Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1976 23 Mynd þessi er tekin nýlega úr lofti af Olympfusvæðinu I Kanada. og undraði menn hversu gffurlega mikið var þar ógert. Þar er nú unnið daga og nætur, og segja forráðamenn leikanna að þrátt fyrir allt eigi svæðið að verða tilbúið þegar ieikarnir eiga að hef jast þar 17. júlf n.k. ALLT Á AFTURFÓTUNUM í MONTREAL - nema öryggiseftirlit með keppendum EFTIR tæpan hálfan mánuð eiga ■ Ólympfuleikarnir I Montreal að hefjast og hefur nótt verið lögð við dag að undanförnu við undir- búning íþróttamannvirkja, en sem kunnugt er hefur allt gengið á afturfótunum frá upphafi við gerð þeirra. Iþróttafólk er þegar farið að koma til Montreal, og búizt er við að því f jölgi þar mjög mikið um næstu helgi, en þá koma f jölmennir flokkar, m.a. frá Eþíópíu og Ástralfu. Farið er að reyna nýju Iþrótta- mannvirkin og hefur komið í ljós að þar er ekki allt sem sýnist. Eftir mikla rigningu sem gerði í Kanada um síðustu helgi er t.d. knattspyrnuvöllurinn þar sem úrslitaleikurinn á að fara fram, ákaflega illa farinn, og þykir ótrú- legt að unnt verði að nota hann á leikunum, jafnvel þótt sæmilega þurrt haldist fram til þeirra. Ástæðan fyrir því að völlurinn fór svo illa af rigningunni er talin sú, að mistök hafi orðið við undir- byggingu hans, þannig að vatnið nær ekki að síga lengra niður en rétt niður fyrir grasrótina. Mun þegar hafizt handa við að ræsa völlinn betur fram. Þá hefur einnig komið f ljós að þak þaó sem reist var yfir hjól- reiðabrautina lekur meira og minna, og af þeim orsökum geta brautirnar orðið glerhálar. Eftir rigninguna var þegar hafizt handa við að þétta þakið, og telja forráðamenn leikanna, að því verki verði örugglega lokið áður en Ieikarnir hefjast. Svo sem kunnugt er þá var hætt við að reisa mikinn turn sem vera átti við Ólympíusvæðió en það sem búið var að byggja af turni þessum þegar ákveðið var að hætta við gerð hans, kostar stórfé. Forráðamenn leikanna hafa til þessa ekki viljað nefna neinar töl- ur um kostnað við mannvirkja- gerðina. en fyrir mun þó liggja að hann er allt að 100% meiri en áætlað var f fyrstu. Quebeck- fylkið hefur nú tekið við því að sjá um mannvirkjagerðina, en upphaflega var það ætlunin að Montreal-borg sæi að mestu um hana, og eignaðist siðan mannvirkin að leikunum loknum. Það eina sem gengið hefur vel með í Montreal er bygging Ólympíuþorpsins. Smíði þess er lokið fyrir nokkru, og þeir Filbert Bayi, heimsmethafi f 1500 m hiaupi — keppir hann ekki á OL. keppendur sem þegar eru komnir til Montreal ljúka miklu lofsorði á aðbúnaðinn í Ólympíuþorpinu. Kvarta þeir helzt yfir öryggis- gæzlunni, og segjast ekkert geta hreyft sig án þess að lögreglu- eða hermenn séu á eftir þeim. Kana- damenn hafa geysilega mikinn viðbúnað til þess að tryggja öryggi keppenda og ætia ekki að láta söguna frá MUnchen 1972 endurtaka sig. Vitna þeir til þess að Þjóðverjar hafi sett mjög strangar reglur um umgang í Ólympíuþorpinu og hafi þær ver- ið haldnar fyrstu dagana. Síðan hafi verið slakað á allri aðgætni með hinum hörmulegustu af- leiðingum. — Það getur vel verið að íþróttamannvirkin hjá okkur verði ekki eins glæsileg eða góð og þau voru f MUnchen, en við munum örugglega gera allt sem i okkar valdi stendur til þess að keppendunum líði vel, og öryggi þeirra verði ekki ógnað, er haft eftir talsmönnum framkvæmda- nefndar leikanna. ÓLYMPÍU- BÚNINGURINN ÍSLENZKI Ólympíubún- ingurinn mun verða mjög svipaður á leikunum í Montreal og hann var í Miinchen 1972, þ.e. blár jakki, hvftar buxur og rauð skyrta. Að þessu sinni munu þátttakendurnir ekki verða með bindi. Við litaval á búningunum var m.a. höfð hliðsjón af því hvað kæmi bezt út í sjón- varpi, en bein útsending í lit verður frá leikunum um víða veröld. tslenzku Ólympíuþátttakendurnir munu æfa göngu áður en þeir halda utan og mun Þorsteinn Einarson, íþróttafulltrúi ríkisins sjá um þær æfingar. Afríkubúar setja Ólympíunefnd kosti tÞRÓTTAFÓLK frá nokkrum Afrfkuþjóðum hefur hótað þvf að taka ekki þátt f Ólympfuleikun- um f Montreal, ef þar verða keppendur frá Nýja-Sjálandi. Ástæðan er sú að Ný- Sjálendingar létu nýlega sig hafa það að keppa við Suður- Afrfkubúa f „rúbbf“. Talsmaður ný-sjálenzku Ólympfunefndar- innar hefur sagt að nefndin hafi ekkert haft með keppni þessa að gera, og hún geti ekki séð hvað mál þetta komi Ólympfuleikun- um við. Lance Cros$, formaður nefndarinnar, sagði/'að það væri staðreynd að á sfðasta ári hefðu fþróttamenn frá 26 þjóðum keppt f Suður-Afrfku og 22 af þessum þjóðum sendu nú þátttakendur til Montreal. — Við skiljum ekki hvað þessi mótmæli Afrfkuþjóða eiga að þýða, sagði Cross, — hvers vegna er það verra að Ný- Sjálendingar keppi f Suður- Áfrfku en aðrir? Anders Gárderud — fiestir spá honum sigri á Olympfuleikunum. Garderad er sá sem flestir spá sigri MARGIR spá þvf að sænski hlauparinn Anders Gárderud verði einn öruggasti sigurveg- arinn á Ólympfuleikunum f Montreal f sumar. 1 fyrra bætti hann tvfvegis heimsmetið f 3000 metra hindrunarhlaupi og hljóp bezt á 8:09,8 mfn. á móti f Stokkhólmi, en slfkur tfmi þyk- ir mjög bærilegur f 3000 metra hlaupi, þótt engar hindranír séu á veginum. 1 fyrsta hlaupi sfnu á þessu keppnistfmabili sýndi Gárderud að hann er i I mjög góðu formi, þar sem tfmi ' hans var 8:15,6 mfn., og er það jafnframt bezti tfminn sem náðst hefur f 3000 metra hindr- unarhlaupi f heiminum f ár. Anders Gárderud er stundum kallaður „gullna spíkin" í heimalandi sfnu og hefur hann fengið þá nafngift vegna þess | hve tággrannur hann er. Hefur Gárderud löngum verið vinsælt viðfangsefni sænskra blaða- manna, og er hann lítt hrifinn af því sjálfur, og segir að það sé rétt einstaka blaðamaður sem sé sæmilega heiðarlegur í skrif- um sfnum og talandi sé við. Fyrir þessi ummæli hefur hann sætt ákúrum i sænsku pressunni. Anders Gárderud er 29 ára að aldri og menntaður sem íþrótta- kennari, en hefur hins vegar lftið gert síðustu ár annað en að hlaupa eins og aðrir hlauparar sem eru á toppnum. Hann hef- ur aldrei haft þjálfara og jafn- an farið eigin leiðir við æfingar sínar. Sjálfur viðurkennir hann að slfkt hafi galla eigi að síður en kosti, en það sé þannig, að hann kunni bezt við sig þegar hann er einn á hlaupunum. Gárderud varð fyrir miklum vonbrigðum á Ólympíuleiíúin- um i Mlinchen 1972, þar sem hann komst ekki í úrslit í hindr- unarhlaupinu. Nokkrum vikum síðar setti hann heimsmet í greininni f keppni sem fram fór í Helsinki. Á Evrópumeistaramótinu í Róm virtist sigurinn hins vegar blasa við Gárderud. Hann var í fararbroddi þegar skammt var eftir í markið, en á sfðustu metrunum tókst pólska hlaup- aranum Malinowski að skjótast fram úr honum. Löngu síðar kom i ljós að nóttina fyrir úrslitahlaupið hafði Garderud að mestu dvalið á salerninu, illa haldinn af gíf- urlegum taugaspenning. Mun hann ekki hafa sofið nema röska klukkustund og kunni það auðvitað ekki góðri lukku að stýra. En nú telur Gárderud sig bet- ur búinn undir stórátök en montreol7Ó nokkru sinni fyrr. — Ég hef öðlazt meira sjálfstraust en ég hef nokkru sinni haft áður, sagði Gárderud nýlega, — og ég veit að ég get hlaupið hraðara en nokkur hinna ellefu and- stæðinga minna sem mæta mér I úrslitum hindrunarhlaupsins á Ólympíuleikunum í Montreal. Menn verða að gera sér grein fyrir þvi hversu fáir það eru sem eiga möguleika á verðlaun- um. Það er í mesta lagi fimm, sex menn. Anders Gárderud hljóp í þrjú ár milli 200 og 250 kílómetra vikulega á æfingum sinum, og hann telur að það komi sér nú mjög til góða. — I vetur breytti ég æfingum mínum þannig að ég hljóp aldrei meira en 160 kilómetra á viku, og hef lagt aðaláherzlu að undanförnu á að æfa tækni við hindranirnar og ná upp snerpunni. Þegar Gárderud var að því spurður hverja hann teldi lík- legustu keppinauta sína á Ólympíuleikunum í Montreal vildi hann lítið um það segja, en þó kvaðst hann búast við að Afríkubúar tefldu fram harð- snúnum hindrunarhlaupurum. — Þótt ég sé nokkuð sigurviss, sagði hann, — þá geri ég mér grein fyrir því að allt bendir til þess að sigurvegarinn i 3000 metra hindrunarhlaupi á Ólym- píuleikunum í Montreal þurfi að setja heimsmet til þess að komast á efsta þrep verðlauna- pallsins. Sigurvegari i 3000 metra hindrunarhlaupi á Ólympíu- leikunum i MUnchen 1972 varð Keniabúinn Kipchoge Keino sem hljóp þá á 8:23,6 min. og landi hans Benjamin Jipcho varð í öðru sæti á 8:24,6 min. Þriðji maður varð Finninn Tapio Kantanen á 8:24,8 mín. en Kantanen verður sennilega meðal keppenda á leikunum í Monreal og hann er jafnan harður i horn að taka á stórmót- um. Þá eiga Bandarikjamenn nú kornungan hindrunarhlaup- ara, sem líklegur er til þess að koma á óvart á leikunum, og eins tefla Sovétmenn fram tveimur mjög góðum hindrun- arhlaupurum, sem sagðir eru í mikilli framför.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.