Morgunblaðið - 21.04.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1976
33
Einhamar og Verka-
mannabústaðirnir
Svar við athugasemdum
Eyjólfs K. Sigurjónssonar
og Ríkharðs Steinbergssonar
VEGNA viðtala er bæði Morgun-
blaðið og Vísir áttu við mig nú
fyrir skömmu, í sambandi við af-
hendingu fyrstu íbúða í Verka-
mannabústöðum, I þeim áfanga
sem nú á að afhenda, hafa þeir
Eyjólfur K. Sigurjónsson, stjórn-
arformaður Verkamannabústaða,
og Ríkharður Steinbergsson,
framkvæmdastjóri Framkvæmd-
arnefndar byggingaáætlana ríkis-
ins, séð ástæðu til að gera athuga-
semdir.
Daginn áður en þessi blaðavið-
töl fóru fram kom frétt í Visi þar
sem sagði frá því, að verð á 4ra
herb. ibúð í Verkamannabústöð-
unum væri 7 miiljón kr. Aðrar
verðupplýsingar komu þar ekki
fram. Mér var kunnugt um, að í
þessum áfanga Verkamannabú-
staða voru mjög hliðstæðar íbúðir
þeim, sem Einhamar hafði byggt
og afhent á timabilinu frá mai
1975 til jan. 1976. Þrjár Ibúðir á
hverri hæð af mjög svipaðri
stærð. Þá leit dæmið svona út
fyrir mér. 4ra herb. íbúð i Verka-
mannabústöðunum kr.
7.000.000.00, 4ra herb. ibúð hjá
Einhamri kr. 4.239.000,00 (ekki
4.4 millj. eins og Morgunblaðið
sagði), mismunur kr.
2.761.000,00 eða 65,1%
Daginn eftir að áðurnefnd blöð
töluðu við mig fórum við tveir
félagar úr Einhamri að skoða
íbúðirnar í Verkamannabústöð-
unum, en þær voru þá til sýnis
almenningi. Hittum við þar Eyj-
ólf K. Sigurjónsson, stjórnarfor-
mann Verkamannabústaðanna.
Tók hann okkur mjög vinsamlega
og sýndi okkur íbúðirnar. Sann-
færðumst við um það, sem raunar
var vitað, að þarna eru mjög
þokkalegar almenningsibúðir.
Við Eyjólfur ræddum nokkuð
Sparið
þúsundir-
SKODA 100
££640.000
■
til öryrkja ca. kr. 470.000.—
í tilefni af því að 30 ár eru
síðan fyrsti Skodinn kom
til landsins, hefur verið
samið við SKODA
verksmiðjurnar um sérstakt
afmælisverð á takmörkuðu
magni af árgerðum 1976.
5000asti
SKODA bíllinn verður
fluttur inn á næstunni.
Hver verður sá heppni?
SKODA 110L
verð ca. kr. 680.000.—
til öryrkja ca. kr. 502.000.—
SKODA 110LS
verð ca. kr. 735.000.—
til öryrkja ca. kr. 548.000.—
SKODA 110R Cupe
verð ca. kr. 807.000.—
til öryrkja ca. kr. 610.000.—
Ofantalin verð eru miðuð
skráð gengi U.S.S: 178.80
við
TEKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H/F
AUÐBREKKU 44 KÓPAVOGI SIMI 42600
AKUREYRI:
SKODA VERKSTÆÐIO A AKUREYRI HIF. ÓSEYRI 8
EGILSTAÐIR:
VARAHLUTAV. GUNNARS GUNNARSSONAR
I
■
I
■
■
h
■
i
■
■
■
saman og gaf hann okkur verð-
lista yfir ibúðirnar ásamt mynd af
grunnplönum og útliti húsanna.
Hafði ég þá orð á þvi að mér
fyndist íbúðirnar dýrar saman-
borið við verð á fbúðum Einham-
ars. Hann taldi það ekki vera,
þetta væri kostnaðarverð. Dreg ég
ekki í efa að það er satt. Eyjólfur
sagði, eins og fram kemur i at-
hugasemdum hans og Ríkharðs
Steinbergssonar við ummælum
þeim, er blöðin höfðu eftir mér,
að óhægt væri um samanburð
vegna hins breytilega verðlags á
byggingatíma og að byggingatím-
inn væri ekki sá sami.
Að vissu marki er þetta rétt.
Þeir afhenda sinar fyrstu íbúðir 3
mánuðum seinna en Einhamar
sínar síðustu. I því sambandi vil
ég draga fram nokkrar staðreynd-
ir: Það er staðreynd að báðir aðil-
ar hófu framkvæmdir vorið 1974.
Verkamannabústaðirnir þó á und-
an Einhamri. Það er líka stað-
reynd að hjá Verkamannabústöð-
unum var hannaður 308 íbúða
áfangi af svo til sömu húsagerð,
sem er mjög hagkvæmt, bæði i
sambandi við teiknikostnað, út-
boð á ýmsum verkþáttum og inn-
kaup á efni, vegna magnafsláttar
sem algengur er við stór innkaup.
Þá má benda á, að Framkvæmda-
nefnd byggingaáætlana rfkisins
sem hefur með byggingu Verka-
mannabústaðanna að gera, var
allvel tæknivædd frá fyrri fram-
kvæmdum, átti t.d. nokkra bygg-
ingakrana og stálmót, sem keypt
voru á allt öðru verðtímabili en
hér um ræðir. Að sjálfsögðu þarf
hvers þeirra er kr. 432.000,00. öll
framanskráð verð giltu jafnt f mai
’75 og janúar ’76, eða fyrir allan
þennan áfanga.
Eins og fram hefur komið halda
forsvarsmenn Frámkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar ríkis-
ins þvi fram að samanburður sé
óraunhæfur, af því að um allt
annað verðtímabil sé að ræða, þar
sem Einhamar hafi byrjað að af-
henda íbúðir sfnar í maf ’75. Rétt
er það, að 20 íbúðir afhenti Ein-
hamar i maí ’75.
Þegar byrjað var á þessum
byggingum i maí 1974 var vísitala
byggingarkostnaðar 998 stig. Við
afhendingu á 20 íbúðum í maí ’75
var vísitalan 1563 stig, hækkun
56,61%. Við afhendingu á 21 ibúð
í júlf var vísitalan 1881 stig,
hækkun 88,48 %.
Um siðustu áramót var gerð
breyting á vísitölukerfinu og
byggingarvísitalan sett i 100. Við
afhendingu 20 íbúða Einhamars i
janúar er ný vfsitala 101 stig, sem
jafngildir 1998 stigum eftir gamla
kerfinu og er hækkunin þá orðin
1000 stig, eða liðlega 100%.
Nú í april þegar Verkamanna-
íbúðir eru afhentar, er ný visitala
105 stig, sem jafngildir 2085 stig-
um með eldri reikningsaðferð.
Mismunur á þeirri vísitölu og í
maí 1975 þegar við afhentum okk-
ar fyrstu íbúðir er 522 stig, eða
33,39% hækkun, með hliðsjón af
samanburðartöflunni hér að
framan. Jafnvel þó að bygging
Verkamannabústaðanna hefði
ekki hafist fyrr en i maí 1975, er
Athugaseiim* ^
thúðir Einhamars og
yerkamannabústaða
l,t)érntfform.íur V h,fði
MorgunbUéW 1 8-r
Gls.ur.r «
vid
hamri b R,a ibúéir fr; \
að reikna afskriftir á slíkum tækj-
um, en innkaupin hljóta að hafa
verið hagstæð fyrir einum 7 ár-
um, miðað við nútíma verðlag.
Einnig má telja óeðlilegt að tækin
skili ekki einhverju jákvæðu I
verðlagi.
Þar sem ég hefi nú I höndum
verðskrá Verkamannabústaða, tel
ég ástæðu til að birta samanburð-
artölur á hliðstæðum ibúðum í
4ra hæða húsinu með 3 íbúðum á
hverri hæð:
verðsamanburðurinn þeim ekki
hagstæður.
Ríkharður Steinbergsson fram-
kvæmdastjóri segir í athugasemd-
um sínum, að Framkvæmda-
nefndin hafi á tímabilinu okt.—
des. ’74 afhent 4ra herbergja
íbúðir og að verð á þeim hafi
verið 3,4—3,5 milljónir.
Einhamar efhenti 4ra herb.
íbúðir i júní 1974 og kostuðu þær
þá kr. 2.839.000,00 — 2.851.000,00.
Þá segir framkvæmdastjórinn
Herb.fj. Verð f Verkam.b. Verð Einhamars Mismunur %
2 4.070.000,- 3.334.500,- 735.5)0,- 22
3 4.840.000,- 3.847.500,- 992.500,- 26
3 5.510.000,- 3.915.000,- 1.595.000,- 41
4 6.570.000,- 4.239.000,- 2.331.000,- 55
1 þriggja hæða húsum VerKa-
mannabústaða eru verð á sam-
svarandi ibúðum 10—11% hærri,
eða 4 herb. kr. 7.000.000,00, 3
herb. kr. 5.230.000,00, 3 herb. kr.
5.910.000,00 og 2 herb. kr.
4.330,000,00 en ekki tel ég rétt að
taka þessi verð til samanburðar,
þar sem Einhamar byggði engin
3ja hæða hús.
í 3 stigahúsum hjá Einhamri
eru 2 fjögurra herbergja ibúðir á
2.—4. hæð og á 1. hæð 1 þriggja
herbergja ibúð. Þykir það heldur
skemmtilegra vegna minni um-
gangs þar sem færri ibúðir eru í
húsL Verð þeirra íbúða var 4
herb. kr. 4.252.500,-, 3 herb. kr.
3.847.500,-. Bílskúrar fylgja 36 af
ibúðunum í þessum áfanga. Verð
líka að þeir hafi afhent 3ja herb.
ibúðir i fyrra og þær hafi kostað
3,5 milljónir, en hann gleymir að
geta þess að allar þessar íbúðir
voru hluti af byggingaráætlun um
1250 ibúðir, sem stofnað var til
með samkomulagi með rikis-
stjórninni, verkalýðshreyfing-
unni og Reykjavikurborg 1965 og
hófust framkvæmdir vorið 1967. 1
samkomulaginu er gert ráð fyrir
að beita nýrri byggingatækni og
gera alvarlega tilraun til lækkun-
ar á byggingakostnaði.
Framkvæmdanefndin og nú
Verkamannabústaðirnir hafa haft
nær ótakmarkaðar byggingalóðir
og það svo, að oftast hafa beðið
lóðir undir hundruð íbúða frekar
Framhald á bls. 42,