Morgunblaðið - 02.04.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
7
Ástand
fiskstofna og
útfærslan
Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, vék
að því í umræðum utan
dagskrár á Alþingi um
landhelgismál, að sumir
þeir stjórnmálamenn, sem
nú láta hæst um land-
helgismál okkar, hafi
verið andvígir útfærslu
fiskveiðilandhelginnar í
200 mílur og talið hana
geta beðið lykta hafréttar-
ráðstefnunnar. Þetta hafi
verið afstaða þeirra, þrátt
fyrir þær niðurstöður
fiskifræðinga okkar, að
helztu nytjafiskar okkar
væru verulega ofveiddir
og þorskstofninn kominn
að hrunhættu. Þessar
fiskif ræðilegu staðreynd-
ir, og þýðing sjávarútvegs
fyrir atvinnu- og efna-
hagslífi þjóðarinnar, hafi
hins vegar gert útfærsl-
una óhjákvæmilega þá
þegar.
íslendingar létu ekki
sitja við útfærsluna eina
til verndar fiskstofnunum
og til að ná skynsamlegri
stjórn á veiðum og
vinnslu heimafyrir. í tíð
núverandi sjávarútvegs-
ráðherra hafa verið sett
15 lög, tengd sjávarút-
vegi, og tvö lagafrumvörp
um upptöku ólöglegs afla
og veiðar íslenzkra skipa
utan fiskveiðilandhelg-
innar, liggja nú fyrir Al-
þingi. Á sama tíma hefur
sjávarútvegsráðherra
gefið út 28 reglugerðir
um ný friðunarsvæði,
möskvastærð og útbúnað
veiðarfæra, skiptingu
veiðisvæða eftir veiðar-
færum, lágmarksstærðir
tegunda, takmörkun á til-
teknum veiðum, bann við
veiði smásíldar, um
hrognkelsaveiðar og m.fl.
Hafréttar-
ráðstefnan
í tilvitnaðri ræðu
sjávarútvegsráðherra fjall-
aði hann m.a. um, að ein-
hliða útfærsla okkar, bæði
nú og fyrr, sem og land-
helgisátökin við Breta,
væru nýtt af talsmönnum
skilyrðisbundinna ákvæða
um 200 mílna fiskveiði-
landhelgi á hafréttarráð
stefnunni. Sú staðreynd
að við hefðum í hvívetna
sýnt samningsvilja, m.a.
með samningum um tak-
markaðar veiðar við V-
Þjóðverja, Belga, Norð-
menn og Færeyinga,
styrkti hins vegar málstað
Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra
okkar og rétt strandríkja á
ráðstefnunni. Bretum
hefði einnig verið boðið
upp á skammtímasamn
ing, en óbilgirni þeirra og
margháttaður yfirgangur
væri höfuðorsök þess. að
fiskveiðideilan var ekki
leyst á friðsamlegan hátt
fram yfir haf réttarráð-
stefnuna. — Sú stað-
reynd að íslenzka ríkis-
stjórnin hefði, samhliða
festu, sýnt samningsvilja
og sanngirni í hvívetna,
yrði málstað okkar drýgst
til framdráttar, bæði á
haf réttarráðstefnunni og
innan annarra fjölþjóð-
legra samtaka, næst fiski-
fræðilegum niðurstöðum
vísindamanna okkar um
stöðu f iskstofnanna.
Markmiðin
skipta
meginmáli
í framhaldi af þessum
tilvitnunum í sjávarút-
vegsáðherra er rétt að
rifja upp helztu forsendur
samningsumleitana af
okkar hálfu. í samræmi
við fiskifræðileg markmið
okkar var megintilgangur
þeirra að takmarka veiði-
sókn og aflamagn útlend-
inga umfram það, sem
ólöglegar veiðar þeirra
hefðu ella leitt til. í sam-
ræmi við þessi markmið
okkar skipti það og höfuð-
máli að fá aðkomin veiði-
skip til að virða friðuð
svæði (hrygningar- og
uppeldissvæði), en Bretar
hafa einkum beint flota
sínum á slík svæði. Sama
máli gegnir um íslenzkar
reglur um útbúnað veiðar-
færa. Með hliðsjón af því
hættustigi, sem átökin við
Breta hafa náð, má öllum
Ijóst vera, að það skipti
miklu að tryggja frið á
miðunum og öryggi
gæzlumanna okkar. Toll
múrar EBE-landa gegn ís-
lenzkum sjávarafurðum
hafa og verulega þýðingu,
svo til nokkurs var að
vinna að fá þá verulega
lækkaða eða niður fellda.
Síðast en ekki sízt styrkti
það stöðu okkar á haf-
réttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, ef
skammtímasamningar
hefðu náðst við þær þjóð-
ir, sem hingað hafa sótt
fiskveiðar um árabil, og
hefði verið sterkasta
vopnið gegn hugsan-
legum skilyrðisbundnum
ákvæðum um hefðbund-
inn rétt eða gjörðardóm,
en slík skilyrðisbundin
ákvæði verða okkur mjög
í óhag, ef samþykkt verða
sem innan ramma nýrra
alþjóðlegra hafréttar-
reglna.
Já reyndar - Vió bjóóum, nú sem
fyrr mikió og vandaó úrval af
hinum heimsþekktu hreinlaetis-
taekjum frá IDCAL STANDARD
-hvítum og lituóum-Þaó er betri
LAUSN, okkar LAUSN.
J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H.F
Skúlagötu 30 — Bankastræti 11 — Sími 11280
LAUSN1
HÚS <-0 • - 20
* 18 + 25° |
hugsið um stofnkostnað, rekstrarkostnað og
vellíðan í rétt upphituðu húsi
H D H X Sun
býður allt þetta
Mjög hagkvæmt verð
Hárnákvæmt hitastilli.
ADAX ofnarnir ll ; ' 11 -
þurrka ekki loft i, ■ i '.‘>0
Yfir 20 mismunandi gerðir Isl. leiðarvísir fylgir • \ ■o \ -o-
Samþykktir af raffangaprófun.
Rafmagnsv. ríkisins.
Nafn ________
Heimilisfang
Til Einar Farestveit & Co hf.
Bergstaðastræti 10A Reykjavík
Ég undirritaður
óska eftir bæklingum yfir ADAX rafhitun