Morgunblaðið - 22.07.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JULl 1976
21
Kenndí sjálfri
sér íslenzku
Sigrtður Einarsdóttir Laxdal
HÉR á landi er nú stödd
Sigríður Einarsdóttir
Laxdal og er það í fyrsta
skipti sem hún kemur til
íslands þótt hún sé
alíslenzk. Sigríður hefur
alið allan aldur sinn í
Bandaríkjunum en hún
er fædd 1903.
Foreldrar hennar voru
Einar Magnússon f. í
Reykjavík og Margrét
Sigurðardóttir frá
Garðbæ. Maður
Sigríðar Laxdal var
Daníel Jónasson og
voru foreldrar hans
búsett í Bandaríkjunum,
en Daníel var frá
Laxardal á
Skógarströnd. Þau hétu
Jónas Jóhannesson og
Guðríður Daníelsdóttir
og tóku sér eftirnafnið
Laxdal þegar þau
fjuttust til
Bandaríkjanna.
Sigríður er hér á ferð
ásamt syni sínum og
tengdadóttur og tveim
börnum þeirra og litu
Morgunblaðsmenn við
hjá þeim nú í vikunni og
ræddu við Sigríði:
„Við hjónin erum bæði
fædd i Blaine i
Washingtonfylki og búsett i
Bellingham. Við höfum aldrei
komjð til íslands og var ég
farin að hlakka mjög til
þessarar ferðar, en maðurinn
minn hefur verið sjúklingur
og lézt hann fyrir ári. Ég
talaði alltaf islenzku við
foreldra mína en smám
saman gleymdi ég henni
þegar ég talaði hana minna,
en nú hef ég lært hana aftur.
Ég lærði hana mest sjálf en
ég get ekki skrifað hana neitt
að ráði.
Við erum eiginlega komin
hingað til að hitta eitthvað af
ættingjum okkar en við
vitum ekki hvar við getum
náð til þeirra. Sonur minn og
fjölskylda hans ætla að
ferðast svolítið um landið og
við ætlum saman austur fyrir
fjall. Annars er ég ekki
dulglega að ferðast nú orðið.
Síðan er ráðgert að við
höldum áfram og förum til
Danmerkur og Svíþjóðar og
víðar um Evrópu."
Ekki var hægt að finna það
á máli Sigríðar að hún hefði
aldrei til íslands komið, að
vísu vantaði hana orð og orð
og ekki var laust við hreim í
framburðinum, en það er
engin furða þegar það er haft
í huga að hún er nú i fyrsta
skipti á íslandi.
,,Já, ég vonast til að geta
náð tali af ættingjum minum
og mannsins míns og ef
einhver þeirra skyldi frétta af
okkur þá er hægt að fá
upplýsingar um okkur hér á
Hótel Holt. En sonur minn og
fjölskylda hans fara eins og
ég sagði áðan i smáferðalag
út á land og ætla þau meðal
annars að reyna að komast
vestur á Snæfellsnes, á
Skógarströndina þar sem
foreldrar mannsins mins
ojuggu.
Tengdadóttir mín og ég
höfum mikinn áhuga á
blómum og við ætlum að
skoða nokkuð plöntulif í
íslenzkri náttúru og
maðurinn minn hafði einnig
mikinn áhuga á blómum.
Hann.var i 45 ár hjá Great
Northern Railroad. Við fórum
i mörg ár reglulega i
heimsókn á elliheimili i
Blaine, sem heitir Stafholt og
þar spilaði hann við mennina
og hugaði að blómunum
meðan ég sinnti ýmsum
erindum fyrir gamla fólkið."
Vann Mazda
í happdrætti
VINNINGUR i happdrætti
Blindrafélagsins, sem er bifreið
af tegundinni Mazda Coupé 818
árgerð 1976 hefur verið sóttur.
Kom hann á miða nr. 28883 og er
eigandi miðans Heiðar M. Vil-
hjálmsson, Seljabraut 40, Reykja-
vík.
Sjálfstæðis-
knall í
Stykkishólmi
Stykkishólmi. 20. júlf.
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna
á Snæfellsnesi var haldið s.l.
laugardag í hinu glæsilega félags-
heimíli f Stykkishólmi. Ræðu-
menn voru Matthfas Á. Mathiesen
f jármálaráðherra og Jón Árnason
alþingismaður, sem ræddu við-
horf f stjórnmálum f dag.
Skemmtiatriði voru fjölbreytt
og mjög vönduð. Hæst bar þar
söngvarana Kristin Hallsson og
Magnús Jónsson, sem sungu
þarna af sinni alkunnu snilld
bæði einsöng og tvísöng. Þá var
Jörundur með gamanþætti, sem
tókust mjög vei og mér sýnist
Jörundur vera i sókn. Hljómsveit-
in Næturgalar lék undir söng
þeirra félaga og tók einnig nokk-
ur lög, en sfðan léku þeir fyrir
dansi um kvöldið.
— Fréttaritari.
Afhenti
trúnaðarbréf
í Póllandi
HINN 17. júlf sl. afhenti Arni
Tryggvason Henryk Jablonski,
forseta rfkisráðs alþýðulýðveldis-
ins Póllands, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands f Pól-
landi.
Þorvaldur Guðmundsson for-
seti Norrænna veitingahúsa
A SÍÐASTA ársþingi Nordisk
Hotel- og Restaurantforbund var
Þorvaldur Guðmundsson forstjóri
kjörinn forseti norræna sam-
bandsins fyrir starfstfmabilið
1976/1977.
Á ársþinginu, sem að þessu
sinni var haldið dagana 14.—16.
júnf í Helsingfors, mættu sem
fulltrúar Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda, auk Þorvalds,
þau Erling Aspelund hótelstjóri
og Hólmfrlður Árnadóttir,
frkvstj. S.V.G.
A ársþinginu voru rædd og af-
greidd margháttuð málefni, sem
snerta hagsmuni veitinga- og
gistihúsa á Norðurlöndunum, svo
og þjónusta við ferðamenn.
Meðal mála sem þannig voru
afgreidd var áskorun til norður-
landaráðs um að það beitti sér
fyrir þvi að reglur um leiguflug á
milli Norðurlanda yrðu gerðar
frjálsari og þannig stuðlað að
auknum f.élagslegum tengslum á
milli norðurlandabúa.
Ennfremur var mælt gegn
flokkun gistihúsa á norðurlönd-
um, skv. þeim reglum, sem nú eru
til umræðu f nefnd þeirri, sem
starfar á milli þinga norðurlanda-
ráðs.
Þá var rædd nauðsyn þess að
samræma menntunarkröfur fag-
fólks f stéttum matreiðslu- og
framreiðslumanna á Norðurlönd-
um, afstaða vinnuveitenda til
starfskjara og samræming á því
sviði o.fl.
I fundarlok fór fram kjör for-
seta norræna sambandsins næsta
starfstímabil, og var Þorvaldur
Guðmundsson kjörinn forseti.
Aðalskrifstofa sambandsins
hefur nú aðsetur í Oslo og er
aðalritari N.H.R.F. Kjell B. Einar-
sen, sem jafnframt er fram-
kvæmdarstjóri fyrir samband
norskra veitinga- og gistihúsaeig-
enda.
Næsta ársþing Nordisk Hotel-
og Restaurantforbund er ráógert
að halda á islandi 13.—15. júní
1977.
R. Goodwin aðalframkvæmdarstjóri Johns-Manville Corp. I U.S.A.
afhendir Vésteini Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar
h.f. viðurkenningu fyrir góðan árangur I starfi, hvað varðar lága
slysatíðni meðal starfsmanna. Ljósm. Mbl. Spb.
U
Já, það er staðreynd að nú er rauða rósin ekki lengur grá
— hún er eðlilega rauð í PHILIPS litsjónvarpstækjum.
Pau sýna þér eðlilegustu litina. Heimilistæki sf. býður þér
fullkomna þjónustu og sérþjálfaða viðgerðarmenn.
PHILIPS kann tökin á tækninni-
heimilistæki sf
Sætúni 8 — Hafnarstræti 3
tÆmnfýrið
um rauðu rósina
PHILIPS