Morgunblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 1976
Kópasker:
Rækjuvinnsla
tekin til starfa
I ráðstefnusal Hótels Loftleiða i gær. Ljósm. Friðþjófur.
Meðaltalstjón á innbúi 85 þúsund
krónur í skjálftanum mikla
NV RÆKJUVINNSLA tók til
starfa á Kópaskeri i gær, og á hún
eftir að verða atvinnulífi þorps-
ins mikil lyftistöng, að sögn Frið-
riks Jónssonar, oddvita á Kópa-
skeri, en þarna munu 12—14
manns fá vinnu. 2 bátar eru
gerðir út á rækju frá Kópaskeri
en Friðrik sagði að hámarkskvóti
þeirra væri 6 tonn á viku og
miðað við aflann undanfarið
væru þeir fljótir að fylla hann.
Þess vegna ætti að vera hægt að
taka á móti rækju frá fleiri
bátum, ef þeir fengju leyfi til
rækjuveiða í Axarfirði.
Rækjuverksmiðjan nýja á
Kópaskeri átti að vera komin í
gagnið í janúar eða febrúar, en
því seinkaði af ýmsum ástæðum,
m.a. vegna jarðskjálftans mikla.
Friðrik kvað það hafa verið mikið
átak að koma rækjuverksmiðj-
Framhald á bls. 22
r
Arsþing iðnrekenda:
..Krefjumst sömu starfsskilyrða
og aðrir höfuðatvinnuvegir”
— sagði Davíð Sch. Thorsteinsson í ræðu sinni
Olafur Ragnarsson
ritstjóri Vísis
ÓLAFUR Ragnarsson tók í gær
við starfi ritstjóra á dagblaðinu
Vísi eftir því sem blaðið skýrir frá
í gær.
Ólafur hefur undanfarin tíu ár
starfað sem dagskrár- og frétta-
maður hjá Sjónvarpinu, og haft
umsjón með og annazt gerð fjölda
þátta fyrir sjónvarpið. Áður en
hann tók til starfa hjá sjónvarp-
inu hafði hann um skeið unnið við
Alþýðublaðið.
Ólafur Ragnarsson er liðlega
þrítugur, Siglfirðíngur að
uppruna og er kvæntur Elínu
Bergs. Þau eiga tvo syni.
1 GÆR var sett lögbann á fund,
sem Garðar Mýrdal og nokkrir
aðrir stúdentar höfðu boðað til í
nafni Stúdentafélags Háskóla Is-
lands. Það var núverandi stjórn
félagsins sem lét setja lögbannið
á fundinn, Kjartan Gunnarsson,
Sigurður Helgason, Anna Jóns-
dóttir, Tryggvi Agnarsson og Geir
Waage. Astæðan til þessara
deilna er nýafstaðinn aðalfundur
Stúdentafélagsins, þar sem Garð-
ar og fylgismenn hans voru f
miklum minnihluta og nýja
stjórnin var kjörin án mótfram-
boðs. Þeir véfengdu lögmæti
kosningarinnar, þar sem röð dag-
skrárliða á fundinum hafi verið
breytt, og boðuðu þess vegna til
fundarins, sem nú hefur verið
sett lögbann á.
Töluverður mannfjöldi var
samankominn í Félagsstofnun
Stúdenta um fjögurleytið í gær,
þegar fundur Garðars og félaga
hans átti að hefjast. Fulltrúi borg-
arfógeta setti lögbannið á fund-
inn og skýrði út fyrir Garðari og
öðrum mönnum úr fyrrverandi
stjórn félagsins, hvað lögbannið
hefði i för með sér. Til nokkurra
orðahnippinga kom með þeim og
fulltrúa fógeta, en úrskurði hans
var þó hlítt. Að þessu loknu var
töluverður fjöldi manna eftir í
Stúdentaheimilinu og ræddu mál-
ARSÞING iðnrekenda var haldið
í ráðstefnusal Hótel Loftleiða I
gær. Fyrir hádegi flutti Davíð
Scheving Thorsteinsson, for-
maður Félags fslenzkra iðnrek-
enda, ræðu þar sem hann fjallaði
um stöðuna I landsmálum og þá
sérstaklega um stöðu iðnaðarins.
Um hádegisbil flutti Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
ræðu á þinginu og eftir hádegi
kynnti Vilhjálmur Lúðvíksson
drög að bæklingi sem Félag
islenzkra iðnrekenda er að láta
gera og fjallar hann um stefnu
Islendinga í efnahagsmálum
þjóðarinnar í heild.
Síðdegis í gær voru almennar
umræður um bæklinginn og
iðnaðarmál almennt.
ið óformlega, og gerðu báðir aðil-
ar grein fyrir röksemdum sínum.
Morgunblaðið sneri sér til
Kjartans Gunnarssonar formanns
Stúdentafélagsins og spurði hann,
hvers vegna lögbannið hefði verið
sett á. Hann sagði, að lögbannið
hefði verið hrein neyðarráðstöf-
un. Það væri ekki vilji stjórn-
arinnar að færa deilur stúdenta
út fyrir vettvang Háskólans. En
það hefði verið skylda hennar að
gæta hagsmuna félagsmanna, og
auðvitað væri ekki unnt að sitja
þegjandi undir því, að umboðs-
lausir menn væru að boða til
„aðalfundar" í Stúdentafélaginu.
Það er nauðsynlegt að skera úr
þessari deilu, sem hefur orðið til
vegna þess eins, að Garðar og
samstarfsmenn hans vildu ekki
sætta sig við lýðræðislegar
ákvarðanatökur og úrslit kosn-
inga á aðalfundinum, og þess
vegna var leitað til dómstólanna. I
raun og veru er það Garðar Mýr-
dal og félagar hans, sem settu
málið fyrir dómstólana, sagði
Kjartan Gunnarsson.
Kjartan sagði að lokum: „Ég
vona, að Garðar og aðrir menn í
fyrrverandi stjórn félagsins fari
að verða menn til að taka ósigri
sínum og fara eftir lýðræðislegum
leikreglum. Eg vil að lokum nota
tækifærið til að skora á stúdenta
að láta fé af hendi rakna upp í
Davið Sch. Thorsteinsson
Davíð Scheving Thorsteinsson
var endurkjörinn formaður með
kostnaðinn við lögbannið og aðrar
aðgerðir til að ná rétti félags-
manna. Stjórn Stúdentafélagsins
Framhald á bls. 22
99,9% atkvæða, í stjórn sitja
áfram án kjörs þeir Kristinn
Guðjónsson i Stálumbúðum og
Björn Guðmundsson f Sportver.
Úr stjórn áttu að ganga Pétur
Pétursson í Hydrol og Björn
Þorláksson í Sanitas. Pétur gaf
ekki kost á sér til endurkjörs en
Björn var endurkjörinn og í stað
Yfirlýsing frá Stúdentafélagi Há-
skóla Islands. bls. 2.
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Stjórn
Stúdentafélags Háskóla tslands:
Undanfarna daga hefur mjög
verið deilt um málefni Stúdenta-
félags Háskóla Islands, eins og
stúdentar og allur almenningur
hefur orðið var við. Fyrrverandi
stjórn félagsins með Garðar Mýr-
dal í broddi fylkingar hefur vé-
fengt lögmæti kosninga á honum,
þar sem röð dagskrárliða hafi ver-
ið breytt með dagskrártillögu á
fundinum, en hún var felld, og
taldi hann á þeim tima ekkert
ólögmætt við það, að fundurinn
tæki sjálfur ákvarðanir um röð
Péturs var kjörinn Hjalti Geir
Kristjánsson hjá Kr. Siggeirssyni,
en hann hafði verið varamaður í
stjórn. Varamenn eru nú Sveinn
S. Valfells og Agnar Kristjánsson.
I þingræðu Davíðs Schevings
Thorsteinssonar fjallaði hann um
tekjur og skuldir iandsmanna,
Framhald á bls. 22
dagskrárliða, enda er aðalfundur
æðsta úrskurðarvald í málefnum
dagsins. Og skoðun Garðars á
þeim er vissulega rétt.
I framhaldi af stjórnarskiptun-
um hefur hin nýkjörna stjórn haf-
ið störf og hélt félagið sinn fyrsta
almenna fund á árinu sl. miðviku-
dag, og var hann fjölsóttur. Garð-
ar Mýrdal og félagar hans hafa
hins vegar ekki sætt sig við úrslit
á aðalfundi. Þeir hafa í full-
komnu heimildarleysi stjórnar-
innar boðað til nýs aðalfundar í
félaginu 1. apríl. Hin nýkjörna
stjórn hefur skorað á þá að draga
þetta fundarboð til baka, en Garð-
ar hefur ekki orðið við þeirri
áskorun. Jafnframt efndi stjórnin
til fundar með fyrri stjórn sl.
mánudag i því skyni að gera enn
eina tilraun til að fá Garðar og
félaga hans til að viðurkenna og
sætta sig við úrslitin á aðalfundin-
um. En þeir hafa ekki orðið við
því.
Þá hefur það einnig gerzt, að
reynt hefur verið af hálfu þeirra,
sem ósigur biðu á fundinum, að
tengja stjórnarskiptin við svo-
nefnt „bollumál", sem verið er að
rannsaka hjá Sakadómi og Sak-
sóknara. Þetta hefur verið gert í
sérstakri aukaútgáfu Stúdenta-
blaðsins og i grein Garðars Mýr-
dals í Morgunblaðinu 31. marz sl„
þar sem hann reynir að tengja
saman kosningarnar og „bollu-
málið“. Hið rétta er, að aðdróttan-
ir þessar eru úr lausu lofti gripn-
ar, og hin nýkjörna stjórn Stú-
dentafélagsins hefur lýst þeim
vilja sínum á opinberum vett-
vangi að rannsókn þessa „bollu-
máls“ verði sem rækilegust og
nákvæmust.
Garðar Mýrdal og félagar hans
boðuðu til nýs aðalfundar
Stúdentafélagsins i gær. Hin ný-
kjörna stjórn lagði lögbann á
þennan „aðalfund“ Garðars og fé-
Framhald á bls. 22
Margir hlupu fyrsta
apríl þegar þeir vildu
fá sér ódýr litsjónvörp
APRtLGABB Morgunblaðsins 1
gær var lítið og ekki áberandi,
og varð það væntanlega til þess
öðru fremur að mjög margir
lögðu trúnað á það og hlupu 1.
apríl. Þrjár rammafréttir á
baksiðunni komu til greina
sem gabbfréttir. Ein þeirra var
gabb, fréttin um tækið, sem
breytti svarthvítum sjónvarps-
tækjum í lit, en hinar fréttirn-
ar, um mikinn afla hjá Skuld
VE og fréttun um útboðin voru
báðar sannar.
Strax í gærmorgun urðu
símalínur radíóverzlana í bæn-
um rauðglóandi. Fólk vildi
tryggja sér tækin, því birgðir
voru takmarkaðar og verð ótrú-
lega lágt. Voru jafnvel dæmi til
þess að fólk kæmi með sjón-
varpstæki í bíl sínum að versl-
ununum. Eins og vænta mátti
urðu starfsmenn viðkomandi
verzlana argir yfir ónæðinu og
þegar á morguninn leið gáfu
sumir þeirra upp síma Morgun-
blaðsins og sögðu fólki að það
væri sími innflytjandans og
bezt væri að hafa samband við
hann. Vonandi hafa lesendur
blaðsins ekki haft of mikinn
ama af þessu gríni.
Fjölmiðlar landsins birtu all-
ir gabbfréttir í gær og sumir
jafnvel tvær og þrjár slíkar
fréttir.
Kiartan Gunnarsson T • • 1 •
s.f.h.i.: „Logbanmd var
hrein neyðarráðstöfun ”
Stjgrn Stúdentafélags • 1 ' *
Háskóla Islands: X 111 lj Olllg
vegna lögbanns