Morgunblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, RÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976
37
VELVKVKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Hótel Rauða
krossins
Hansína Helgadóttir skrifar:
Ég vil gjarnan vekja athygli á
hóteli, sem Rauði Kross Islands
rekur að Skipholti 21 og ætlað er
sjúklingum, sem þurfa að biða
eftir sjúkrahúsvist eða ná sér eft-
ir veru á sjúkrahúsi. Öll þjónusta
og aðhlynning er til mestu fyrir-
myndar eins og bezta heimili
væri. Allur matur þar er eins og
bezt gerist. Forstöðukonan, frú
Bryndís Jónsdóttir, er alveg sér-
staklega þægileg og eiskuleg við
alla stjórn og framkomu. Sama
máli gegnir um allt starfsfólk.
Með þakklæti fyrir hönd okkar
hjónanna
Hansfna Helgadóttir.
0 Þá mættu
allir sjá...
M.Á. skrifar og dagsetur bréfið
25. marz 1975:
Heldur þótti mér það ill tiðindi
að við værum að missa samúð
þeirra á hafréttarráðstefnunni í
New York, af þvi þeir skiidu ekki
málstað okkar og hvers vegna ís-
lendingar og Bretar semdu ekki.
Þó ég sé nú kannski ekki sú
rétta til að gefa ríkisstjórninni
ráðleggingar datt mér i hug, þeg-
ar ég las grein Helga Briem um
kanadísku regluna, hvort ekki
væri hægt að lýsa því yfir opin-
berlega, að við bjóðum sættir á
grundvelli hennar. Ef Bretar taka
þvi tilboði er það gott. Ef þeir
neita, Efetti öllum að vera ljóst að
við bjóðum sættir, sem Bretar
hafa samþykkt hjá öðrum, en
vilja heldur beita níðingshætti á
okkur, vegna smæðar okkar, sem
þeir þora ekki að veita gegn Kan-
adamönnum, Rússum eða öðrum
sem hafa 200 mílurnar.
0 Ekki sömu
bréfin
Velvakandi vill biðja bréfrit-
ara, sem vilja koma einhverju á
framfæri í þessum dálkum, að
senda það ekki samtímis i önnur
blöð. Það hefur nýverið borið við
að við höfum lesið bréf, sem bíða
hér birtingar, í öðrum blöðum. Þó
að þetta séu einkum bréfin, sem
ekkert nafn fylgir og Velvakandi
mundi hvort sem er ekki taka, þá
liggur nú t.d. eitt með fullu nafni,
sem átti að fara að birta, (þvi
miður getum við ekki birt bréf
undireins þegar það kom annars
staðar). Fátt er svo mikilvægt að
það þurfi endilega að komast á
framfæri í mörgum fjölmiðlum og
lesendur blaða yrðu ósköp leiðir á
— Væri ekki ráð að leita til M.
Gautier?
Hún leit á hann og léttirinn
speglaðist á andliti hennar.
— Auðvitað. Honum hafði ég
alveg gleymt. Það er svo langt
sfðan við höfum séð hann. En
hann er auðvitað rétti maðurinn
til að sjá um það.
— Eg er viss um að honum
bregður við, sagði David. — Hann
talaði við M. Boniface f sfma f
gærkvöldi. Það var hann sem kom
þvf f kring að mér var boðið til
hádegisverðar hér f dag.
— Til hádegisverðar?
Ilún leit steinhissa á hann.
— M. Boniface orðaði það ekki
viðmig.
— Nei, það var auðvitað ekkert
hátfðlegt boð. En mér skilst að M.
Boniface hafi sagt að það kæmi
sér bezt fyrir hann að ég liti við
um þetta leyti. Eg bið afsökunar á
þvf að vera að gera yður þetta
ðnæði. Ég sé að þér eruð f upp-
námi.
Hún bandaði frá sér.
— Það er ekki það. Við erum
ekki svo föst f siðunum að við
hefðum ekki fagnað vini M. Gaut-
iers. Skárra væri það. Finnst yður
ég ætti að hringja til hans strax
að fá sömu bréfin á mörgum stöð-
um. Sem sagt, vinsamlegast send-
ið ekki Velvakandabréf annað
samtimis.
0 Kvikmyndir
frá fleiri
löndum
Sjónvarpsnotandi. skrifar:
Ég vil biðja þig fyrir þessa fyr-
irspurn til forráðamanna Sjón-
varpsins: Hvernig stendur á nær
algerum einstefnuakstri í vali
leikinna kvikmynda (bíómynda)
sem Sjónvarpið sýnir? Eins og
alíir vita, nálgast kvikmyndir frá
enskumælandi löndum (Bret-
landi og Bandarikjunum) að vera
100% þeirra biómynda, sem sýnd-
ar eru i íslenzka sjónvarpinu.
Hvers vegna eru ekki sýndar
gamlar og nýlegar leiknar kvik-
myndir frá Norðurlöndum,
Þýzkalandi, Frakklandi, Ítaliu og
fleiri löndum, sem við höfum
lengi haft samskipti við? Og hvers
vegna er ekki reynt að auka á
fjölbreytnina með því að sýna
stöku sinnum bíómyndir frá fjar-
lægari þjóðum, sem vitað er, að
lengi hafa framleitt góðar kvik-
myndir, t.d. Japönum? Ég hef
heyrt marga vera að furða sig á
fyrrnefndum einstefnuakstri í
vali kvikmynda og leiða getum að
því, hvað valdi. Hver er skýring-
in?
0 Lokaðir
strætis-
vagnar
Kona hringdi til Velvakanda og
sagði að hér i dálkunum hefði
nýlega verið kvartað undan því,
að börn þyrftu að híma fyrir utan
lokaðar skóladyr, ef þau væru
snemma á ferð að morgni til. En
það þyrftu fleiri en börnin að
híma.
Hún kvaðst ferðast mikið með
strætisvögnum og tæki oft vagn á
Lækjartorgi. Þá kæmi hún oft að
lokuðum dyrum vagnanna, þar
sem bílstjórarnir læstu vögnun-
um, ef þeir þyrftu að skreppa inn
í skýlið, sem er þarna við torgið.
Á meðan þyrftu farþegar að bíða
fyrir utan vagnana. Það hafi síður
en svo verið þægilegt i vetur að
norpa þarna, þar sem veður hafa
verið válynd.
Nú spyr konan, hvort ekki sé
hægt að bæta úr þessu, hvort ekki
megi hafa vagnana opna svo að
fólk geti gengið inn i þá og beðið
þar, þótt bilstjórinn bregði sér
frá. En ef það þyki ekki ráðlegt af
einhverjum sökum, hvort ekki sé
hægt að hafa tiltækan mann, sem
gæti vagnanna i fjarveru bílstjór-
ans. Eitthvað verði að minnsta
kosti að gera til þess að firra fólk
þeim óþægindum að híma við lok-
aðar dyr.
HÖGNI HREKKVÍSI
NYTSAMASTA
FERMINGARGJÖFIN
: - IH
LUXO
er ljósgjafinn,
verndiö sjónina,
varist eftirlíkingar
ALIAR GERBIR - ALLIR LITIR SENDUM I
POSTKRÖFU UM LAND ALLT LANDSINSA MESTA
LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suöurlandsbraut 12
simi 84488
sýningarsalur
Tökum allar gerðir notaðra bifreiða í umboðssölu
Fiat T 100 station
árgerð 67 150.000.—
Fiat 850 special
árgerS 71 230.000 —
Fíat 1 26 Berlina
árgerð '74 500.000 —
(Gott lán)
Fiat 1 26 Berlina
árgerð '75 590.000 —
Fíat 125 Berlína
árgerð ’71 450.000 —
Fiat 125 Special
árgerð '72 550.000.—
Fiat 125 P
árgerð '73 500.000.—
Fiat 1 24 Station
árgerð '70 300.000.—
Fiat 127 3ja dyra
árgerð '74 550.000.—
Fíat 127 Berlina
árgerð '75 700.000 —
Fíat 1 28 4ra dyra
árgerð '71 380.000 —
Fiat 1 28 Berlina
árgerð '73 550.000 —
Fíat 128 Berlina
árgerð '74 660.000 —
Fiat 128 Station
árgerð '74 750.000 —
Fiat 128 4ra dyra
árgerð '75 850.000.—
Fiat 128 Rally
árgerð '73 650.000.—
Fiat 128 Rally
árgerð '74 780.000.—
Fíat 128 Rally
árgerð '75 950.000 —
Fiat 132 Special
árgerð '73 900.000 —
Fiat 132 G.L.S.
árgerð '74 1.150.000.—
Fiat 1 32 G.L.S.
sjálfskiptur árgerð '74
1.300.000.—
Fiat 132 G.L.S.
árgerð '75 1.300.000.—
Ford Maverick
árgerð '74 1.600.000.—
Volkswagen
árgerð '67 100.000.—
Toyota Corolla
árgerð '72 650.000.—
Datsun 1 80 B
árgerð '74 1.400.000.—
Hillman Hunter
árgerð '73 750.000 —
Renault T.S.
árgerð '73 1.400.000,—
Citroén G.S.
árgerð '72 650.000.^-
Lada Topaz 2103 árgerð
'75
SlGGA V/öGA % A/LVEJIAW
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.f
SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888.