Morgunblaðið - 01.07.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 01.07.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR I. JULI 1976 13 „Ég er þeirrar skoðunar að þegar til lengdar lætur muni enginn hagnast og heimurinn allur hafi misst af einstæðu tækifæri til að koma réttlátu skipulagi á nýtingu hafsins. Þegar til skamms tíma er litið er ljóst að þau ríki, sem hafa langar strandlengjur, hafa hagnazt. En ég skal rökstyðja nánar hvers vegna ég tel það svo verði ekki til langframa. I fyrsta lagi mun sú niður- staða hafréttarráðstefnunnar að úthluta til hálfs þriðja tugar strandríkja víðáttumiklum haf- svæðum og þar með raunveru- lega þjóðnýta þau, leiða til vax- andi ójafnaðar I heiminum. Aukinn ójöfnuður ríkja í milli er ekki í takt við tímann og slíkt verður ekki þolað til lang- frama. I öðru lagi er ljóst að strand- ríkin munu leggja áherzlu á hagnýtingu auðlinda á þessum hafsvæðum, sem koma mun niður á öðrum notum sem höfð eru af hafinu, svo sem vísinda- legum rannsóknum, siglingum, fjarskiptum o.fl.þ.h. Þá er lík- legt að aukin áherzla á nýtingu auðlinda muni valda meiri verðbólgu í heiminum. I þriðja lagi er samkomulagið ekki liklegt til að verða fisk- stofnunum I höfunum til mikill- ar verndar. Það er nauðsynlegt að hafa stjórn á fiskveiðunum og strandrikin geta ekki gert það upp á eigin spýtur. Víðtæk- ari samvinna verður að koma til, en fyrir henni er ekki nægi- lega vel séð f uppkastinu sem fyrir liggur. Ég tel þvi líklegt að við munum í framtíðinni þurfa að horfa upp á frekari ofnýtingu fiskstofna, sem á eft- ir að koma öllum þjóðum í koll.“ VANTAR AFRAM- HALDANDI UMRÆÐUVETTVANG „Hvaða skipulagi hefðuð þér komið á fót hefðuð þér mátt ráða?“ „Ég hefði viljað setja á lagg- irnar alþjóðastofnun sem hefði það hlutverk að fjalla um alla Asgrfmur P. Lúðvfksson, formað- ur félags sjálfstæðisfólks f Hlfða- og Holtahverfi. stærstum hluta i verkahring iðn- aðar og iðju að veita móttöku, atvinnu og afkomu því viðbótar- vinnuafli, sem vaxandi þjóð skil- aði á vinnumarkað á komandi ár- um og áratugum. Hins vegar skorti nokkuð á, að iðnaðurinn væri byggður upp til að mæta þessu hlutverki sínu; að hann sæti t.d. við sama borð og aðrar atvinnugreinar varðandi lánamál, lánakjör eða opinbera sköttun, t.d. um tolla á hráefni, vélar o.þ.h. Þó hefði núverandi ríkisstjórn sýnt á ýmsan hátt vax- andi skilning á iðnaðaruppbygg- ingu. Greinilegt væri að nú rofaði til I skilningi landsfeðra á fram- tíðarhlutverki þessarar atvinnu- greinar i þjóðfélaginu. Ásgrímur sagði að iðnaðurinn þætti þessara mála, allt frá fisk- veiðum, mengunarstöðlum og vísindarannsóknum til námu- vinnslu, siglinga og orkuleitar og alls þar í milli. Ég hef alltaf talið að höfin byggju yfir þeim auðævum, sem nauðsynleg væru til að tryggja framtíðar- velferð mannkynsins. Fram til þessa hefur hafið verið sáralít- ið nýtt, ef undanskildar eru fiskveiðar og siglingar en þýð- ing þess mun fara ört vaxandi. Ég tel nauðsynlegt að þær þjóð- ir sem aðild eiga að hafréttar- ráðstefnunni komi á með sér áframhaldandi samstarfi eftir að henni lýkur, til þess að unnt verði að bæta fyrir þau mistök sem nú er verið að gera. Það er alveg náuðsynlegt að hafa vett- vang fyrir áframhaldandi um ræður um þessi mál, þar sem jafnframt er hægt að taka fyrir deilur sem kunna að rísa. Þegar deilur hafa risið til þessa, eins og t.d. fiskveiðideila Islendinga og Breta og deila Bandaríkj- anna og Perú hefur ætíð vérið fengizt við vandamálið á tví- hliða grundvelli, nema hvað kvartað hefur verið á vettvangi S.Þ. Annan umræðuvettvang hefur alveg skort og það er von mín, að hafréttarráðstefnunni ljúki ekki án þess að gert verði samkomulag um einhvers kon- ar eftirlit með framkvæmd samkomulagsins og lagfæring- ar á því. Það yrðu slæm mistök ef ráðstefnunni lyki i eitt skipti fyrir öll í Caraeas, næst þegar þar verður komið saman, og hver færi til sfns heima." „Þér virðist vera ákaflega vonsvikinn yfir úrslitum mála á hafréttarráðstefnunni. Eruð þér svartsýnn á framtíðina að því er tekur til þessara mála?“ „Þjóðríkin haga sér stundum heimskulega, ekki síður en ein- staklingar, en ég er viss um að mannkynið tekur sifelldum framförum og á eftir að læra af mistökunum. Það eru vafalaust miklir erfiðleikar framundan. Eftir eiga að koma fram á sjónarsviðið nýir möguleikar til að hagnýta hafið. Við erum aðeins að byrja að notfæra okk- ur þessa tvo þriðju hluta jarðar- innar. En við misstum af gull- vægu tækifæri nú.“ risi þegar undir 13590 mannárum í atvinnu í Reykjavík (af 42.590) eða 32.5% Ef á landið allt væri litið bæri iðnaðurinn uppi 36% mannára í atvinnu þjóðarinnar. ORKUGJAFAR OG IÐNAÐUR. Ásgrímur sagði að við núver- andi efnahagsaðstæður væri nauðsyn vaxandi aðhalds í ríkis- fjármálum. I þvf efni væri þó góðs viti, að ríkisstjórnin hefði sett ojrkuframkvæmdir i efsta sæti mögulegrar fjárfestingar f land- inu, bæði vatnsaflsvirkjanir og jarðvarmanýtingu. Orkan væri undirstaða alls iðnaðar og inn- lendir orkugjafar væru einmitt forsendur þess, að iðnaðurinn mætti gegna sínu framtíðarhlut- verki. I því sambandi mætti ekki horfa fram hjá þýðingu hins smærri iðnaðar, fjölþættu hand: verki, sem veitt gæti vaxandi hópi starfsaðstöðu, ef rétt væri að mál- um staðið. Eftir langt vinstristjórnarhlé á orkuframkvæmdum, bæði að þvi er varðaði rafmagn og jarðvarma, væru stjórnvöld nú á ný á réttum vegi i orkuöflun, stórvirkjanir i gangi bæði syðra .og nyrðra og jarðvarmavinnsla meiri en um langt árabil. Ásgrímur vék litilsháttar að svokölluðu meistarakerfi, sem sætt hefði vaxandí ámæli. Hann sagði eðlilegt að þessi mál væru skoðuð ofan í kjölinn, en flas væri sjaldnast til fagnaðar. Hvort- tveggja væri, að það yrði þjóðfé- laginu kostnaðarsamt að færa alla verklega kennslu inn í skólakerf- ið, verkþjálfun yrði naumast jafn fjölþætt og þar yrðu nemar ekki á launum við nám sitt. Hann vitnaði og til reynslu í Svíþjóð af breyt- ingum í þessa átt og tal'di hyggi- Framhald á bls. 2Q Skeifan kynnir Onasse sófasettið. Onasse,sófasettiÓ sem fartf hefur sigurfór um Evrópu. Frábœr hönnun og fagvinna býÖur þá hvíld sem sóst ereftir.Selt gegn póstkröfu. Onasse sófasettió fæst hjá okkur: a&Bn SMIDJUVEGI6 SÍMI 44544^.KJÖRGARÐl StMI 16975 Sumir versla dýrt - aðrir versla hjá okkur. Okkar verð eru ekki tilboð Éfc heldur árangur af + hagstæðum innkaupum. 1 KG. EGG ............. KR. 390 1 KG. TÓMATAR ......... KR. 648 Kínverskar niðúrsuðuvörur IMÝ SENDING: V2 DÓS BLANDAÐIR ÁVEXTIR . KR. 148 V2 DÓS BLANDAÐ GRÆNMETI . KR. 109 ÁVAXTASULTA ....... KR. 128 1 DÓS PERUR ......... KR. 189 TÓMATSÓSA, LIBBYS ... KR. 142 NAUTAHAKK 1. FL. 1 KG........ KR. 650 SÖLTUÐ RÚLLUPYLSA ..... KR. 470 REYKT RÚLLUPYLSA ........ KR. 490 <tVÍ©Ip> Austurstræti 17 starmýri 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.