Morgunblaðið - 02.04.1976, Qupperneq 27
27
r
— I stöðnun
Framhald af bls. 12
„Detente... brýtur ekki hið
minnsta í bága við lögmálið um
stéttabarárru." Og hann bætti
við .jafnvel þótt tilslakanir
bjóði upp á tímabundinn hagn-
að, skaðar slíkt alltaf flokkinn,
þegar öll kurl eru komin til
grafar." Brezhnev skýrði þetta
ekki nánar, enda gerðist þess
líklega engin þörf.
Það var mörgum erlendum
fréttamönnum enn betur ljóst
en áður eftir að hafa fylgzt með
þinginu að hin alþjóðlega
hreyfing kommúnista er ekki
lengur það sem hún var fyrir
örfáum áratugum. Sovézki
flokkurinn hefur tekið litlum
breytingum á undangengnum
árum og gerir ekki tilraun til að
sveigja sig að breyttum almenn-
um viðhorfum og aðstæðum i
heiminum. Aðferðirnar sem
beitt er eru hinar sömu,
mennirnir í valdastólunum eru
sömu mennirnir og þeir eru
aukinheldur orðnir gamlir
menn. Engin ný andlit skutu
upp kollinum á þinginu. Síðan
flokksþing var haldið síðast
hefur Brezhnev losað sig við
þrjá úr Æðsta ráðinu, Shelsst
og Voronov árið 1973 og hinn
metnaðarsama Shelepin siðasta
vor. En þeir menn sem komu í
staðinn boða engar breytingar
— enga þróun, Andropov,
Gretsko og Gromyko. Eini
maðurinn sem var forframaður
er Grigori Homanov sem
gárungar kalla nú unglinginn í
Æðsta ráðinu, enda er hann
langtum yngri en allir aðrir í
ráðinu, eða aðeins 52ja ára.
Það er kunnugt að Sovétríkin
hafa orðið fyrir ýmiss konar
áföllum í efnahagslífi sínu á
síðustu fimm árum. Þrátt fyrir
það var þó næsta fimm ára
áætlun samþykkt mótatkvæða-
laust og þeir sem ábyrgðina
voru taldir bera á óförunum
voru að sjáifsögðu látnir víkja.
1 ræðu Kosygins kom fram að
stefnt er að framleiðslu-
aukningu sem fyrr og veróur
miðað að því að auka mest
framleiðslu matvæla en yfir-
leitt hefur þungaiðnaður haft
forgang. Kosygin reyndi að
drepa hinum miklu áföllum á
dreif með því að leggja þunga
áherzlu á efnahagskreppu
Vesturlanda sem sannaði úrelt
kerfi sem þau byggju við.
Bandariski kommúnistaforing-
inn Gus Hall tók í sama streng
og dró upp hina hrikalegustu
mynd af efnahagsástandinu í
Bandaríkjunum. Kosygin
reyndi að skclla skuldinni að
meginhluta á veðurfar, en
vegna uppskerubrests urðu
Sovétríkin að kaupa milljónir
tonna af korni frá
Bandaríkjunum og öðrum lönd-
um, eins og frægt er. Að sjálf-
sögðu vék forsætisráðherrann
ekki að þeim óhemju miklu
framlögum landsins til hermála
sem voru á sl. ári um það bil
141 milljarður dollara, miðað
við 94 milljarða dollara sem
Bandaríkjamenn vörðu til
slíkra liða. Kosygin sagði að
framleiðsluaukningu yrði náð
sem byggðist á vísindalegum og
tæknilegum framförum og
hvatti hann sovézka verkamenn
til dáóa og afkasta meira en
áður.
Það var niðurstaða frétta-
manna og sérfræðinga að
flokksþing þetta hefði ekki
orðið neitt tímamótaþing á einn
né neinn hátt. Sovézki flokkur-
inn væri jafn steinrunninn og
hann hefði verið og örlaði ekki
á breytingum, að minnsta kosti
ekki i efstu forystunni. Ekki
var vikið að andófi og
mannréttindabaráttunni svo að
neinu nemi. Einn Kremlasér-
fræðingur orðaði það svo er
hann dró saman niðurstöður
sínar um þingið:
„I stöðnuninni liggur hættan
fyrir Sovétrikin. Báknið er
óumbreytanlegt. Mennirnir
sem stjórna eru gamlir orðnir,
þegar þeir loks hafa klifrað upp
á efsta þrep metorðastigans. En
undir ísilögðu yfirborðinu er
Rússland sjálft að breytast.“
(Heimildir m.a. (íuardian, Time, Daily
.Telegraph, Economist)
— Grásleppu-
hrogn
Framhald af bls. 10
hætta verður á gerlum þar sem
minni gerlafjöldi kemst í hrognin.
Samstæðan afkastar 350—400
litrum á klukkustund (3—4 tunn-
um).
Fyrsta samstæðan var seld til
Húsavikur, en hægt verður að
framleiða 5 vélar á hverjum
tveimur vikum. Samstæðan er
smíðuð á nokkrum stöðum.
Á síðast liðnu ári framleiddu
Islendingar um 15 þúsund tunnur
af grásleppuhrognum til útflutn-
ings.
— Almennur
fundur
Framhald af bls. 10
varlegt sé aó treysta um of og of
lengi á slíkan vinnuir.arkað sem
aðaluppistöðu atvinnu verkafólks
í heilu byggðarlagi. Samhliða
verði að gera ráðstafanir til upp-
byggingar trausts og varanlegs at-
vinnulífs.
Nú hafa tekið höndum saman
verkalýðsfélögin, sveitarstjórnir
og sýslunefnd Rangárvallasýslu
og boðað til almenns borgara-
fundar um atvinnumál héraðsins,
sem haldinn verður laugardaginn
3. apríl n.k. kl. 14 í Hellubíói. Til
fundarins hefur sérstaklega verið
boðið félagsmálaráðherra,
Gunnari Thoroddsen, þingmönn-
um Suðurlandskjördæmis og full-
trúum Alþýðuflokksins og Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna. Framsögu á fundinum
hafa:
Sigurður Öskarsson, fulltrúi
Verkalýðsfélagsins Rangæings,
og Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri
á Hellu. Fundarstjórar verða
Hilmar Jónasson, formaður
verkamannadeildar Rangæings,
og Ölafur Guðmundsson, bóndi
Hellnatúni.
— Dagskrá
Framhald af bls. 13
Dagverðargerði i Hróars-
tungu, Kristján Ingólfsson,
námsstjóri, Reyðarfirði, og
Sigbjörn Kjartansson, nemi,
Höfn; Hornafiröi.
1 hléi leikur kammersveit
frá lsafirði.
Spurningarnar valdi Helgi
Skúli Kjartansson.
Spyrjandi Jón Ásgeirsson og
dómari Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
21.05 Læknir til sjós
Brezkur gamanmyndaflokk-
ur
Laumufarþeginn
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.30 Þá syntu birnir í Temsá
Brezk mvnd um veðurfars-
breytingar i Evrópu sfðan á
fsöld.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
22.20 Heimili á hjólum
(The Long, Long Trailer)
Bandarísk bíómynd frá ár-
inu 1954.
Aðalhlutverk Lucille Ball
og Desi Arnaz.
Nicholas þarf að vera á sí-
felldum ferðalögum vegna
vinnu sinnar. Tracy kona
hans fær hann þvi til að
kaupa stórt hjólhvsi, sem á
að vera heimili þeirra.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
23.50 Dagskrárlok.
— Frumvarpið
Framhald af bls. 10
greiðslukerfi sem þieir lögðu til,
enda muni það skila Lánasjóði
eins miklu i endurgreiðslum og
hægt er að fara með sanngjörnu
móti fram á.
Fleiri athugasemdir eru við
frumvarpið m.a. að námsmenn
telja að allir þeir sem náð hafa 20
ára aldri og stunda nám í sérskól-
um fái kost á námslánum og einn-
ig að jafnaðarstyrkir sem gert er
ráð fyrir i frumvarpinu miði að
því að jafna kostnað allra náms-
manna vegna búsetu. Ennfremur
telur Kjarabaráttunefnd þá
breytingu undarlega að fella eigi
niður fulltrúa háskólaráðs i stjórn
Lánasjóðs en fulltrúar mennta-
málaráðs verði tveir í stað eins
áður. Yrði ráðuneytinu þar með
tryggður meirihluti atkvæða við
allar ákvarðanatökur innan
stjórnar LlN.
Þá er það krafa Kjarabaráttu-
nefndar að námsmenn beri einir
ábyrgð á skuldum sínum við
Lánasjóðinn en þurfi ekki áfram
að afla sér ábyrgðarmanns fyrir
námslánum sínum.
Innan skamms mun Kjarabar-
áttunefnd halda almennan fund
um lánamálin og verða væntan-
lega á þeim fundi endurskoðunar-
nefnd, menntamálanefnd og
menntamálaráðherra að því er
Kjarabaráttunefnd sagði á fund-
inum.
ODYR OG GOÐUR
Bráðnar vel og því
hentugur til matargerðar.
Byggjum upp borðum
Bragðgóður á
brauði, enda gerður úr
Gouda og Óðalsosti.
Skerið hann helst með
strengskera.
ost
v-» V V \ ,* i *
K <> » V K * * O
ostur
eykurorku
léttir kmd
Öryggishjálmar
opnir og lokaðir
Eigum jafnan mikið úrval öryggishjálma, sem
hlotið hafa viðurkenningu í Evrópu og
Bandaríkjunum sem skíða-, vélsleða-, vélhjóla,
mótorhjóla- og bílarallyhjálmar.
Andlitshlífar úr glæru, reyklitu og
gulu öryggisgleri, einnig mótorhjólagleraugu
og baksýnispeglar fást í úrvali.
Verðið er ótrúlega lágt.
Sendum gegn póstkröfu.
öryggi á vegum og vegleysum.
flUFTL
FALKINN
Suðuriandsbraut 8