Morgunblaðið - 02.04.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
33
Sársauki og sœtur svefn
+ Það er ákaflega mikilvægt að
sofa vel nóttina áður en farið er
tii tannlæknis. Þreyta og svefn-
leysi gera fólk miklu næmara
fyrir sársauka, segir f danska
„Tannlæknablaðinu**.
Rannsókn sem fram fór {
Bandaríkjunum leiðir í ljós, að
óttinn við sársauka á mciri þátt
í því að fólk trassar að fara til
tannlæknis en allar aðrar
ástæður til samans
+ Bosse Högberg, fyrrverandi
hnefaleikameistari og tugthús-
limur, segist nú hafa hlaupið af
sér hornin. Nú lifir hann
lukkulegu lífi með eiginkon-
unni Liz og kjölturakka i
þriggja herbergja íbúð i
Möldal. „Nú fæst ég við verzlun
og viðskipti og er dálítið að
velta fyrir mér gulii og gim-
steinum," segir þessi fyrrver-
andi Evrópumeistari í hnefa-
leikum.
t blaðinu er því haldið fram
að fyrsta heimsókn barnsins til
tannlæknis eigi að vera með
öllu kvalalaus. Það auðveldi
þeim að komast yfir þann
þröskuld sem óttinn við sárs-
auka er þeim oftast nær.
Konur engu
óhraustari
en karlmenn
Margir standa í þeirri trú að
karlmenn þoli sársauka betur
en konur, en það er ekki rétt.
Ástæðan fyrir þessari skoðun
er uppeldið. Drengir komast
fljótt að raun um að það er ekki
karlmannlegt að kveinka sér ef
þeir kenna til en aftur á móti
er talið eðlilegt að stúlkur láti
tilfinningar sínar í Ijós.
Aldurinn skiptir líka miklu
máli. Börn og aldrað fólk ber
sig verr undan sársauka en
ungt fólk og miðaldra. Það
verða tannlæknar að hafa bak
við eyrað.
Skynsamlegar
fortölur hjálpa til
Auðveldast er að fást við
sjúklinga sem unnt er að tala
við á skynsamlegan hátt. Ef
fólki er sagt á rólegan og eðli-
legan máta hvað um sé að vera
stendur það sig miklu betur á
sársaukafullum stundum. Börn
hafa ekki hvað sfizt þörf fyrir
skynsamlegar fortölur
Margar aðrar aðferðir eru til
að gera tannviðgerðir bærilegri
t.d. hljómlist, sem sjúklingar
hlusta á í gegnum heyrnartæki
og geta þá hækkað og lækkað að
vild, eða dáleiðsla, sem veldur
þvf að sjúklingurinn finnur til
en bregzt ekki við sársauk-
anum.
Ast við
fyrstu sýn
+ Margir muna eftir barna-
stjörnunni Hayley Mills sem
var ákaflega vinsæl hér áður
fyrr. Hún átti raunar ekki langt
að sækja hæfileikana þvf að
hún er dóttir leikarans John
Mills.
Hayley, sem nú er 29 ára
gömul, hefur f mörg ár verið
gift leikstjóranum Roy Boult-
ing sem er 62ja ára að aldri. En
nú hefur snurða hlaupið á þráð-
inn. Við uppfærslu á leikriti f
London nú á dögunum kynntist
Hayley leikaranum Leigh
Lawson og var það ást við
fyrstu sýn. Leigh er kvæntur
maður en hefur nú krafizt
skilnaðar frá konu sinni vegna
Hayley.
,',Sem stendur erum við að
leita okkur að hentugu húsi
með minnst sex herbergjum
svo að pláss sé fyrir þriggja ára
gamlan son Hayley, Crispian,
og barnfóstruna. Okkur er
alveg sama hvar f London við
búum, bara ef húsið verður
nógu stórt,“ segir Leigh.
Fermingar-
SKOR
Tegund 286:
Herraskór
Litur svartir
með rauðum
saumum
Stærðir
6 til 12
Verð 7.040
Tegund 276:
Herrastigvél
Litur svart
og brúnt
Stærðir.
6 til 12
Verð 8.030
Tegund 346:
Kvenskór
Litur svartur
Stærðir:
3Vi til 7’/2
Verð 7.005
Tegund 353:
Kvenstigvél
Litur svart
og brúnt
Stærðir:
4 til 7'/2
Verð 8.885
GEFJUN
AUSTURSTRÆTI