Morgunblaðið - 28.08.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976
29
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Manndráp við
hæfi barna?
Ólöf Einarsdóttir skrifar:
„Á sumrin er aðeins ein
klukkustund í dagskrá sjónvarps-
ins ætluð börnum sérstaklega.
Það er því oft beðið í ofvæni fyrir
framan sjónvarpsta'kin kl. 18 á
sunnudögum, því oft er þetta eini
dagskrárliðurinn, sem börnin fá
að horfa á a.m.k. þau, sem eru
komin i rúmið kl. 8. á kvöldin.
Mér brá því í brún s.l. sunnu-
dag, þegar 4 ára dóttir mín kom
þjótandi fram til min skelfingu
lostin. Við athugun kom i ljós, að
það sem skelfingunni olli var
barnatíminn svokalláði. Það er
erfitt að ímynda sér hvaða smekk-
ur réð, þegar myndin, sem þarna
var sýnd, var valin fyrir börn. Við
hin fullorðnu vitum að vísu að
Hrói Höttur er fræg saga, en lítil
börn láta það ekki ráða sínum
smekk. Eftir að hafa horft á stutt-
an kafla myndarinnar, þar sem
sýnt var hvernig menn voru
stungnir í gegn með sverði, skotn-
ir með örvum og barðir til óbóta,
fylltist ég vandlætingu. Hvernig
dirfast menn sem hafa þann
starfa að velja efni fyrir börn i
opinberum fjölmiðli að ryðjast
inn á heimili og troða inn á börn
okkar öðrum eins óþverra- og það
á þeim tíma þegar þeim er leyft
að horfa á sjónvarp í þeirri trú að
þau megi hafa af því einhverja
skemmtun?
Eiga foreldrar líka að þurfa að
„ritskoða" efni í dagskrá sérstak-
lega a'tlaðri börnum og ungling-
um? Að endingu: Skyldi dag-
skrárstjóri sjónvarps eða einhver
samábyrgðarmanna hans hafa set-
ið ráðstefnu um börn og fjöl-
miðla, sem haldin var í Norræna
húsinu fyrir skömmu. Ef svo, til
hvers?
Olöf Kinarsdóttir."
Að undanförnu hefur verið
ra'tt allmikið um sjónvarpsefni
hér i dálkunum, bæði barnaefni,
auglýsingar og annað, sem fólk
hefur eitthvað við að athuga eða
vill fá nánari skýringar á. Það
hefur svo oft verið tekið fram hér
að það þarf naumast nú, að for-
ráðamönnum sjónvarps er að
sjálfsögðu velkomið að koma á
framfa'ri sínum sjónarmiðum og
skýringum ef þeir óska þess. Það
koma alltaf upp öðru hverju
spurningar um hitt eða þetta
varðandi sjónvarpsefni sem fróð-
legt er að fá svar við.
Var þetta orðaleikur sem hann
var f við mig og ætlaði hann að
verðiauna mig ef ég dytti ofan á
réttu lausnina? Eða voru þetta
blekkingar og svik?
Þegar hliðinu var lokað á eftir
okkur sagði Vern:
— Mér þætti fróðlegt að vita,
hverjir eru haukarnir og hverjir
eru dúfurnar.
— Þetta eru eintómir haukar,
sagði ég með sannfæringarkrafti.
2. KAFLI
Þegar hann var á ferðalögum
bar það stundum við þegar hann
vaknaði að honum fannst hann
enn vera giftur. Aldrei gerði
þessi tilfinning þó vart við sig f
piparsveinafbúðinni hans f 56.
götu. I dag varð hann að byrja á
þvf að losa sig við Eloise úr Ifk-
ama sfnum.
Hann sté fram úr rúminu og
gekk út að glugganum. Blár
Texashiminninn var nákvæmlega
eins heiður og i gær. Oendanlegur
og hlýr.
Áður en hann gekk niður í mat-
sal hótelsins að snæða morgun-
verð tók hann umslag upp úr tösk-
unni og skrifaði utan á það til
sjálfs sfns á ritstjórnarskrifstof-
% Hvar á að
selja mjólkina?
Eins og flestum er kunnugt
á að gera breytingar á dreifingar-
kerfi mjólkur í höfuðborginni.
eða öllu heldur sölu hennar.
Menn hafa séð fyrir þá þróun að
mjólkurbúðir sem hafa verið í
eldri borgarhverfunum verða
lagðar niður og þá verður mun
erfiðara að ná i mjólk, ekki sízt
fyrir þá sem eru komnir af létt-
asta skeiði og hafa ef til vill ekki
bifreið til umráða. Ekki hefur
verið mikið um þessa mjólkurum-
ræðu hjá Velvakanda, en nýlega
barst honum bréf um þetta mál,
sem er reyndar það alstytzta sem
hann hefur séð:
„Til Velvakanda.
Ég skil ekki ailt þetta fjaðrafok
út af mjólkurmálinu. Því ekki að
leyfa sjoppunum að selja mjólk?
Amigo"
% Snorrabraut
— Laugavegur
Ökumaður nokkur vildi
vekja athygli á merkingu gatna,
sérstaklega á Snorrabraut við
Laugaveg: „Þegar maður ekur
suður Snorrabraut, milli Hverfis-
götu og Laugavegar eru þrjár ak-
reinar að velja um. Eina skal
velja ef maður hyggst aka niður
Laugaveg, en hinar tvær munu
vera ætlaðar til að komast áfram
suður Snorrabraut. Þegar ekið er
yfir gatnamótin við Laugaveg eru
þessar tva'r akreinar merktar
þannig að þær taka á sig sveig til
hægri, þannig að bíll sem er í
miðju-akreininni norðan við
Laugaveginn verður á þeirri ak-
rein sem er lengst til hægri sunn-
an við Laugaveginn. Með öðrum
orðum, menn þurfa að beygja ör-
lítið til ha'gri þegar þeir aka yfir
gatnamót Laugavegar og Snorra-
brautar til suðurs. Þetta kannast
sérhver ökumaður í Reykjavík
við. Hins vegar hefur það oft kom-
ið fyrir að menn átta sig ekki á
þessu, svo að bill sem er á áður-
nefndri miðju-akrein, fer yfir á
vinstri akrein sunnan við Lauga-
veginn og neyðir bíl sem kann að
vera þar fyrir að víkja til hliðar
og kannski beygja inn á Grettis-
götu til austurs. Þetta er mjög
bagalegt og mér finnst að þarna
þyrfti að merkja betur á einhvern
hátt, þvi að þetta er eitt dæmið
um algeran sofandahátt sumra
ökumanna og er mjög óþa'gilegt
fyrir ókunnuga.
Einnig mætti vekja á þessu at-
hýgli í fjölmiðlum með auglýsing-
um og myndum en ég vona að
menn hafi áttað sig á þessari lýs-
ingu."
Þetta voru orð ökumanns í
Reykjavík og vonandi átta menn
sig á þvi hvaða kafla hann er að
tala hér um. Það er sennilega rétt,
að það er full ásta'ða til að merkja
þetta betur á einhvern hátt.
HOGNI HREKKVÍSI
„... Hann hefur syndgaó!“.
Félagsheimili HREYFILS
í kvöld kl. 9—2. (gertgið inn frá Grensásvegi.)
Fjórir félagar leika
Aðgöngumiðar í sima 85520 eftir kl. 8.
E]E]E]E]E]E]G]G]E]G]E]E]B]E]E]E]G]G]B]E]Q1
EÖl
01
B1
B1
EÍ
E1
01
01
Pónik og Einar
Opið í kvöld frá kl. 9—2.
B. G. og Ingibjörg
skemmta annað kvöld
01
01
01
01
0Í
01
01
Aldurstakmark 20 ára. 01
l3|ia|ElElElElG|E|ElE|E|bilbi1E]ElElEli3Íi3|ElEl
OPIÐ I KVOLD
Hljómsveit
Gunnlaugs
Pálssonar
Matur framreiddur frá kl. 7.
Dansað til kl. 2.
Spariklæðnaður.
Strandgötu 1 Hafnarfirði. Sími 52502.
Listasafn íslands auglýsir:
FRÆÐSLUHÓPAR í LISTASÖGU
1. Myndlist á 20. öld. 2 hópar, 15. sept. — 1 5. okt.
Umsjónarmaður Ólafur Kvaran listfræðingur.
2. íslensk myndlist á 20. öld. 15. okt. — 1 5. nóv.
Umsjónarmaður Ólafur Kvaran.
3. Húsagerðarlist á 20. öld. 15. okt. —15. nóv.
Umsjónarmaður Hrafn Hallgrímsson arkitekt.
4. Höggmyndalist á 20. öld. 1 5. nóv. — 1 5. des.
Umsjónarmaður Júlíana Gottskálksdóttir
listfræðingur
5. Ný viðhorf í myndlist frá ca. 1960. 15.
nóv. —15. des.
Umsjónarmaður Ólafur Kvaran
Hver hópur mun hittast fjórum sinnum, tvo tima í hvert sinn. Fjöldi
þátttakenda í hverjum hópi verður 1 5—20 og þátttökugjald kr. 800.
Þátttaka I fræðsluhópana tilkynnist fyrir 1.
september, s. 10665, 10695.
Blaðburðarfólk óskast
í eftirtalin hverfi:
VESTURBÆR
Kaplaskjólsvegur, Nesvegur frá 40 — 82,
Víðimelur.
AUSTURBÆR
Freyjugata 28—49, Sjafnargata, Háahlíð,
Sóleyjargata, Laufásveg 58 — 79. Skipholt
1—50, Ingólfsstræti, Úthlíð, Lindargata.
ÚTHVERFI
Akrasel, Álfheimar 43 — Langholtsvegur
KÓPAVOGUR
Hlíðarvegur 1
Uppl. í síma 35408
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU