Morgunblaðið - 02.04.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRIL 1976
5
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis:
Innlánsaukning
nam rúmlega 24%
Heildarinnlán 1069 milljónir
430 einstaklingar fengu
langtímalán á sl. ári
Fréttatilkynning um
aðalfund Sparisjóðs
Reykjavíkur og ná-
grennis.
Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis hélt
aðalfund sinn nú fyrir
skemmstu fyrir starfs-
árið 1975. Þar var skýrt
frá, að stjórn sjóðsins
hafi ráðið Baldvin
Tryggvason, fram-
kvæmdastjóra, til að
gegna starfi sparisjóðs-
stjóra frá 1. marz s.l.
Rekstur sjóösins hafði
gengið mjög vel á árinu
og jókst varasjóður
Sparisjóðsins um rúm-
lega 15 milljónir króna.
í upphafi fundarins
minntist fráfarandi for-
maður látinna ábyrgðar-
manna sjóðsins, svo og
Harðar Þórðarsonar, sem
lézt hinn 6. desember s.l.
og hafði gegnt starfi
sparisjóðsstjóra um nær-
fellt 34 ára skeið. For-
maður rakti frábær störf
hans fyrir Sparisjóðinn,
samvizkusemi hans og
trúmennsku við Spari-
sjóðinn og viðskipta-
menn hans á löngum og
farsælum starfsferli.
í skýrslu stjórnarinnar var
undirstrikað, að Sparisjóðurinn
veitir nær eingöngu lán til ein-
staklinga til lengri tíma gegn
veði I ibúðarhúsnæði, ýmist
vegna nýbygginga eða kaupa á
eldri íbúðum svo og til endur-
bóta og viðhalds á íbúðarhús-
næði. Þannig væri það megin
markmið Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis að vera
sparisjóður heimilanna, enda
lánar hann ekki fé til atvinnu-
rekstrar.
A árinu voru veitt langtíma
lán til 430 einstaklinga, alls að
upphæð kr. 247.4 milljónir.
Auk þess voru veitt nokkur
smærri lán til skemmri tíma.
Um síðustu áramót voru lántak-
endur sjóðsins með 10 ára lán
um 3.200 talsins. Lánveitingar
til lengri tima eru því dreifðar
á hlutfallslega mikinn fjölda
einstaklinga. t þvi felst mikil
festa og trygging fyrir Spari-
sjóðinn og hina fjölmörgu við-
skiptavini hans.
Á árinu jukust innstæður
sparifjáreigenda um rúmlega
24% eða 210 milljónir kröna og
voru samtals um síðustu áramót
kr. 1.069 milljónir.
Baldvin Tryggvason, fráfar-
andi formaður, itrekaði í
skýrslu stjórnarinnar, að
meginstefna Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis verður
framvegis sem hingað til að
veita viðskiptavinum sjóðsins
örugga og góða þjónustu, sem
miðar um fram allt að því, að
Sparisjóðurinn geti sem bezt
gegnt þvi hiutverki að vera í
raun sparisjóður heimilanna i
Reykjavik og nágrenni.
Þar sem Sparisjóður Reykja-
víkur er eina lánastofnunin í
Reykjavík utan Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins og lífeyris-
sjóða, sem veitir lán til lengri
tíma út á íbúðarhúsnæði þarf
að leggja rika rækt við að afla
sjóðnum nýrra og fleiri við-
skiptavina.
Þá var skýrt frá þvi, að stjórn
sjóðsins hefur ákveðið að
breyta afgreiðslutíma Spari-
sjóðsins þannig, að frá 1. april
n.k. verður almenn afgreiðsla I
sjóðnum opin frá kl. 9.15 til kl.
12 á hádegi. Siðan verður opið
frá kl. 13—16 og kl. 17—18.30
alla virka daga nema laugar-
daga.
Á aðalfundinum voru eftir-
taldir menn kjörnir í stjórn
Sparisjóðsins: Jón G. Tómas-
son, hrl„ Ásgeir Bjarnason,
framkvæmdastjóri, og Sigur-
steinn Árnason, trésmiða-
meistari. Samkvæmt lögum kýs
borgarstjórn Reykjavíkur tvo
menn í stjórn og á fundi sinum
hinn 4. marz voru kosnir þeir
Ágúst Bjarnason, skrifstofu-
stjóri, og Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi.
Stjórnin hefur skipt með sér
verkum þannig, að formaður
stjórnarinnar var kjörinn Jón
G. Tómasson en varaformaður
Ásgeir Bjarnason og ritari
Ágúst Bjarnason.
TOKUM UPP I DAG
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
LAUGAVFG66 LAUGAVÍG20a
SIMI FA SKIPTIBOPÐI 2tí155