Morgunblaðið - 01.07.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JULl 1976
3
Elzta fréttamyndin frá
konungskomunni 1921
MAGNUS Jóhannsson, útvarpsvirki og einhver helzti áhugamaður
hérlendis um varðveizlu gamalla kvikmynda, hefur nú I fórum
sfnum kvikmynd af komu Kristjáns konungs X til Islands árið 1921.
Er þarna um að ræða kvikmynd, sem Gamla bfó og Nýja bfó létu
gera f sameiningu af þessari ferð en þessi kvikmyndahús voru f þá
daga helztu kvikmyndahúsin hér á landi. Sagði Magnús f samtali
við Morgunblaðið f gær, að lfklegt væri að þetta væri elzta fslenzka
fréttamyndin og um leið heimildamyndin sem varðveitzt hefði.
Kvaðst Magnús hugsanlega mundu koma þessari kvikmynd á fram-
færi áður en langt um liði.
Raunar kvaðst Magnús hafa
fréttir af eldri kvikmynd en
þessari. Væri það kvikmynd af
fyrsta fluginu á Islandi árið
1919 og hefði honum tekizt að
rekja slóð hennar til Danmerk-
ur en líklegt mætti telja að hún
hefði brunnið þar í eldsvoða er
upp kom i húsakynnum Nord-
isk film á stríðsárunum og væri
hún þannig með öllu glötuð.
Magnús hefur nú umráð með
kvikmyndasafni Lofts heitins
Guðmundssonar, ljósmyndara,
og hefur unnið nokkra þætti
fyrir sjónvarpið úr þeim mynd-
um, en svo hafði talazt til með
Lofti og Magnúsi áður en Loft-
ur andaðist, að Magnús skyldi
hafa yfirráð yfir kvikmynda-
safni hans.
Það var einnig að frumkvæði
Magnúsar, að sjónvarpið sýndi 1
fyrrakvöld kvikmynd frá Al-
þingishátiðinni 1930, sem
franskir menn höfðu tekið hér
á landi við það tækifæri og hef-
ur þessi mynd vakið töluverða
athygli, enda merkileg heimild
um þessi hátíðahöld, þó að
sjónarhorn hennar væri harla
franskt. Að sögn Magnúsar var
það kunningi hans, Bjarni heit-
inn Guðmundsson, blaðafull-
trúi utanrikisráðuneytisins sem
komst á snoðir um það í Kaup-
Kristján X og drottning hans stfga á land f Reykjavfk
Konungsf jölskyldan við Gullfoss
mannahöfn, að eintak af þess-
ari kvikmynd væri til og sagði
Magnúsi frá þvf. Magnús kvaðst
þá hafa beóið Bjarna um að
beita áhrifum sínum til að
eintak af myndinni væri fengið
hingað til lands. Bjarni hefði
orðið við því og'málin æxlazt
þannig að eintak af myndinni
kom til skrifstofu Alþingis. Þar
hafði Magnús siðan uppi á
henni aftur ekki alls fyrir
löngu, gekkst fyrir því að enn
voru gerð ný eintök af henni og
kom þvi síðan á framfæri við
sjónvarpið.
Magnús tjáði Morgunblaðinu,
að hann vissi til þess að Loftur
Guðmundsson hefði einnig
kvikmyndað Alþingishátiðina
en sú mynd væri með öllu glöt-
uð. Kvaðst hann vilja beina
þeijn tilmælum til allra þeirra
sem vissu eitthvað um feril
þeirrar myndar eða hefðu í
fórum sinum filmubúta frá Al-
þingishátíðinni að koma þeim á
framfæri við sig. Reyndar gild-
ir þetta um allar kvikmyndir
frá gömlum dögum sem
hugsanlega kynnu að hafa eitt-
hvert heimildargildi, og veit
Morgunblaðið til þess að sjón-
varpið hefur til að mynda
áhuga á öllu slíku og myndi
vera reiðubúið að hjálpa fólki
um aðstöðu til að ganga úr
skugga um heimildagildi gam-
alla filmubúta, sem það kynni
að hafa í fórum sinum.
Ameríkureiðin:
Islenzkir hestar
í 12. og 13. sæti
Þriðjungur leiðarinnar að baki
Aukasýning á Shield Head
„SHIELD Head“, enska útgáfan af Skjaldhömrum eftir Jónas Árna-
son, var sem kunnugt er frumsýnd 1 Iðnó á þriðjudag við góðar
undirtektir. Ráðgerðar höfðu verið tvær sýningar, en nú hefur verið
ákveðið að hafa aukasýningu á föstudag kl. 20,30. Verður miðasalan 1
Iðnó opin bæði 1 dag, fimmtudag, og á föstudag. Myndin er úr
sýningunni.
55.5 millj. kr. halli
Samvinnutrygginga
— ISLENZKU hestarnir hafa
staðið sig vel og nú þegar er um
þriðjungur leiðarinnar að baki,
sagði Agnar Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Búvörudeildar SlS
1 gær, þegar Mbl. spurðist fyrir
um hvernig þeim gengi Þjóðverj-
unum fimm og Austurrfkismann-
inum, sem taka þátt f hópreiðinni
í húsi Jóns
1 HÚSI Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn er rekið félags-
heimili Islendinga þar í borg. Þar
eru allir velkomnir og oft margt
um manninn, enda hafa margir,
sem leið eiga um Kaupmanna-
höfn, gaman af að skoða þetta
fyrrverandi heimili sjálfstæðis-
hetjunnar. Vmsar veitingar eru
þar á boðstólum, hægt er að horfa
á sjónvarp, lesa nýjustu blöðin
eða bara rabba við landann. Auk
þess rekur félagsheimilið reið-
hjólaleigu fyrir þá, sem hafa hug
á að ferðast um borgina upp á
danskan máta.
Hús Jóns Sigurðssonar er i
sumar opið frá kl. 14—22 alla
daga vikunnar og er við Öster
Voldgade 12.
yfir Amerfku á islenzkum hest-
um. Agnar sagði að samkvæmt
þeim fréttum, er borizt hefðu frá
Gunnari Bjarnasyni, sem er farar-
stjóri hópsins fyrir vestan, hefur
ferðin gengið vel til þessa og fs-
lenzku hestarnir hafa staðið sig
vel þrátt fyrir mikla hita og hit-
inn á daginn hefur verið um 30°C
og á næturnar um 20°C.
Islenzku hestunum hefur eins
og áður sagði vegnað vel í keppn-
inni og er W. Feldmann yngri í
12. sæti og Johannes Hoyos í 13.
sæti og hinir knaparnir á fslenzku
hestunum eru innan við miðju í
röð. Um 20 hross hafa fallið út úr
keppninni og þeir, sem fremstir
fara eru á arabískum hestum.
Lagt var upp í reiðina, sem far-
in er í tilefni af 200 ára afmæli
Bandarfkjanna, 31. maí sl. frá
New Yörk en henni á að ljúka í
Kaliforniu 2. september n.k. og er
leiðin alls 5700 km. Nú er hópur-
inn við landamæri Missouri og
Illinois og á að koma til St. Joseph
8. júlí nk.
YFIRVINNUBANN Starfs-
mannafélags hljóðvarps hefur nú
staðið I um fjórar vikur. Málinu
var á sfnum tfma vfsað til Kjara-
nefndar og samningaviðræður á
milli deiluaðilja hafa þvf ekki átt
sér stað undanfarið. Var búizt við
úrskurði nefndarinnar fyrir
mánaðamót, en nefndin hefur
fengið frest fram yf'fr mánaðamót
til að kveða upp úrskurð sinn.
Gunnar Vagnsson, fram-
HALLI varð á rekstri Samvinnu-
trygginga árið 1975 sem nam 55.5
millj. króna. Hallinn stafar fyrst
og fremst af tapi á fiskiskipa-
tryggíngum að upphæð 45. millj.
kvæmdastjóri Rikisútvarpsins
sagöi í viðtali við Morgunblaðið i
gær, að mál þetta væri hið
erfiðasta viðureignar og auk þess
sem hlustendur fengju nú verri
þjónustu en áður þá skapaði það
óþægindi og spennu innan stofn-
unarinnar. Að sögn Gunnars
fengu starfsmenn hljóðvarpsins
tæplega tvær milljónir f hrein
yfirvinnulaun á mánuði árið 1975.
kr. og tapi á gömlum endurtrygg-
ingarsamningum, en á árinu
komu fram ógreidd erlend tjón
vegna þessara samninga sem
námu 41.2 millj. króna.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu hefur
borizt um aðalfundi Samvinnu-
trygginga, Líftryggingafélagsins
Andvöku og Endurirygginga-
félags Samvinnutrygginga h.f.,
sem haldnir voru á Kirkjubæjar-
klaustri 25. júnf s.l. Það er ljóst,
segir enn fremur í ársskýrslu
Samvinnutrygginga, að tjónin
hafa ekki aukizt um slfka upphæð
á einu ári, heldur eru að koma í
ljós óuppgerð tjón frá fyrri árum,
auk þess sem gengisbreytingar
hafa haft áhrif á upphæðir tjón-
anna. Heildarvelta Samvinnu-
trygginga á árinu 1975 nam kr.
1.364.9 millj. og hafði aukizt um
376.5 millj. frá árinu áður.
Heildariðgjöld ársins hjá öllum
félögunum námu samtals kr.
1.913.4 og höfðu aukizt um 45.4%
frá árinu 1974. Að frádregnum
þeim stóru áföllum, sem getið er i
upphafi, mun rekstur Samvinnu-
trygginga hafa gengið „þolan-
lega“ á árinu 1975. Verg afkoma
(með vergri afkomu er átt við þá
Framhald á bls. 20
Listdans
um landið
ÞAÐ ER ekki oft sem þeim, er
búa utan Reykjavfkur, gefst kost-
ur á að sjá listdanssýningar.
Næstu vikurnar gefst þó slfkt
tækifæri, því Fenixballettflokkur
Unnar Guðjónsdóttur ballett-
meistara leggur upp f dansför
kringum landið um þessa helgi.
Unnur stofnaði Fenixflokkinn f
Stokkhólmi árið 1970 og hann
hefur sfðan haldið um 100 sýning-
ar á ári f Svfþjóð. Auk þess að
dansa fyrir leikhúsgesti þar ytra,
hefur flokkurinn komið fram f
fangelsum, á elliheimilum og á
sjúkrahúsum.
Hringferðin um tsland er farin
fyrir tilstilli Menningarsjóðs
Norðurlanda. Dansflokkurinn
mun sýna ballettana „Gunnar á
Hlíðarenda" og „Þjóðtrú á Norð-
urlöndum". Dansað verður á eft-
irtöldum stöðum:
Hveragerði, sunnudaginn 4. júlí
Hvolsvelli, mánudag 5. júlí
Höfn i Hornafirði, þriðjudag 6.
júlí og miðvikudag 7. júlí
Neskaupsstað, fimmtudag 8. júlí
Egilsstöðum, föstudag 9. júlf
Seyðisfirði, laugardag 10. júlí
Húsavik, sunnudag ll.júlí
Akureyri, mánudag 12. júlí
Reykjavík, miðvikudag 14. júli og
fimmtudag 15. júlí.
Fagnaður að
Bessastöðum
NÆSTKOMANDI sunnudag
verður Vestur-Islendingum fagn-
að við guðsþjónustu á Bessastöð-
um, en sfðan þiggja þeir boð for-
setahjónanna á forsetasetrinu.
Við guðsþjónustuna mun séra
Garðar Þorsteinsson, prófastur,
prédika en séra Bragi Friðriksson
þjónar ásamt honum fyrir altari.
Forseti Islands mun og ávarpa
gesti i lok kirkjuathafnarínnar.
Bílar munu fara frá Ferðaskrif-
stofu tslands kl. 1,15 e.h. og aftur
frá Bessastöðum að heimsókn
lokinni.
Hreinar yfirvinnu-
greiðslur til hljóð-
varpsfólks námu 2
millj. á mán. 1 fyrra