Morgunblaðið - 02.04.1976, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
Stærðir 60x275 cm. Auðvelt í uppsetningu.
Sérlega hagstætt verð.
W TIMBURVERZLIININ VÖLUNDUR hf.
Klapparstíg 1, Skeifan 19,
símar 18430 — 85244
Samkomu-
og
Veitingahúsið
Víkurröst
Dalvík
ásamt heimavist með 20 herb.
er laust til leigu frá og með 1.
júní n.k.
Umsóknir sendist undirrituðum
sem jafnframt veitir nánari upp-
lýsingar í síma 96-6 1251.
Bæjarstjórinn Dalvík.
Glæsilegt
úrval af kápum
úrflaueli terelyne ull.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
w
KÁPAN
LAUGAVEGI 66
Sími 25980
Hjalti Rögnvaldsson verður kynn-
ir á skemmtuninni.
Barnaskemmtun
FEF á morgun í
Austurbæjarbíói
ÁRLEG barnaskemmtun, sem
Félag einstæðra foreldra gengst
fvrir, verður í Austurbæjarbíói á
morgun, iaugardag 3. april og
hefst ki. 2.30 eh. Þar verður fjöl-
margt til skemmtunar að venju
og má nefna að börn úr átta ára
bekk í Austurbæjarskólanum
flytja söngleik, Herdís Egiisdótt-
ir kennari segir sögu af Músa og
Hrossa sem mörg börn kannast
við úr sjónvarpi. Nemendur á
ýmsum aldri úr Ballettskóla Báru
sýna dansatriði og ungar fim-
ieikatelpur úr Kársnesskóla í
Kópavogi sýna listir sínar. Barna-
kór syngur og Sigrún Valbergs-
dóttir flytur þulu eftir Jónas
Arnason. Þá munu grínkarlarnir
Halli og Laddi skemmla
börnunum og Jón Guðni og Örn
Bjarnason skemmta með söng og
gitarleik. Kynnir á skemmtun-
inni er Hjalti Rögnvaldsson
leikari.
Allur ágóði af skemmtun
þessari rennur í Minningarsjóð
einstæðra foreldra.
Sögupersónurnar Músi og Hrossi
ítalia:
Helmingur
vill kommún-
ista í stjórn
Rómaborg
31. marz Reuter.
MEIRA en helmingur atkvæðis-
bærra manna á Italíu vill að
kommúnistaflokkur landsins fái
aðild að stjórn landsins, að þvf er
fram kemur í niðurstöðu skoðana-
könnunar, sem var birt i dag. En
um það bil 45% spurðra töldu
ósenniiegt að kommúnistar
myndu gefa eftir vald sem þeir
öðluðust í kosningum.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum hefur Enrico Berlin-
guer, form. kommúnistaflokks-
ins, gefið tii kynna að flokkur
hans væri til viðræðu um aðild að
samsteypustjórn.