Morgunblaðið - 08.10.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÖBER 1976
11
Sigrfður Eyþórsdðttir
Námskeið
í leiklist
LEIKARARNIR Kjuregej
Alexandra og Sigrfður Eyþórs-
dóttir efna til námskeiðs í leik-
rænni tjáningu, sem hefst
þann 15. október. Er námskeið-
ið ætlað fólki á aldrinum 11 til
15 ára. Kenndur verður Iát-
bragðsleikur, spuni, leiktúlk-
un og andlitsförðun. Þær
Kjuregej og Sigríður eru báðar
starfandi leikarar hjá Leik-
félagi Hafnarfjarðar. Kjuregej
hefur kennt mikið leiklist,
meðal annars i Menntaskólan-,
um á Akureyri og hjá Sál í
Reykjavík, en Sigríður hefur
sett upp leikrit í skólum. Nám-
skeiðið stendur til 16. desem-
ber og verður kennt tvisvr í
riku, tvær stundir í einu á
Langholtsvegi 135.
Kjuregej Alexandra
Leiðarinn í fyrradag:
Leiðrétting
I leiðara Morgunblaðsins í
fyrradag, sem fjallaði um örbirgð
stórs hluta mannkyns, féllu nokk-
ur orð niður í tveimur málsgrein-
um sem hljóða áttu svo:
„Sú staðreynd, að fjármagns-
fyrirgreiðsla til hinna fátæku
þjóða hefur verið misnotuð, jafn-
vel til vígbúnaðar, réttlætir ekki
sök hinna rfku, sem halda að sér
hjálparhendi. Slfkt er hvorki rétt-
lætanlegt, siðrænt séð, né hyggi-
legt. Viðreisn hins vanþróaða
heims virðist beinlinis forsenda
þess, að framleiðni og hagvöxtur
hins tæknivædda hluta jarðar
geti verið með eðlilegum hætti.“
„Við höfum að vísu við okkar
eigin vandamál að glíma, heima-
tilbúin og innflutt. Við höfum t.d.
lifað um efni fram og safnað
þungbærum skuldum erlendis.
Hver starfsstétt þjóðfélagsins
virðist þó hafa hendur fullar af
kröfum á samfélagið. En réttlætir
eigið sjálfskaparvíti, sem góður
vilji getur afmáð á nokkrum miss-
erum, það, að við lokum augum
fyrir þvf alþjóðlega vandamáli,
sem örbirgð 1000 milljóna manna
er, og skyldum okkar sem full-
valda ríkis f alþjóðlegu samstarfi?
Ef svo er þá er gleymdur grunn-
urinn, sem hin fornu hreppalög
voru byggð á, að allir skuli tjón
bera ef bær brennur eða búsmali
fellur."
AUGLVSINGASÍMtNN ER: i'ri.
22480
JRorcimliInbiíi
Afmæliskveðja:
Ólafur Beinteins-
son 65 ára í dag
65 ár er ekki talinn ýkja hár
aldur f dag, én þó eru margir sem
náð hafa þeim dldri sem telja að
starfsævinni sé lokið og setjast í
helgan stein.
Ekki er þvf þó svo varið með
Ólaf Beinteinsson, sem er 65 ára í
dag. Hann er fæddur hér f
Reykjavík, nánar til tekið í húsi
því sem þá nefndist Aberdeen, en
er nú Vesturgata 3, hinn 8. októ-
ber 1911. Bernskuskónum sleit
hann hér f Reykjavík en á æsku-
árunum dvaldist hann hjá frænd-
fólki sínu á Hurðarbaki f Borgar-
firði, en við þá fögru sveit tók
hann strax miklu ástfóstri, sem
haldist hefir æ síðan. Frá ferm-
ingaraldri hefir Ólafur stundað
verzlunarstörf, byrjaði sem sendi-
sveinn hjá einu glæsilegasta
fyrirtæki landsins í þá daga,
Skóverzlun Lárusar G. Lúðvfks-
sonar. Síðan hefir leið hans á
sviði verzlunar verið honum
greiðfær, bæði við heildsölu- og
smásöluverzlun. Nú er hann
verzlunarstjóri í byggingarvöru-
deild Jóns Loftssonar h.f. Má full-
yrða að þar sé réttur maður á
réttum stað, því lipurð hans og
prúðmennska í starfi er sérstök.
En Ólafi er margt fleira til lista
lagt. Þar ber sönginn og hljómlist-
ina hæst. Þeir sem muna nokkuð
aftur f tfmann, muna að sjálf-
sögðu eftir þeim Ólafi og frænda
hans og fósturbróður, Sveinbirni
Þorsteinssyni frá Hurðarbaki, en
þeir ferðuðust um landið þvert og
endilangt f fjölda ára, og
skemmtu fólki með söng og gítar-
leik. Seinna kom svo Blástakka-
tríóið með Ólafi, Gunnari Ásgeirs-
syni (Volvo) og Sveini Björnssyni
(Saab). Þetta tríó var eitt vinsæl-
asta skemmtiatriði um allt land á
sínum tíma, og gerði m.a. Pálínu-
lagið landsfrægt. Svo kom Kling-
Klang kvintettinn með Ólaf í
broddi fylkingar og hjá karla-
kórnum „Kátir félagar“ Tryggva
Tryggvasyni og félögum var Ólaf-
ur vel liðtækur svo sem við má
búast. Ekki má geta þessa ferils
Ólafs svo að ekki sé minnst á
konu hans, Sigurveigu Hjaltested
óperusöngkonu. Komu þau víða
fram á skemmtunum hér áður
fyrr (og gera reyndar enn).
Þar sem góður fagnaður er, þá
er Ólafur reiðubúinn til að taka
lagið og leika á gítarinn sinn, öll-
um — jafnt ungum sem öldnum
— til mikillar ánægju. Það mun
hann væntanlega einnig gera f
dag, þegar hann heldur upp á 65
ára afmælisdag sinn með fjöl-
skyldu, ættingjum og vinum f
sumarhúsi þeirra hjóna að Fagra-
nesi við Vatnsenda.
Heill og hamingja fylgi þér og
fjölskyldu þinni, kæri frændi og
svili, um ókomin ár.
Þ.H.
AUGLÝSINGASÍMrNN ER:
^22480
J JRírounblnbiþ
>JAKKAR<