Morgunblaðið - 02.04.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
Stykkishólmi:
Lokið smíði félagsheimilis
Stykkishólmi. 26. mars.
NtJ ER að fiillu lokið við smíði
félagsheimilis í Stykkishólmi.
Var salurinn tekinn í notkun í
febr. s.I. þegar hið árlega hjóna-
ball var haldið. Var þá keppt að
því að vinna væri sem mest klár-
uð og unnu bæjarbúar þá, þrátt
fyrir verkfallið, rnikla sjálfboða-
vinnu til að Ijúka þessum áfanga,
voru það bæði félagasamtök og
einstaklingar. Framkvæmdir við
húsið hafa gengið mjög vel og eru
9 mánuðir síðan hafizt var handa
um verkið. Félagsheimilið er
sambyggt hótelbyggingu sem er
langt komin og er nú nýtt að
hluta fyrir skólahúsnæði. Fyrir-
huguð vígsla félagsheimilisins er
seinna á þessu ári. Heildarkostn-
aður við bygginguna eru 130
milljónir. Byggingarmeistari er
Bjarni Lárentsinusson húsa-
smiðameistari.
Tíðarfar í vetur hefir verið
Vöruflutningamið-
stöðin stækkar við sig
FYRIR skömmu tók Vöru-
flutningamiðstöðin h.f. í notkun
viðbyggingu við húsnæði sitt við
Borgartún. Er þar um að ræða
skrifstofuhyggingu og verður
gamla skrifstofan tekin undir
vörugeymslur. Þessi viðbygging
bætir aðstöðu fyrirtækisins til
muna.
A siðast liðnu ári er áætlað að
Vöruflutningamiðstöðín hafi flutt
um 50.000 tonn. Fastar áætlana-
ferðir eru til um 40 staða á
landinu og eru farnar minnst
tvær ferðir á hvern stað í viku
hverri og daglegar ferðir eru á
suma staðina.
Núvernadi stjórn félagsins
skipa Kristján Hansen, Sauðár-
króki, formaður, Oskar Jónsson,
Dalvík, Pétur Jónsson, Akureyri.
Aðalgeir Sigurgeirsson, Húsavík
og Þórður Þórðarson Akranesi en
varamenn eru Jóhann Ingi-
mundarson, Borgarnesi og Sig-
finnur Karlsson, Neskaupstað.
Framkvæmdastjóri er Gissur Þor-
valdsson.
ákaflega rysjótt og nú undanfarið
hefir það verið þannig að dagar
hafa liðið án þess að bátar hafi
komizt til róðra og því fiskirí
verið eftir því. Eru margir orðnir
kvíðnir fyrir að vertíðin í ár verði
lélegt og kannski komi betur fram
i ár sú rányrkja sem stunduð hef-
ir verið á miðunum undanfarin
ár. Menn fara að skilja að það er
ekki hægt að veiða þann fisk sem
var drepinn í fyrra.
Sumarið i fyrra var lika vot-
viðrasamt og því ekki nýting
heyja sem áður. Hlýtur því að
vera erfiðara um fóður hjá bænd-
um hér sem annars staðar ef vet-
urinn fer ekki að skána. Fyrir
nokkru var af hálfu lögreglunnar
farið um eyjar til að athuga bú-
pening sem þar er, en það er
mikið um á bændur og aðrir hafi
fé í eyjum í vetrarbeit svo lengi
sem kostur er. Einhver brögð
munu hafa verið að því að ein-
hverju af þessu fé hafi ekki verið
sinnt sem skyldi.
Oddviti Skógarstrandarhrepps
hefir nú farið þess á leit við sýslu-
mann að rannsakað verði hvernig
búpeningum er framgenginn í
hreppnum í dag og mun rannsókn
eiga að beinast að vissum aðilum
þar.
Erfið færð hefir oft verið á
þessum vetri milli Stykkishólms
og Reykjavíkur, þó ekki nema
einu sinni eða tvisvar hafi orðið
að fella niður ferðir af þeim sök-
um enda ekki mokað fjallið nema
tvisvar i viku og stundum ekki
það. Hefir þó nokkrum sinnum
orðið að fara Heydal og gengið vel
nema helzt í Alftafirðinum. Þar
er oft erfitt umferðar og eru
menn nú farnir að þrá betri veg
um fjörðinn eða brú á hann sem
hefir verið i athugun um mörg
undanfarin ár en ekki orðin veru-
leiki enn því miður.
Fréttaritari.
RÁS ,76 — Grafíksýn-
ing myndlistarskólanema
ÞRlR nemendur I Myndlistar- og
handfðaskólanum hafa opnað
sýningu á Bergstaðastræti 14.
Sýna nemendurnir þar graffk-
verk en þeir voru allir nemendur
Rudolfs Weissauer sem var hér í
vetur. Tveir nemendanna Ijúka
námi frá skólanum á þessum
vetri.
Nemendurnir eru Skúli Ólafs-
son, Reinhild Patzelt og Asgeir
Einarsson og nefna þau
sýninguna RAS ’76, og mun hún
standa til 10. apríl og verður opin
alla daga vikunnar.
A meðfylgjandi mynd eru þau
Reinhild, Asgeir og Skúli við
nokkur verk sín á sýningunni.
ljósm. RAX.
Lávarðarmyndir iDa leiknar
Sydney 31. marz NTB. Reuter
MAÐUR nokkur sem kom á
sýningu Snowdons lávarðar í
Sydney í Astralíu f dag brá
skyndilega hnífi og risti djúp
för í tvær mvndir lávarðarins
og stakk hnífi í öryggisvörð
sem var við gæzlu á sýningunni
áður en tókst að yfirbuga hann.
Hundruð gesta voru að skoða
myndir lávarðarins í rólegheit-
um þegar maðurinn gekk ber-
serksgang og byrjaði með því
að skera í stóra mynd af leik-
konunni Elizabeth Taylor.
Maðurinn mun vera 38 ára
gamall, en frá nafni hans hefur
ekki verið skýrt. Hann verður
nú kærður fyrir líkamsmeið-
ingar og skemmdarverk.
Öryggisvörðurinn sem særðist
var fluttur á sjúkrahús og varð
að sauma sjö spor í háls honum.
Meðal þeirra fyrstu sem heim-
sóttu öryggisvörðinn að sjúkra-
beði var Snowdon lávarður,
sem lýsti mikilli hryggð sinni
og vottaði honum aðdáun fyrir
tápmikla framgöngu. Lögregl-
an hefur ekki skýrt frá því
hvort maðurinn sem verk þessi
vann hafi gefið einhverja
ástæðu fyrir þeim.
ÓKEYPIS!
Tveggja mínútna
leitin
Allt sem þú þarft að gera er: að
skrifa okkur á bréfsefni fyrirtækis
þíns og segja okkur hvaða vörum
þú þarft á að halda og nota.
Segðu okkur hvort fyrirtæki
þitt notar það sjálft eða er
söluaðili. Segðu okkur einnig
frá banka fyrirtækisins eða
aðra erlenda viðskiptaaðila,
venjulegar greiðsluaðferðir
(letter of credit eða annað) og
þær upplýsingar sem máli skipt'a
fyrir seljanda.
Er okkur berast spurningar þínar
komum við þeim áleiðis til
fyrirtækja i New York ríki sem
gætu þjónað yður bezt.
Þeir munu sxðan skrifa þér beint.
Á stuttum tíma getur þú eignast
traust viðskiptasambönd við
framleiðendur i New York ríki.
Sendið bréf flugleiðis til:
New York State Department of
Commerce, International Division,
Dept. LLFP, 230 Park Avenue,
New York,
New York 10017, U.S.A.
Fyrirspurnarbréf á ensku
ganga betur fyrir sig.
NEW YORK STATE
Auglýsing
um skoðun bifreiöa í lögsagnar-
umdæmi Keflavíkur, Njarðvíkur,
Grindavíkur og Gullbringusýslu
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með,
að aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæminu
hefst mánudaginn 1 2. apríl 1 976.
mánudaginn 12. apríl Ö-1 — 0-75
þriðjudaginn 13. apríl Ö-76 — Ö-150
miðvikudaginn 14. april Ö-151 — Ö-225
þriðjudaginn 20. apríl Ö-226 — Ö-300
miðvikudaginn 21. apríl Ö 301 — Ö 375
föstudaginn 23. april Ö-376 — 0-450
mánudaginn 26. april Ö-451 — Ö 525
þriðjudaginn 27.apríl 0-526 — O 600
miðvikudaginn 28. april Ö-601 — 0-675
fimmtudaginn 29. april Ö-676 — Ö-750
föstudaginn 30. april Ö-751 — 0 825
mánudaginn 3. maí Ö-826 — Ö-900
þriðjudaginn 4. mai 0-901 — 0-975
miðvikudaginn 5. maí 0-976 — Ö-1050
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sinar að
iSavöllum 4, í Keflavik og verður skoðun framkvæmd
þar á fyrrgreindum dögum milli kl. 9—12 og
13.00—16.30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiða-
gjöld fyrir árið 1976 séu greidd og lögboðin vátrygg-
ing fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið
greidd verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin
stöðvuð þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt
og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar
næst. Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut eiga að
máli.
Vakin er sérstök athygli á þvi, að auglýsing þessi
varðar alla eigendur Órbifreiða, hvar sem þeir búa í
umdæminu.
Bæjarfógetinn i Keflavík,
Njarðvik og Grindavík.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.