Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JULÍ 1976
AÐ undanförnu hefur verið
nokkuð um jarðhræringar og
skjálfta á suð-vestanverðu Kyrra-
hafi, og hafa sumir skjálftarnir
verið all harðir. Mannskæðasti
skjálftinn varð á Nýju Guineu i
fyrra mánuði, og fórust um fimm
þúsund manns í skjálftanum,
aðallega vegna skriðufalla.
Á miðvikudag í fyrri viku urðu
enn hræringar, og i það skiptið
varð það eyjan Bali, sem verst
varð úti. Bali er mikil ferða-
mannaparadís, og sluppu helztu
Mann-
skæðir
jarð-
skjálftar
ferðamannastaðirnir við eyði-
leggingu, þótt húsin væru tiltölu-
lega rammgerð úr brenndum ieir.
Talið er að hátt á fjórða hundrað
manns hafi farizt, og þúsundir
slasazt.
Hjálparstarf var hafið strax eft-
ir hræringarnar, og meðal annars
fluttu Bandaríkjamenn þúsundir
af teppum, fatnaði og matvæli frá
herstöð sinni á eynni Guam. Var
þessi varningur fluttur með flug-
vélum, og honum varpað niður til
íbúanna I fallhlífum. Kom þessi
hjálparstarfsemi ekki að fullum
notum, að sögn fréttamanna, því
íbúarnir á þessum slóðum er mjög
frumstæðir, og er talið að mörg
tonn af hrísgrjónum hafi eyði-
lagst vegna þess að íbúarnir vissu
ekki hvað ætti að gera við þau.
Myndir, sem teknar voru af
jarðskjálftasvæðinu, sýna að það
eina sem uppi stendur í sumum
þorpanna eru hliðin að þorpun-
um, en þau eru reist til að bægja
frá illnm nndum.
Hálfhrunin hús f Denpasar á eynni Bali.
Kongalu
_á trygg-
ingabótum
ÍHALDSFLOKKURINN brezki
hefur undanfarið gagnrýnt harð-
lega tryggingakerfið þar I landi,
sem talsmenn flokksins segja
gróflega misnotað. Sem dæmi um
misnotkunina hafa þeir tekið
Derek nokkurn Deevy, sem í sjö
til átta ár bjó við alsnægtir þótt
atvinnulaus væri. Saga hans er f
stuttu máli þessi:
Fyrir átta árum missti Deevy
atvinnuna. Hann leitaði þá á náð-
ir atvinnuieysistrygginganna, og
komst fljótt að þvf að Iftið eftirlit
var haft með þeim, sem þangað
sóttu bætur. Hann tók sér nýtt
nafn og fékk greiddar bætur út á
bæði nöfnin. Svo tók hann þriðja
nafnið, og það fjórða, og loks
komst hann upp í 41 nafn. Ekki
var nóg að nota öll þessi nöfn,
heldur tilkynnti hann einnig
nöfn eiginkvenna og sambýlis-
kvenna, og launin hækkuðu jafnt
og þétt. Viðurkennir Deevy nú að
á sex árum hafi hann haft út úr
tryggingunum alls um 36 þúsund
sterlingspund, eða nærri 12 millj-
ónir króna. Þetta voru þægileg
laun, þvf tryggingabætur eru
skattfjrálsar, og Deevy lifði eins
og kóngur. Sjálfur segir hann að
hann hafi vanizt á ýmsa munaðar-
vöru eins og vindla frá Havana,
sem kostuðu hann 25 pund á viku,
klæðskerasaumuð föt o.fl.
Eitt sinn var hann hætt kom-
inn, því lögreglukona kom heim
til hans til að ræóa umsóknir um
atvinnuleysisstyrki, sem margar
social mmr
vindli er dásamleg.
(Þannig hugsar teiknari
The Daily Telegraph sér
móttökurnar hjá trygging-
unum).
virtust ritaðar með sömu hendi.
Honum tókst þó að sannfæra kon-
una um að það gæti ekki verið.
Loks komst upp um Deevy, og f
fyrri viku var hann dæmdur til
sex ára fangelsisvistar. Honum
fannst dómurinn þungur og segir
að réttara væri að nýta kunnáttu
hans og þekkingu með þvf að láta
hann um breytingar á trygging-
unum, sem komi í veg fýrir sams
konar afbrot f framtfðinni.
Derek Deevy
Olympíuskákmótið í Israel:
íslendingar
sitja heima
STJOKN Skáksambands (slands
samþykkti á fundi sfnum 15. júlí
s.l. að tilkvnna FIDE (alþjóða-
skáksambandinu) og Skáksam-
bandi Israels, að island myndi
ekki taka þátt f Olympiuskákmót-
inu að þessu sinni, jafnframt þvf
sem hún harmaði þau pólitfsku
átök, sem orðið hafa f sambandi
við mótið.
Aðalstefnumál núverandi
stjórnar S.Í., er að efla og byggja
betur upp skáklífið hér innan
lands, sérstaklega út á lands-
byggðinni, m.a. með því að auka
skáktengsl milli byggðarlaga, og
jafnframt því að gefa okkar efni-
legustu skákmönnum tækifæri til
þátttöku i mótum og æfingabúð-
um í nágrannalöndunum.
Með því að ekki er hægt að gera
alla hluti i einu, telur stjórn S.í.
að það sé óráðiegt að kippa stoð-
unum undan knöppum fjárhag
Skáksambandsins, með því að
senda þátttökusveit i kostnaðar-
samt ferðalag á Ólympíuskákmót-
ið í Haifa í ísrael nú í haust, en
slík mót eru haldin á 2ja ára
fresti.
Þá telur stjórnin það nokkurn
ábyrgðarhluta að stuðla að ferð-
um manna á þessar slóðir, jafnvel
i andstöðu fjölskyldna þeirra eða
foreldra, með tilliti til þess ófrið-
arástands sem nú rikir fyrir Mið-
jarðarhafsbotni, en Haifa er
skammt frá landamærum ísraels
og Libanons, auk þess sem komið
hefur fram að okkar sterkustu
skákmenn eru lítt hrifnir af áð
tefla á þessum slóðum eða geta
Hollend-
ingur sýn-
ir í S.Ú.M.
I GALLERÍ S.tJ.M. við
Vatnsstíg stendur nú yfir
sýning á verkum eftir Hol-
lendinginn Kees Visser.
Verkin, ljósmyndir, teikn-
ingar og textar, hefur hann
öll unnið á s.l. ári. Þetta er
fyrsta einkasýning Kees
Vissers, en hann hefur áð-
ur tekið þátt í samsýning-
um í Hollandi. Sýningin er
opin alla daga á milli
16.00—22.00 fram til 31.
júlí.
Hollendingurinn Kees Visser við
eitt verka sinna.
ekki komið þvi við af ýmsum
ástæðum.
Við þetta bætist ennfremur að
varla verður sagt að motð fari
fram i neinum sérstökum Ölym-
píuanda, þar sem sterkasta skák-
þjóð heims, Sovétríkin, hefur
neitað að taka þátt I mótinu, og
líklegt að nokkrar austantjalds-
þjóðir fari að dæmi þeirra. Þá
efna arabalöndin til sérstaks
Ólympíumóts i Líbiu á sama tima,
tii að andæfa mótinu i israel. Þvi
er ljóst að hér verður ekki um
fullgilt Ólympíumót að ræða, seg-
ir að lokum í fréttatilkynningu
frá Skáksambandinu.
Jóhanna sýnir í Eyjum
JÓHANNA Bogadóttir listmálari
opnar sýningu á verkum sínum,
30 grafikmyndum, í Félagsheimil-
inu í Vestmannaeyjum kl. 3 n.k.
laugardag. Sýning Jóhönnu verð-
ur opin í fjóra daga, en þetta er
fjórða sýning hennar í heimabæ
sínum, Vestmannaeyjum. 1 vor og
sumar hefur Jóhanna einnig sýnt
I Reykjavík og á tveimur stöðum
úti á landi. Þá tekur hún þátt í
alþjóðlegum grafiksýningum og
um árabil hefur hún sýnt á sam-
sýningum hér heima og erlendis.
r
I varðhaldi á Keflavíkurvelli:
Grunur um smygl á
hljómtækjum og áfengi
KARL og kona bæði banda-
rísk sitja nú í gæzluvarð-
haldi hjá lögreglunni á
Keflavíkurflugvelli, grun-
uð um að hafa smyglað all-
miklu af hljómburðartækj-
um og áfengi út af Kefla-
víkurvelli.
Það var síðdegis á sunnu-
dag, sem skötuhjúin voru
handtekin eftir húsrann-
sókn hjá þeim. Að sögn
Ólafs Hannessonar, full-
trúa lögreglustjóra á
Keflavíkurflugvelli fund-
ust heima hjá þeim ýmiss
konar hljómburðartæki og
áfengi, fram yfir það sem
eðlilegt er að fólk noti á
heimili sínu. En þar sem
rannsókn málsins er enn á
frumstigi sagði Ólafur að
ekki væri hægt að segja
neitt um hvort hér væri
um stórfellt smygl að ræða
og hve lengi hjúin hefðu
stundað þessa iðju sína.