Morgunblaðið - 02.07.1976, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.07.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976 27 um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Björn Guðntundsson. Fyrir nokkrum árum spurði einhver Gunnar Hannesson: „Hverja af myndum þinum telur þú bezta?" Gunnar svaraði íhug- ull: „Eg skal segja þér, að ég er enn ekki búinn að taka hana.“ Svo brosti hann sínu góðlátlega brosi, en í svipnum örlaði fyrir þessari skemmtilegu glettni, sem var svo rik í honum — og kom öllum nærstöddum til að brosa líka. Þetta svar var dæmigert fyr- ir Gunnar og viðhorf hans til þess viðfangsefnis, sem tók hug hans allan seinasta áratug ævi hans. Ekki að hann væri óánægður með myndir sínar, heldur vildi hann alltaf gera betur — og góður ár- angur olli því ekki að hann léti þar við sitja, heldur hið gagn- stæða. Þannig réðst hann í hlutina hverju nafni sem þeir nefndust: af kappi, endalausu þreki og ið- andi af lífsfjöri, sem var smit- andi. En hann böðlaðist ekki áfram meira af kappi én forsjá eins og títt er um mikla átaka- menn, því Gunnar var íhugull, hafði næman og vandlátan smekk og var fíngerður. Hann var mikill fagurkeri og náttúrubarn, það var engin tilviljun að garðurinn hans víð Miklubraut þótti bera af öðr- um í Reykjavík um árabil. Rósir voru hans yndi. Hann flutti þær inn frá öllum heimshornum og nostraði við þær í garðinum. Síðar tók hann myndir af þeim eins og börnunum sinum — í alls konar litbrigðum, en fallegastar voru þær í regninu, þegar droparnir sátu á purpurablöðunum eins og kvikasilfur. Þá sagði hann að rós- irnar sinar grétu. Ég kynntist Gunnari litillega fyrir rúmum tveimur áratugum, þegar hann var enn við afgreiðslu hjá Marteini á Laugaveginum. Það var ekki fyrr en hann af slysni eignaðist ljósmyndavél og fór að fikta við hana — fyrir einum 12 árum, þá kominn undir fimmtugt, að náin kynni tókust. Og fáir hafa orðið mér kærari samverkamenn og félagar. Gunnar var ekki búinn að taka á margar filmur, þegar við birtum myndir eftir hann í Iceland Review. Það voru fyrstu myndirn- ar hans, sem prentaðar voru — og æ siðan hélt hann sérstakri tryggð við þá útgáfu. Hann hafði ekki minni áhuga á þvi en útgefendur sjálfir að vel tækist og ósérhlifni nans og dugnaður var með fá- dæmum. Marga kvöldstundina sat ég í næði með honum yfir nýjustu myndunum — og að sjá hvernig honum tókst siðari árin að fanga hin margbreytilegu Iitbrigði ís- lenzkrar náttúru var oft hrein upplifun. Þegar Gunnar fór að verða þekktur fyrir myndir sínar var hann oft titlaður ljósmyndari. Hann hafnaði þessum titli jafnan og sagði: „Ég er bara náttúru- skoðari með ljósmyndavél, ég er amatör — og aðeins þessvegna hef ég ánægju af að ljósmynda. Ef ég væri fagmaður gæti ég senni- lega ekki tekið neina nothæfa rnynd." Hann hafði unun af þessu viðfangsefni, hæfileikar hans og listrænt skyn nutu sín hér. Þetta var honum ákveðin nautn, þessi ár voru honum ævintýri. Viðhorf atvinnumannsins var honum víðs fjarri, enda hefur kostnaðurinn sjálfsagt verið langtum meiri en tekjurnar. Margir góðir ljósmyndarar gætu verið ánægðir þótt þeir hefðu ekki náð nema hluta af þeim frábæru myndum, sem liggja eftir Gunnar Hannesson. Það var ekki bara ódrepandi dugnaður að hlaupa upp um fjöll og firnindi, eða skyn hans og næmt auga fyrir því myndræna, eða áhugi hans á að ná þessu litla sem stundum skilur i milli góðs verkmanns og listamanns. Það var allt þetta í senn, sem olli þvi að maður á lslandi, sem byrjaði að handleika myndavél fimmtug- ur að aldri, var orðinn þekktur viða um lönd sextugur — fyrir ljósmyndir, sem margar standast fyllilega samanburð við það, sem færustu ljósmyndarar milljóna- þjóðanna láta frá sér fara. Eg átti þátt í þvi ásamt öðrum að velja með Gunnari myndir og setja saman tvær bækur, sem Ice- land Review gaf út með myndum hans eingöngu. Önnur var um „borgina hans“, Reykjavik — hin um Vatnajökul, en þangað fór Gunnar sex sumur og taldi jökul- inn jafnan mesta ævintýri á Is- landi. Við höfum allir þrír (Gisli B. Björnsson var sá þriðji) óskap- lega mikla ánægju af þessu sam- starfi. Stundum gleymdum við stað og stund, þegar Gunnar var kominn með okkur hina í ferðalag inn i myndirnar á veggnum, full- ur af lífskrafti og gáska — og óþrjótandi í líflegri frásögn. Þá kom svo oft fram hve mikið hann lagði stundum á sig til þess að ná á filmuna „andartakinu eilífa“, þessari sérkennilegu birtu, gló- andi eða seiðandi, sem stundum bregður fyrir — en hverfur og kemur ekki aftur — nema ein- hvern tíma, kannski. „Svona mynd nær maður bara einu sinni á ævinni, ég var heppinn að vera þarna," sagði hann stundum. Fæstir ná „andartakinu eilífa" þótt þeir séu á staðnum. Þeim, sem þekktu Gunnar Hannesson vel og fylgdust með honum, kom andlát hans ekki á óvart. Þótt þjáður væri dugði hon- um meðfædd glaðværð og jákvætt hugarfar til hinztu stundar. Hann tók aldrei sína beztu mynd af því að hann brast aldrei kjark til að horfa hærra. Við söknum góðs vinar og drengskaparmanns, sem skilur eftir Ijúfa minningu. Ég sendi Margréti konu hans, börn- um og fjölskyldum þeirra inni- lega samúðarkveðju. Haraldur J. Hamar. Lionsklúbburinn Freyr er ein- um félaga fátækari. Gunnar Hannesson var einn af stofnend- um hans. Innan Lionsklúbbsins Freys nutu sín til hins ýtrasta þeir hæfi- leikar, sem Gunnari heitnum höfðu verið lánaðir i svo rikum mæli, en hann þroskað og eflt með sjaldgæfri eljusemi. Þar komu einnig að gagni allir beztu þættir skapgerðar hans. Gagnvart þeim, sem ekki þekktu Gunnar, er tilgangslaust að reyna að útskýra í stuttu máli, hvað í þessu felst. Hinir fjölmörgu, sem þekktu hann gjörla, þurfa engra vitna við. Það eitt er skylt að fram komi, að við Lionsfélagarnir, sem nú kveðjum hann með söknuði, erum þakklátir að eiga í hugum okkar minninguna um vammlaus- an félaga, og hana fær ekkert frá okkur tekið. Vist söknum við fé- lagarnir hans, en gagnvart þeim sem nær honum stóðu en við og hafa þess vegna margfalt meira misst, en bera samt eigi þær til- finningar sínar á torg, væri lítil hæverska af okkur að hafa mörg orð þar um. Við erum þakklátir fyrir að hafa átt hann að félaga og leið- sögumanni, notið hins alkunna, græskulausa húmors, sem hann var gæddur, og fræðzt af honum um fegurð islenzks landslags. Það er okkur að kenna en ekki hon- um, ef við erum ekki nú að leiðar- Iokum betur í stakk búnir en áður að kunna að meta töfra islenzkrar náttúru. Við erum lika, undir niðri, svolitið stoltir af að geta með sanni sagt, að honum þótti vænt um okkur og klúbbinn okk- ar. Við vonum að sú tryggð og virðing, sem hann sýndi Lions- klúbbnum Frey með því að koma á hvern einasta fund sem haldinn var í átta ár, sé til merkis um það. Svo sem alkunnugt er var Gunnar sérfræðingur um óbyggð- ir jafnt sem byggðir þessa lands. Fáir, — ef nokkrir, — núlifandi manna hafa afrekað meira við að útbreiða þekkingu á dásemdum þess um lönd og álfur. Hann var einnig sérfróður um rósarækt og sýndi það i verki, þvi Gunnar náði ávallt fullum tökum á þvi, sem hann tók sér fyrir hendur. Lík- lega lýsir það Gunnari betur en unnt væri að gera i löngu máli, hviliku ástfóstri hann tók við landið sitt og rósirnar sínar. Við biðjum Guð að blessa ást- vinum Gunnars jlannessonar minninguna um góð'an dreng. F.h. Lionsklúbbsins Freys Gunnar Vagnsson. Madurinn. af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi: hann rennur upp og fölnar, eins og blóm. flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám. Og vfirslíkum heldur þú opnum augum þfnum og dregur mig fyrir dóm hjá þér. Jobsbók. 14:1-2 ímynd Gunnars Hannessonar hjá mér í dag er í líkingu einnar fyrstu ljósmyndar sem ég sá eftir hann, fallegt blóm sem eins og óx upp úr grjóti, upplýst birtu sólar i dökku umhverfi einhverrar gj-ár Þingvalla. Þannig er Gunnar islenzkri ljós- myndun I dag. Hann kom með þetta nýja og ferska inn i ljós- myndun hérlendis sem var að mestu steinrunnin. Hann mætti oft litlum skilningi en opnaði að lokum augu fólksins fyrir nýjum og öðruvisi sjónarhornum til að skoða landið okkar. Hann mætti stundum mótbárum og ég man hann stundum sáran út í skilning fólks á þessu til að byrja með. Fólkið vildi ekki viðurkenna það skáldaleyfi sem Gunnar tók sér í islenzkri landslagsljósmyndun, það sagði jafnvel að það mætti ekki mynda svona á íslandi, lík- lega af þeirri ástæðu einni að það hafði ekki verið gert áður. En líkt og blómið hér að framan festi rót í grýttum jarðvegi, þá vann stefna Gunnars í þessum málum og flest- ir i dag biða með óþreyju eftir nýju blaði, bók eða almanaki þar sem von er á myndum Gunnars. En Gunnar vinur minn er allur, hann á ekki eftir að heyrast langt að fyrir háværa rödd og tilheyr- andi hressleika. Hann hringdi til mín fyrir stuttu hress þó sjúkur væri, spjallaði um ástand og við- horf í máli því sem honum var hjartfólgnast, ljósmynduninni. Hann kveikti í mér á sínum tíma og ég er'honum þakklátur. Hann kveikti í fieirum og án hans aðstoðar og hvatningar hefði félagsskapurinn „LJÓS“ líklega aldrei orðið til. Því þó við værum að vissu leyti að troða okkur inn á hans svið, þá ýtti hann undir áhuga okkar, hvatti á allan hátt og var gjarna með nokkrar mynd- ir i innanávasanum til að sýna okkur kunningjunum. Þessar myndir voru alltaf nokkuð ný listaverk sem hann hafði uppskor- ið úr íslenzkri náttúru. Síðan út- skýrði hann myndirnar á sinn sér- staka hátt, leitaði álits og skoð- ana, sem voru kannski helzt til litlar þvi maður gerði litið annað en gapa yfir fegurðinni, sem hann fékk á filmuna með næmninni og sivakandi auga fyrir myndefni. Þannig var hann fullur ódrepandi áhuga sem ásamt feikna kjarki og ótrúlegum krafti plægði nýjan ak- ur ljósmyndunar á Islandi, falleg- asta landi í heimi, að hans sögn. Það er byrjað að sá í þennan akur, ný viðhorf til efnisins hafa skapast, fólk sér landið öðrum augum, sem hlýtur að leiða til fegrunar umhverfisins og viðhald þeirrar fegurðar sem fyrir er. Þarna liggja spor til fegurra mannlífs mörkuð af Gunnari Hannessyni. Mér er skylt að þakka fyrir mig. Þú sáðir i mig frækorni þessa alls, urtin er komin upp en hún verður aldrei jafn stór og fögur og skrautblóm ljósmyndunarinnar, sem þú hlúðir að. Slikt er forrétt- indi allra brauðryðjenda. Hafðu þökk. Konu hans og afkomendum öll- um óska ég styrks og blessunar Guðs við mikinn missi. Pjetur Þ. Maack. Mér kom á óvart sú fregn, að vinur minn Gunnar Hannesson væri látinn. Að vísu vissi ég, að Gunnar gekk ekki heill til skógar, en þegar ég hitti hann siðast, ekki fyrir alllöngu, var kjarkurinn og framkvæmdaviljinn svo mikill, að ég bjóst allt eins við að honum mundi endast aldur enn um sinn. Leiðir okkar Gunnars lágu fyrst saman fyrir um fimmtán árum vegna sameiginlegs áhuga á öræfaferðum. Gunnar var þá nýbúinn að fá sér einfalda ljós- myndavél og sízt grunaði mig það, að þetta tómstundagaman hans ætti eftir að mótast og þroskast þannig að nú lætur hann eftir sig eitt fallegasta litmyndasafn af íslenzkum fjalla- og jöklamyndum sem til er. Gúnnar sýndi þessar myndir sínar allvíða, bæði hér- lendis og erlendis, öðrum til óblandinnar ánægju. Mér verður alltaf minnisstæður sá feikna- dugnaður og þrautseigja, sem Gunnar lagði á sig til að ná sem beztum árangri, og hann gat beðið klukkustundum saman eftir þeim aðstæðum litar og ljóss, sem þurfti til að ná fallegri mynd. En það þarf meir en dugnað til að verða góður ljósmyndari. Þýð- ingarmeiri er sá listræni næm- leiki fyrir „mótífi" sem Gunnar var gæddur og kom fram í svo mörgu, sem hann tók sér fyrir hendur, svo sem rósagarðinum við hús hans, sem var árum saman augnayndi Reykvíkinga. Gunnar var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Freys og var hann strax með áhugasömustu félög- um, enda maðurinn félagslyndur og átti auðvelt með að blanda geði við aðra. I Frey var hann kannski bezt þekktur fyrir gamansemi og hnitni, og við félagar hans eigum margra ánægjulegra samveru- stunda að minnast. Eg vil að lokum færa eiginkonu Gunnars, Margréti Kristjánsdótt- ur, og börnum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Hinrik Thorarensen. Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Vfkingi: Gunnar Hannesson fékk snemma áhuga fyrir fþróttum. Eins og títt er um unga menn var það fyrst knattspyrnan er heillaði hugann, síðar kom skíðaíþróttin og hinar þekktu ferðir hans með myndavélina um jökla og óbyggð- ir okkar fagra lands. Ahugi hans á knattspyrnu entist til leiðarloka og fáir eru þeir Islendingar er fylgzt hafa jafnvel sem hann með liðum og mönnum í enskri fyrstu deildar knattspyrnu. Gunnar gekk ungur í Víking og lék þar í öllum flokkum drengja og ungra manna við góðan orðstir, þótti fljótur og kappsamur og gaf hvergi sinn hlut er á hólminn var komið. Þegar hann hafði aldur og þroska hóf hann einnig störf að stjórnar og félagsmálum fyrir Víking og sannarlega munaði þar einnig um hann, er hann lagði þar huga og hönd að verki, því Gunn- ar var hinn mesta hamhleypa og áhugamaður í leik og starfi. Hann var eldhugi sem dreif aðra með sér og vildi að áhugamálin fengju skjótan og góðan framgang. Það var því lán félagsins er hann tók við formennsku þess er það var í nokkrum öldudal árið 1938, en ástæðan tll þeirrar lægðar var sú að margir eldri félagar höfðu þá of snögglega horfið frá störfum fyrir félagið. Tókst , Gunnari ásamt öðrum góðum félögum að hefja Víking á ný til góðra starfa og afreka. Gunnar var einn aðalhvatamað- ur að stofnun skíðadeildar innan félagsins og var hann formaður þeirrar nefndar er sá um bygg- ingu fyrri skíðaskála Víkings i Sleggjubeinsskarði við Kolviðar- hól. Var þetta gifurlegt átak á þeim tima og tókst aðeins vegna dugnaðar og áhuga Gunnars og nokkurra góðra samherja, er hann hreif með sér i bjartsýni og trú á málefni, er væri þess sann- arlega virði að fórna þvi tíma og kröftum. Áhugi Gunnars fyrir málefnum Víkings var jafnan mikill og seinni árin starfaði hann í fulltrúaráði félagsins. Ekki skal því gleymt, að Gunnar var einstaklega vinsæll meðal vina og félaga, hinn mesti gleði- gjafi, öllum léttari i lund og kát- ari, er það átti við og græskulaust gaman hans og orðheppni á góðri stund vakti oft slíka kæti og hlátur að minnisstætt mun lengi góðum félögum, er sakna nú vinar i stað. Nú er sem tóm og tregi fylli hugi okkar, er þessi ágæti dreng- ur og forystumaður félags okkar er kvaddur, en þökk sé Gunnari Hannessyni fyrir samferðina á þessari lífsins göngu. Um hann eigum við aðeins góðar minning- ar. Hans nánustu ástvinum send- um við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Minning: Jóhannes Ólafsson Þrúðvangi Seltjarnarnesi Fæddur 17. maí 1902 Dáinn 25. júnf 1976 Kveðja frá Myndlistar- klúbb Seltjarnarness. Okkur setti hljóð, er við heyrð- um um hið snögga andlát aldurs- forseta okkar í Myndlistarklúbbn- um. Það var svo stutt siðan við tókum niður sýningu okkar, og vorum einmitt að hvetja Jóhann- es heitinn til að efna til einkasýn- ingar. Svo fjarri var okkur það, að að leiðarlokum væri komið. Jóhannes Ólafsson var einn af stofnendum Myndlistarklúbbs Seltjarnarness og átti sæti í stjórn hans frá upphafi. Hann unni mjög myndlist og kunni vel til verka, enda hafði myndlistin verið hugðarefni hans gegnum árin. Málverk hans voru einlæg og gætt miklum persónulegum blæ. Snyrtimenni var hann eins og myndir hans bera með sér og er ómetanlegt að hafa slíkan félaga, þvi alltaf hefur slíkt góð áhrif á aðra. Það var félögunum í klúbbnum aðdáunarefni og hvatning að 74 ára gamall maður skyldi koma fótgangandi og berj- ast við vetrarstorma og illviðri, með verkefni sín undir hand- leggnum til að mæta í vikulegar kennslustundir. Einnig var Jóhannes alltaf með þau skipti er klúbbfélagar fóru út fyrir bæinn til að mála. Gaf hann hinum ekk- ert eftir, þótt landið væri erfitt yfirferðar. Er Jóhannes fór til út- landa varði hann miklum tima til að skoða listasöfn og var hann með afbrigðum fróður i þeim efn- um, eins og um myndlist yfirleitt. Hann hafði yndi af að miðla okk- ur af þeim fróðleik. Ekki var Jó- hannes síður unnandi sigildrar tónlistar, sem oft fylgist að með listhneigða menn. Við klúbbfélagar munuin > Jóhannesar Ólafssonar, o1 aldursforseta, góða félaga sterka persónuleika. Það ve< sannarlega sjónarsviptir aó hann ekki lengur meðal okkai Við vottum eiginkonu hans vandamönnum öllum dýpstu hl tekningu víð fráfall hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.