Morgunblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÖVEMBER 1976
29
— Gandhi
Framhald af bls. 13.
af Congressflokknum (sem i æ rikari
mæli hagar sér eins og eini stjórnmála-
flokkurinn i landinu) og moskvulinu
Kommúnistaflokks Indlands
Talsmenn hófsamra annars vegar og
öfgahægriflokka hins vegar, sátu hjá í
umræðum um breytingarnar. Þeir tóku
höndum saman gegn sameiginlegum
fjanda að þessu sinni, án þess þó að
gleyma eitt andartak, grundvallar-
ágreiningsatriðum né þeirri staðreynd,
að áhrif þeirra á þinginu skipta sára-
litlu Mótmæli þeirra, svo og mótmæli
300 menntamanna (sem Indira
Gandhi hefur aldrei litið hýru auga)
kunna að hafa táknrænt gildi, sem þó
verður aldrei nema fræðilegs eðlis Þvi
þurfti stjórnarandstaðan og sjálfstæðir
andstæðingar að gefa út opinbera yfir-
lýsingu, þar sem takmörkun frelsis var
fordæmd
Vel kann að vera, að Indira Gandhi
vilji að sú skoðun verði á kreiki, að
indversk alþjóð hafi tekið þátt i umræð-
um varðandi stjórnarskrárbreytingarn-
ar. Hún sæi sér hag I að vera án
stuðnings kommúnistaflokksins, stefna
fenwood
ufugleyP'r
Sérstaklega auðveldir .
Tvær gerun
uppsetningu
Sími 21240
Laugavegi
hans byggist fyrst og fremst á alþjóð-
legum forsendum.
Indira Gandhi hefur sniðið sér
stjórnarskrá eftir sínu eigin máli og
treyst stöðu sína. Nú er það hennar að
sýna fram á, að hún vinni raunverulega
að „félagslegri og efnahagslegri bylt-
ingu”, sem muni frelsa þegna Indlands
undan „oki fátæktar og vanþekkingar".
Geri hún það, mun hún standa með
pálmannn í höndunum (Þó virðist erf-
itt að sjá fram á að það muni takast,
þar eð stjórnin verður að nýta sömu
stjórnmálalegu og félagslegu öflin og
áður). En það er vanþakklátara og
hættulegra verkefni að leysa bændurna
undan oki sinu, og endurbæta land-
búnaðinn heldur en gera breytingar á
stjórnarskránni.
Það virðist ekki úr vegi að velta því
fyrir sér, hver muni taka við völdunum,
og hvernig. Skyldi núverandi forsætis-
ráðherra þurfa að hverfa frá? Forystu-
menn Congress-flokksins eru að missa
fótanna. Herinn hefur ævinlega haldið
sig fyrir utan stjórnmál Elzti sonur
Indiru Gandhi þá? Hann hagar sér
vissulega eins og erfðaprins, en hrað-
flug hans á toppinn, einhliða skoðanir
og sú leiðtogarulla, sem hann hefur
tekið að sér innan Sambands ungra
Congressmanna, allt hefur þetta skap-
að honum miklar óvinsældir.
Athugasemd
frá SS
I MORGUNBLAÐINU 1 gær var
haft eftir formanni Stéttarsam-
bands bænda að varðandi greiðsl-
ur til bænda fyrir gærufram-
leiðslu 1975 sé algjörlega við
Samband fslenzkra samvinnufé-
laga og Sláturfélag Suðurlands að
sakast sem söluaðila á gærum.
Vegna þessa óskar Sláturfélag
Suðurlands að taka fram að Sút-
unarverksmiðja þess greiddi fé-
laginu til jafnaðar krónur 265.00
fyrir hvert kfló og Sláturféllagið
seldi Sútunarverksmiðjunni á
Sauðárkróki 25.000 gærur fyrir
meðalverð krónur 255 pr. kr, frftt
á bfl f Reykjavfk.
Meðalverð sem Sláturfélagið
hefur fengið fyrir útfluttar gærur
af framleiðslu ársins 1975 er hins
vegar krónur 237.29 án útflutn-
ingsbóta, en SS hefur ekki enn
fengið greiddar útflutningsbætur
á gæruframleiðsluna 1975 og með-
an allsherjaruppgjöri útflutn-
ingabóta á sauðfjárafurðafram-
leiðsluna 1975 er ekki lokið telur
félagið ógerlegt að ljúka fullnað-
aruppgjöri til bænda vegna þess-
arar framieiðslu.
— Angóla
Framhald af bls. 19
Flóttamenn sögðu fréttamönn-
um að stjórnarhermenn hefðu
brennt akra og búpening á miklu
svæði í suðurhluta landsins. Um
3000 flóttamenn, aðallega konur
og börn, hafa farið yfir landa-
mærin til Namibiu og er tala
flóttamanna þar þvi komin i 8000.
Sögðu þeir að kúbanskir hermenn
reyndu að koma I veg fyrir flótta
með þvi að skjóta á fólk sem
reyndi að komast yfir landamær-
in. Væru líkin sett i fjöldagröf
skammt frá.
SHEAFFER EATON
SheoHer Eaton division oi Ten'ron Ine.
TEXTRON
Hvíti depillinn merkir
adþetta sé dýrSheaffer,
en verdmidinn
vekur undrun.
Ef madur sér og handleikur
Sheaffer panna fer manni ad langa í
hann, en hann virdist þó í dýrara lagi.
Sú stadreynd, ad hann er mikid til
handunninn gerir þad óhjókvœmilegt.
Nú hefur tekist ad framleida
sérstakt sett þar sem erTriumph
kúlupennfnn, lindarpenninn og
blýanturinn. Frógangur allur er hinn
fegursti.
þótt verdid sé ótrúlega lógt er
Triumph nógu gódur til ad hljóta
merkingu medhinum vídfrœga hvíta
depli Sheaffer.
Hann ertókn bestu skriftœkja í heimi.
Eitt viljum vid bidja ykkur um og
þad er ad geta gódfúslega ekki um
verdid þegar þid veljidTriumph til gjafa.
Hvers veqna œtti t •
ad ijosta upp Tnumph
leyndormóli? þy ShedffeT.
Sheaffer information: 25.155.
RÚSSARNIR K0MNIR
VALUR-MAI, M0SKVA
LAUGARDALSHÖLL Á M0RGUN KL. 15
H a u stha p pd rætti
Sjálfstæðisflokksins
Dregið á morgun
Afgreiðslan í Sjálfstæðishúsinu,
Bolholti 7 er opin í dag til kl. 23.
Sími 82900.
Greiðsla sótt heim, ef óskað er.