Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.07.1976, Blaðsíða 40
AUGLÝSINGASIMINN ER: 22480 Ittorgim&fobto AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 IHerðunblafciÍt ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976 Náttfari rænir sofandi fólk TVÆR fjölskyldur f Háaleitishverfi fengu heldur óhugnanlega heim- sókn í fyrrinótt, þar sem óboðinn gestur brauzt inn á heimili þeirra, læddist inn f svefnherbergi hjónanna og rændi peningaveski heimilis- feðranna. Þjófnaðarins varð ekki vart fyrr en heimilisfólkið var komið á ról í gærmorgun. Bæði þessi innbrot voru með nákvæmlega sama hætti og innbrot sem voru framin á svipuðum slóðum fyrir um mánuði, og telur rannsóknarlögreglan engan vafa á að þarna hafi sami maður eða menn verið að verki. í öllum þessum innbrotum hef- ur þjófurinn haft þann háttinn á, að hann fer upp á svalir íbúð- anna, en i öllum tilfellunum hef- ur húnninn á svalahurðinni verið Skalf í Siglu- fírði - glamr- aði í Grímsey LAUST fyrir miðnætti á sunnu dag fundu Siglfirðingar alisnarp- an jarðskjálfta og að sögn frétta- ritara Morgunblaðsins á Siglu- firði hristust innanstokksmunir og skulfu meðan skjálftinn gekk yfir. í Grimsey var lýsingin hins vegar sú að glamraði í glösum. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings mældist jarð- skjálftinn 4.0 stig á Richter- kvarða og upptök hans voru 15 til 20 km norð-norðaustur af Sigu- firði. brotinn upp með snöggu átaki, og þar sem engar krækjur hafa verið á hurðinni fyrir innan hefur inn- brotsþjófurinn átt greiða leið inn í íbúðina. I fyrrinótt hafði þjófurinn um 75 þúsund krónur upp úr krafs- inu, því að i annarri íbúðinni náði hann 55 þúsund krónum og 20 þúsund krónum i hinni. Rannsóknarlögreglan vill ein- dregið ráða eigendum íbúða, þar sem ekki er traustari læsing á svalarhurðum en húnninn einn, að verða sér einnig úti um krækju á hurðina til að geta sofið ótta- lausir við að fá næturheimsókn af þessu tagi. Yfir 20 árekstrar í Rvík í gær ÞRÁTT fyrir ágætt skyggni og góðar akstursaðstæður urðu yfir 20 árekstrar í Reykjavík í gærdag. Voru miklar annir hjá slysarann- sóknardeild lögreglunnar af þess- um sökum, svo að helzt minnti á skammdegisdag. Lögreglan kunni engar skýringar á því hvernig stæði á öllum þessum árekstrum, en einhver gat sér þess þó til að langvarandi sólarleysi væru nú farið að leggjast á sálina á reyk- vískum ökumönnum. Heitt áfram Hiti varð mest- ur 18 stig I Reykjavík I gær, en mestur hiti á landinu varð 22 stig á Grfmsstöðum. Að sögn Veð- urstofunnar er líklegt að veðr- ið verði mer svipuðum hætti næstu daga og það var í gær, þ.e.a.s. hiti, en mistur og skýj- að víðast hvar. Það sem veld- ur hitunum þessa dagana er heitt loft frá Evrópu, sem berst hingað j með sunnan- | áttinni. : 4m■■■v-MKW * 'rt * í SC SO ; uo 40 f k 30 30 1 > 20 ; 10 ið 1. 0 o i íO i 1 10 * 20 ao *30 30* ■> 40 , 1 4 f fis 1 i '. I ■ I Trygve Bratteli fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og kona hans Randi hafa verið f einkaheimsókn á íslandi undanfarna daga. Þau hjón hafa m.a. ferðazt nokkuð um landið, en einnig hefur Bratteli átt fundi með fslenzkum ráðamönnum. A myndinni eru Brattelihjónin ásamt Geir Hallgrfmssyni forsætisráðherra og konu hans, Ernu Finnsdóttur, og Gylfa Þ. Gfslasyni alþingismanni og konu hans, Guðrúnu Vilmundardóttur. (Á bls 12 í blaðinu í dag er birt viðtal við Trygve Bratteli). Fiskverðshækkun vestra á næstmmi Mikil eftirspurn eftir fiski á Bandaríkjamarkaði MARKAÐSAÐSTÆÐUR á banda- rfska fiskmarkaðinum virðast mjög hagstæðar um þessar mund- ir, og forráðamenn sölusamtaka fslenzka hraðfrystiiðnaðarins gera ráð fyrir fiskverðshækkun þar vestra á næstunni. Hins vegar vilja þeir engum getum leiða að þvf hversu mikil sú hækkun kann að verða. Að því er Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, sagði Morgunblaðinu í gær hefur fisk- verðshækkun ekki komið fram ennþá en menn eru að vonast eftir henni, enda markaðsaðstæð- ur þar vestra mjög hagstæðar núna. Eyjólfur var einnig spurðui Ný bráðabirgðalög: Enginn eignarskattur af fyrstu 2,7 miUión kr. FJARMALARAÐHERRA hefur með útgáfu bráðabirgðalaga ákveðið að hækka fjárhæðir f skattstiga eignarskatts, þannig að af fyrstu 2.700.000 kr. skatt jgalds- eignar greiðist enginn skattur, af næstu 1.500.000 kr. greiðist 0,6% og af þeirri skattgjaldseign, sem þar er fram yfir, greiðist 1 %. í fréttatilkynningu um útgáfu bráðabírgðalaganna kemur fram, að vegna breytinga á virði fast- eigna til eignarskatts, sem gerð var meó lögum nr. 97/1975, hafi mátt vænta þess að framteljend- ur, er ekki hafi borið eignarskatta af ibúðarhúsnæði til þess, niundu nú bætast í hóp gjaldenda eignar- skatts. Ennfremur kemur fram, að þar sem undirbúningi að álagningu gjalda fyrir skattárið 1975 sé um það bil að ljúka hjá skattstjórum beri brýna nauðsyn til að gera nú þegar ráðstafanir til þess að unnt sé að breyta álagningu eignar- skatts þannig, aó þeir framtelj- endur sem ekki hafi átt meiri eignir en svo að þeir hafi verið eignarskattsfrjálsir, verði nú ekki skattlagðir af þeim eignum. Af þessum ástæðum séu sett bráða- birgðalög, sem eru svohljóðandi: 1. gr. Ákvæði til bráðabirgða í 1. gr. laganna orðist svo: Ákvæði til bráðabirgðalaga Við eignarskattsálagningu fyrir skattárið 1975 skal verðmæti fast- eigna til eignarskatts reiknað á 2,7-földu gildandi fasteignamats- verði, þrátt fyrir ákvæði ATiðar 22. gr. laga nr. 68/1971. Ákvæði þessi hafa eigi áhrif á heildar- fyrningarverð fasteigna, sbr. lokamálsgrein B-liðar 15. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 3. gr. laga nr. 60/1973. Fjárhæðir í skattstiga í 1. tl. 26. Framhald á bls. 39 að því hvernig hraðfrystum karfa vegnaði á Bandarikjamarkaði en islenzku sölusamtökin hafa nú beint verulegu magni þessarar fisktegundar frá Sovétríkjunum yfir á Bandaríkjamarkað í von um að karfinn hasli sér völl þar að einhverju marki. Svaraði Eyjólf- ur þvi til, að viðbrögð markaðar- ins við þessari fisktegund væru enn ekki fyllilega komin fram enda mætti búast við að það tæki um mánaðartíma frá því karfinn færi þar fyrst á boðstóla þangað til á það reyndi hvernig hann líkaði. Þá kom það fram hjá Eyjólfi, að töluverð framleiðsla er nú á fiski fyrir Bandaríkja- markað þar sem eftirspurn er mjög mikil. Þá hafði Morgunblaðið einnig samband við Sigurð Markússon, framkvæmdastjóra sjávarafurða- deildar SÍS, sem tók mjög í sama streng og Eyjólfur. Sigurður kvaðst ekki hafa neinar nýfengn- ar upplýsingar um Bandaríkja- markað núna, enda hefðu ekki verið send nein skip vestur um haf frá þvi um miðjan júni 'en annað skip væri að hlaða hér heima rétt í þessu og færi væntan- lega með fuHfermi vestur seinni- partinn í næstu viku. Sigurður kvað alveg ljóst, að einhver hækk- un yrði milli þessara tveggja farma en hann kvaðst hins vegar ekki treysta sér til þess á þessu stigi til að segja til um hversu mikil hún yrði. Sigurður kvað markaðinn mjög traustan um þessar mundir, og ekki hefðu neinar fregnir borizt af því að fisktegund hefði farið niður á við í verði. Sigurður var spurður um karfann og hann kvað ekki vera mikið farið að reyna á hann enn sem komið væri. Hann kvað Sambandið vera að þreifa sig áfram með nýjar umbúðir um karfann, og yrðu þær um borð í skipi því sem nú væri að fara vestur. Hins vegar liðu væntan- lega 2—3 vikur þar til fyrstu við- brögð við þeim bærust. Sagði Sig- urður, að veruleg breyting væri á karfaumbúðunum samfara því að verulegt magn af honum sveiflað- ist af Rússlandsmarkaði yfir á Bandaríkin. Sigurður kvað skort á fiski valda mestum erfiðleikum nú. Sigurður sagði, að I fiskflökum og þá sérstaklega þorskflökum væri hægt að selja núna mun meira en tök væru á að ná í. Birgðir væru í algjöru lágmarki og bæði væri hægt að selja og þá sérstaklega nýta i eigin þágu vestra miklu meira af fiskblokkum en Sam- bandið sæi fram á að það myndi fá. Engin í gæzlu vegna hassmála BÁÐIR mennirnir, sem sátu f gæzluvarðhaldi hjá ffkniefna- dómsstólnum, grunaðir um að hafa átt þátt f að reyna að smygla hassi til landsins, földu f stól, voru látnir lausir sl. laugardag. Situr þvf enginn f gæzluvarðhaldi á vegum dómstólsins nú út af hinum umfangsmiklu hassmálum, sem unnið hefur verið að rann- sókn á undanfarið. Eru þessi mál nú talin það langt komin f rannsókn að ekki þótti ástæða til að halda mönnunum lengur inni, enda þótt gæzluvarðhald þeirra væri hvergi nærri út- runnið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.