Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULl 1976 Mmm mSMKmmSm Eyjólfsson, en hann var áður stýrimaður á Herjólfi eldra. í skipinu eru 17 klefar með 34 rúm- um, en gert er ráð fyrir að það taki um 400 farþega, sem rúmast vel í tveim sölum, setustofu og kaffiteríu. Hægt er að taka um borð 40 bíla og er þeim ekið um borð að aftan. Sagði Friðrik að nú væri verið að vinna við hafnaraðstöðu í Vest- piannaeyjum og lyki því verki um miðjan þennan mánuð. Verið er einnig að útbúa aðstöðu í Þorláks- höfn og verður hún tilbúin eitt- hvað seinna. Herjólfur hf. er útgerðarfélag hinnar nýju ferju sem er í eigu Vestmanneyinga, og lýkur þar með þjónustu Skipaútgerðar rík- isins með Herjólfi aldra, en strandferðarskipin Hekla og Esja munu halda áfram ferðum sínum. Margir Vestmanneyingar sjá eftir gamla Herjólfi, sem svo dyggilega hefur þjónað undanfarin ár. Þá sagði Friðrik Óskarsson að samgöngur Vestmanneyinga væru nú stórlega bættar, nú ætti að hefja daglegar ferðir milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, en áður hefðu þær verið aðeins fjórum sinnum í viku, tvær til Þorlákshafnar og tvær til Reykja- víkur. Brotið blað í samgöngu- málum Vestmanneyinga Á SUNNUDAGINN tóku Vest- manneyingar á móti hinum nýja Herjólfi. Skipið kom til Vest- mannaeyja eftir hádegið og kl. 12:30 sigldi gamli Herjólfur út úr Vestmannaeyjahöfn til móts við arftaka sinn. Heilsuðust skipin með hefðbundnum hætti og sigldu sfðan inn f höfnina. Að sögn Friðriks Óskarssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs hf. voru langflestir Vestmanneying- ar komnir niður á höfn til að taka á móti hinni nýju ferju sinni. Við móttökuathöfnina lék lúðra- sveit og forseti bæjarstjórnar, Einar Haukur Eiríksson, kvaddi eldra Herjólf og þakkaði góða og dygga þjónustu og bauð hið nýja skip velkomið. Þá flutti ávarp Guðlaugur Gíslason, formaður stjórnar Herjófs hf. af dekki skipsins. Síðan var skipið sýnt boðsgestum og á eftir var það til sýnis öðrum fram á kvöld. Friðrik Óskarsson sagði að Herjólfur, sem væri hið vistleg- asta skip, væri smíðað I Kristjáns- sundi í Noregi og væri 1030 tonn. Skipið er búið 2400 hestafla Vick- mann vél og hefur 14 manna áhöfn, sem er svipað og á gamla Herjólfi. Skipstjóri er Jón „Það var stór dagur í sögu Vest- manneyinga i gær, víðast hvar voru fánar dregnir að hún og flestir bæjarbúar komu niður að höfn til að fagna hinu nýja skipi, þrátt fyrir leiðinlegt veður. Ef við fáum ekki samgöngur nú, fáum við þær aldrei og ég vona að Vestmanneyingar noti sér nú sina eigin ferju“, sagði Friðrik Óskarsson að lokum. Friðrik Öskarsson fram- kvæmdastjóri Herjólfs h.f. þakkar Guðlaugi Gfslasyni stjórnarformanni fyrir ávarp hans. Fullkomnasta fiskiskip Guðmundur Jónsson GK 475 á reynslusiglingu á Eyjarfirði sl. laugardag. Ljósm: Friðrik Vestmann. Akureyri. — LAUGARDAGINN 3 júlí fór fyrsti skut- togari, er Slippstöðin á Akureyri smíð- ar í reynslusigiingu Nafn hans er Guð- mundur Jónsson GK 475. og er stærð hans 491 tonn Veður var fagurt, logn og sólskin og skartaði Eyjafjörður öllu sínu fegursta Mættur var fjöldi boðsgesta Slipp- stöðvarinnar, ma iðnaðarráðherra Gunnar Thoroddsen, þingmenn kjör- dæmisins, bæjarstjóri og bæjarstjórn, sigiingamálastjóri Hjálmar Bárðarson, fulltrúar lánastofnana o.fl. Vert er að geta þess að þarna var mættur blaða- maður frá breska fiskveiðitimaritinu Interfish og var hann kominn hingað gagngert til þess að segja lesendum blaðs síns frá þessu skipi Það kom fram í ræðum fram- kvæmdastjóra Slippstöðvarinnar Gunnars Ragnars, Jónasar Guðmunds- sonar frarmkvæmdastjóra Rafns h f í Sandgerði, sem á skipið. og einnig hjá siglingamálastjóra. að þetta væri tví mælalaust fullkomnasta fiskiskip sem byggt hefðí verið fyrir islendinga Sé það rétt ályktað, sem ekki er ástæða til að draga i efa, er ekki fráleitt að láta sér detta i hug, að þetta sé fullkomnasta fiskiskip sem byggt hefur verið i heim- inum, þvi Islendingar eru þekktir að þvi að vera fljótir til að tileinka sér nýjungar i gerð og smiði fiskiskipa. Að óathuguðu máli taldi fréttamaður Morgunbl sig allvel i stakk búinn að iýsa togara eftir að hafa verið til sjós á slíku skipi fyrir aðeins rúmum 20 ár- um Hér hlaut margt gamalkunnugt að mæta augum Enga hluti kannaðist hann þó við á þilfari Gamla góða trollspilið var horfið, trollið einnig. engin uppstilling á dekki, engir pollar né gálgar. allt var nýtt og framandi og sjálfstraust fréttamannsins fór hrað- mínnkandi Vindukerfi skipsins er það fullkomn- asta sem nokkru sinni hefur verið sett í skip og eru vindur skipsins alls 18 og leiðslur að þeim um 6 km Þær eru allar af gerðinni Rap og háþrýstivökva- drifnar Togvindur eru 2 og við þær tengdur sérstakur útbúnaður er stjórn- ar lengd útslökunar og átaki'á tog- vindur, einnig jafnar hann sjálfvirkt lengd togvira og gefur aðvörun um frávik frá innstillingu t d festu ( botni Gilsvindur eru 2, grandavindur 2, hjálparvindur 2, flotvörpuvinda, snurpuvíndur 2, akkerisvinda, kapal- vinda, kraftblökk, færslublökk, 2 fisk- dælur, löndunarkrani og krani fyrir fiskdælu Aldrei þarf að setja vír á kopp, enda enginn slikur til í skipinu Hátt yfir sjó i annarlegum gálga aftast á skipinu er tromla og á henni all sver kapall. Við eftirgrennslan kemur I Ijós að hann er I sambandi við svo- nefndan höfuðlínumæli en þaðereins- konar sjónvarpsauga sem sent er niður með trollinu og ef siðasti þorskurinn væri svo óheppinn að vera i nánd við op trollsins sér skipstjórinn hann sam- stundis og getur hremmt hann Lengd skipsins er 49,95 metrar breidd 9,50 íbúðir eru fyrir 1 6 menn, sérstök ibúð er fyrir skipstjóra, auk þess 5 eins manns klefar og 5 tveggja manna klefar Þessar vistarverur eru eins og herbergi á góðum hótelum Lestar eru 3 og eru búnar til geymslu og flutnings á loðnu eða fiski í kössum, kælivélar eru fyrir lestarnar Þá er sjóeimari I skipinu og afkastar 10 tonnum á 24 tímum Aðalvél skipsins er Alpa 1 2 strokka fjórgengisvél, 1740 hestöfl Skrúfan er skiptiskrúfa 2400 mm i þvermál, mesti snúningshraði 246 snúningar á minútu Þá eru í skipinu þverskrúfur drifnar með vökvadælum Stýrishring- ur sem er sambyggður skrúfuhring og stýri á að gera skipið sérlega liðugt I öllum snúningum. Hjálparvélar eru 2 af gerðinni Volvo Penta Auk þess eru smuroliuskilvinda og brennsluolíuskil- vinda Næst lá leiðin í stýrishúsið. Þar hlaut þó að vera eitthvað gamalkunnugt t d. stýrishjólið, en viti menn, það var horf- ið og kominn takki í staðinn og um hann stóð Stefán Hallgrimsson út- varpsvirki vörð svo landkrabbar breyttu ekki stefnu skipsins i fáfræði sinni í aldarfjórðung hefur Stefán unnið að niðursetningu hverskonar tækja I fiskiskip og hefur Slippstöðin aldrei sett slík tæki i skip svo Stefán hafi ekki komið þar við sögu; og mun ekki ofmælt að fáir íslendingar búi yfir meiri þekkingu á slikun tækjum en hann, í brúnni eru alls 23 tæki og Stefán sýnir viðstöddum hvernig þau starfa Þarna er örbylgjustöð, neyðar- talstöð, 3 ratsjár, vegmælir, vindhraða- mælir, sjóhitamælir, giróáttaviti, sjálf- stýring, 2 Simrad dýptarmælar, Sim- rad fisksjá, höfuðlínumælir sem áður var getið. Auk þess er i skipinu sima- kerfi, hátalarakerfi og sjónvarp í mat- sal Margra nýjunga er ekki getið, bæði vegna fáfræði og plássleysis Ganghraði reyndist 1 3 Vá sjómlla Gunnar Ragnars framkvstj Slipp- stöðvarinnar afhenti skipið Hann bauð gesti velkomna og þakkaði öllum sem á einhvern hátt hefðu greitt fyrir þvi að þetta glæsilega skip væri orðið að raunveruleika. Þá sagði hann m a. „Á svona degi er hvorki staður né stund til þess að ræða vandamál ís- lenzks skipasmíðaiðnaðar en þó get ég ekki látið hjá líða að minnast á þýðingu hans og hvílíkir möguleikar á nánast stóriðju eru fyrir hendi í sambandi við hana Lengi vel hefur verið rætt um þennan iðnað sem unga og óreynda atvinnugrein og hann meðhöndlaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.