Morgunblaðið - 21.04.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1976
5
Húsgagnavika í
Laugardalshöll
30 húsgagnaframleiðendur sýna
FÉLAG húsgagna- og innréttinga-
framleiðenda og Meistarafélag
húsgagnabólstara efna til fjórðu
sýningar sinnar á islenskum hús-
gögnum og innréttingum.
Á morgun verður opnuð í
íþrótta og sýningarhöllinni i
Laugardal sérsýning á islenskum
húsgögnum og innréttingum.
Þessi sýning er sú fjórða í röð-
inni sem félag húsgagna- og inn-
réttingaframleiðenda og Meist-
arafélag húsgagnabólstrara gang-
ast fyrir undir nafninu
HÚSGAGNAVIKA.
Fyrsta sýningin var haldin i
septembermánuði árið 1969, en
seinni sýningarnar árin 1972 og
1974 voru haldnar að vori eða í
aprílmánuði eins og nú.
Að þessu sinni munu um
þrjátíu innlendir hús-
gagnaframleiðendur taka þátt I
sýningunni.
Atvinnuleysi hjá múrurum
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á aðalfundi Múrarafélags
Reykjavikur 29. mars. 1976:
Aðalfundur Múrarafélags
Reykjavikur haldinn 29. mars,
Ovænt sumargjöf
í boði hjá RÍ
I DAG, sfðasta vetrardag kl.
10—17, verður bóksala við Bern-
höftstorfu til fjáröflunar fýrir
Rithöfundasamband tslands.
Seldar verða áritaðar og inn-
pakkaðar bækur og er verð
hverrar bókar 1500 krónur.
öllum þeim sem áhuga hafa á
íslenskum bókmenntum gefst
þarna kostur á að eignast bók á
hagstæðu verði, síðan ræður
heppnin hvaða bók hver
kaupandi hlýtur því eins og áður
sagði verða þær allar seldar í um-
búóum.
Bókatitlar eru 60, skáldsögur
ljóðabækur, leikrit þjóðlegur
fróðleikur, viðtalsbækur og
bókmenntasaga. Allt eru þetta
Islensk verk, hvert áritað með
sumarkveðju frá höfundi, og má
þvi segja að hver bók verði
kaupanda sfnum óvænt sumar-
gjöf.
Fréttatilkynning frá RithÖfundasambandi
tsl.
Leiðrétting
NAFN fermingardrengs f
Fríkirkjunni í Reykjavfk, sem
fermdur var á annan dag páska,
misritaðist í nafnalistanum yfir
fermingarbörnin, sem birtist hér í
blaðinu á skírdag. Drengurinn
heitir James Ingimar Goodall
Alexandersson til heimilis að
Bjargarstfg 2 hér i borg.
Leiðrétting
I grein í Morgunblaðinu „Þetta er
ólöglegt.. . þú ert ekki frá Hellu“
sem birtist i blaðinu sl. fimmtu-
dag, skírdag, misfórst nafn Árna
Sigurbjörnssonar ýtustjóra og var
hann nefndur Kári. Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.
1976, fordæmir harðlega þá miklu
samdráttarstefnu í byggingariðn-
aði sem fylgt hefur verið frá
árinu 1974.
Samdráttur þessi hefur leitt til
þess að fjöldi múrara hefur orðið
að ganga atvinnulaus meiri hluta
vetrar, eða um 20% af félögum
Múrarafélags Reykjavíkur.
Ástand þetta varir enn og er
algjörlega óþolandi, og verður að
teljast svo vanhugsuð og ósvffin
árás, ekki aðeins á byggingariðn-
aðarmenn heldur einnig á hús-
byggjendur að furðu sætir.
Múrarafélag Reykjavikur hefur
látið frá sér fara til ríkis og
borgarstjóra fjölmargar ályktanir
um atvinnuástand og horfur í
byggingariðnaði, allt frá því í
október 1974.
Þann 24. mars 1975 bendir Múr-
arafélag Reykjavíkur þessum
aðilum á hvert stefnir í þessum
málum, þar sem úthlutun lóða í
Reykjavík fækkar úr 667 ibúðum
árið 1973 i 370 íbúðir árið 1974.
Einnig fækkar úthlutun lána
frá húsnæðismálastjórn úr 938 i
530 lán 1974. Á þessum tölum var
hægt að byggja spá um þá þróun
sem framundan var.
Þrátt fyrir þessar augljósu stað-
reyndir er enn haldið áfram á
sömu braut, og er úthlutun lóða
komin niður í 281 íbúð í Reykja-
vfk árið 1975 eða aðeins 41,36% af
úthlutun ársins 1973.
Fundurinn telur að forráða-
mönnum þjóðarinnar hljóti að
vera Ijóst hversu alvarlegar af-
leiðingar svo hrikalegar sveiflur
hafa á þjóðfélagið, því eftir slíkan
samdrátt sem hér hefur átt sér
stað, hlýtur einhvern tíma að
koma að þenslu sem verður ili-
viðráðanleg og gífurlega kostn-
aðarsöm fyrir húsbyggjendur og
þjóðfélagið i heild.
Það er því krafa fundarins að
nú þegar verði snúið við á þessari
óheillabraut og tekin upp stefna
sem leiði til meiri jöfnunar en
verið hefur.
Borað við Reyki
á Reykjabraut
ÞESSI mynd sýnir Narfa nýjan bor Orkustofnunar við Reyki á
Reykjabraut. Húnavallaskóli f baksýn. Þegar starfsmenn fóru 1
páska- og helgarfrf 8. aprfl hafði verið boruð 1168 m djúp hola.
Vatnsrennslið var þá tæpir 20 sek. I af 71° heitu vatni. Ljósm.
Sigursteinn Guðmundsson.
Talar á vegum
sumarháskóla
ÞESSA dagana dvelst hér á landi
finnskur háskólakennari i hag-
fræði og milliríkjasamskiptum,
Jan-Otto Andersson. Hann starfar
við hagfræðistofnun sænska há-
skólans i Turku (Abo Akademi)
en kemur hingað á vegum Nor-
ræna sumarháskólans í samvinnu
við Norræna húsið.
Andersson flytur opinberan
fyrirlestur á sænsku í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.30. Fyrirlest-
urinn nefnist „Forándringar av
ekonomiska styrkeförkállanden f
várlden".
Reykjavfkurdeild Norræna
sumarháskólans gengst ennfrem-
ur fyrir málþingi (seminar) með
þátttöku Anderssons um efnið
„Rfkí, auðmagn og kreppa“. Fer
það fram i Lögbergi, stofu 308,
laugardaginn 24. apríl og hefst kl.
13.30. Málþingið er opið öllum
þátttakendum i námshópum sum-
arháskólans og öðrum sem áhuga
hafa. Auk þess sem hér. hefur
verið talið mun Andersson hitta
að máli einstaka námshópa og
e.t.v. fleiri aðila.
Reykjavfkurdeild
Norræna sumarháskólans.
2389 ökumenn kærðir fyrir
ölvun við akstur í fyrra
••
Olvaðir ökumenn áttu aðild að 39 slysum
lágmarki. 653 ökumenn reyndust manna. Flestir ökumannanna
með áfengismagn f blóði 0,63 voru teknir f ágústmánuði sam-
0/00 til 1.32 0/00 eða 27.3% öku- Framhald á bls. 42.
Síne-fólk í Ösló mótmælir
UMFERÐARRÁÐ hefur gefið út
skýrslu um kærur vegna ölvunar
við akstur árið 1975. Þar kemur
fram að á landinu öllu voru kær-
ur vegna ölvunar við akstur 238f
en voru 2306 árið 1974. Aukning-
in er þvf 0,4%. Er þetta minnsta
aukning frá þvf milli áranna
1968—1969 en þá var aukningin
0,2%. 1 Reykjavfk og þjóðvegaeft-
irliti fækkaði kærum úr 1151 í
1087. Af 2389 ökumönnum sem
kærðir voru reyndust 1403 eða
58,7% vera með áfengismagn f
blóði 1.33 0/00 eða meira. Fer
þessi hlutfallstala sffellt hækk-
andi. 319 kærur eða 13,4% voru
felldar niður þar sem áfengis-
magn f blóði ökumanna var undir
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi samþykkt frá námsfólki
I Noregi:
Fundur Síne-deildarinnar f
Ósló, 9. april 1976 mótmælir fram-
lögðu frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um lánamál. Fundurinn
mótmælir þeirri árás á jafnrétti
til náms, sem kemur fram i orða-
laginu „stefnt skal að...“ og
krefst 100% umframfjárþarfar
nú þegar. Fundurinn mótmælir
því óréttláta endurgreiðslukerfi,
sem fram kemur i hinum föstu
verðtryggðu endurgreiðslum.
Fundurinn mótmælir þvi ákveðið,
að „lánasjóður veiti það fé sem
hann ræður yfir á hverjum tíma“,
og krefst þess að tryggt sé að
lánasjóður fái á hverjum tíma
nægilegt fé til fullrar úthlutunar.
Fundurinn mótmælir þvi að raik-
isvaldið hafi úrskurðarrétt í
Lánasjóðnum.
Frumvarpið er augljós árás á
menntunarmöguleika þeirra
efnaminni og mundi enn auka
bilið milli lágtekju- og
hátekjumanna. Fundurinn skorar
því á verkalýðshreyfinguna og
alla alþýðu að sýna öflugan
stuðning þeirri baráttu sem náms-
menn nú heyja.
Miðinn ekki
seldur í Bakka-
gerðisumboði
Borgarfirði eystra 20. april
AÐ GEFNU tilefni vil ég taka það
fram, að miði nr. 23420 i happ-
drætti Háskólans hefur aldrei
verið seldur í Bakkagerðisum-
boði.
Sverrir Haraldsson.
/ýft fftf f97o f97t 797}. 7973 7977 797r
Yfirlit yfir fjölda kærða ökumanna vegna ölvunar við akstur á
undanförnum árum.
FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI
MEO FERÐAMIÐSTOÐINNIAaais„»t;
Ódýrar hópferSir, sem Tækifæri til að taka allir geta tekið þátt í, eins þó þeir eigi ekki erindi á vörusýningar. makann með i ódýra skemmtiferð.
Kaupmannahöfn Gull- og silf urvörusýning Brottför 30. apríl. Húsgagnasýning Brottför 11. maí. Verð frá 40.500.— PARÍS Expomat vfitlAlþ,óðleg byggingavörusýning Brottför 14. mai. Vikuferð með 1. flokks gistingu Verðfrá kr. 62.000 r^Hanover Apri^^n . May 6tn Alþjóðleg vörusýning Síðasta tækifæri til að stað- festa pöntun. KIEV Evrópumeistaramót í Judo Stansað er 2 daga í Búdapest á leiðinni út en i Kauomannahöfn á leiðinni heim. 1 0 daga ferð, nánar auglýst siðar. Brottför 2. maí.
ENGLAND
Flogið er til Glasgow og ekið
um fallegustu slóðir Bret-
lands. Sögufrægir staðir
skoðaðir. ísl. Fararstjóri.
Dvalið í London nokkra
daga.
10 daga ferð í júní
Nánar auglýst síðar
Odýrar Noröurlandaferðir í allt sumar.
Seljum einnig farseðla á sérstaklega hagkvæmum vor- og haustfargjöldum.