Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JULl 1976 27 Hjalti Lýðsson forstjórí—Minning F. 2. apríl 1900. D. 16. júlí 1976. Samskipti manna og vináttutengsl eru oft næsta tilviljanakennd. Svo var og með kynni okkar Hjalta, en árið 1944 urðum við sambýlismenn, þegar ég leigði íbúð í húsi hans við Snorrabraut hér í borg. Ekki þekktumst við persónulega, en ég hann þó af orðspori og aðeins að góðu. Það leið því ekki langur tími þar til með okkur og fjölskyldum okkar tókust hin ánægjulegustu kynni og síðar vinátta, sem ekki hefir borið skugga á nú yfir þrjátíu ár. Hjalti bar í mörgu mót þeirra manna, sem nú eru oft taldir til aldamótakynslóðarinnar svonefndu, en þá er jafnan undanskilið, að þessir menn hafi haft það til síns ágætis að vera menn hins nýja tima, bjartsýnir, ótrauðir að leggja hönd á plóginn og reiðubúnir að vinna landi og þjóó allt það gagn, sem þeir frekast máttu. Ætt, uppruni og allt starf Hjalta staðfestir þetta. Hann er fæddur 2. apríl, aldamótaárið 1900. Að honum stendur traust og dugmikið bændafólk, einkum úr byggðum Rangárþings: Faðir Hjalta var Lýður Árnason, bóndi á Hjallanesi, Árnasonar, bónda á Skammbeinsstöðum í Holtum, Finnbogasonar, bónda á Galtalæk á Landi, Þorgilssonar, bónda á Reynifelli á Rangárvöllum. Árni, afi Hjalta, átti Ingigerði Guðmundsdóttur hins ríka á Keldum, Brynjólfssonar í VestraKirkjubæ, Stefánssonar í Árbæ, Bjarnasonar á Víkingslæk (Víkingslækjarætt). Móðir Hjalta var Sigríður Sigurðardóttir, bónda I Saurbæ og Haga í Holtum, Sigurðssonar, prests í Guttormshaga, Sigurðssonar, prests í Reynisþingum, Jónssonar, en kona séra Sigurðar í Guttormshaga var Sigríður Jónasdóttir, prests i Holti, systir Steingríms biskups i Laugarnesi. Eins og af þessu sést á Hjalti til góðra að telja í báðar ættir. Margir ættmenn hans voru á sínum tima annálað dugnaðarfólk og er því ekki langt að leita hvaðan Hjalta kom sá dugnaður og atorka, sem jafnan einkenndi hann og starf hans. Foreldrar Hjalta eignuðust 12 börn, 10 syni og tvæ dætur og eru nú aðeins tvö á lífi: Kristín og Kristinn. Samheldni var jafnan mikil með þeim systkinum öllum og gagnkvæm hjálpsemi talin sjálfsögð. Svo sem að líkum lætur var Hjalta snemma haldið til vinnu, eins og títt var um unglinga í sveit á þeim tíma. Árið 1916, eða þegar hann var 16 ára, varð breyting á högum hans. Hann fluttist þá til Reykjavíkur. Réðst hann þá ársmaður til Emil Rogstads, n' . 3 manns, sem á þeim árum h \ hér margháttaða umsýslu og búskap. í þessari vist dvaldi hann um fimm ára skeið. Ekki flutti Hjalti með sér í hin nýju heimkynni digran sjóð, en hann hafði með sér annað veganesti, sem ekki var minna um vert: athafnaþrá, dugnaður og vinnusemi’ var honum í blóð borið. Vistin hjá Rogstad reyndist honum hollur skóli. Kom hann þar í nýtt umhverfi og sá þar og lærði margt, sem honum var áður fratnandi, en horfði þó augljóslega til framfara og til hagsbóta landi og lýð. Hann kynntist þar einnig ýmsum útlendingum, einkum norðmönnum, sem forvitnilegt var að blanda geði með. Allt hafði þetta mikil áhrif á hinn unga mann og hvatti hann til dáða. Varð það til þess, að árið 1921 sigldi hann til Noregs og hugðist kynija sér niðursuðu á fiski og reykingu á matvælum. Sýnir þetta m.a. framsýni og hugkvæmi Hjalta, því að það er fyrst áratugum síðar að farið er að taka þetta nauðsynjamál alvarlegum og föstum tökum. I Noregi dvaldist Hjalti á annað ár, aðallega i Fredriksstad og í Haugasundi og kynnti sér og starfaði að þessum málum. Þegar heim kom setti hann á fót fyrirtæki, sem hafði það verksvið að vinna úr fiski, sjóða og leggja niður síld o.fl. Hjalti er því meðal þeirra fyrstu, sem kom auga á mikilvægi þessarar atvinnugreinar og gerði tilraun til að byggja upp þessa starfsemi. En hér átti hann við margvíslega erfiðleika að stríða, m.a. féleysi o.fl. Þessari tilraun hans lauk því eftir nokkur ár með því að hann snéri sér að kjötvinnslu og sölu á kjöti. Rak hann um langt árabii þrjár kjötverslanir hér í borg. Kostaði hann jafnan kapps um að hafa góða vöru á boðstólum, enda blómguðust verslanir hans og nutu almennrar hylli borgarbúa. Þessa minnast enn margir, en hitt má jafnframt gjarnan hafa í huga, að hann var einn þeirra fyrstu, sem hóf tilraun til að koma hér á fót vísi að lagmetisiðnaði, sem nú loks er að verða einn af meiriháttar þáttum íslensks efnahagslífs. Eftir lok síðari heimsstyrjaldar snéri Hjalti sér að nýju verkefni. Réðst hann í að koma á fót og reka kvikmyndahús (Stjörnubió). Var þetta verkefni að vísu næsta frábrugðið því, sem hann áður hafði sinnt. En það er skemmst frá að segja, að fyrirtæki þessu vegnaði vel og má hiklaust þakka það dugnaði, árvekni og hyggni forstjórans. Samstarf hans við aðra starfsfélaga á hinum nýja vettvangi var gott og var hann þar metinn að verðleikum, m.a. átti hann um árabil sæti í stjórn Félags kvikmyndahúsaeigenda. Hjalti hafði fyrir nokkrum árum látið af forstjórastörfum hjá fyrirtækinu, en við hefir tekið tengdasonur hans Þorvarður Þorvarðarson, og ér ekki annað séð, að stjórn fyrirtækisins sé í góðum höndum. Hjalti var hamingjumaður í einkalífi. Árið 1927 kvæntist hann heitmey sinni, Elvíru, f. Edwardsen, norskrar ættar frá Frederiksstad, mikilli mannkostakonu. Var sambúð þeirra farsæl og til fyrirmyndar. Frú Elvíra er mikil húsmóðir og bjó hún manni sínum og börnum fagurt heimili. Þau eignuðust þrjú börn: Viktor, bifreiðarstjóra kvæntur Elínu Pálmadóttur; Erlu, gift Þorvarði Þorvarðarsyni forstjóra og Unni gift Karl F. Schioth flugstjóra. Barnabörnin eru 9 og barnabarnabörn þrjú. Elvíra og Hjalti voru mjög samhent. Auk þess að styðja að velferð barnanna áttu þau eitt sameiginlegt áhugamál. Þau létu sig jafnan kirkju- og kristindóm miklu skipta. Þá studdu þau ötullega kristniboðsstarf, bæði hér heima og í fjarlægum Iöndum. Var það augljóslega þeirra hjartansmál. Hjalti var alla tíð mikill eljumaður og svo starfsamur á yngri árum, að hann lagði oft nðtt með degi, ef svo mætti segja. Hvíldar unni hann sér þó, einkum á síðari árum, en það var þá einnig fólgið í starfi. Hann átti bústað og land hér í nágrenni Reykjavikur, nálægt Elliðavatni, rétt við jaðar Heiðmerkur. Þetta land ræktaði hann, gróðursetti þar blóm og tré og prýddi á margvíslegan hátt. Er þar nú einn sérkennilegasti reitur í nágrenni borgarinnar m.a. vegna þess, sem þar er að finna, auk blóma, trjáa og höggmynda, margvíslega lit hraungrýtisbjörg, sem bjargað hefir verið þangað frá Rauðhólum, eftir að þeir á sínum tíma voru eyðilagðir fyrir skammsýni manna. Þarna undi Hjalti sér öllum stundum. Þar var hans sælustaður, hans „Grænahlíð". Undanfarin ár átti Hjalti við allmikla vanheilsu að stríða, Hafði hann þá stundum á orði, að þegar hann kveddi þennan heim, mætti það gjarnan vera á þessum sælureit. Honum varð að ósk sinni. Hann andaðist i sælureit sínum „Grænuhlið" aðfaranótt 16. júlí lí(76. Ég sem þessar linur rita, hafði eins og áður segir, náin kynni og vináttutengsl við Hjalta og fjölskyldu hans yfir þrjátíu ár. Við hjónin sjáum því á bak góðum og tryggum vini, nú er leiðir skilja. Okkur er þakklæti efst i huga, er við vottum frú Elvíru og börnum hennar innilega samúð okkar og biðjum guð að blessa þeim minninguna um ástríkan eiginmann og góðan föður. Oddur Friðjónsson. Örfá minningarorð. Kempa er hnigin í valinn. Hjalti Lýðsson forstjóri andaðist snemma dags þann 16. þ.m., 76 ára að aldri. Þessi fregn kom ekki á óvart þeim er þekktu til, því að Hjalti hefur verið árum saman sjúkur maður þó að hann vildi ekki láta mikið á því bera, enda var hann karlmenni mikið og ókvalráður. Samt hnykkti mér við er ég heyrði þessa helfregn, en þvi mun sjálfsagt hafa valdið vinátta okkar Hjalta. Ég á bágt með að hugsa mér hann riðinn á braut á hinum bleika gandi. Svo verður þó að vera. Hjalti var aldamótabarn, fæddur 2. apríl árið 1900 austur í Rangárvallasýslu, að Hjallanesi i Landssveit. Hann var einn tólf systkina svo nærri má geta að ekki var mikill auður í garði, — vel að merkja veraldlegur auður. Um þann hinn andlega auðinn segir löngum minna, en af kynn- um mínum við Hjalta og þau syst- kina hans, er ég hef kynnst, dreg ég þá ályktun að þau Hjallanes- börn hafi verið vel búin að heiman, að því er snertir dugnað og trúmennsku og ódrepandi áhuga á því að kömast áfram, eins og löngum er sagt. Þau áttu líka til góðra að telja. Foreldrarnir voru sóma og dugnaðarfólk af at- gervis og gáfuættum. Hjalti fór ungur að heiman, að- eins 16 ára, fluttist þá hingað tii Reykjavíkur og dvaldist þar æ síðan. Hann fór í vinnumennsku til Emils Rogkstað, sem á þeim tíma bjó á Bjarmalandi í Reykja- vík og hafði mörg járn í eldi. Hjalti sagði mér að þá hefði hann þrælað mest á ævinni og slitnað mjög um aldur fram, en hann var kappsfullur og dró hvergi af sér. Taldi hann sig bera menjar þessarar vistar ævilangt. Á þess- um árum kynntist Hjalti norskum manni, Niels Fjeldberg, frá Fredrikstad i Noregi. Þetta varð til þess að Hjalti fór til Noregs að áeggjan þessa vinar sins og kynnti sér niðursuðu matvæla og reykingu á fiski og kjöti. Þegar heim kom starfaði hann um skeið að þessum málum en setti síðan á stofn kjötverslun og vann við hana lengstan kafla ævi sinnar. En Hjalti sótti meira til Noregs en þekkingu á meðferð matvæla. Þangað sótti hann einnig sína elskulegu konu, Elvíru, frænku áðurnefnds Fjeldbergs, en hún á nú um sárt að binda, þegar ást- vinurinn er fallinn frá, en í örm- um hennar dó hann. Árið 1949 keypti Hjalti ásamt öðrum Stjörnubíó og gerðist for- stjóri þess þar til nú fyrir skömmu að tengdasonur hans, Þorvarður Þorvarðarson tók við, er sjúkleikinn gekk á Hjalta. Okkar kynni hófust um þetta leyti og urðu nánari með hverju ári uns nú að tjaldið er dregið fyrir. Af þessum kynnum man ég ekk- ert nema gott eitt. Hjalti var mik- — Voru það óhlutdræg vinnubrögð? Framhald af bls. 25 verið, og þannig mun það sennilegast verða svo lengi sem mannkynið endist, og varla mun spurningunni svarað ! nútimanum frekar en fyrr. Hins vegar er nauðsynlegt að standa vörð um og tryggja tengsl við gamlan arf, það skapar án efa betra jafnvægi I óumflýjanlegri framþróun og breytingu allra hluta D.H.F. segir réttilega, að menning spanni vitt Við upptalningu hennar freistast ég til að bæta t.d húsa- og áhaldagerð — Torfkofar og steináhöld eru liðin menningarskeið — Dóra Frodesen lýkur grein sinni með þeirri von, ,.að sem fæstir útlendingar hafi lesið og skilið greinina frá Árósum Þvi það, að íslendingar séu ið tryggðatröll og vinur vina sinna. H:nn var kappsfullu.f' maður en þó sanngjarn og sáttfús og vildi hvers manns vandræði leysa. Með dugnaði, mikiljý vinnu og ósérhlifni komst hann í góð efni, en peningar voru honum ekkert markmið í sjálfu sér. Hann mundi að vísu þá sáru fátækt, sem hann bjó við í a»sku og vildi ekki lifa þá daga á ný, en mesta gleði hans var að hlúa að börnum sín- um og vandamönnum bæði efna- lega og á annan hátt og munu fáir leika eftir. Á sambúð hans og hans norsku konu féll aldrei nokkur skuggi að kunnugra manna sögn. Mér er næst að halda að hann hafi verið jafn ástfang- inn af henni við leiðarlok og í upphafi vegar. Hjalti og Eivira eignuðust þrjú börn, einn son og tvær dætur, sem öll eru nýtir þegnar í þjóð- félaginu. Hjalti reisti sér sumarbústað fyrir ofan Elliðavatn. Þar hefur hann unað sér best að hann sagði mér. Þar hefur hann plantað margvíslegum plöntu og trjá- gróðri, flutt til „Grettistök" til að skýla gróðrinum og skapað unaðs- reit. Afkomendur Hjalta verða nú að taka við að prýða þennan stað, því blóma og trjágarður hans má ekki undir nokkrum kringum- stæðum verða eyðingunni áð bráð. Hann undi sér þar best og þar lauk ævi hans í faðmi eigin- konunnar við ris miðsumarssólar. Ég votta Elvíru og börnum þeirra hjóna og vandamönnum öllum mína dýpstu samúð. Missir- inn er mikill en mikils var líka notið um langa ævi. Friðfinnur Ólafsson. „Kkkorl líf án dau<)a. on^inn dauði án lífs '. Enn á ný hefur verið höggvið stórt skarð í hóp systkinanna frá Hjallanesi svo nú lifa aðeins tvö af tólf systkinum. Við fráfall Hjalta hverfur af sjónarsviðinu mikill atkvæðamaður og frum- herji á ýmsum sviðum viðskipta- lífsins, en mér er þó efst í huga mannkostir hans og góð frænd- semi. Hjalti fæddist inn í þá öld sem hóf land og þjóð úr örbirgð til efna, úr ósjálfstæði til sjálfstæðis, og hann tók virkan þátt i þessari breytingu, barðist hörðum hönd- um gegn hvers konar örðugleik- um og sigraði með dugnaði sínum og drengskap. — Eitt sinn spurði ég Hjalta hvað hefði orðið honum erfiðast á lífsleiðinni og hann svaraði að það hefði verið þegar hann á fermingaraldrí réðst til bróður síns, sem þá hóf búskap að Mykjunesi í Holtum. Bróðir hans fór til sjóróðra um haustið og kom ekki heim fyrr en eftir sumarmál og varð því Hjalti að sjá einn um búið, með litlum heyfeng og hörð- um vetri. Ég held þetta hafi verið erfiðasta tímabil ævi minnar, að halda lífi í skepnunum og komast yfir þau verk sem gera þurfti, sagði Hjalti. I umsvifum viðskiptalífsins hættir mörgum til að fjarlægjast önnur markmið, en Hjalta var ekki svo farið. Ættir hans standa föstum rótum austan heiða og hann fylgdist vel með málum þar, og átti þar marga vini. Hann var og allra manna hjálpsamastur og studdi það sem honum þótti til framfara horfa eða mannbóta. Sjálfur varð ég oft aðnjótandi hjálpsemi hans og hef ég vart fyrir hitt hreinskiptari mann og víst var um það, að handsöl hans voru haldbetri en margir löggiltir samningar virðast vera nú til dags. Hjalti eignaðist norska konu, Elvíru, sem lifir mann sinn. Þau eignuðust þrjú börn, sem öll eru á lífi og gift. Hann naut umönnunar þessara barna sinna, tengdabarna og barnabarna, og hin síðari ár kom það sér einkar vel því heilsu hans tók að hraka, enda starfsdag- ur orðinn langur, og Hjalti kunni ekki að hlífa sér. Sérstaklega vil ég minnast um- önnunar Elviru, sem var einstök. Hún þurfti oft að halda aftur af Hjalta, svo hann ofgerði ekki sjálfunt sér, því hugur hans og vinnugleði var ekki í réttu hlut- falli við heilsu. Þetta hlutverk hennar ntun oft hafa verið erfitt. Þótt starfssvið Hjalta væri bundið Reykjavík stóð hugur hans einnig til sveitarinnar og fljótlega byggði hann sér sumar- hús á afgirtri landspildu hjá Elliðavatni. Þarna var griðastað- ur hans og þangað fór hann öllum stundum einn eða tneð fjölskyldu sinni og þangað var gaman að koma í heimsókn. í sumar er leið komum víð hjón- in þangað sem oftar og ég minnist þess er Hjalti gekk með okkur um þennan fagra og sérkennilega reit sinn, ræddi um fyrirhugaðar framkvæmdir, hvenær elztu trén voru gróðursett og hvert hraun- drangarnir voru sóttir. Að síðustu fór hann með okkur 'útsýnisturn- inn þaðan sem sér vítt til fjalla. Þótt ekki séu það sömu fjöllin og gleðja augun í Landssveit, voru þau augnayndi. Þessi paradís Hjalta bar hug hans og hand- bragði vitni. Þarna sem áður var óræktarmói og grýttur, er nú alls kyns gróður. Hjalti var maður gróandans i lífi sínu og hann kveður þennan heint er allur gróður jarðar stendur i blóma og einmitt i þessari paradís, sem honum var svo kær, og í örmum konu sinnar, sem reynst hafði honum umhyggjusamur og góður förunautur. Við hjónin þökkum af alhug hjálpsemi og vinarhug Hjalta um leið og við vottum konu ha-ns, börnum og venzlafólki dýpstti samúð okkar. Megi minningin vm góðan mann og föður létta s»rg ykkar. Bergsteinn SigurðssoB frá Hjallaaesi. að senda löndum sínum tóninn á þennan hátt -— það er að mirmsta kosti ekki góð landkynning Það er nú e.t.v. kvikindisháttur af mér að vekja sérstaka athygli á þessu niðurlagi D.H.F., þessari safariku rúsínu i pylsuendanum. En ekki gat ég varizt brosi. Ég held, að Dóra Frodesen geti alveg sofið róleg í þessari von sinni. Þvi, þótt Mbl sé um flest ágætis blað, þá held ég að öruggt megi telja, að það hafi ekki öðlast mikla útbreiðslu meðal erlendra þjóða. Ennfremur tel ég öldungis vist, að þeir ferðamenn, sem ísland kunna að hafa gist 24 aprírs I . hafi notað tima sinn til annarra hluta en glugga i og reyna að skilja það sem i Morgunblaðinu hefur staðið Hins vegar vakti þetta mig til umhugsunar, hversu vel D.H.F. kunni að fylgjast með almennum þjóðmálaumræðum á íslandi, t d daglegum skrifum ýmissa dagblaða Ef hún hefur einhverja hugmynd, hlýtur henni að blöskra endalaust landráðatalið um ýmsa góða syni þjóðarinnar, og vitiskvöl má það vera henni, ef tekið er útfrá landkynningarsjónarmiðinul! Væntanlega hefur heldur ekki farrfö framhjá Dóru Frodesen, að til eru íslendingar, sem, i fúlustu alvöru, senda löndum sinum svo óþverralegar kveðjur á prenti, að ekki eru etfrr hafandi, og skýla sér svo á bak við tjáningarfrelsi rithöfunda Hvað má segja um slika framkomu, slíkt framlag til islenzkrar menningar? Árósum, 19. júti, 1976 Páll Bragi Kristjónsson. Hreint íÉ&land fagurt land LANDVERND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.