Morgunblaðið - 22.08.1976, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.08.1976, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1976 Minning: Aðalheiður Benedikts- dóttir frá ísafirði Hún lést 12. þessa mánaðar á Landakotsspítala eftir langvar- andi sjúkleika og miklar þrautir siðustu daga ævinnar en hafði þó jafnan innt af hendi mikil störf, þrátt fyrir veika burði, allt fram til þess er kraftana þraut. Aðalheiður var fædd á ísafirði 29. sept. 1913 og hefði þvi orðið sextíu og þriggja ára innan fárra vikna ef lífið hefði treinst svo lengi. Fullt nafn hennar var Guðlaug Aðalheiður. Foreldrar hennar voru hjónin Benedikt Jónsson skipstjóri og Guðrún Jónsdóttir og höfðu um nokkur ár verið bú- sett á ísafarði en fluttust þaðan til Reykjavíkur árið 1923 og áttu heimili á Bókhlöðustíg 6 eftir það meðan ævin entist. Benedikt skipsjóri var sonur Jóns Benediktssonar er var lengi búsettur á Bildudal, formaður á fiskibát er hann sjálfur gerði út, en fluttist síðar til Reykjavikur og var þar fiskmatsmaður. Kona Jóns en móðir Benedikts skip- stjóra var Guðlaug frá Haukshús- um á Álftanesi, dóttir Halldórs sonar Jörundar á Hliði og konu hans Sigríðar Aradóttur frá Deild. Jón faðir Benedikts var einnig fæddur og uppalinn á Álftanesi en framætt hans að íöðurnum var norðan úr Húnavatnssýslu. Guðrún móðir Aðalheiðar var dóttir Jóns Runólfssonar í Arabæ hér i Reykjavik en hann var þriðji ættliður frá Snorra í Engey er kallaður var hinn ríki. Móðir Guð- rúnar en amma Aðalheiðar var Geirlaug Björnsdóttir Bjarnason- ar bónda i Káranesi í Kjós, Sig- mundssonar. Systur Aðalheiðar, dætur Benedikts skipsjóra og Guðrúnar konu hans, voru þær Geirlaug, kona Guðmundar Þ. Sigurðssonar fyrrv. útgerðar- manns, Regína, kona Baldurs Jónssonar Iþróttavallarstjóra, og Hulda er giftist norskum skip- stjóra, sem nú er látinn, en hún er búsett i Noregi áfram. Aðalheiður fór til Danmerkur laust eftir tvítugf, bæði til náms og starfs. Þar kynnist hún dönsk- um manni, Karli Jensen. Felldu þau hugi saman og giftust 1939, en það ár hófst síðari heims- styrjöldin er leiddi til hinna miklu hörmunga um nær allan heim og ekki síður fyrir dönsku þjóðina en aðrar þjóðir, bæði meðan hún geisaði og næstu árin á eftir, svo sem flestum er kunn-, ugt. Á þessum hörmungartímum styrjaldarinnar urðu þau hjónin, Aðalheiður og Karl, viðskila hvort öðru að fullu og er friður taldist á kominn fluttist hún heim til fóst- urjarðarinnar, ásamt þeim tveim sonum er þau höfðu eignast, en voru báðir kornungir þá. Voru þau öll á heimili foreldra hennar næstu árin. Nutu þau öll þar ást- ríkis og umsjár alls heimilisins eins og best var á kosið og stóð svo meðan hjónunum, foreldrum Að- alheiðar, entist aldur. Að sjálfsögðu fór Aðalheiður til t ALFRED HILMAR ÞORBJÖRNSSON trésmíðameistari lést 19 þ m. Fyrir hönd ástvina Kristín Sigurðardóttir Okkar ástkæri sonur og bróðir JÓN ÖRVAR GEIRSSON læknir sem lést af slysförum á Spáni þ 12 þ.m , verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24 ágúst kl 3 síðdegis Sólveig Jónsdóttir Geir G. Jónsson Marfn Sjöfn Geirsdóttir t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu MARÍU SVEINSDÓTTUR Þjórsárgótu 1 Steinunn Guðmundsdóttir Kristmundur Jónsson böm og bamabörn t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa MAGNÚSAR SKAFTFJELDS Steinunn Kristjánsdóttir Halldór Magnússon Jóhanna Guðmundsdóttir Sigríður Magnúsdóttir Hörður Ágústsson Magnús Magnússon Helga V. Magnússon og barnabörn t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför dóttur minnar og systur okkar GUÐBJARGARBJARNADÓTTUR Sérstaklega þökkum við starfsfólki Borgarsjúkrahússins, deild 6A mjög góða umönnun hinnar látnu í langri sjúkrahúsvist Bjami Marteinsson Guðlaug Bjamadóttir Hilmar Bjarnason Eðvarð Bjarnason Herborg Bjarnadóttir Agla Bjamadóttir Steingrimur Bjamason Magnús Bjarnason starfa utan heimilis jafnskjótt og drengir hennar stækkuðu og þroskuðust og fóru að sjá um sig meira sjálfir. Var hún allmörg ár við afgreiðslustörf i verslun en síðustu fimmtán árin vann hún á skrifstofu Fiskifélags íslands. öll störf sín, hvar sem hún var, innti Aðalheiður af hendi með áhuga og samviskusemi og lét lítt á því bera að þrekið samsvaraði ekki alltaf viljanum til starfsins og lönguninni að koma því áfram er fyrir lá og mátti ekki úr hömlu dragast. Synir Aðalheiðar, sem áður var getið, heita Leifur og Finnur og eru fyrir löngu orðnir fulltíða menn. Þeir eiga sitt eigið heimili, eru báðir kvæntir menn og bú- settir hér i borginni. Kona Leifs er Björk Jónsdóttir en kona Finns er Guðrún Helgadóttir. Leifur er bifreiðarstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavikur en Finnur, sem einn- ig hefur verið bifreiðarstjóri, Minning: Andrés Sigurðsson F. 10. febrúar 1957. D. 14. ágúst 1976. Þó að við gerðum okkur fulla grein fyrir þvi, að Addi frændi gæti kvatt þennan heim þá og þegar, var fregnin um lát hans jafnsár og óvænt fyrir því. Vegna sjúkdóms hans var hann bundinn hjólastól meirihluta ævi sinnar og þannig munum við eftir honum. Það var undravert þrek og æðruleysi, sem hann sýndi I sín- um veikindum, t.d. þegar við krakkarnir vorum að leik og allt á ferð og flugi I kringum hann, en hann bundinn við sinn stól. Einn- ig kom þrek hans fram í því, að þótt hann væri sárþjáður þá kvartaði hann ekki, en orðaði það svo, að hann væri latur. Hann var framúrskarandi minnugur og átti gott með að læra og svo reglusamur um alla hluti, að stundum þótti okkur nóg um. Snyrtimennska hans og reglusemi kom m.a. fram i umgengni hans við frímerkjasafn sitt og því, að hver hlutur átti sinn stað og hann sætti sig ekki við annað en að þar væri hluturinn. Minni hans og eftirtekt var slík, að ef eitthvað týndist eða menn greindi á um frétt í blaði eða útvarpi, þá var bara að spyrja Adda, hann vissi hvar hlutirnir höfðu verið lagðir og hann hafði tekið eftir hvað var I fréttum. Hann fór nokkrum sinnum á sjúkrahús og i einni sjúkraferð- inni kynntist hann vini sínum Jóa. Hann var bundinn hjólastól eins og Addi og er ábyggilegt að kynni þeirra voru þeim báðum mikils virði og var oft gaman að hlusta á þá ræðast við. Hann hafði mjög gaman af tafli og spilum og var ósjaldan slegið i RAFBÚÐIN AUÐBREKKU Lokað vegna jarðarfarar mánudaginn 23. ágúst t Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNIRAGNAR MAGNÚSSON prentari Amtmannsstfg 6 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24 ágúst kl 10.30 f.h Dætur, tengdasynir og bamabörn + Bálför föður okkar KRfSTJÁNS DÝRFJÖRÐ rafvirkjameistara SkúlaskeiSi 16. HafnarfirSi fer fram t Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. ágúst kl. 13,30 Synir hins látna t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar ÞÓRU S. ÞÓRÐARDÓTTUR frá Litla Hrauni Kolbeinsstaðahreppi Sigurður Magnússon Ástrfður Magnúsdóttir t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér samúð og vinarhug við andlát og útföreiginkonu minnar GUÐRUNAR ÞÓRÐARDÓTTUR Efstasundi 45 Sérstaklega þakka ég fyrir þá miklu hjálp við útförina Einnig þakka ég fyrir þau mörgu minningarkort og falleg blóm og kransa Guð blessi ykkur öll Gisli Ólafsson stundar nú önnur sjálfstæð störf. Eftir að þeir synir Aðalheiðar voru komnir í full störf og höfðu eignast sín eigin heimili bjó hún út af fyrir sig og sá að öllu leyti um heimili sitt af sömu hirðusemi og myndarskap sem henni var lag- ið og hafði sýnt I öllum öðrum störfum. Hennar er saknað einlæglega af þeim er henni kynntust, þó vandalausir séu. Að sjálfsögðu hafa þeir sem nákomnastir henni voru mest að syrgja, svo sem synir hennar og systur þrjár, börn þeirra og tengdafólk. En jafnan er ánægjulegt góðs og góðra að minnast. Ég votta þeim öllum og öðrum vandamönnum Aðalheiðar fyllstu samúð og bið þeim heillaríkrar framtiðar. Jón Ivarsson. siag, pegar vio KraKkarnir komum saman heima hjá honum eða okk- ur. Þannig átti hann margar sól- skinsstundir, en stærsti geislinn mun þó hafa verið Siggi litli systursonur hans. Hann var nákvæmur með það, að ekki væri verið að koma við stólinn hans, en Siggi mátti príla á honum og var greinilegt að barnið fann hjarta- hlýjuna og hændist að honum. Addi þurfti mikla umönnun og þolinmæði og hlaut hvort tveggja í rikum mæli hjá foreldrum sin- um og systkinum. Vitaskuld var hlutur Dídíar frænku þar stærst- ur. Var furðulegt það þrek og jafnaðargeð, sem hún sýndi í öll þessi ár, þvf stundum gat Addi verið dálitið erfiður, en aldrei heyrðist æðruorð frá henni og samband þeirra var svo náið, að næstum virtist sem þau gætu les- ið hugsanir hvor annars. Andrés var næst elstur hjón- anna Sigriðar Andrésdóttur og Sigurðar R. Guðjónssonar, Bjarn- hólastíg 13, Kópavogi. Systkini hans eru: Áslaug, gift Árna Sveinbjörnssyni, og bræðurnir Rikharð og Sigurjón. Um leið og við ljúkum þessum fátæklegu kveðjuorðum um ást- kæran frænda, biðjum við góðan guð að veita foreldrum, systkin- um og öðrum ættingjum blessun sína og huggun. Minning um góð- an dreng mun lifa. Bryndfs og Auður Þökkum innilega auðsýnda sam- úð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður PÁLS RÖGNVALDSSONAR Hólmgarði 56 Ása Bjömsdóttir böm og tengdaböm t þprgeir guðmundsson Digranesvegi 38 Kópavogi er lést 14 ágúst, verður jarð- sunginn þriðjudaginn 24 ágúst kl 3 frá Kópavogskirkju Blóm og kransar afþakkað en þeir sem vildu minnast hans vinsamlega láti Slysavarnafélagið njóta and- virðt þess Jóhanna Gunnars Flosi Þorgeirs Herdfs R. Þorgeirs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.