Morgunblaðið - 21.04.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1976
3
Skákþing íslands:
Helgi og Haukur
berjast um íslands-
meistaratignina
Grænlendingarnir
komnir til landsins
25 kennaranemar og fyrirlesarar á Grænlandsviku Norræna hússins
ÞEGAR aðeins tveimur umferð-
um var ólokið á Skákþingi tslands
voru þeir Helgi Ölafsson og Hauk-
Helgi ólafsson
Haukur Angantýsson
ur Angantýsson efstir og jafnir
með 7 vinninga og virðast ekki
aðrir skákmenn en þeir tveir eiga
möguleika á þvf að hreppa ts-
landsmeistaratitilinn f skák að
þessu sinni. Næstu menn eru
Björn Þorsteinsson og Ingvar Ás-
mundsson með 5 vinninga og inn-
byrðis biðskák, sem er tvfsýn. 1
áskorendaflokki er Jón Þorsteins-
son efstur en þær Svana Samúels-
dóttir og Birna Norðdahl eru efst-
ar og jafnar f kvennaflokki. Næst
sfðasta umferðin f landsliðsflokki
var tefld f gærkvöldi, en 11. og
sfðasta umferðin verður tefld á
morgun, sumardaginn fyrsta, og
hefst hún kl. 14 f Skákheimilinu
við Grensásveg.
Urslit í 9. umferð, sem tefld var
á annan í páskum, urðu þau, að
Helgi Ólafsson vann Gylfa Þór-
hallsson, Haukur Angantýsson
vann Margeir Pétursson, Bragi
Halldórsson vann Jónas P. Erl-
ingsson, Þórir Ólafsson vann Har-
ald Haraldsson, en biðskákir urðu
hjá Birni Þorsteinssyni og Ingv-
ari Ásmundssyni, Júliusi Frið-
jónssyni og Ásgeiri Þ. Árnasyni
og hefur Júlíus mun betra tafl.
Sem fyrr segir eru þeir Haukur
og Helgi jafnir með 7 vinninga af
9 mögulegum. Haukur tapaði fyr-
ir Helga f fyrstu umferð mótsins
en hefur sfðan sótt sig mjög. Ingv-
ar og Björn hafa 5 vinninga og
biðskák, Bragi Halldórsson hefur
5 vinninga, Margeir Pétursson og
Þórir Ólafsson háfa 414 vinning,
Júlíus Friðjónsson og Ásgeir Þ.
Árnason hafa 3V4 vinning og bið-
skák, Jónas P. Erlingsson hefur
3!4 vinning, Haraldur Haraldsson
2 vinninga og Gylfi Þórhallsson
1!4 vinning.
I tveimur síðustu umferðunum
teflir Helgi við Braga Halldórsson
og Harald Haraldsson en Haukur
teflir við Þóri Ólafsson og Jónas
P. Erlingsson.
HÓPUR 25 grænlenzkra kenn-
araskólanema kom til Reykja-
vfkur í gær frá Grænlandi
ásamt öðrum Grænlendingum
sem munu aðstoða við græn-
lenzku vikuna í Norræna hús-
inu, flytja fyrirlestra og sjá um
annað grænlenzkt efni. Alls
kom 25 manna hópur með flug-
vélinni frá Vestur-Grænlandi,
en fólkið mun dvelja hér í 10
daga til að kynnast landi og
þjóð. Undirbúningur fyrir
Grænlandsvikuna hefur staðið i
nokkurn tíma undir stjórn Maj-
Britt Imnander forstjóra Nor-
ræna hússins og hafa allir verið
boðnir og búnir til þess að
greiða fyrir ferð granna okkar
úr vestri um landið.
Myndina tók Friðþjófur fyrir
utan Farfuglaheimilið við Lauf-
ásveg i gærkvöldi þegar Græn-
lendingarnir stigu úr bifreið
sinni út f ærlega- íslenzka rign-
ingu, en þegar þeir héldu frá
Syðri-Straumfirði í gærmorgun
var þar sól og blóða með 5 stiga
hita.
SKIPBROTSMÖNNUM BJARGAÐ — Þessi mynd var tekin miðvikudaginn fyrir páska og sýnir norska
slefangarann Kvitungen bjarga 13 skipbrotsmönnum af selfangaranum Fortuna, en skip þeirra
brotnaði I (snum eins og fram kom I fréttum fyrir páska. Urðu mennirnir að hafast við á (snum I einn
sólarhring og voru þeir I björgunarbátum, sem kastað var niður til þeirra úr flugvélum. Björgun
mannanna var sem kunnugt er að hluta stjórnað frá tslandi. Ljósm. varnarliðið.
Menn geta bráðum
sótt skyldusparn-
aðarskírteinin sín
„Skyldusparnaðarskfrteinin
verða tilbúin til afhendingar
nijög fljótlega og verður þeim
dreift á þann hátt, að eigendur
skfrteinanna vitja þeirra til
innheimtumanna rfkisins á
hverjum stað og kvitta fyrir
móttöku á sérstöku fylgiblaði,"
sagði Arni Kolbeinsson fulltrúi
f fjármálaráðuneytinu, þegar
Mbl. forvitnaðist um skyldu-
sparnaðinn sem lagður var á
fólk f fyrra, ef það hafði tekjur
yfir ákveðnum mörkum.
Með þessum skyldusparnaði
fékk ríkið í sínar hendur 230—
250 milljónir króna. í staðinn
gefur svo ríkissjóður út spari-
skirteini til þeirra, sem skyld-
aðir voru til að spara. Bera skír-
teinin 4% ársvexti frá 1. janúar
1976 til greiðsludags og eru auk
þess verðbætt samkvæmt fram-
færsluvfsitölu frá 1. nóvember
1975 til 1. nóvember sem næst-
ur er á undan þeim degi, sem
skirteinin eru innleyst. Hægt er
að innleysa skírteinin frá og
með 1. febrúar 1978 en ef menn
kjósa geta þeir haft þau á vöxt-
um til 15. desember 1990.
Skyldusparnaður af þessari
tegund hefur aðeins gilt i þetta
eina ár.
ÓDÝRU SPÁNARFERÐIRNAR -fííJír.rr"”1"
Costa Blanca. Benidorm, hlýjasta Spánarströndin
Fjölskylduafslættir. íslenzk hjúkrunarkona og barnfóstra.
Uppselt var í páskaferðina 9. april.
Næsta ferð 25. april. 18 daga ferð.
í samstarfi við Sam-klúbbinn mun ein vinsælasta hljóm-
sveitin Haukar ásamt þeim Jóhanni og Birgi úr Change leika á
ýmsum hótelum á Costa Blanca ( þessari ferð.