Morgunblaðið - 01.07.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JULI 1976
Allar símastöðvar
verði opnar minnst
sex tíma á dag
Á AÐALFUNDI Landssambands
slmstöðvarstjóra 2. og 3. fl.
stöðva, sem haldinn var á Akur-
eyri 21. júní, var þess óskað að
allar slmstöðvar úti um land vrðu
opnar að minnsta kosti 6 tfma á
dag. Taldi fundurinn óverjandi
að sfmhotendur f sveitum hefðu
ekki jafna aðstöðu til afnota af
sfma, sem telja yrði eitt nauðsyn-
legasta sambandstækið fyrir fólk
sem f einangrun byggi.
Fundur þessi var þriðji aðal-
fundur Landssambands simstöðv-
arstjóra á 2. og 3. flokks stöðvum
og sóttu hann auk stjórnar full-
trúar 7 félaga af 10 sem í sam-
bandinu eru. Siðan Landssam-
bandið var stofnað árið 1974 hef-
ur verið stefnt að þvi að allir
meðlimir þess, 95 að tölu, fengju
réttindi opinberra starfsmanna.
Náðist samkomulag þar að lút-
andi í byrjun desember sl., þann-
ig að því marki yrði náð í áföng-
um, fyrsti hópurinn 1. apríl sl.,
næsti um áramót, en sá síðasti, 3
fl. stöðvarnar, var látinn bíða.
Aðalmál landsfundarins á Ak-
ureyri var umræðan um 3. fl.
stöðvarnar, þ.e. 4 tima stöðvarnar,
en nú stendur fyrir dyrum endur-
skoðun reglugerðar vegna þeirra.
Var ákveðið á fundihum að stefna
að því marki að þær 3. fl. stöðvar
sem ekki yrðu sameinaðar stærri
stöðvum, skyldu stækkaðar i 2. fl.
stöðvar, þ.e. með 6 tíma afgreiðslu
a.m.k.
Aðalfundurinn lagði áherzlu á
að þegar 3. flokks stöðvar yrðu
lagðar niður, yrði þess gætt að
hvergi yrðu fleiri símar en 6 á
hverri línu. Sömuleiðis vakti
fundurinn athygli á þeirri nauð-
syn að allar handvirkar stöðyar
eigi aðgang að einhverri stöð, sem
opin er allan sólarhringinn.
Formaður Landssambands sím-
stöðvarstjóra var kosinn Bjarni
Pétursson á Fosshóli, en Guðrún
L. Ásgeirsdóttir fráfarandi for-
maður baðst eindregið undan
endurkjöri. Gjaldkeri er Einar
Sigurjónsson, en ritari Kristjana
Vilhjálmsdóttir.
Foreldra- og
vinafélag Kópavogs-
hælis stofnað
TUTTUGASTA og fjórSa júnl s.l. var
haldinn stofnfundur Foreldra- og
vinafélags Kópavogshælis. Tilgangur
félagsins verSur einkum stuSningur
viS vistfólk og starfsemi hælisins.
Um eitt hundraS manns sóttu
fundinn og voru eftirtaldir kjörnir I
fyrstu stjórn félagsins: SigurSur
GarSarsson formaSur, AuSur Hann-
esdóttir gjaldkeri. Þóra SigurSardótt-
ir ritari, Anna Magnúsdóttir og Jó-
hann Sófusson meSstjórnendur.
Þess er vænzt. aS félögum fjölgi á
næstunni, þannig aS starfsemi fé-
lagsins megi aukast aS mun.
1 ÁR eru liðin 15 ár frá þvf að
reist var og afhjúpuð f Rivedal f
Noregi stytta af Ingólfi Arnar-
syni, en þar munu heimkynni
hans hafa verið áður en hann fór
til Islands fyrstur landnáms-
manna. 1 tilefni þessa afmælis
hafa heimamenn í Rivedal ákveð-
ið að efna til móts Islendinga og
Norðmanna dagana 7.—8. ágúst
nk. f því skyni að styrkja enn
frekar vináttuböndin milli þjóð-
anna tveggja.
í tilkynningu sem Mbl. hefur
borizt frá Kjell Ask, sem sæti á í
undirbúningsnefnd mótsins, segir
að heimamenn þar um slóðir
hyggi gott til að taka á móti sem
flestum Islendingum og er þeim
Islendingum, sem staddir kunna
að vera í Noregi á þessum tima,
boðið að koma til mótsins og vera
þar gestir heimamanna. 1 tilkynn-
ingunni segir að nokkrum íslenzk-
um ráðherrum hafi verið boðið til
mótsins og vonist aðstandendur
þess til þess að þeir sjái sér fært
að koma.
Þeim sem áhuga kunna að hafa
á að koma til Rivedal í Dalsfirði
umrædda daga er bent á að hafa
samband við Kjell Ask, 6982
Holmedal Dalsfjorden i Noregi.
MWtan af Injíolfi \rnars\ni i
Kivvflal i Palsdirrti I huksv n
>ést hva«> hátarnir tvulr. Orn
nu llrafn. suni Non>im*ntf,y
islrndírtgnm piúóhátfA-
arári«\ lf>74. halda til hafs l‘»
júli pad ár. Ifaldid vuróur á
þpsstim slódum dayana 7.—K.
iiuúsf mót lslrnrfínfja <>« \nr<v
nianna. rr húi/t v ió a«'
áhafnir hátanna tcrAi þar
»^ri*óal þátttak«‘nda.
Afmælismót í heimabyggð Ingólfs
Amarsonar 1 Rivedal í Noregi
Glaumbæjarkirkja 50 ára
Sauðárkróki 27 júní.
Á TRINITATIS var hátíðarguðsþjón
usta I Glaumbæjarkirkju Þá var þess
minnzt að kirkjuhúsið er 50 ára en
kirkjan var vígð 13. júní 1926 og
framkvæmdi vigsluna sr. Hálfdán
Guðjónsson prófastur Skagfirðinga.
Glaumbæjarprestakalli þjónaði þá sr.
Hallgrlmur Thorlacius og vann hann
af áhuga og skörungsskap að kirkju
smíðinni og gaf þá stórfé til kirkjunn-
ar.
í tilefni afmælisins bárust kirkjunni
margar og góðar stórgjafir. Kristín
Gunnlaugsdóttir f Geldingaholti, börn
hennar og tengdabörn gáfu skirnarsá
til minningar um bónda Kristinar, Tobí-
as Sigurjónsson, en hann átti sæti í
sóknarnefnd i 40 ár. Efemia Gísladótir
frá Halldórsstöðum gaf gullinn kross,
greyptan geislasteini, til minningar um
mann sinn, Felix Jósafatsson, sem var
kennari í Syluhreppi um áratugi Enn-
fremur gaf Efemía 50 þúsund krónur
til kaupa á hátiðarhökli Agnes Guð-
finnsdóttir, fyrrum húsfreyja á Ytra-
Skörðugili, gaf 100 þúsund krónur til
minningar um dóttur sina Unni Jóns-
dóttur, en Agnes og börn hennar hafa
áður gefið stórgjafir til minningar um
mann sinn Jón Jóhannesson, sem
lengi hafði átt sæti í sóknarnefnd.
Á afmælisdaginn gáfu prestshjónin i
Glaumbæ og börn þeirra kirkjunni
vandaða Biblíu Þá voru kirkjunni gefn-
ar sessur á kirkjubekkina og gerði það
Víðimýrarsöfnuður. Við guðsþjónust-
una var einnig minnzt annarra gjafa
sem kirkjunni höfðu borizt og þökkuðu
Sigurjón Jónasson, formaður sóknar-
nefndar, og séra Gunnar Gislason
rausn og góðan hug allra þessara gef-
enda
Guðsþjónustan var mjög fjölsótt og
hátíðarbragur yfir öllu enda dýrðarfag-
ur sumardagur Kirkjukór Glaumbæjar-
kirkju hafði vandað vel til söngs fyrir
messuna undir stjórn organistans,
Jóns Björnssonar, tónskálds á Haf-
steinsstöðum Hann hefur verið organ-
isti við Glaumbæjarkirkju á sjötta tug
ára og var honum þakkað frábært starf
Þá fagnaði sóknarpresturinn þvi að
Hjörtur Benediktsson á Marbæli, hátt á
93. aldursári, gat verið við messu
þennan dag en Hjörtur var allt í senn,
meðhjálpari í Glaumbæjarkirkju, for-
maður sóknarnefndar og safnaðarfull-
trúi svo áratugum skipti og hefir eng-
inn honum fremur látið sér annt um
Glaumbæjarkirkju og safnaðarstarfið
Séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli
sýndi það vinarbragð að vera viðstadd-
ur guðsþjónustuna þrátt fyrir annir
heima fyrir og flutti hann erindi um
Glaumbæjarstað og Glaumbæjar-
klerka, sem var hvort tveggja í senn
fróðlegt og skemmtilegt.
í guðsþjónustunni voru skírð tvö
börn náskyld Tobíasi í Geldingaholti
og síðan buðu prestshjónin kirkjugest-
um að þiggja veitingar á heimili sínu
Skólavorðustíg 3a, 2.hæð.
Simar 22911 og 19255.
2ja herb.
til sölu 2ja herb. nýtizku íbúðar-
hæð við Nýbýlaveg. Bílskúr
fylgir. Gæti verið laus fljótlega.
Rauðarárstigur
3ja herb. ibúð i góðu standi á 1.
hæð. 2 svefnherbergi.
4ra herb. ibúðir
Við Hverfisgötu, Klepps-
veg, og Leirubakka.
Sumar ibúðirnar gætu
verið lausar fljótlega.
Hverfisgata
efri hæð og ris í steinhúsi við
Hverfisgötu.
Ljósheimar
skemmtileg um 130 fm ibúðar-
hæð i háhýsi við Ljósheima.
Góðar svalir. Mikið útsýni. Laus
fljótlega.
Eskihlið
6 herb. vönduð jarðhæð, 4
svefnherbergi.
Einbýlishús
Höfum úrval af einbýlishúsum á
Selfossi. Hveragerði og Hellis-
sandi. Einnig einbýlishús i Blesu-
gróf, Reykjavik. Húsin komin i
skipulag. Sanngjarnt verð.
í smiðum
sérlega skemmtileg raðhús með
innbyggðum bilskúr í Garðabæ
Seljast fullfrágengin að utan. Til
afhendingar í ágúst n.k. Sann-
gjarnt verð. Teikningar á skrif-
stofu vorri.
ATH. OPIÐ TIL KL.
10 1 KVÖLD.
Jón Arason hdl.,
málflutnings og
fasteignasala, >.
simar 22911 og 1 9255.
Utsölustaðir
liUUU/itAK Hjólbarða
Reykjavík: Dalvík:
Hjólbarðaþjónusta Heklu h.f.. Bílaverkstæði Dalvíkur,
Laugaveg 1 70—172, símar 21245 — sími 61122
28080 Gúmmivinnustofan, Egilsstaðir:
Skipholt 35, sími 31055 Véltækni s.f
Hjólbarðaverkstæði simi 1455 1
Sigurjóns Gíslasonar, Seyðisfjörður:
Laugaveg 171, sími 1 5508 Jón Gunnþórsson,
Borgarnes: simi 2305
Guðsteinn Sigurjónsson, Neskaupstaður:
Kjartansgötu 12, simi 7395 Bifreiðaþjónustan
Ólafsvik: simi 7447
Marís Gilsfjörð Reyðarfjörður:
bifreiðastjóri, sími 6283 Bilaverkstæðið Lykill,
Húnavatnssýsla: simi 4199
Vélaverkst. Viðir, Hella:
Víðidal Sigvarður Haraldsson
Sauðárkrókur: Bílaverkstæði
Vélsmiðjan Logr, Keflavík:
simi 5165 Gúmmiviðgerðin
Hofsós: Hafnargötu 89, sími 1713
Bílaverkstæði Páls Magnússonar, Grindavík:
sími 6380 Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur,
Ólafsfjörður: c/o Hallgrimur Bogason
Bilaverkstæðið Múlatindur, Vestmannaeyjar:
sími 621 94 Hjólbarðastofa Guðna,
Akureyri: v/Strandveg simi 1 4 1 4 ?
Hjólbarðaverkstæðið Hafnarfjörður:
Glerárgötu 34, simi 22840 Hjólbarðaverkst. Reykjavíkurveg 56,
Bilaþjónustan s.f. sími51538 S
Tryggvagötu 1 4, sími 21715 Garðabær:
Bílaverkstæðið Baugur, Hjólbarðav Nýbarðinn,
sími 22875, Akureyri. simi 50606 f
GOOD-YEAR HJOLBARÐAR UNDIR BÍLINN
DRÁTTAVÉLINA OG VINNUVÉLINA
HEKLAhf
| Laugavegi 170— 172 — Sfmi 21240