Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 5
V2Era F20K í Viltu fjör í fríinu. Allt ungt fólk á þess kost að gerast meðiimir í KJúbb 32, sem er ferða- og skemmtiklúbbur ungs fólks. Starfar í samvinnu við hliðstæðar stofnanir erlendis. Meðlimir fá af- slátt í verslunum heima og erlendis, geta tekið þátt í dansleikjum og hljómleikum fyrir meðlimi á vetuma og fengið 10 þús. króna afslátt í sól- arlandaferðum þar sem dvalið er á hótelum þar sem eingöngu ungt fólk býr, eins og Hotel 33 á Mallorca. Vinsælar íslenskar hljómsveitir eins og Cabarett og Paradís skemmta á Mallorca. Sér- stakar hópferðir 30. maí, 13. júní, 15 og 19. sept. Einnig hægt að komast með í öllum öðrum Sunnuflugum. Aðeins fyrir þá sem vilja fjör í fríinu. Þér getið gerst meðlimur með því að koma, hringja eða skrifa Klúbb 32, c|o Ferðaskrifstofunni Sunnu Lækjargötu 2, Reykjavík. FERÐAKLUBBUR JJNGA FÓLKSINS MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1976 Ur sænskum dómum um bók Einars Braga ekki að byrgja úti sjónvarps- geislann. Þetta veit Einar Bragi. Lesið til dæmis Ættjarðarljóð... Þar felst mikið að baki ljóðlinum, sem óbrotnar virðast við fyrstu sýn.. . Ég má ekki gleyma að geta þess, að Pilar av ljus er ríkulega myndskreytt bók... 3^*0 er náinn vinur Einars BrBéja í listinni, Hörður Agústs- son, sdfn»H?ert hefur hinar mörgu óSv||ætu myndir.“ „Örvar að'vestan“ nefnist rit- dómur eftir Gunars Irbe í Göteborgs Handels- och Sjöfartstidníng. Hann segir: „Pilar av ljus heitir lítið ljóðaval eftir íslendinginn Einar Braga.. . Það er bók, sem ég vildi óska að allir ljóðaunn endur öfluðu sér, meðan hana er enn að finna innan um allt hitt á borðum bókabúðanna: ég var búinn að hafa af henni mikla gleði, áður en þetta var ritað, og á eftir að gripa til hennar aftur við og við... Hér gefst ágætt færi á innsýn í heim Islenzkrar ljóðlistar, þegar hún er sem bezt og mest einkennandi, að minnsta kosti fyrir þau nýmæiaskáld af kyn- slóð Einars Braga, sem brutust undan fargi steinrunninnar hefðar, án þess að leggja alla ljóðaerfðagripi að jöfnu og kasta þeim I glatkistuna." Rit- dómarinn vitnar i ljóðið Dags- komu, sem fjallar um lýðveldis- tökuna, þegar „nóttin dó í jökulinn" og ungar hendur komu „fram úr skýjum, seild- ust inn i brjóstið og drógu lokur frá hurðum, svo dagsbirtan fengi rekið myrkrið á flótta". Siðan heldur hann áfram: „Mörgum islenzkum mennta- manni hefur þótt sem síðari stundir þess morguns væru ekki eins bjartar: erlend herseta og ógnun frá erlendri gervimenningu hafa gert þá æfa, og Einar Bragi er meðal þeirra sem mótmælt hafa fyllst- um rómi — einnig í ljóðum sinum. En hann hefur kunnað með að fara og aldrei gert ljóð- list sína að slagorðaskvaldri. Um hvað sem hann yrkir, vakir listrænn heiðarleiki hans ævin- lega yfir, að hluttakan leiði ekki til bandalags við hina glamurkenndu yfirborðsmenn- ingu. Það er til slíkrar staðfestu sem lifandi menning sækir mátt sinn, á slíkum grunni byggist andspyrnan gegn því sem ógnar með svipleysi og út- rýmingu." I Göteborgs-Posten skrifar Eric S. Alexandersson um ljóðabækur þeirra Einars Braga og Ólafs Jóhanns Sig- urðssonar undir sameiginlegri fyrirsögn: „Islenzkar raddir“. Hann segir: „Einar Bragi legg- ur mesta rækt við prósaljóð; stundum eru það löng og víð- feðm ljóð, þar sem hann gefur af örlæti á báðar hendur sam- bland af náttúruskynjunum, íhugunum, aðstæðulýsingum. Haiin talar við náttúruna eins og barn, lifir i henni, svo að skilin milli þeirra þurrkast allt að þvi út, ber fram spurnir óbundnar tíma og er næmur á hræringu hinnar minnstu líf- veru. En einnig i smáljóðunum, sem minna eins og sum af ljóð- um Ólafs Jóhanns á gamla kin- verska ljóðlist, er áþreifanlegt lif og hreyfing...“ Sem dæmi um það birtir ritdómarinn ljóð- ið Eins og ævi manns, segir síðan: „Hér er sem sagt hinn sérkennandi angurværi eyði- leiki, jafnt hið íshreina sem hið upprunalega og fagurferska, sem oft leikur um ljóðheim Einars Braga og frá honum stafar. í flestum hinna ljóðanna genguf umkomulausa litla manneskjan um hetminn með spurnir sínar, hellabrot sin. Framhald á bls. 33 Eins og getið hefur verið í fréttum, gaf Bo Cavefors Bokförlag I Svíþjóð nýlega út ljóðabókina Pilar av Ijus (Ljós- örvar) eftir Einar Braga I sænskri þýðingu eftir Inge Knutsson. Bókinni hefur verið frábærlega vel tekið. Daginn eftir útkomu hennar var i sænska útvarpinu hálftíma dag- skrá undir nafninu Pilar av ljus, þar sem eingöngu var fjallað um ljóðlist Einars Braga og Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, rætt við höfundana og lesið úr ljóðum þeirra. Fyrstu ritdómar sænskra blaða um bók Einars Braga hafa nú borizt til landsins. I Arbetarbladet skrifar Einar Bragi Kenneth Jonsgárden undir fyrirsögninni: „Island í hjört- um vorum“. Hann ber í upphafi mikið lof á þýðandann, segir verk hans vera í háum gæða- flokki, heldur síðan áfram: „Nafn Einars Braga er vel þekkt langt utan við storm- barðar strendur lslands... Sjálfur kveðst hann jafnan hafa verið verkasmár við ljóða- gerð: talið vel, ef sér auðnaðist að yrkja eitt frambærilegt ljóð fyrir hvert ár ævinnar. Þegar að er gáð, er það allt annað en lágt markmið. Bækurnar hafa sem sagt hvorki komið ýkja þétt né verið þykkar, en efni þeirra er mikilsháttar og býr yfir innri þrótti, sem gefur skáldskap hans almennt gildi langt utan tslands. Svo er einnig um ljóð, sem bera þó staðbundinn blæ, eins og þessi litla fimmhenda: Kvöldsnekkja snjóhvít. Snortið oddrauðum vængjum silfurfljót svefnhljótt. Sytrandi dropum telur eilífðin stundir okkar. Maður les ljóðið á ný og sér ljóslega, hvernig öldur þess færast næstum ógreinanlega út yfir æ stærri teig af veruleika vorum, sem er einnig veruleiki Einars- Braga. Þannig á ljóðlist að vinna. Islendingar eru fámenn þjóð með marga rithöf- unda, sem þráfaldlega taka þátt I átökum um málefni þjóðar- innar. Þegar Einar Bragi varð stúdent 1944, var ekki langt í 17. júni, daginn sem íslenzka lýðveldið var endurvakið á Þingvöllum. Það var dýrmæt stund fyrir Einar Braga og alla hina endurfæddu þjóð. Einar Bragi hefur alla tíð unnið tslandi. Hann er harð- skeyttur andstæðingur her- stöðvarinnar i Keflavík: virkis bandarískrar hernaðarstefnu á tslandi. Meðan herstöðin er í landinu, njóta íslendingar ekki ,relsis I raun: hún er þeim Sífelld ógnun. Önnur ógn stafar frá amerískri menningu, sem dreift er um landið með sjón- varpi og útvarpi. Það nægir Bamavagnar og kerrur bamavagnar, kerrur og kerruvagnar eru norsk gæðavara gerð fyrir norðlægar slóðir. Tvíburavagnar og — kerrur einnig jafnan fyrirliggjandi. Mikið úrval — sanngjarnt verð Sendum gegn póstkröfu — Fást einnig víða um land FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 — slmi 84670.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.