Morgunblaðið - 02.07.1976, Síða 21

Morgunblaðið - 02.07.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULÍ 1976 21 Tjaldsamkomur TJALDSAMKOMUR Ffladelfíu- safnaðarins f Reykjavík verða að þessu sinni 3.—11. júlí. Tjaldið verður reist á lóð Melaskólans. Þar sem hér er um nýtt tjald að ræða, þá verður það vfgt laugar- daginn 3. júlf á samkomu sem hefst kl. 20.30. Tjaldið verður upphitað. Þetta nýja tjald er að stærð 15x25 metrar og verða látin í það um 500 sæti til að byrja með, sem auðvelt ætti að fjölga kalli aðsókn á það. í tilefni tjaldvígslunnar koma 7 prédikarar frá Svíþjóð og eru kunnastir þeirra Georg Johans- son og Gösta Lindahl. Samkomur halda svo áfram vik- una 4.—11. júlí hvert kvöld og hefjast þær klukkan 20.30. Kór Fíladelffukirkjunnar mun syngja undir stjórn Arna Arin- bjarnarsonar. Einsöngvari Svavar Guðmundsson. Allir eru velkomnir á samkom- ur þessar. (Fréttatilkynning frá Ffladelffu). Sendiherra Líbýu rekinn frá Kairó Kairó 30. júnl NTB. Reuter. MILOD EL Sedik, sendiherra Lfbýu f Egyptalandi, var handtek- inn f gærkvöldi og f morgun var hann kvaddur f egypzka utanrfk- isráðuneytið eftir að hann var lát- inn laus. Var honum þá skipað að hverfa tafarlaust úr landi. Hann er sakaður um að hafa stundað áróðursiðju, sem miðaði að því að grafa undan Anwar Sadat Egypta- landsforseta og stjórn hans, að þvf er egypzk blöð skýra frá í dag. Segja þau að sendiherrann hafi verið handtekinn hvar hann var að dreifa bæklingum meðal al- mennings, þar sem hvatt var til byltingar gagn rfkjandi stjórn. Sérfræðingar telja liklegt að Líbýumenn muni grípa til ein- hvers konar aðgerða sem svar við þessu og kunni ef til vill svo að fara að stjórnmálasamband ríkj- anna verði rofið. Mjög hefur verið stirð sambúð Libýu og Egyptalands upp á síð- kastið og í apríl sl. ásakaði egypzka utanríkisráðuneytið sendiherrann um að hafa skotið úr vélbyssu úr sendiráðsbygging- unni en þá höfðu líbýskir stúdent- ar búið um sig i byggingunni. w Táningaskórnir 4 vinsælu frá Sólveigu Teg. 2. Verð Kr. 4990 — Fáanlegir í svörtu ng brúnu. k Póstsendum Teg. 3. Verð Kr. 4990 — Fáanlegir í svörtu jg brúnu. Póstsendum. — Endur- nýjunarþörf Framhald af bls. 14 legasti vandinn sem nú steðjaði að skipasmíða- og viðgerðariðnað- inum í landinu væri vanmáttur opinberra lánasjóða til að standa undir nauðsynlegri fjármögnun til framkvæmda. Þetta sé eðlilega afleiðing af stefnuleysi við endur- nýjun fiskiskipaflotans, sem birt- ist í gifurlegum sveiflum í inn- flutningi fiskiskipa á síðustu ár- um. Þegar skip eru flutt til landsins tekur Fiskveiðasjóður við stutt- um lánum, sem á þeim hvíla og endurlánar þau til 18 ára. Á þenn- an hátt hefur sjóðurinn orðið að taka á sig verulegar fjárskuld- bindingar vegna hins mikla inn- flutnings á skuttogurum að und- anförnu. Allt frá síðastliðnu hausti hafi greiðslur fram- kvæmdalána til innlendra skipa- smiðastöðva verið í miklu ólagi og lítið verið gert hingað til, sem dugað hafi, þrátt fyrir itrekaðar aðvaranir félagsins til stjórnvalda um hvaða afleiðingar þetta myndi hafa. Nú séu þær afleiðingar óð- um að koma í ljós og bitni á iðngreininni með vaxandi þunga. Krafa F.D.S. er sú að nægilegt fé verði útvegað til að bæta úr þessu ófremdarástandi og að í framtið- inni bitni fjárhagserfiðleikar sjóðanna ekki á innlendu smið- inni, heldur verði hún frekar lát- in sitja fyrir því takmarkaða fé sem á hverjum tíma er til ráðstöf- unar. Á fundinum voru einnig rædd margvísleg hagsmuna- og áhuga- mál skipasmiðaiðnaðarins. í stjórn Félags dráttabrauta og skipasmiðja voru kjörnir Jón Sveinsson formaður, Gunnar Ragnars, Þorgeir Jósepsson, Marselíus Bernharðsson og Þórarinn Sveinsson. r A þriðja hundr- að V-íslendingar A ÞRIÐJA hundrað Vestur- Islendingar komu hingað til lands s.l. miðvikudag og dvelja hér á landi til 26. júlf. Verða flestir þeirra hér i borginni og nágrenni fram að helgi, en sfð- an munu þeir dreifast um iandið til æskuslóða sinna eða forfeðra sinna. Þjóðræknisfélagið hér hefur opnað skrifstofu í Hljómskál- anum þar sem gefnar eru allar upplýsingar um gestina að vestan, dvalarstað þeirra hér, sfmanúmer o.fl. Sfmi skrifstof- unnar er 15035. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AKiLYSINf. A- SIMINN ER: 22480 Fylgist með verðlagi Verðsýnishorn úr HAGKAUP \ HAGKAUP VERSLUN A VERSLUN B Bakaðar baunir kínverskar 227 g 80.— Ora grænar baunir 1 /2 dós 111.— Búlgörsk jarðarberjasulta 500 g 236.— Sveppir kínverskir 284 g 165.— Smjörlíki 1 stk. 147.— Kaffi 250 g 215.— Appelsínur 2 kg 270.— Fiesta eldhúsrúllur 2 stk. í pakka 170.— Petal salernispappír 2 stk. í pakka 92.— Opið til 10 föstudaga, lokað á laugardögum Ef þér verslið annars staðar, þá hafið þér hér eyðublað til að gera verðsamanburð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.