tvo leiki í deildakeppninni, en eigi að siður er liðið dæmt ?il að þurfa að berjast við þriðja neðsta iiðið i norðurriðlinum um hvort liðið fellur niður i 2. deild. Göppingen og Donzdorf eru bæði frá sama svæði i suðirhluta Þýzkalands og með Göppingenliðinu hefur Gunnar bróðir Ólafs leikið I vetur. — Það verður örugglega ekki vel séð að ég skuli ætla að leika með Göppingen i falibaráttunni, sagðí Ólafur i viðtali við Morgunblaðið í gær. — Blöðin munu örugglega ráðast á mig fyrir að gera þetta og þvi er ekki að neita að ég hálfkviði fyrir þeim skrifum Aðspurður um það hvað hann og Gunnar hyggist fyrir næsta vetur sagði Ólafur: — Við höfum mikinn hug á að leika í sama liði næsta vetur og koma ýmis lið til greina. Þannig er Göppingen inni í dæminu, en þó ekki nema liðið verði I 1. deild, þvi I þeirri deild ætlum við okkur að leika.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.