Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1976 Kveðja: Oskar A. Gísla- son skipamiðlari Fæddur 24. mar/. 1914. Dáinn 28. júnl 1976. Óskar er skyndilega horfinn frá okkur eftir að hafa glaðzt með fjölskyldunni, nær deginum áður yfir tengdasyni sínum, sem var að ljúka kandidatsprófi í viðskipta- fræðum við Iláskóla Islands. Svo skjótt ráðast örlög manna. Okkur aðstandendum er harmur i huga, en við eigum minninguna um góð- an dreng, föður, tengdaföður og afa, sem öllum var hjartfólginn. Óskar Aðalsteinn Gíslason var mikilhæfur maður og mörgum kostum búinn, þótt honum léti ekki að flíka hæfileikum sínum né'-láta á sér bera. Honum samdi bezt'að vinna störf sín i kyrrþey, en af alúð og dugnaði, sem fáum var leikið. Var unun að sjá til verka hans, því snyrtimennska og reglusemi var þar allsráðandi. Með Öskari er horfinn á braut einn af brautryðjendum islands i farmskipaútgerð. Fáir aðrir hér á landi bjuggu yfir þeirri þekkingu og reynslu á rekstri farmskipa og erlendri skipamiðlun sem Óskar, en starfsævi hans var öll helguð þessu sviðí. Óskar var fæddur og alinn upp í Hafnarfirði, sonur hjónanna Maríu Guðmundsdóttur og Gisla Björnssonar, verkamanns þar. Að þeim hjónum stóðu þróttmiklar bændaættir frá Snæfellsnesi og úr Biskupstungum. Að loknu námi i Flensborgarskóla stundaði Óskar nám í Verzlunarskóla Ís- lands og lauk þaðan burtfarar- prófi 1933. Þar naut hann hæfi- leika sinna i ríkum mæli því hann átti hæstu einkunn á prófinu, en um 20 ár liðu unz þvi meti var hnekkt. 1 Verzlunarskólanum var þá kominn vísir að framhalds- deild, og hélt Óskar áfram námi enn einn vetur og nam þá meðal annars spænsku sem valgrein. Var hann einn af fáum Íslending- um, sem var vel mælandi á þá tungu. Óskar kvæntist ungur eftirlif- andi konu sinni Láru Guðmunds- dóttur, en þau hjónin héldu strax til Flateyrar, þar sem Óskar hóf störf við togaraútgerð hjá Skúla Pálssyni, seinna fiskiræktar- bónda á Laxalóni. Áður hafði Oskar starfað stuttarr tíma hjá Faaberg og Jakobsson skipamiðl- urum í Reykjavík. Ekki leið á löngu þar til Óskar kom til þeirra aftur eftir skamma dvöl á Flat- eyri. Hjá Haraldi Faaberg kynntist Oskar hinum flókna en heillandi þætti skipaútgerðar, sem lýtur að vöruflutningum landa í milli. Var þannig lagður grundvöllur að löngu ævistarfi, sem var helgað skipunum og sjónum, þótt hann sjálfur væri landkrabbi eins og hann orðaði það. 1 tengslum við skipamiðlun Haralds P'aabergs var Eimskipa- félag Reykjavíkur h.f., og kom það ekki sízt í hlut Óskars að sjá um rekstur þess þegar fram liðu stundir. Katla og Askja Eimskipa- félags Reykjavíkur voru öllum kunnar, og Oskar átti mikinn þátt í þvi að þessi skip voru meðal glæsilegri farkosta í íslenzkum skipastól, svo annt lét hann sér um þau. Hér naut hann fulltingis og liðveizlu skipstjórans á Kötlu, Rafns Sigurðssonar, sem var einn- ig meðeigandi í Eimskipafélag- inu. Óskar mat vináttu og sam- starfið við Rafn mikils, en þeir voru samhentir um að gera hag skipanna sem beztan. Með Haraldi Faaberg og Óskari tókst einnig gott samstarf og góð- ur kunningsskapur, sem stóð með- an báðir lifðu. Á árunum um og eftir heimsstyrjöldina voru um- svif þeirra félaga hvað mest og Fóstra mín INGIBJORG GUNNLAUGSDÓTTIR, Skólavörðustíg 44, lést að morgni 5 júlí á Hjúkrunarheimilinu Grund Þórdís Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, ODDBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR, andaðist að Landakotsspítala að morgm 4 júlí Gunnar Vigfússon. Útför €STHER B. HELGADÓTTUR, Álfhólsvegi 26 fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8 júli kl 1 3 30 Foreldrar, systkin, eiginmaður, börn. t Eíginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi VILHJÁLMUR ÁRNASON skipstjóri Flókagotu 53 andaðist aðfararnótt sunnudagsins 4 júli á Landakotsspitala Guðriður Sigurðardóttir Sigríður Vflhjálmsdóttir Vilhjálmur K. Sígurðsson Kristin Vilhjálmsdóttir Ásgeir Bjarnason Árni Vilhjálmsson Ingibjörg Björnsdóttir og barnabörn sigldi fjöldinn allur af erlendum leiguskipum á þeirra vegum til og frá landinu. Katla og Askja voru einnig i stöðugum flutningum og oft með erlendan farm milli er- lendra hafna. Var því um að ræða merkt brautryðjendastarf á þessu sviði. Óskar gerðist á þessum ár- um meðeigandi bæði í skipamiðl- un Faabergs og Eimskipafélagi Reykjavíkur. Árið 1961 skildu leiðir þeirra, en þá varð breyting á rekstri Eim- skipafélags Reykjavíkur. Óskar varð aðalframkvæmdastjóri þess, en Harald Faaberg hélt áfram skipamiðlun sinni þótt væri kom- inn maður á efri ár. Óskar annaðist rekstur skipa fé- lagsins af atorku og dugnaði fram til ársins 1966. Katlan var seld til útlanda það ár, og munu menn lengi minnast hversu hagstætt verð fékkst fyrir skipið fyrir at- beina Óskars. Sama ár yfirtók Eimskipafélag islands félagið samkvæmt ósk hluthafa Eim- skipafélags Reykjavíkur. Askjan fylgdi með i kaupunum og má segja að Óskar hafi fylgt á eftir skipinu, enda gat hann vart hugs- að sér að skilja skiptur við skipin. Eimskipafélagi Islands bættist þannig óvænt við nýr og dugandi starfsmaður, og starfaði Óskar hjá Eimskip til dauðadags. Munu margir í röðum innflytjenda hér í borg sakna þess að geta ekki lengur leitað til Óskars í flutn- ingadeildinni, því engum manni var ljúfara að gefa greið og góð svör við öllum fyrirspurnum eftir því sem hægt var. Þau hjónin Óskar og Lára bjuggu sér fallegt heimili hér i Reykjavík. Þar getur að lfta margt fágætra og fallegra muna, sem komið hafa með skipunum frá fjarlægum löndum og falla vel inn í ramma þeirrar snyrti- mennsku og smekkvísi, sem ein- kenndi heimili þeirra. Þau hjónin eignuðust tvær dætur, Sigríði Maríu og Sjöfn, en jafnframt tóku þau að sér frænku sína, Sigríði Jörundsdóttur, systurdóttur Láru, sem ólst upp á heimili þeirra til jafns við hinar dæt- urnar. Sigríður María giftist undirrit- uðum um 1960, og kynntist ég þannig Óskari og fjölskyldu hans. Sjöfn er gift Árna Gunnarssyni, viðskiptafræðing, og Sigríður Jör- undsdóttir er gift Hafsteini Júlíussyni, bifvélavirkja. Óskar naut því síðustu áranna í hópi stæ^kkandi fjölskyldu og meðal barnabarna sinna, sem nú eru orðin fjögur talsins. Það kann að vera nokkur kald- hæðni örlaganna, að maður jafn léttur á sér og teinréttur sem Óskar var skuli hverfa frá okkur svo fljótt. Alit fram á síðasta dag fór hann á nær hverjum morgni I laugarnar og taldi ekki eftir sér sporin við ýmsar athafnir. Mig grunar þó að hann hafi fundið fyrir sjúkleika sínum, sem háði honum síðustu árin, en aldrei kveinkaði hann sér og vildi sem minnst úr þvi gera í hópi fjöl- skyldunnar. Fyrir hönd aðstandenda kveð ég tengdaföður minn með miklum söknuði. Okkur er huggun í ljúfri minningu um góðan heimilisfaðir i blíðu og stríðu. Júlíus Sólnes. Mánudaginn 28. júní lézt i Reykjavík Óskar A. Gíslason, skipamiðlari, á 63. aldursári. Hann hafði farið að heiman heill heilsu, að því er virtist, en var allur áður en hann komst á vinnu- stað. Hann var fæddur í Hafnar- firði hinn 24. marz 1914. Hér verða eigi rakin æviatriði Óskars A. Gíslasonar, það munu aðrir gera, en aðeins flutt kveðja og þakkir til hans frá starfsfélög- um á skrifstofum Eimskipafélags- ins, þar sem hann starfaði í flutningadeild frá árinu 1967 til dánardægurs. Óskar var einkar hugljúfur öllu samstarfsfólki sínu og fjölmörg- + GUÐMUNDUR JÓNSSON frá Blönduósi, sem andaðist á Elliheimilinu Grund 30 júnl, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 7. júlí kl 3 Björn og barnabörn. t GUNNAR GÍSLASON, kaupmaður, frá Seyðisfirði, andaðist aðfararnótt 2. júlí. Sólveig Gísladóttir, Pálína Gunnarsdóttir, + Útför sonar mlns, föður, tengdaföður, bróður okkar og afa ELÍASAR ÞORVALDSSONAR Vesturgötu 56 er lést þann 29 júni s I. af slysförum, verður gerð frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 6 júli kl 10 30 f.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á liknar- stofnanir Súsanna Eliasdóttir Ásgeir Eliasson Soffía Guðmundsdóttir Þorvaldur Ásgeirsson Helgi Þorvaldsson Hrafnhildur Bjarnadóttir Birgir Þorvaldsson Helga Ásgeirsdóttir Erla Þorvaldsdóttir Bjarni Gfslason Vegna jarðarfarar verður Sparisjóður Hafnarfjarðar iokaður fyrir hádegi miðvikudaginn 7. júlí Sparisjóður Hafnarfjarðar um öðrum, sem hann átti sam- skipti við vegna starfs síns. Hann var eftirtektarvert snyrtimenni, glaðlyndur og góðviljaður, og jafnan reiðubúinn að leggja hverjum þeim lið sitt, er leitaði til hans. Hann var gæddur góðri greind og vann af alúð og sam- vizkusemi þau störf, sem hann tókst á hendur. Vildi hann fylgja hverju máli, sem hann vissi sann- ast og bezt. Óskar átti gott bóka- safn, var víðlesinn og fróður um marga hluti, meira en almennt gerist. Hann var víðförull og fór margar ferðir tíl útlanda, einkum fyrr á árum, þegar til tíðinda gat talizt að sigla, eins og þá var sagt. Veitti það honum náin kynni af öðrum þjóðum og víðan sjón- deildarhring. Störf Óskars vörðuðu miklu fyrir Eimskipafélagið sökum stað- góðrar þekkingar hans á skipaaf- greiðslu og siglingum, og góður liðsmaður var hann allt frá því er hann réðst í þjónustu félagsins fyrir hartnær áratug. Er fráfall hans því Eimskipafélaginu mikill missir. Nú þegar Óskar A. Gíslason er lagður til hinztu hvílu, kveðjum við starfsfélagar hans hann með djúpum söknuði og einlægri þökk fyrir samveruna. Við vottum eiginkonu hans, börnum og öðr- um aðstandendum innilega samúð okkar. Megi minningin um góðan dreng vera þeim huggun I sorg og söknuði. Starfsfélagar Unnur Krist- mundsdóttir — Minning F. 1. apríl 1924 D.22. jan. 1975 Unnur var nett og frið stúlka og fékk hvarvetna ágætt orð fyrir dugnað, prúðmennsku og heiðar- leik. Hún var því vinmörg. Guð blessi minningu elsku- legrar stúlku. Við vinir hennar geymum minningu hennar í hjört- um okkar sem helgan grip. Öll él stytta upp um siðir. Ver- um því glöð guðs börn — þá gleðj- um við horfinn vin. Sigurður J. Guðmundsson. útfaraskreytingar Groðurhúsið v/Sigtun simi 3677C/ S. Helgason hf. STEINIOJA llnholtl 4 Slmai 24677 og 14254

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.