Morgunblaðið - 01.07.1976, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JULl 1976
29
fclk í
fréttum
Ali
eignast
þak yfir
höfuðið
+ Muhammad Ali stendur (
húsakaupum þessa dagana og
hefur einkum augastað á villu
mikilli ( Holl.vwood, sem áður
var ( eigu gamanleikarans Har-
olds Lloyds, og á að kosta tæp-
ar 600 milljónir króna. t hús-
inu eru 44 herbergi og núver-
andi vinkona Alis, Veronica,
hefur látið svo um mælt, að sér
Ktist hreint ekki svo illa á hús-
ið, einkum þegar þess er gætt,
að brátt mun fjölga f fjölskvld-
unni.
Þessi landareign er óska-
draumur sérhvers manns. Þar
er sundlaug, tennisvöllur, golf-
völlur o.s.frv. Allt kostar þetta
auðvitað peninga en Ali lætur
sér ekki allt fyrir brjósti
brenna ( þeim efnum. Talið er
að rekstur hússins kosti hálfa
fimmtu milljón á mánuði og
þar við bætast skattarnir.
Ali hefur mörg járn ( eldin-
um og um þessar mundir er
hann að leika ( kvikmynd sem
verið er að gera um hnefaleika-
kappann Cassius Clay og fer
AIi þar með aðalhlutverkið. I
auglýsingom kvikmyndafyrir-
tækisins Columbia, sem mynd-
ina gerir, er Ali ávallt nefndur
Múhameð mikli og þv( þótti
honum við hæfi að láta mynda
sig við hliðina á birninum
„Grizzly", sem nú gerir mikla
lukku v(ða um lönd og þykir
gefa Ktið eftir hákarlinum (
þeirri frægu mynd „Ókind-
inni“.
Muhammad Ali.
t UU3H fiuyuúiy, íyriv. í'ilioía-
leikakappa og eiginmanni söng-
konunnar Anitu Lindblom, voru
dæmdar á dögunum 30 milljónir
kr„ sem þau hjónin „geymdu" I
banka I Sviss áður en þau skildu.
Bosse hélt upp á úrskurð dómar-
ans með geysimikilli kampavlns-
veizlu.
+ Þó að við tslendingar séum iðnir við að tileinka okkur þær
(þróttagreinar sem eiga hvað mestum vinsældum að fagna
erlendis virðist þó ein hafa farið alveg fyrir ofah garð og neðan
hjá okkur en það er fjaðurstökk eða trambolin, sem nú fer eins
og logi yfir akur v(ða um lönd. Meðfylgjandi mynd var tekin af
einum kunnáttumanni ( þessari íþróttagrein, Paul London, sem
árið 1973 bar sigur úr býtum ( mikilli keppni trambolinmeistara.
Hér er hann (loftinu ásamt félaga sfnum og skulum við vona að
fjaðrirnar séu á sfnum stað þó að ekki komi þær fram á
myndinni.
Okonungleg
frammistaða
+ Reiðmennska er mikil
ástrfða hjá brezka kóngafólk-
inu og keppist þar hver um
annan þveran við að sýna sem
mesta leikni í þessari göfugu
fþrótt. Fyrir nokkru fóru fram
kappreiðar ( Wadebridge ( Eng-
landi og þótti ekki illa til fund-
ið að Mark Phillips, eiginmað-
ur önnu Prinsessu, yrði meðal
þátttakenda og voru miklar
vonir bundnar við frammistöðu
hans. Reiðskjótarnir voru þó
ekki arabfskir gæðingar þó að
ættaðir væru af sömu slóðum
heldur úfaldar. Leikar fóru
þannig að Mark rak lestina og
var meðfylgjandi mynd tekin
þegar hann lullaði ( mark á
henni Söpdru sinni. Ekki er
ótrúlegt að Mark hafi orðið
hugsað með hryllingi til vænt-
anlegra Ólympfuleika f Montr-
eal en það er þó huggun harmi
gegn að þar verða aðrir og betri
færleikar á ferð.
Veiðileyfi í Eyrarvatni
eru komin
Hótel Akranes,
Veitingaskálinn Ferstiklu
við Hvalfjarðarströnd
Garðavinna
Getum bætt við okkur skrúð-
garða og lóðavinnu fyrir ein-
staklinga og stofnanir í júlí
og ágúst. Upplýsingar í síma
86340 kl 13.00 — 15.00
daglega. Látið fagmenn
vinna verkið
skrúðgarðadeild.