Morgunblaðið - 19.10.1976, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.10.1976, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976 MILEGT AD LfflGJA KEPffllSÉIA- BILIB OG SKIPIILEGGJA ÞAB BETH Ef skipulag knattspyrnu- móta á tslandi er tekið sem næsta mál á dagskrá, þá verð ég að segja f upphafi, að á sfðasta keppnistfmabiii var sú skipulagning ekki nógu góð, a.m.k. ekki hvað varðar 1. deildar keppnina, og sú staða kom upp að einstök lið komust í verri aðstöðu ein- faldiega af niðurröðun ieikja. Það er ákaflega nauð- syniegt að tækifæri iiða tii þess að búa sig undir leiki séu sem jöfnust. Nauðsynlegt er að skipu- Dr. Yuri skriíar AÐ ÞESSU sinni fjallar dr. Yuri Ilichev um tvo þætti knattspyrnumálanna. Annars vegar skipulag knattspyrnu- móta og aðstöðu liðanna sem leika I 1. deiid og hins vegar um fslenzka íþróttafréttamenn. Eins og I fyrri greinum dr. Yuri kemur margt athyglisvert fram I skrifum hans. Eftir er þá ein grein hans, og fjallar hún um fslenzka knattspyrnu- landsliðið, val þess, undirbún- ing og fl. leggja keppnina frá upphafi, og taka þá tiliit til leikja og æfinga fslenzka landsliðsins. Það þarf að gera ráð fyrir ákveðnum dögum til þessara æfinga og leikja, og eins þarf að vera svigrúm til þess að geta skotið inn leikjum sem fresta verður af einhverjum orsökum, og eins er jafntefli verður í leikjum í bikar- keppninni. Ég tel, að unnt væri að hafa keppnistímabilið hér nokkru lengra, og hafa leiki í september. Slíkt myndi gefa knattspyrnumönn- unum enn frekari tækifæri til þess að þroska hæfileika sina, auk þess sem slíkt ætti að vera mjög mikil- vægt fyrur þau lið sem taka þátt í Evrópubikarkeppninni í knatt- spyrnu. Dæmin liggja alla vega fyr- ir. Var mögulegt fyrir Fram, Akranes og Kefiavík að undirbúa sig alvarlega fyrir leiki sína við hina erlendu andstæðinga, þar sem keppnistímabilinu var lokið í ágúst? Þegar mikilvægir leikir eru undir- búnir er nauðsynlegt að liðin fái tækifæri til þess að spreyta sig í alvöruleikjum með ákveðnu milli- bili. Ég tel nær fullvíst að ákaflega slakur leikur Fram gegn Slovan Bratislava hafi m.a. átt rætur að rekja til þess að Fram hafði ekki leikið áríðandi Ieik í meira en tvær vikur. Til þess að knattspyrnumenn- irnir haldi forminu og haldi áfram að auka við sig, þurfa þeir að vera stöðugt í keppni. Það eru margar leiðir til þess að lengja keppnistímabilið hérlendis, og ég vona að KSÍ og viðkomandi aðilar aðrir taki þau mál til alvar- legrar íhugunar. Ég tel t.d. að það væri jákvætt að fjölga liðunum í 1. deild, þannig að þau yrðu 10, og jafnvel enn fleiri, 12—14. Það þarf að breyta landafræði íslenzkrar knattspyrnu. Lið frá öðrum sveitar- félögum og bæjum en nú eru á oddinum þurfa að fá tækifæri til þess að komast í 1. deildar keppnina. Auðvitað er erfitt að koms sltku við núna, fyrst og fremst vegna skorts á sæmilegum grasvöll- um, og eins vegna þess að knatt- spyrnumenn á þessum stöðum eru ef til vill ekki nógu góðir. En ég tel að samt sem áður beri að stefna að þessu, og það væri hlekkur í því ða þróa íslenzka knattspyrnu í heild. Möguleiki á 1. deildar sæti myndi vekja mikinn áhuga, og ef til vill stuðla að því að flýtt yrði gerð gras- valla á viðkomandi stöðum. Og lík- legt verður að teljast að tekjumögu- leikar knattspyrnuliðanna myndu aukast með fjölgun liða. Þá tel ég nauðsynlegt að launa liðunum á einhvern hátt árangur þeirra. Fyrsta skrefið í þá átt gæti verið að breyta tekjuskiptingunni t.d. þannig að liðið sem sigraði fengi 60% af tekjum leiksins, en það sem tapaði 40%. Ég held að þetta eitt úr af fyrir sig gæti orðið félögunum hvatning til þess að leggja á sig meiri vinnu við æfingar og einnig væri Ifklegt að knattspyrnumenn- irnir legðu sig enn betur fram. Ég tel einnig, að það ætti fyrir löngu að vera búið að koma á verð- launum til þess liðs sem skoraði flest mörk í íslandsmótinu. Knatt- spyrna þar sem skoruð eru mörg mörk dregur til sín áhorfendur og veitir þeim ánægju, og ef marka- skorun væri verðlaunuð myndi það áreiðanlega vekja áhuga knatt- spyrnumannanna og þjálfaranna til þess að finna leiðir til þess að bæta um betur hjá sér á þessu sviði. Valsmenn skoruðu 45 mörk í 1. deildar keppninni í ár og settu þar með nýtt markamet. Þeir fengu enga viðurkenningu fyrir þetta. Ell- ert B. Schram, formaður Knatt- spyrnusambandsins, sagði reyndar í einkasamtölum við mig, að hann hefði ákveðið að veita Val sérstök verðlaun fyrir að hafa komið á meiri sóknarleik í íslenzku knatt- spyrnunni, og ég vona auðvitað að hann efni það loforð. Það mætti líka gjarnan veita verð- laun fyrir aðra þætti, t.d. þeim lið- um sem vinna andstæðinga sina með meira en 3 marka mun, eða þá þau lið sem standa sig bezt í leikjum sínum við erlenda andstæðinga. Já, og einnig mætti veita verðlaun til þeirra liða sem ná að vinna upp markamun andstæðinganna, og sigra að lokum. Allt slíkt hvetti leik- menn til þess að standa sig betur og yki áhuga þeirra, þjálfara þeirra og áhorfenda. Verðlaunin þyrftu ekki að koma endilega frá KSl eða knatt- spyrnuhreyfingunni, heldur alveg eins frá utnaaðkomandi aðilum. eins og t.d. fjölmiðlunum. Mynd þessi er úr leik Keflvfkinga og þýzka liðsins Hamburger SV í Evrópukeppni víkingar stóðu sig mjög vel í þeim leik og gerðu jafntefli 1:1. Dr. Yuri bendir á það í greii fslenzkra liða í Evrópukeppninni sé ekki sem skyldi m.a. vegna þess að þau hafa ekki na verkefni fyrir leiki þessa. íþróttafréttameiin þnrfa að skyggnast tíýpra í NU langar mig til þess að segja nokkur orð um íþróttafréttamenn, þótt ég verði að játa að ég sé svolítið hræddur við það, því ég veit að ef ég hleyp á mig fæ ég gagnrýnina til baka sjálfur. Mér finnst það ákaflega ánægju- legt þegar íþróttafréttamenn sýna knattspyrnunni áhuga og skrifa langar eða stuttar greinar um knatt- spyrnuna, en mér þykir leiðinlegt að geta ekki lesið þær. Oft hlaupa vinir mínir undir bagga með mér og þýða fyrir mig það sem skrifað hefur verið, en það er eigi að síður aldrei það sama og að geta sjálfur lesið það sem skrifað stendur. Ekki er unnt að gagnrýna íþrótta- fréttamenn fyrir þá umfjöllun sína á leikjum að lýsa því nákvæmlega hvernig leikurinn fór fram og hvað gerðist á þessari mínútu eða hinni, hvenær mark var gert og hver gerði það. En slík skrif tel ég ekki mikils- verð. Iþróttafréttamenn mega ekki gleyma því að það er ekki bara knattspyrnuáhugafólk sem les greinar þeirra, heldur einnig og ekki síður knattspyrnumennirnir sjálfir og þjálfarar þeirra og þeir hafa eðlilega miklu meiri áhuga á að heyra álit fréttamannsins á liðinu og leikaðferðum þess, t.d. hvernig heppnaðist því að útfæra leikkerfi sín, hvað gerði það til þess að stöðva leikkerfi hins liðsins og verjast sóknum þess? Af hverju vann annað liðið, en hitt tapaði? Hvað gerðu knattspyrnumennirnir vel, og hvað misheppnaðist þeim? Það er ósjaldan sem lesa má í dagblöðunum setningar á borð við: „Liðið var óheppið," „liðið hafði ekki heppnina með sér“, eða þá öfugt: „Liðið vann eingöngu vegna heppni." Ég heyri þetta líka ákaf- lega oft enduróma hjá áhorfendum sem taka það upp sem blaða- mennirnir segja. En er þetta rétt? Ég tel að ákaflega oft verði notkun þessara setninga til þess að knatt- spyrnumennirnir sjálfir og áhorfendur fái ekki réttar upp- lýsingar um leikinn, og þetta getur beinlínis verið óheppilegt fyrir leik- mennina. Ég vil hér nefna ákveðið dæmi, leik Vals og Keflavíkur í sumar. Eftir þann leik var skrifað að við hefðum verið betri, en ekki haft heppnina með okkur. F.n þá var það spurningin, sem ekki var svarað: Hver átti sök á þessari óheppni? Gat ekki verið að við ættum sökina sjálfir? Staðreyndin er sú, að við bjuggum okkur ekki nógu vel undir þennan leik. Héldum að það væri létt að vinna hann og notuðum ekki ágæt marktækifæri sem við fengum í leiknum. Þar var við okkur eina að sakast. I seinni hálfleik leiks þessa fórum við svo að nota langar sendingar og háloftaknattspyrnu sem auðvitað hjálpaði Keflavikur- liðinu til að verjast. Leikmenn Vals reyndu að skora eins fljótt og mögu- legt var, en hugsuðu aldrei um hvaða leiðir væru beztar til þess. Þessi leikur var þvi glöggt dæmi um það þegar menn mæta illa undir- búnir til leiks, og gera sig seka um aragrúa af villum. Ef íþróttafréttamenn færu dýpra í svona hluti og skrifuðu meira um slíkar og þvílíkar villur leikmanna, liða og þjálfara, gerðu þeir knatt- spyrnumönnunum mikið gagn, og hjálpuðu þeim til þess að bæta sig og koma í veg fyrir að sagan endur- tæki sig. Yfirleitt tel ég að íslenzkir íþróttafréttamenn séu jákvæðir í skrifum sinum, en þó hendir það þá, að þeir hrósa einu liði of mikið á kostnað hins. Samt sem áður gat leikur liðanna í sjálfu sér verið mjög líkur. Það er ekki aðalatriðið að annað liðið hélt knettinum lengur en hitt, ef hitt liðið lék rétta vörn, en fréttamennirnir skrifa oft- ast að það lið sem var meira með knöttinn hafi verið áberandi sterk- ara. Það lið sem er að leika sér með knöttinn, en skilar siðan ekki árangri, á ekki hrós skilið, heldur miklu fremur skammir. Þá fjalla blöðin yfirleitt mun meira um sóknarleik Iiðanna en varnarleikinn. Það segir sig sjálft, að ef leikmaður skorar mark í leik, þá er það í minnum haft, en velheppnaðri vörn, þar sem bak- verðir og miðsvæðismenn geta stöðvað sóknir andstæðinganna og varizt öllum áhlaupum þeirra, er oft lítill gaumur gefinn. Varnarleik- mennirnir eru ekki síður mikilvæg- ir fyrir lið sitt en þeir sem skora mörkin, og því má heldur ekki gleyma að þeir sem skora hafa vinnu alls liðsins á bak við sig i flestum tilfellum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.