Morgunblaðið - 02.07.1976, Side 3

Morgunblaðið - 02.07.1976, Side 3
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1976 3 Flugkapparnir, Holberg Másson og Ómar Ragnarsson leggja á ráSin fyrir flugtak . . . Hér ar belgurinn farinn aS renna af staS eftir túninu en viSstaddir reyna aS hefta för hans . . . . . . en allt kom fyrir ekki og belgurinn rann á gaddavlrsgirSingu og áfram yfir vegínn . . . LITLU munaði aS illa færi I flug taki fyrstu opinberu loftbegls- ferðarinnar hér á landi í gær. Fór belgurinn á loft á litlu túni á Áiftanesi. en áður hafði hann runnið á gadda vlrsgirðingu og velkzt um I flæðarmálinu dágóða stund með þeim afleiðingum að annar f lugkappanna, Ómar Ragnarsson fréttamaður, féll út- byrðis. Flugstjórinn og eigandi belgsins, Holberg Másson, tókst þó að koma honum á loft eftir harða baráttu og sveif hann siðan einn slns liðs sem leið lá yfir Reykjavlk og upp á Skaga. Þetta mun vera lyrsta opinbera loftbelgsflug hér á landi, en sl. sunnudag fór Holberg i reynsluflug fyrir austan fjall og flaug hann þá belgnum 25 km á tveimur klukku- stundum. Belgurinn er enskur, af gerðinni „Thunder Hotter Balloon" með skrásetningarstafi TF-HOT Holberg hefur atvinnuflugmanns-og kennararéttindi á loftbelg frá Banda- rikjunum og er það einnig viður- kennt af isl loftferðaeftirlitinu Rétt fyrir flugtak kom Ómar Hér hangir Ómar utan i körfunni en belgurinn var þá að skella aftur I jörðina og skömmu slðar missti Ómar takið . . . Ragnarsson fréttamaður, en hann hafði ákveðið að fara með i þessa fyrstu loftbelgsferð Veifaði Ómar „hrakfarapokanum" sinum sem Far vel Frans . . . Omar veifar öðr- um skónum sem hann missti af sér við átökin. hafði að geyma föðurlandsbrækur, lopapeysu og annan búnað sem nauðsynlegur þykir ef menn vilja komast lifs af úr svaðilförum Gasi var siðan dælt i belginn með þar til gerðum brennara og voru blaða- menn fengnir til að halda i körfuna á meðan. Ekki tókst þó betur til en svo. að belgurinn tók að renna með miklum hraða eftir túninu og á gaddavirsgirðingu. þaðan yfir veg- inn og niður i fjöru Á þessari leið héngu báðir flugkapparnir á belgn- um, en I flæðarmálinu missti Ómar takið, en Holberg hékk á körfunni út I sjó Héldu menn að þar yrðu endalok flugferðannnar, en meðein- hverjum hætti tókst Holberg að dæla nægu gasi i belginn og hægt og sígandi reif hann sig upp úr sjónum og sást siðast til hans þar sem hann sveif yfir Reykjavik á leið upp á Skaga. BANKASTRÆ.TI -14275 LAUGAVEGUR •S*-21599 Troðfullar búðir af nýjum gallabuxum <Ertu buxnalous ? Kjaradeila opin- berra starfsmanna: Úrskurður um miðjan mánuðinn ÚRSKURÐAR frá Kjaradómi og Kjaranefnd um málefni opin- berra starfsmanna, sem eiga í kjaradeilum við ríkið, verður varla að vænta fyrr en um miðjan þennan mánuð að sögn Guðmund- ar Skaftasonar. Samkvæmt lögum áttu úrskurðir þessir að liggja fyrir um síðustu mánaðamót, en vegna þess hve seint og illa mál hinna einstöku félaga bárust til kjaranefndar og kjaradóms verð- ur varla hægt að afgreiða þau fyrr en um miðjan mánuðinn, sagði Guðmundur. Fyrir Kjaranefnd liggja nú mál 14 aðildarfélaga starfsmanna ríkis og bæja. Af þeim má nefna Félag flugmálastarfsmanna, Félag starfsfólks stjórnarráðsins, Hjúkrunarfélag íslands, Starfs- mannáfélag hljóðvarps, Starfs- mannafélag sjónvarps, Landssam- band lögreglumanna, Tollvarða- félag íslands, Félag ísl. síma- manna, Ljósmæðrafélag Íslands og Samband ísl. barnakennara. Fyrir kjaradómi liggja mál 12 aðildarfélaga í Bandalagi háskóla- manna, m.a. Félag háskólakenn- ara, Arkitektafélag islands, Verk- fræðingafélag Islands, Tækni- fræðingafélag íslands, Sál- fræðingafélag íslands, Félag isl. náttúrufræðinga, Félag ísl. sjúkraþjálfara og Félag bóka- safnsfræðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.