Morgunblaðið - 02.04.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
19
Filippseyjar:
Macapagal flúinn
í sendiráð USA?
Manilla, Filippseyjum
1. aprí} AP.
AÐSTOÐARMENN fyrrverandi|
forseta Filipseyja Diosdado Maca-
pagal sögðu í dag að forsetinn
hefði beðið um pólitískt hæli í
sendiráði Bandaríkjanna í Man-
illa. Macapagal hefur verið mjög
eindreginn andstæðingur núver-
andi forseta, Marcos, og hefur lýst
yfir í bók sem hann gaf út nýlega
að Marcos hafi leitt herlög í gildi
til þess eins að halda völdum og
hefði gerð hans gengið í berhögg
við stjórnarskrá landsins.
Macapagal neitaði því fyrir
nokkru að hann væri viðriðin
samsæri til að koma Marcos fyrir
kattarnef.
Hann hefur hvatt til að herlög-
um yrði tafarlaust aflétt og kosn-
ingar færu fram í landinu sam-
kvæmt stjórnarskrá landsins. Án
þess væri hvorki lýðveldi né lýð-
ræði í landinu heldur einræði og
harðstjórn ómenguð.
Fréttin hefur ekki verið stað-
fest. Macapagal var forseti lands-
ins á árunum 1961—1965.
Fulltrúadeildin stöðvi
rannsókn Kennedymáls
Washington 31. marz Reuter.
NEFND Fulltrúadeildar banda-
ríska þingsins vísaði í dag á
bug beiðni um frekari rannsókn
á vegum deildarinnar á morð-
inu á John F. Kennedy fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta. Var
ákveðið með níu atkvæðum
gegn sex að fella tillögu sem
65 fulltrúadeildarþingmenn
höfðu flutt undir forystu demó-
krataþingmannsins Henry Gon-
zales frá Texas. Þar var deildin
hvött til að skipa sjö manna
rannsóknarnefnd í málið.
Gonzales sagði að upplýs-
ingar sem hefðu komið fram í
dagsljósið að undanförnu vektu
efasemdir um niðurstöður
Warrennefndarinnar um að Lee
Harvey Oswald hefði einn og
óstuddur nokkrum samtökum
eða öflum myrt forsetann þann
22. nóvember 1963.
Hæstiréttur
Karen
máde
Trenton 1. april. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR I New Jersey f Bandaríkj-
unum hefur úrskurðað að foreldrar stúlkunnar
Karen Anne Quinlan megi láta taka úr sam-
bandi öndunarvél þá sem hefur haldið lffinu f
dóttur þeirra í um það bil ár. Er þar með leitt til
lykta mál sem hefur vakið óhemju athygli í
Bandaríkjunum og heitar deilur. Undirréttur
hafði áður komizt að þeirri niðurstöðu að ekki
mætti taka umrædda vél úr sambandi og f
málinu lagði saksóknarinn áherzlu á að slíkt
jafngilti morði. Læknar höfðu fvrir löngu kveð-
ið upp þann úrskurð að ekki væri minnsta von
um að Karen Anne raknaði við, enda hefði hún
hlotið heilaskemmdir sem hefðu valdið þvf að
hún væri andlega örkumla.
Faðir Karenar, sem er mjög trúaður maður,
sagðist í dag mundu ræða við lækna dóttur hans
um að taka vélina úr sambandi og kvaðst hann
ekki búast við því að neitt yrði því til fyrirstöðu
af þeirra hálfu. Quinlan sagði eftir úrskurðinn:
„Við höfum beðið til guðs að þessi yrðu úrslit
málsins þar sem guð hefur látið okkur finna
sinn vilja og við getum ekki horft upp á dóttur
okkar lengur sem lifandi lfk.“
Læknir einn í New York sem vildi ekki láta
nafns sfns getið sagði að hann myndi ekki
samþykkja að taka vélina úr sambandi, en hann
vissi að aðrir læknar myndu geta gert það. Talið
er að f jöldi trúarhópa, sérstaklega þó kaþólskra,
muni mótmæla dómnum harðlega, enda þótt
prestur Quinlanhjónanna, sem eru kaþólsk, hafi
þegar látið f ljós að hann sé samþykkur því að
stúlkan fái að deyja.
Karen Anne Quinlan, sem er 22ja ára, hefur
legið f dásvefni í ár síðan hún tók of stóran
skammt lyf ja og áfengis og löngu er Ijóst að hún
myndi aldrei koma til meðvitundar á ný.
1 úrskurði hæstaréttar var kveðið svo á um að
forsjármaður stúlkunnar væri faðir hennar en
ekki sá lögfræðingur sem skipaður var af ríkinu
til að gæta hagsmuna hennar og föðurnum var
gefinn sá réttur að ákveða hvaða Iæknar ættu að
annast hana. Þá sagði að ekki myndi lögsókn
gerð á hendur þeim læknum, sem tækju önd-
unarvélina úr sambandi. Talsmaður saksóknara
New Jersey sagði, að úrskurðinum yrði áfrýjað,
en hann var einróma.
1 fréttum kemur fram að það hefur vakið
undrun að hæstiréttur komst að þessari niður-
stöðu, þar sem ekki væri fyrir endann á þvf séð
hvaða dilk þetta kynni að draga á eftir sér.
Foreldrar Karenar hófu baráttu sfna á sl.
hausti fyrir þvf að dóttir þeirra fengi að „deyja
með virðingu og sæmd“ eftir að læknar hennar
neituðu bón þeirra um að taka öndunarvélina úr
sambandi, Enda þótt læknar hafa ekki dregið f
efa að heilaskemmdir þær sem hafa orðið á
stúlkunni vegna inntöku lvfjanna og áfengis
séu ólæknanlegar og að hún komist aldrei til
meðvitundar, hafa verið miklar deilur milli
lækna um hvort slík ákvörðun brjóti í bága við
læknaeiðinn eða ekki.
Málsókn
vegna
áburðar
á Costa
Gomes
Lissabon 1. apríl. Reuter.
LEIÐTOGAR byltingarráðsins í
Portúgal hafa ákveðið að lög-
sækja fréttastofu landsins,
ANOP, sem er ríkisfyrirtæki,
fyrir að lesa upp yfirlýsingu frá
maóistum, þar sem Costa Gomes
forseti landsins er kallaður
kommúnisti.
Talsmaður byltingarráðsins
sagði að fréttastofan yrði sótt til
saka fyrir brot á lögum, en útlist-
aði það ekki nánar. Þetta gæti
samkvæmt fréttaskýrendum
spannað allt frá því að hafa uppi
róg um þjóðhöfðingja ríkisins til
Gagnrýnin á hendur
Teng breiðisl enn út
þess að vinna gegn lýðræðislegum
lögum og reglum í landinu.
ANOP ákvað í síðustu viku að
skýra ekki frá persónulegum
árásum á Costa Gomes eftir að
byltingarráðið krafðist refsingar
yfir þeim fréttamanni sem bæri
ábyrgð á frágangi yfirlýsingar frá
maóistum þar sem forsetanum
var lýst sem forystumanni í
kommúnistasinnuðum sveitum
hersins.
Síðasta yfirlýsing ráðsins kem-
ur nú þegar miklar áhyggjur eru
manna á milli um ritfrelsi í land-
inu, en menn óttast mjög að hert
verði á þeim reglum sem um það
ríkja.
Hong Kong. 1. april. — Reuter.
SVONEFNDIR „berfætlinga-
læknar" í Kfna, þ.e. menn sem
stunda lækningar f hjáverkum {
afskekktustu byggðum Kfna, voru
í dag sagðir hafa hafið þátttöku í
herferðinni gegn Teng Hsiao-
ping, varaforsætisráðherra.
Fréttastofan Nýja Kína sagði að
læknar f Chuansha-héraði nálægt
Shanghai — vöggu berfætlinga-
Teng
Mao
• •
Oryggisráðið krefst að S-Afríka
greiði Angóla stríðsskaðabætur
Durban, Suður Afriku,
Sameinuðu þjóðirnar,
New York 1. apr. Reuter.
YFIRMAÐUR herafla Suður-Afrfku skýrði frá þvf f dag að hernaðar-
fhlutun landsins f Angóla hefði kostað 28 mannslff og eitt hundrað
manns hefðu særzt. Síðustu suður-afrfkönsku hermennirnir í Angóla
hurfu á brott inn f Namibíu á laugardag en ekki hefur opinberlega
verið skýrt frá mannfalli fyrr en nú.
Hershöfðinginn sagði að
frammistaða hermannanna hefði
verið með sérstökum ágætum og
hefðu þeir borið af öðrum, meira
að segja kúbönsku hermönnun-
um. Sögusagnir höfðu verið á
kreiki um langtum meira mann-
fall en hershöfðinginn bar það
allt til baka.
I gærkvöldi samþykkti Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna að Suð-
ur Afrika hefði rekið yfir-
gangspólitik gegn Angóla og yrði
að greiða fullar bætur fyrir það
tjón sem hefði stafað af því.
Samþykktin var gerð með níu at-
kvæðum sem dugði tillögunni til
lögformlegrar samþykktar, en sex
lönd, Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Kina, Italía og Japan,
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og
tóku þau ekki þátt í henni til að
láta í ljós almenna óánægju með
afskipti Sovétríkjanna og annarra
erlendra rikja af málefnum
Angóla en ekki náðist samstaða
um að koma því að í tillögunni. 1
samþykktinni er Suður-
Afrikustjórn hvött til að mæta
réttmætum bótakröfum Angola.
Talað hafði verið um að Kínverjar
myndu beita neitunarvaldi af
þessum sökum þegar tillagan
kæmi til afgreiðslu í öryggisráð-
inu, en af þvi varð þó ekki.
Steiner vill
fara í mál
Köln, Vestur Þýzkalandi,
1. apr. Reuter.
VESTUR-Þjóðverji að nafni
Rolf Steiner hefur beðið dóm-
stóla að kveða upp úrskurð
þess efnis að stjórnin hjálpi
honum að höfða skaðabótamál
á hendur rfkisstjórn Súdans
vegna þriggja ára fangelsis-
setu hans þar í landi. Rolf
Steiner, sem er uppgjafaliðs-
maður i frönsku útlendinga-
hersveitinni, sagðist mundu
fara með málið fyrir Alþjóða-
dómstólinn f Haag og hann
sagðist sem borgari eiga rétt á
stuðningi stjórnvalda til að
hann fengi réttlátar bætur
fyrir.
Vestur-þýzka utanrfkisráðu-
neytið hefur neitað kröfu hans
vegna þess að það er andsnúið
iðju hans í Afríku sem mála-
liða af pólitfskum ástæðum.
Steiner var látinn laus úr
fangelsi f marz 1974 eftir að
hafa fyrst verið dæmdur til
dauða, en þeim dómi var sfðan
breytt. Hann neitaði að hann
hefði verið málaliði heldur
hefði hann barizt f Biafra og
Súdan sem sjálfboðaliði og
enga greiðslu fengið fyrir
vikið.
hreyfingarinnar, sem hófst í
menningarbyltingunni á sjöunda
áratugnum — hefðu haldið fund
til að lýsa gagnrýni á Teng. Þetta
fylgir í kjölfar ásakana á hendur
Teng f Dagblaði alþýðunnar f síð-
ustu vikú um að hann hafi af
fremsta megni reynt að lftillækka
og' niðurníða berfætlingalækn-
ana. Haft var eftir Teng: „Góður
læknir verður ekki til f kofa-
ræksni. Ef vitlaus stelpa getur
læknað sjúkdóm myndi jafnvel
köttur hlæja sig máttlausan.
Fréttastofan sagði að læknarnir
i Chuansha hefðu skrifað feao for-
manni bréf þar sem þeir lýsi þvi
að þeir séu staðráðnir í að
„treysta og þróa árangur hinnar
miklu menningarbyltingar öreig-
anna og byltingarinnar i læknis-
og heilbrigðismálum."
Ekki nefna þeir Teng á nafn en
skírskotað er til hans með orð-
unum „hinn ósvífni sendisveinn
kapítalista í flokknum sem hefur
neitað að gera yfirbót“.
Berfætlingalæknarnir eru
menn sem samkvæmt meðmælum
sveitunga sinna hafa fengið til-
sögn í grundvallaratriðum læknis-
starfa og heilbrigðisstarfa al-
mennt, og hafa siðan stundað
lækningar samhliða búskap á
samyrkjubúum. Þeim hefur farið
mjög fjölgandi og eru nú í út-
hverfum Shanghai meir en 9,300
eða 3—4 á hverja framleiðslu-
heild.
flKH