Morgunblaðið - 01.07.1976, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.07.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JULI 1976 Allar símastöðvar verði opnar minnst sex tíma á dag Á AÐALFUNDI Landssambands slmstöðvarstjóra 2. og 3. fl. stöðva, sem haldinn var á Akur- eyri 21. júní, var þess óskað að allar slmstöðvar úti um land vrðu opnar að minnsta kosti 6 tfma á dag. Taldi fundurinn óverjandi að sfmhotendur f sveitum hefðu ekki jafna aðstöðu til afnota af sfma, sem telja yrði eitt nauðsyn- legasta sambandstækið fyrir fólk sem f einangrun byggi. Fundur þessi var þriðji aðal- fundur Landssambands simstöðv- arstjóra á 2. og 3. flokks stöðvum og sóttu hann auk stjórnar full- trúar 7 félaga af 10 sem í sam- bandinu eru. Siðan Landssam- bandið var stofnað árið 1974 hef- ur verið stefnt að þvi að allir meðlimir þess, 95 að tölu, fengju réttindi opinberra starfsmanna. Náðist samkomulag þar að lút- andi í byrjun desember sl., þann- ig að því marki yrði náð í áföng- um, fyrsti hópurinn 1. apríl sl., næsti um áramót, en sá síðasti, 3 fl. stöðvarnar, var látinn bíða. Aðalmál landsfundarins á Ak- ureyri var umræðan um 3. fl. stöðvarnar, þ.e. 4 tima stöðvarnar, en nú stendur fyrir dyrum endur- skoðun reglugerðar vegna þeirra. Var ákveðið á fundihum að stefna að því marki að þær 3. fl. stöðvar sem ekki yrðu sameinaðar stærri stöðvum, skyldu stækkaðar i 2. fl. stöðvar, þ.e. með 6 tíma afgreiðslu a.m.k. Aðalfundurinn lagði áherzlu á að þegar 3. flokks stöðvar yrðu lagðar niður, yrði þess gætt að hvergi yrðu fleiri símar en 6 á hverri línu. Sömuleiðis vakti fundurinn athygli á þeirri nauð- syn að allar handvirkar stöðyar eigi aðgang að einhverri stöð, sem opin er allan sólarhringinn. Formaður Landssambands sím- stöðvarstjóra var kosinn Bjarni Pétursson á Fosshóli, en Guðrún L. Ásgeirsdóttir fráfarandi for- maður baðst eindregið undan endurkjöri. Gjaldkeri er Einar Sigurjónsson, en ritari Kristjana Vilhjálmsdóttir. Foreldra- og vinafélag Kópavogs- hælis stofnað TUTTUGASTA og fjórSa júnl s.l. var haldinn stofnfundur Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis. Tilgangur félagsins verSur einkum stuSningur viS vistfólk og starfsemi hælisins. Um eitt hundraS manns sóttu fundinn og voru eftirtaldir kjörnir I fyrstu stjórn félagsins: SigurSur GarSarsson formaSur, AuSur Hann- esdóttir gjaldkeri. Þóra SigurSardótt- ir ritari, Anna Magnúsdóttir og Jó- hann Sófusson meSstjórnendur. Þess er vænzt. aS félögum fjölgi á næstunni, þannig aS starfsemi fé- lagsins megi aukast aS mun. 1 ÁR eru liðin 15 ár frá þvf að reist var og afhjúpuð f Rivedal f Noregi stytta af Ingólfi Arnar- syni, en þar munu heimkynni hans hafa verið áður en hann fór til Islands fyrstur landnáms- manna. 1 tilefni þessa afmælis hafa heimamenn í Rivedal ákveð- ið að efna til móts Islendinga og Norðmanna dagana 7.—8. ágúst nk. f því skyni að styrkja enn frekar vináttuböndin milli þjóð- anna tveggja. í tilkynningu sem Mbl. hefur borizt frá Kjell Ask, sem sæti á í undirbúningsnefnd mótsins, segir að heimamenn þar um slóðir hyggi gott til að taka á móti sem flestum Islendingum og er þeim Islendingum, sem staddir kunna að vera í Noregi á þessum tima, boðið að koma til mótsins og vera þar gestir heimamanna. 1 tilkynn- ingunni segir að nokkrum íslenzk- um ráðherrum hafi verið boðið til mótsins og vonist aðstandendur þess til þess að þeir sjái sér fært að koma. Þeim sem áhuga kunna að hafa á að koma til Rivedal í Dalsfirði umrædda daga er bent á að hafa samband við Kjell Ask, 6982 Holmedal Dalsfjorden i Noregi. MWtan af Injíolfi \rnars\ni i Kivvflal i Palsdirrti I huksv n >ést hva«> hátarnir tvulr. Orn nu llrafn. suni Non>im*ntf,y islrndírtgnm piúóhátfA- arári«\ lf>74. halda til hafs l‘» júli pad ár. Ifaldid vuróur á þpsstim slódum dayana 7.—K. iiuúsf mót lslrnrfínfja <>« \nr<v nianna. rr húi/t v ió a«' áhafnir hátanna tcrAi þar »^ri*óal þátttak«‘nda. Afmælismót í heimabyggð Ingólfs Amarsonar 1 Rivedal í Noregi Glaumbæjarkirkja 50 ára Sauðárkróki 27 júní. Á TRINITATIS var hátíðarguðsþjón usta I Glaumbæjarkirkju Þá var þess minnzt að kirkjuhúsið er 50 ára en kirkjan var vígð 13. júní 1926 og framkvæmdi vigsluna sr. Hálfdán Guðjónsson prófastur Skagfirðinga. Glaumbæjarprestakalli þjónaði þá sr. Hallgrlmur Thorlacius og vann hann af áhuga og skörungsskap að kirkju smíðinni og gaf þá stórfé til kirkjunn- ar. í tilefni afmælisins bárust kirkjunni margar og góðar stórgjafir. Kristín Gunnlaugsdóttir f Geldingaholti, börn hennar og tengdabörn gáfu skirnarsá til minningar um bónda Kristinar, Tobí- as Sigurjónsson, en hann átti sæti í sóknarnefnd i 40 ár. Efemia Gísladótir frá Halldórsstöðum gaf gullinn kross, greyptan geislasteini, til minningar um mann sinn, Felix Jósafatsson, sem var kennari í Syluhreppi um áratugi Enn- fremur gaf Efemía 50 þúsund krónur til kaupa á hátiðarhökli Agnes Guð- finnsdóttir, fyrrum húsfreyja á Ytra- Skörðugili, gaf 100 þúsund krónur til minningar um dóttur sina Unni Jóns- dóttur, en Agnes og börn hennar hafa áður gefið stórgjafir til minningar um mann sinn Jón Jóhannesson, sem lengi hafði átt sæti í sóknarnefnd. Á afmælisdaginn gáfu prestshjónin i Glaumbæ og börn þeirra kirkjunni vandaða Biblíu Þá voru kirkjunni gefn- ar sessur á kirkjubekkina og gerði það Víðimýrarsöfnuður. Við guðsþjónust- una var einnig minnzt annarra gjafa sem kirkjunni höfðu borizt og þökkuðu Sigurjón Jónasson, formaður sóknar- nefndar, og séra Gunnar Gislason rausn og góðan hug allra þessara gef- enda Guðsþjónustan var mjög fjölsótt og hátíðarbragur yfir öllu enda dýrðarfag- ur sumardagur Kirkjukór Glaumbæjar- kirkju hafði vandað vel til söngs fyrir messuna undir stjórn organistans, Jóns Björnssonar, tónskálds á Haf- steinsstöðum Hann hefur verið organ- isti við Glaumbæjarkirkju á sjötta tug ára og var honum þakkað frábært starf Þá fagnaði sóknarpresturinn þvi að Hjörtur Benediktsson á Marbæli, hátt á 93. aldursári, gat verið við messu þennan dag en Hjörtur var allt í senn, meðhjálpari í Glaumbæjarkirkju, for- maður sóknarnefndar og safnaðarfull- trúi svo áratugum skipti og hefir eng- inn honum fremur látið sér annt um Glaumbæjarkirkju og safnaðarstarfið Séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli sýndi það vinarbragð að vera viðstadd- ur guðsþjónustuna þrátt fyrir annir heima fyrir og flutti hann erindi um Glaumbæjarstað og Glaumbæjar- klerka, sem var hvort tveggja í senn fróðlegt og skemmtilegt. í guðsþjónustunni voru skírð tvö börn náskyld Tobíasi í Geldingaholti og síðan buðu prestshjónin kirkjugest- um að þiggja veitingar á heimili sínu Skólavorðustíg 3a, 2.hæð. Simar 22911 og 19255. 2ja herb. til sölu 2ja herb. nýtizku íbúðar- hæð við Nýbýlaveg. Bílskúr fylgir. Gæti verið laus fljótlega. Rauðarárstigur 3ja herb. ibúð i góðu standi á 1. hæð. 2 svefnherbergi. 4ra herb. ibúðir Við Hverfisgötu, Klepps- veg, og Leirubakka. Sumar ibúðirnar gætu verið lausar fljótlega. Hverfisgata efri hæð og ris í steinhúsi við Hverfisgötu. Ljósheimar skemmtileg um 130 fm ibúðar- hæð i háhýsi við Ljósheima. Góðar svalir. Mikið útsýni. Laus fljótlega. Eskihlið 6 herb. vönduð jarðhæð, 4 svefnherbergi. Einbýlishús Höfum úrval af einbýlishúsum á Selfossi. Hveragerði og Hellis- sandi. Einnig einbýlishús i Blesu- gróf, Reykjavik. Húsin komin i skipulag. Sanngjarnt verð. í smiðum sérlega skemmtileg raðhús með innbyggðum bilskúr í Garðabæ Seljast fullfrágengin að utan. Til afhendingar í ágúst n.k. Sann- gjarnt verð. Teikningar á skrif- stofu vorri. ATH. OPIÐ TIL KL. 10 1 KVÖLD. Jón Arason hdl., málflutnings og fasteignasala, >. simar 22911 og 1 9255. Utsölustaðir liUUU/itAK Hjólbarða Reykjavík: Dalvík: Hjólbarðaþjónusta Heklu h.f.. Bílaverkstæði Dalvíkur, Laugaveg 1 70—172, símar 21245 — sími 61122 28080 Gúmmivinnustofan, Egilsstaðir: Skipholt 35, sími 31055 Véltækni s.f Hjólbarðaverkstæði simi 1455 1 Sigurjóns Gíslasonar, Seyðisfjörður: Laugaveg 171, sími 1 5508 Jón Gunnþórsson, Borgarnes: simi 2305 Guðsteinn Sigurjónsson, Neskaupstaður: Kjartansgötu 12, simi 7395 Bifreiðaþjónustan Ólafsvik: simi 7447 Marís Gilsfjörð Reyðarfjörður: bifreiðastjóri, sími 6283 Bilaverkstæðið Lykill, Húnavatnssýsla: simi 4199 Vélaverkst. Viðir, Hella: Víðidal Sigvarður Haraldsson Sauðárkrókur: Bílaverkstæði Vélsmiðjan Logr, Keflavík: simi 5165 Gúmmiviðgerðin Hofsós: Hafnargötu 89, sími 1713 Bílaverkstæði Páls Magnússonar, Grindavík: sími 6380 Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur, Ólafsfjörður: c/o Hallgrimur Bogason Bilaverkstæðið Múlatindur, Vestmannaeyjar: sími 621 94 Hjólbarðastofa Guðna, Akureyri: v/Strandveg simi 1 4 1 4 ? Hjólbarðaverkstæðið Hafnarfjörður: Glerárgötu 34, simi 22840 Hjólbarðaverkst. Reykjavíkurveg 56, Bilaþjónustan s.f. sími51538 S Tryggvagötu 1 4, sími 21715 Garðabær: Bílaverkstæðið Baugur, Hjólbarðav Nýbarðinn, sími 22875, Akureyri. simi 50606 f GOOD-YEAR HJOLBARÐAR UNDIR BÍLINN DRÁTTAVÉLINA OG VINNUVÉLINA HEKLAhf | Laugavegi 170— 172 — Sfmi 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.