Morgunblaðið - 21.04.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1976
37
félk í
fréttum
Dœminu snúið við
+ Nautaat er vinsæl og talin „göfug“ fþrótt meðal spænskumælandi þjóða þó að ekki séu allir á eitt
sáttir um ágæti hennar annars staðar og hætt er við að stundum sé samúð manna kannski meiri með
nautinu en nautabananum.
Meðfylgjandi mynd var tekin á nautaati ( Madrid þar sem nautið gerði sér lítið fyrir og lagði bæði
hest og mann að velli. Maður og hross sluppu þó ósködduð en nautinu tókst þó „betur“ upp nokkru
sfðar en þá veitti það iærlingi f fþróttinni ærlega ráðningu og mátti hann kallast góður að sleppa
lifandi.
Svíar eignast nýja stórstjörnu
+ Sænsk kvikmyndagerð hefur
lengi staðið með miklum blóma
og hafa Svfar átt á að skipa
hæfileikamönnum bæði við
leikstjórn og leik. Sú leikkona
sem nú þykir einna efnilegust
er Anki Lidén.
Fyrir skömmu þreytti Anki
frumraun sfna f myndinni
„Félagarnir" undir leikstjórn
Janne Halldoffs og þótti
frammistaða hennar vera með
miklum ágætum. 1 myndinni er
Anki tekin nauðug af fjórum
drukknum mönnum en að öðru
leyti fjallar myndin ekki um
ofbeldi eða afbrigðilegt kynlff.
Anki kemur ekki einu sinni
fram nakin f myndinni og þyk-
ir það þó ekki tiltökumái nú á
dögum.
Erlendir kvikmyndafram-
leiðendur, sem löngum hafa
sótzt eftir sænskum leikurum,
hafa ekki látið Anki fram hjá
sér fara og hefur hún nú fengið
sitt fyrsta tilboð — frá fram-
leiðanda „Emmanuelle“.
„Já,“ segir Anki, „Hann segir
að það sé kynþokki minn en
ekki kroppurinn sem hann sæk-
ist eftir. En, annars, nei takk.
Ekki þó svo að skilja að ég þori
ekki að koma fram nakin, það
hef ég gert fyrr við leikhúsið f
Uppsölum þar sem ég starfa.“
Anki, sem heitir raunar réttu
nafni Anna-Katarina, er fædd
árið 1947 og hefur ætíð stefnt
að því að verða leikkona.
+ Anki: Helzt ekki nektarsenur
SfG-MQAJC?
+ Frank Sinatra er ekki að
horfa í skildinginn þegar
fagrar konur eru annars vegar.
Fyrir nokkru gaf hann
Christinu Savalas gullarmband
á 24. afmælisdegi hennar.
Armbandið kostaði tæpar 800
þúsundir króna.
Kvenfélagið Seltjörn
Okkar árlega kaffisala verður í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi á morgun sumardaginn fyrsta frá
kl. 14.30 til 18.30. Barnakór Mýrarhúsaskóla
og kór félagsins syngja.
Stjórnin.
Sambyggðar trésmíðavélar
(10 tommu afréttari, 10x5/8 tommu þykktarhefill,
12 tommu hjólsög. Og bor og fræsari með 30 mm
spindli.)
G. Þorsteinsson & Johnson,
Ármúla 1, sími 85533.
í svörtu leðri.
Stærðir: Nr. 35—40 Kr. 2.85^
Stærðir: Nr. 41—4P
Teg. 6581
í rauðu eða svörtu leðri.
Stærðir: Nr. 35—40 Kr. 3.450
Stærðir: Nr. 41—46 Kr. 3 785
Póstsendum
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti v/Austurvöll
Sími 14181 .