Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLÁÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1976 13 Þing Sambands ísl. barnakennara: Ófremdarástand í kennslumálum vangefinna SAMBAND fsl. barnakennara héft nýlega 24. fulltrúaþing sitt og var þingið haldið f Reykjavík. Þingið sátu 72 fulltrúar frá 10 svæðafélög- um SfB, en aðalmál þingsins voru uppeldis og skólamál, iauna- og kjaramál, auk félags og skipulagsmála samtakanna. Sérstaklega var fjallað um aðstöðu vangefinna f fræðslukerfinu. Ingi Kristinsson, sem verið hefur formaður SÍB sl. 4 ár og setið f stjórn samtakanna samfellt f 20 ár, baðst undan endurkjöri og var Valgeir Gestsson kjörinn formaður f hans stað. Á þinginu flutti Jóhann Gunnarsson læknir erindi um fræðslumál vangefinna og benti hann m.a. á þeir neyttu ekki laga- legs réttar síns til náms. Þingið gerði samþykkt um málefni van- gefinna og segir þar að þingið vilji vekja athygli menntamála- ráðuneytisins og Alþingis á því ófremdarástandi, sem ríkir í kennslumálum vangefinna hér á landi. I samþyktinni segir að á þessu sviði hafi viðgengizt svo lang- varandi misrétti að lengur verði ekki við slíkt unað. Síðan segir: „Þrátt fyrir skýlaus lagafyrir- mæli er þessi minnihlutahópur ennþá utangarðs í menntakerfi þjóðarinnar, án skóla og náms- skipulags — og engin sýnileg merki þess, að úrbóta sé að vænta.“ Þingið skoraði í samþykkt sinni á menntamálaráðherra að gefa þegar út reglugerð um sérkennslu vangefinna og annarra afbrigði- legra nemenda, en reglugerð þessi hefur legið í drögum i ráðu- neytinu i hartnær ár. Þá átaldi þingið þá ráðstöfun menntamála- ráðuneytisins að stöðva áform Kennaraháskólans um framhalds- nám fyrir kennana vangefinna og annarra afbrigðilegra barna á næsta starfsári. ftrekaðar voru fyrri samþykktir um einsetinn skóla og saipfellda stundaskrá. Þingið harmaði deil- ur um starfsetningarreglur, sem áttu sér stað á síðasta Alþingi, og skoraðað var á menntamálaráð- herra að hlutast til um lausn þess- ara mála hið bráðasta. Vakin var athygli á launamál- um kennara og í samþykkt um þau mál er varað við lélegum launakjörum kennara, sem leitt geti til þess að fólk án kennara- réttinda ráðist í vaxandi mæli til kennarastarfa. Nefnt er sem dæmi að á sl. hausti hafi um 40% þeirra er réðust til kennslustarfa við grunnskóla verið fólk án uppeldislegrar menntunar og þar með án kennararéttinda. Formaður var kjörinn Valgeir Gestsson og aðrir f aðalstjórn sam- takanna eru: Páll Guðmundsson, Bjarni Ansnes, Elín Ólafsdóttir, Kristín H. Tryggvadóttir, Guðjón B. Jónsson og Ragna Ólafsdóttir. tJr einni vinsælustu sýningu Þjóðleikhússins s.l. vetur, óperunni Carmen. Aldrei fleiri áhorfendur 134.090 manns sáu leiksýníngar Þjóðleikhússins á þessu starfsári, sem lauk þ. 22 júlf s.l., og hafa áhorfendur aldrei verið fleiri l sögu leikhússins. Þetta kemur fram f fréttatilkynningu frá leik- húsinu, þar sem gert er grein fyrir starfseminni sfðastliðinn vetur. Eru þá taldir með áhorfendur listahátfðar og áhorfendaf jöldi f leikferðum. Verkefni Þjóðleikhússins á ár- inu voru 24 að frátöldum sýning- um Lilla Teatern og söng- og leik- kvöldi Giselu May á Listahátíð. Af þessum 24 verkefnum voru 10 frumsýningar á Stóra sviðinu en 4 voru tekin upp frá fyrra ári. Alls voru 295 sýningar á vegum Þjóð- leikhússins að meðtöldum leik- ferðum innan lands og utan. Drýgstar voru leikferðir Inúks, 110 sýningar, þar af 60 erlendis en leikritið var sýnt í 11 löndum á árinu. Aðsókn var misjöfn en bezt varð hún að óperunni Carmen, sem sýnd var I 51 sinn fyrir fullu húsi. Við Þjóðleikhúsið eru nú fastráðnir 30 leikarar, í kór leik- hússins 40 söngvarar og íslenzki dansflokkurinn telur átta dansara. Fjölmennasta sýningin var Carmen, þar komu fram 125 söngvarar, dansarar, hljóðfæra- leikarar og aukaleikarar. Æfingar hefjast aftur i leik- húsinu síðari hluta ágúst og verður fyrsta verkefni næsta leikárs frumflutningur á nýju íslenzku leikriti, Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Þar er brugðið upp mynd 'áí landanum i sólarlandaferð. Leikstjóri verðvr Brynja Benediktsdóttir. \ , ém , ■Laf j f / » « jM. IM , JH •. - Fulltrúar reykvfskra kennara á 24. fulltrúaþingi StB Sorp er ekkert feimnismál! SORPKASSAR — RUSLAKASSAR — BLÓMAKASSAR. EFNI: ELITE VATNSÞOLNAR SPÓNAPLÖTUR SAMSETNINGARJÁRN SINKHÚÐUÐ. MEÐ OG ÁN HJÓLA. SUMARHÚSAEIGENDUR, ATH. KASSARNIR ERU ÓSAMSETTIR OG ÞVÍ AUÐVELDIR í FLUTNINGUM INNIKASSI ÚTIKASSI (ELITE) Dýpt: 40 sm, hæð: 75 sm, breidd: 82,5 sm Dýpt: 49 sm, hæð: 80 sm, breidd: 100 sm. Fyrir 2 poka (stærð: 60 x 90 sm) Fyrir 2 poka (stærð. 75X115 sm) INNIKASSI ÚTIKASSI (ELITE) Dýpt: 40 sm, hæö: 75 sm, breidd: 42,5 sm Dýpt: 49 sm, hæð: 80 sm, breidd: 51,5 sm. Fyrir 1 poka (stærö 60 x 90 sm) Fyrir 1 poka (stærð 75X115 sm) FEGRIÐ UMHVERFIÐ MEÐ THOREX KÖSSUNUM. SÖLUUMBOÐ: P) Plastprent hf. V HÖFÐABAKKA 9 SÍMI ■ Jy HBF^E 85600 HVERAGERÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.