Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTOBER 1976 | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Lausar stöður Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæslustöð á Þingeyri og staða læknis við heilsugæslustöð á Þórshöfn. Umsóknir sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu eigi síðar en 27. október 1976. Heilbriadis- oq tryqgingamálaráðuneytið 29. september 1976. Starf í afgreiðslu Sjúkrasamlags Reykjavíkur er laust. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis- ins. Umsóknir með upplýsingum um skóla- göngu og fyrri störf sendist samlaginu fyrir 1 0. október. Sjúkrasamíag Reykjavíkur Karlmenn atvinna Karlmenn vantar til vinnu við frystihúsið. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsing- ar í síma 1 104, Hraðfrystihús Keflavíkur Hafnarfjörður vantar blaðbera í hverfi á Hvaleyrarholti. Afgreiðslan sími 50374. Atvinna Viljum ráða: 1. Rafvélavirkja. 2. Verkamenn í byggingarvinnu á Keflavíkurflugvelli. Fæði og húsnæði á staðnum. Umsóknareyðublöð liggja frammi í skrif- stofum vorum á Keflavíkurflugvelli og Lækjargötu 12, Iðnaðarbankahúsinu, Reykjavík. íslenzkir Aðalverktakar S. F. Verzlunarskóla- stúdent óskar eftir vel launaðri atvinnu. Uppl. í síma 25747. Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða nú þegar manneskju til skrifstofustarfa og símavörslu hálfan dag- inn. Verslunarskóla eða hliðstæð menntun æskileg. Upplýsingar um starfið gefur starfs- mannastjóri. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116 Reykjavík. Keflavík Blaðbera vantar í Vestúrbæ. Uppl. í síma 1 164. Blikksmiðir Óskum að ráða blikksmiði, járniðnaðar- menn eða laghenta menn til blikksmíða- vinnu. Uppl. hjá verkstjóra. Blikk og Stál h.f., Bíldshöfða 12. Sendill óskast á ritstjórn blaðsins. Vinnutími kl. 9 — 12. Afgreiðslu- og lagermaður Viljum ráða strax afgreiðslu og lager- mann. Framtíðarstarf. Nafn og heimilis- fang ásamt uppl. um fyrri störf leggist inn á augl.deild Mbl. merkt: Hafnarfjörður — 2185 ". | raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Styrkir til háskólanáms í Noregi. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fjóra styrki til háskólanáms í Noregi háskólaárið 1977 — 78. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut íslendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til níu mánaða námsdvalar. Styrkfjár- hæðin er 2.200.— n.kr. á mánuði, auk allt að 1.500.— n. kr. til nauðsynlegs ferðakostnaðar innan Noregs. Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu á norsku eða ensku og hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst. Æskilegt er að umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til: Utenriksdepartementet Kontoret for kulturelt samkvem meðd utlandet Stipendi eseksj onen N-Oslo-Dep., Norege, fyrir 1. apríl 197 7 og lætur sú stofnun í té frekari upplýsingar. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. Styrkir til að sækja þýskunámskeið f Sambandslýð- veldinu Þýskalandi Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjórn- völdum að boðnir séu fram nokkrir styrkir til handa íslenskum stúdentum til að sækja tveggja mánaða þýskunámskeið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi á vegum Goethe- stofnunarinnar á tímabilinu júní — október 1977. Styrkirnir taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda, auk 600 marka ferðastyrks. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 19 — 32 ára og hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. Þeir skulu hafa til að bera góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 15. nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. Styrkir til náms í Svíþjóð Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð námsárið 1 977—78. Styrkir þessir eru boðnir fram i mörgum löndum og eru einkum ætlaðir námsmönnum sem ekki eiga kost á fjárhagsaðstoð frá heimalandi sínu og ekki hyggjast setjast að i Sviþjóð að námi loknu. Styrkfjarhæðin er 1.555.— sænskar krónur á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði. Til greina kemur að styrkur verði veitt i allt að þrjú ár. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til Svenska institutet, Box 7072, s-103 82 Stockholm, Sverige, fyrir 1. desember n.k. og lætur sú stofnun i té tilskilin umsóknareyðu- blöð. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. Auglýsing um styrk úr rannsóknarsjóði IBM vegna reiknistofnunar Háskóla íslands Fyrirhugað er að fyrsta úthlutun úr sjóðnum fari fram i nóvember næstkomandi. Tilgangur sjóðsins er að veita fjárhagslegan stuðning til visindalegra rannsókna og menntunar á sviði gagnavinnslu með rafreiknum. Styrkinn má meðal annars veita. a. til greiðslu fyrir gagnavinnslu við Reiknistofnum Háskóla (slands. b. til framhaldsmenntunar í gagnavinnslu að loknu háskóla- prófi. c. til visindamanna, sem um skemmri tíma þurfa á starfsað- stoð að halda til að geta lokið ákveðnu rannsóknarverkefni. d. til útgáfu visindalegra verka og þýðinga þeirra á erlend mál. Frekari upplýsingar veitir ritari sjóðsins Jón Þór Þórhallsson í síma: 2 1 340. Umsóknir, merktar Rannsóknarsjóður IBM vegna Reiknistofnunar Háskóla íslands, skulu hafa borist fyrir 20. október, 1976 í pósthólf 1379, Reykjavík. Stjórn sjóðsins. Styrkir til íslenskra vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa í Sambandslýðveldinu Þýska- landi Þýska sendiráðið i Reykjavik hefur tjáð islenskum stjórnvöld- um að boðnir séu fram nokkrir styrkir handa islenskum vísindamönnum til námsdvalar og rannsóknastarfa í Sam- bandslýðveldinu Þýskalandi um alit að þriggja mánaða skeið á árinu 1977. Styrkirnir nema 1.000.— þýskum mörkum á mánuði hið lægsta. auk þess sem til greina kemur að greiddur verði ferðakostnaður að nokkru. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. Styrkir til háskólanáms í Sambands- lýðveldinu Þýzkalandi Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslelenskum stjórn- völdum að boðnir séu fram þrír styrkir handa íslenskum námsmönnum til háskólanáms í Sambandslýðveldinu Þýska- landi háskólaárið 1977 — 78. Styrkirnir nema 650 þýskum mörkum á mánuði hið lægsta auk 100 marka á námsmisseri til bókakaupa, en auk þess eru styrkþegar undanþegnir skólagjöldum og fá ferðakostnað greiddan að nokkru. Styrk- timabilið er 10 mánuðir frá 1. október 1977 að telja en framlenging kemur til greina að fullnægðum ákveðnum skil- yrðum. Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. Þeir skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 15. nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneyt- inu. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.